Tíminn - 15.02.1975, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Laugardagur 15. febrúar 1975
Laugardagur 15. febrúar 1975
Vat sberinn: (20. jan. - 18. febr)
Það getur vel verið, að það sé ráðlegt að
skemmta sér núna, en það er skelfing hætt við
þvi, að það komi niður á pyngjunni. Það er alls
, ekkert óliklegt, að vinur þinn komi með
jN sérkennilega uppástungu. Tónlist skiptir máli.
Fiskarnir: (19. febr. - 20. marz)
Þú skalt bara sletta úr klaufunum. Það er ein-
hver hrifinn um þessar mundir, og það er engin
ástæða til að gera litið úr sjálfum sér i augum
viðkomandi. Hitt er annað mál, að kvöldið gæti
orðið einum of mikið af svo góðu.
Hrúturinn: (21. marz — 19. april)
Þú skaltbara njóta þess að aka út fyrir bæinn og
athuga fallega staði. Það er aldrei að vita, nema
þú finnir verðmæti i gömlum og að þvi er virðist
úlsiitnum hlutum. Vertu hress i skapi, og
reyndu að láta gott af þér leiða.
Nautið: (20. april - 20. mai)
Það er ekkert óliklegt, að vinur þinn eða félagi
þurfi á fjárhagslegri aðstoð að halda. Varðandi
persónuleg fjármál er samt vissast að fara af-
skaplega varlega. Það er alls ekki nóg i þeim
efnum að hugsa bara um líðandi stund.
Tviburamerkið: (21. mai - 20. júní)
Þetta getur vel orðið skemmtilegur og upplifg-
andi dagur, sérstaklega hvað varðar heilsufar
og einkalif. Þú gætir komizt i þannig aðstöðu, að
háttprýði sé ekki aðeins viðeigandi, heldur blátt
áfram bráðnauðsynleg.
Krabbinn: (21. júni - 22. júli)
Þú skalt fara varlega i dag. Það geta orðið
freistingará vegi þinum, gömul hrösun kynni að
endurtaka sig, og einhvers konar ótrúmennska
stinga upp kollinum. En mundu það, að gróf
óvarkámi verður ekki fyrirgefin.
Ljónið: (23. júli - 23. ágúst)
Þú skalt finna þér góðan stað til þess að hugsa.
Það getur vel verið, að þú fyrirhittir skemmti-
legt og kátt fólk i dag, en það eru harla litlar
likur til þess, að það sé áreiðanlegt. Taktu það
bara ekki alvarlega.
Jómfrúin: 23. ágúst - 22. sept.)
Einhver ósk þin gæti reynzt furðuleg og jafnvel
óraunhæf. Þú skalt vera sveigjanlegur f dag,
aðgæta þarfir eða þrár foreldra eða leiðtoga i
þinum hópi. Hugmyndir maka um skemmtanir
hæfa kannski ekki skapferlinu i dag.
Vogin: (23. sept. - 22. okt.)
Það er eitthvað alveg sérstakt, sem bfður þín á
mannamótum i dag. Það er rétt eins og þú sér
afksaplega næmur fyrir útiveru og mikilfengleik
náttúrunnar i dag. Ættingjar gætu hæglega
„dottið inn” á matmálstima.
Sporðdrekinn: (23. okt. - 21. nóv.)
Það er harla liklegt, að þú finnir fyrir þvi i dag,
aö einhvern langar i hrós, og þú ættir bara að
láta það eftir viðkomandi að veita það. Þú mátt
alls ekki láta deilur útaf fjármálum skemma
jafnvel eyðileggja daginn.
Bogmaðurinn: (22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt ekki beina huganum neitt inn á þær
brautir, sem horfa I átt til breytinga, allra sizt ef
þær eru byggðar á einhverskonar skyndihug-
dettum. Og þú skalt halda i hemilinn á maka
þinum, en langar I eitthvað hégómlegt!
