Tíminn - 16.11.1973, Blaðsíða 21

Tíminn - 16.11.1973, Blaðsíða 21
Föstudagur 16. nóvember 1973. TÍMINN 21 „Ferlega eru þeir vitlausir Dómarar skemmdu leik Vals og ÍR I „FERLEGA eru þeir vitlausir"....sagði ólafur Jónsson, lands- liðsmaður úr Val, þeg- ar hann hljóp fram hjá varamannabekk Vals- liðsins i leiknum gegn iR. Hann átti þar við dómara leiksins, en þeir dæmdu vitakast á ÍR-Iiðið, þegar ólafur skaut framhjá i R- markinu af linu. Hann var einn og óvaldaður á línunni og enginn kom við hann. En samt dæmdu dómarar leiks- ins, þeir óli ólsen og Björn Kristjánsson, tafarlaust vitakast. Ekki það eina, sem þeir hreinlega gáfu Valsmönnum í leikn- um. Dómgæzlan i leik Vals og tR var fyrir neðan ailar hell- ur, dómararnir hreinlega skemmdu leikinn, með alls konar dómum, sem bæði leikmenn Vals og 1R urðu undrandi yfir. Kórónan á lé- legri dómgæzlu varð þó þeg- ar leiknum var lokið, þá sló Björn Kristjánsson til Geirs Thorsteinssonar, markvarð- ar IR, þegar hann sagði: „Þetta var ekki nógu gott hjá þér, Bjössi minn” og Björn yfirgaf salinn, um leið og hann reyndi að kasta knetti i einn blaðamann. Frekar léleg framkoma það. — SOS. Gísli Blöndal að komast í sitt gamla form GÍSLI Blöndal er aö kom- ast í sitt gamla form, það sást greinilega i leik is- landsmeistara Vals gegn iR á miðvikudagskvöldið. Hann er nú orðinn hreyf- anlegur og ógnandi leik- maður, sem gerði mikinn usla í iR-vörninni og hann var aðalmaðurinn á bak við góðan sigur íslands- meistaranna 22:17. Þótt Gisli hafi átt góðan leik, þá var leikurinn ekki skemmtilegur á að horfa og áttu dómararnir sinn þátt í þvi að gera hann leiðinlegan. Þeir dæmdu hann stundum mjög furðu- lega og það var eins og þeir gerðu í því að svekkja leik- mennina. Leikurinn var mjög jafn til að byrja með og skiptust þá liðin á að skora. Mesta athygli i byrjun, vakti ÍR-risinn Agúst Svavars- son, en halin skoraði fimm fyrstu mörk IR-liðsins, sum mjög glæsi- leg. Staðan var 13:11 fyrir Val i hálfleik. I siðari hálfleik var leikurinn nokkuð jafn til að byrja með, en þegar á hann leið fóru leikmenn IRTiðsins að láta lélega dómara hafa áhrif á sig og fór þá allt að ganga á afturfótunum hjá IR. Þegar staðan var 16:14 tók Gisli Blöndal sig til og skoraði þrjú mörk i röð og lagaði stöðu Vals i 19:14. Stuttu siðar bætti hann við öðru marki (þriðja mark hans i röð úr vitaköstum) og var staðan þá orðin 20:15 og öruggur sigur Valsliðsins var þá kominn i höfn. Leiknum lauk 22:17 fyrir Val. Gisli Blöndal skoraði flest mörk Vals i leiknum, eða 8 (3 viti), Ólafur 4. Hermann 3 (3 viti), Bergur og Agúst tvö hvor, Stefán, Jón K. og Gunnsteinn, eitt hver. Agúst Svavarsson skoraði átta mörk fyrir IR i leiknum, sjö með langskotum og eitt með gegnum- broti. Aðrir sem skoruðu, voru: Gunnlaugur, Guðjón og Ásgeir, tvö hver, Ólafur, Hörður H. og Vilhjálmur, eitt hver. — SOS. Ólafur frá í 2-3 vikur AAeiddist illa í leiknum gegn ÍR ÓLAFUR Jónsson, landsliðsmaðurinn snjalli úr Val, meiddist illa á fæti i leiknum gegn ÍR. Hann meiddist strax i byrjun leiksins, og er talið að hann hafi slitið vöðva, eða að það hafi blætt inn á vöðva i leggnum á vinstra fæti. Ólafur verður að öllum likindum frá hand- knattleik í 2-3 vikur. Hann mun þvi ekki leika með islenzka liðinu gegn Svium siðar i þess- um mánuði. Það var nokkurt kæruleysi hjá þjálfurum Vals að láta Ólaf fara aftur inn á i leiknum, þvi að honum versnaöi mikið þegar fór að liða á leikinn, og undir lokin gafst hann upp og haltraði út af leikvelli. 1 | 1 1 Hann gerði mikinn usla í ÍR-vörninni, þegar Valsmenn unnu ÍR með fimm marka mun 22:17 AGOST SVAVAUSSON.....sést hér stökkva upp og skora I leiknum gegn Val. Ilann skoraði átla mörk I leiknum, sjö með langskotum og eitt með gegnumbroti. (Tlinamynd Róbert) „Billiard" Tekst Finnboga að verja íslands- meistaratitilinn? i ÍSLANDSMEISTARA- MÓTIÐ í knattborðs- leik „Billiard" fer fram n.k. sunnudag i knattborðsstofunni að Klapparstig 26. Keppt verður í meistara- flokki og keppa allir sterkustu „Billiard"- leikarar landsins í „snóker". Það má bú- ast við að keppnin verði hörð eins og und- anfarin ár, og einnig má búast við óvæntum úrslitum. Núverandi íslandsmeistari í „snóker" Finnbogi Guðmannsson, er tal- inn líklegur sigurveg- ari. Þó má búast við að nokkrir keppendur veiti honum harða keppni og má nefna nokkur nöfn i þvi sambandi. Þar er efstur á blaði lslands- meistarinn i „krambúl” Svavar Jóhannesson, aðrir liklegir eru: Agúst Agústs- son, Óskar Friðþjófsson, Gunnar Hjartarson og Jó- hannes Magnússon. Allir þessir spilarar, eru fyrrver- andi Islandsmeistarar — SOS. FINNBOGI GUDMANNSSON...........sést hér munda „kjuðann” I tslandsmótinu i fyrra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.