Steingeitin: (22. des. - 19. jan.)
Það er harla liklegt, að þú verðir fyrir vonbrigð-
um með heimsóknir þinar til vina eða kunningja.
Það er eitthvað, sem er þér óhagstætt núna. En
það skaltu hafa i huga, að þú kemst alls ekki hjá
nauðsynlegum verkum.
Háseta vantar
á mjög góðan netabát frá Keflavik.
Upplýsingar i sima 92-2639.
»» Auglýsid iTimamun
Að undanförnu hefur talsvert
þras orðið út af sjónvarpsgjöld-
um Austfirðinga, sem telja
margir hverjir ofrausn að borga
slitrótta dagskrá fullu verði.
Það eru ef til vill þessar umræð-
ur, sem beint hafa athygli fólks
aö öðrum þáttum, sem sjón-
varpið varða. Að minnsta kosti
hafa Landfara borizt tvö bréf
um það efni.
Annað þessara bréfa birtum
við ekki, þvi að höfundi hefur
láðst að láta nafn sitt fylgja, auk
þess sem hann er nokkuð svæs-
inn I orðum. Ekkert er þvi til
fyrirstöðu, að hinu verði komið
á framfæri.
Óþarfur vaður
af fólki
Þessum bréfritara, sem vill
láta kalla sig Borgfirðing, finnst
sjónvarpið tefla fram of mörgu
fólki við fréttalestur og kynn-
ingu. Hann segir:
„Þegar kreppa riður yfir
landið, þarf að taka upp sparn-
að. Nú skilst mér, að sjónvarp
og útvarp eigi við fjárhags-
örðugleika að striða, og það er
enn frekari hvöt til þess að fara
haganlega með fjármuni. Þess
vegna dettur mér i hug, hvort
nokkur nauðsyn beri til að hafa
fólk I kvöldvinnu við að lesa
kynningar, er sem bezt getur
nægt að bregða upp á sjálfum
skjánum. Eins finnst mér, að
kvöldfréttir sjónvarps séu ekki
viðameiri en svo, að einn maður
nægði til þess að lesa þær.
Þessum linum langar mig að
biðja Landfara að koma á fram-
færi. Ég hef heyrt, að ýmsir eru
mér sammála um þetta tvennt.
Séu einhver vandkvæði á þvi að
breyta hér til, væri gaman að
heyra þau rök, er að þvi hníga”.
Víti til að varast
Guðmundur P. Valgeirsson i
Bæ I Trékyllisvik skrifar Land-
fara á þessa leið:
„1 Viðavangsþætti Timans
þann 5. febrúar, undir fyrir-
sögninni: „Lúðvik samur við
sig”, er rætt um framkomu
Lúðviks Jósefssonar, ábyrgðar-
leysi hans og annarra Alþýðu-
bandalagsmanna gagnvart
þeim efnahagsvanda, sem þjóð-
in á nú við að striða. — Greinar-
höfundur dregur fram þá álykt-
un, að þetta sé gert i von um
aukið fylgi, en klykkir út með
þeirri fullyrðingu, að: „Sú von
þeirra rætist örugglega
(leturbr. GPV) ekki”.
Er það nú alveg vist, sem
greinarhöfundur segir þar um
þetta? — Heilbrigð dómgreind
manns ályktar eðlilega þannig.
— En við höfum nærtækt dæmi
um þetta, sem við skulum ekki
gleyma.
öllum mætti enn vera i fersku
minni, það sem gerðist á s.l.
vetri og vori. Ólafur Jóhannes-
son, þáverandi forsætisráð-
herra, bar fram tillögur til
varnar gegn þvi efnahagsöng-
þveiti, sem þá var fyrirsjáan-
legt og nú er orðið rikjandi og
viðurkennt af nær öllum, og
flutti frumvarp um það. Engir
gátu sýnt ábyrgðarlausari
framkomu en Sjálfstæðismenn
og „aftaniossar” þeirra, Hanni-
bal, Gylfi og Karvel Pálmason,
sýndu þá. Ábyrgðarleysi þeirra
og beint stjórnmálalegt
skemmdarstarf blasti hreint og
klárt við augum hvers manns,
sem nokkra dómgreind hafði til
að bera. Samt fór það svo, að
Sjálfstæðisflokkurinn stórjók
fylgi sitt i þeim kosningum, sem
upp af þvi spruttu. Og Karvel
skreið inn á þing, þrátt fyrir
ráðleysi sitt . og hringlanda-
hátt, sem gerði hann að athlægi
heilbrigt hugsandi manna.
Þvi miður ekki vist
Við sklum þvi fara varlega i
að slá þvi föstu, að menn og
flokkar geti ekki unnið stundar-
fylgi á ábyrgðarlausum mál-
flutningi og framkomu i þýð-
ingarmiklum málum. Kosn-
ingaúrslitin á s.l. vori, hér á
Vestfjörðum, og landinu í heild,
benda ótrirætt til þess, að með
ábyrgðarlausri afstöðu til mála
sé auðvelt að vefja „héðni” að
höfði manna, svo að þeir tapi
dómgreind sjnni. Það er viðar
gleypt við „Glistrupum” en i
Danmörku einni.
En það er fremur lágkúrulegt
af Lúðvík og Magnúsi Kjartans-
syni að ana nú út i það kviksyndi
ábyrgðarleysis, sem þeir sjálfir
álösuðu þá, og álasa enn, Sjálf-
stæðismönnum fyrir að hafa
haft I frammi á örlagatimum i
Islenzkum efnahagsmálum. Það
er ekki stórmannlegt af þeim að
gera sér leik að því að draga
fylgismenn sina niður i slikt
svað ábyrgðarleysis, sér til
ávinnings, þó aldrei nema dæm-
in sanni, að það sé hægt. Gæti
jafnvel farið svo, að „skamma
stund yrði hönd höggi fegin”.
Afhyglisverð
erindi og fög-
ur tónlist
Heyleysi á Heið-
mörk í Noregi
hvern sunnudag kl. 5 i
Aðventkirkjunni, Ing-
ólfsstræti 19.
Sunnudaginn 16. febrú-
ar flytur Steindór
Þórðarson erindi, sem
nef nist: Hvernig get ég
öðlast fullvissu um ei-
lift líf?
Komið og hlýðið á full-
nægjandi svar.
AAikill söngur og tónlist
í umsjá Arna Hólm.
Á Heiðmörk, þar sem fyrrum var
riki Hræreks konungs, eru bænd-
ur komnir i úlfakreppu vegna
heyleysis. Orsökin ætti að láta
mönnum kunnuglega i eyrum á
islandi: Afleit heyskapartið i
fynasumar.
1 þeim sveitum, þar sem hey-
leysið þjarmar mest að mönnum,
eru mörg þúsund mjólkurkýr, og
er við búið, að einhverju af bú-
stofninum verði að lóga. Hjá þvi
vilja menn þó komast I lengstu
lög. Reynt er að bjargast eftir
getu við fóðurbæti og kartöflur
með sem minnstu afheyi.
Hey er torfengið á þessum
slóöum, og selst nú hvert kiló-
gramm á eina krónu norska, en á
dönskum hálmi, sem stendur til
boða, er verðið komið upp i þrjár
eða fjórar norskar krónur hver
fóðureining.
VIIUÍiVI
ÞAÐ ER I
SEM ÚRVALIÐ ER
rara
Veljið vegg
fóðrið og
málning
una á
SAMA
STAÐ
jr
lllKNIr
Veggfóður- og málningadeild
Ármúla 38 - Reykjavík
Simar 8-54-66 & 8-54-71
Allir
velkomnlr
Opið til 10 á föstudagskvöldum
Lokað á laugardögum