Tíminn - 15.02.1975, Page 16
Laugardagur 15. febrúar 1975
BAUER HAUGSUGAN
er einnig
traust
eldvarnatæki
Guöbjörn
Guöjónsson
SIS-FOIHJll
SUNDAHÖFN
GSÐI
fyrir góóan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Forsætisráðherrar Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar
við komuna til íslands í gær:
Bjartsýnir á nor-
rænt samstarf
ET—GJ—Reykjavík. Forsætis-
ráöherrar þriggja Noröurlanda —
Noregs, Danmerkur og Svlþjóöar
— komu til islands siödegis I gær.
Tilefniö er þing Noröurlandaráös,
er sett veröur hér i Reykjavik I
dag.
Fréttamenn Timans brugöu sér
Veiðibann
að nætur-
lagi til
verndar
síldinni
Sjávarútvegsráðuneytiö hefur
sett reglugerð um bann við
loðnuveiðum árið 1975. Er hér um
að ræða bann á loðnuveiðum fyrir
Noröur- og Austurlandi á tima-
bilinu frá 1. mars til 15. maf, en
frá 15. maf til 1. ágúst eru allar
loðnuveiðar bannaöar. Sams
konar reglur voru f gildi á siöasta
ári. Þaö nýmæli er hins vegar i
reglugerð þessari að frá gildis-
töku hennar þar til öðru visi
verður ákveðið eru allar
loðnuveiðar bannaðar innan fisk-
veiðilögsögunnar milli kl. 20.00 og
07.00 á svæði fyrir suðurströnd Is-
lands,sem takmarkast aö austan
af 16 gr. v.lgd. og að vestan af 17
gr. v lgd.
Akvæöi þetta um bann við
loðnuveiöum að næturlagi frá
Hrollaugseyjum og nokkuð vestur
fyrir Ingólfshöföa tekur sem sagt
þegar gildi og er sett til verndar
sfldarstofninum, sem heldur sig
nú á þessu svæöi og blandast
loðnunni á næturnar, þegar sfldin
gengur á grynnra vatn en hún
heldur sig á yfir daginn. Veröi
breytingar á þessum göngum
sfldarinnar verða væntanlega
gerðar samsvarandi breytingar á
reglugerðinni,en þess er vænzt af
ráðuneytinu, að ef það skyldi
henda skipstjóra loðnubáta þrátt
fyrir allt að fá sfld f nætur sínar,
þá sleppi þeir slikum köstum
þegar i stað. Verður fylgzt með
þvl hversu vel mun takast til I
þessu efni.
út á Keflavikurflugvöll og tóku
ráöherrana tali, er þeir stigu út úr
þotum Flugleiöa. Svör þeirra
voru aö vonum i stytzta lagi, en
þeir voru aliir sammála um, aö
norrænt samstarf væri einkar
mikilvægt—og sömuleiöis bjart-
sýnif á norræna samvinnu I
framtiöinni.
Bratteli: — Verðum að
gera eitthvað, ef ekki næst
samkomulag á Hafréttar-
ráðstefnunni
Trygve Bratteli, forsætisráð-
herra Noregs, kom fyrstur
þremenninganna hingað til lands.
Aðspurður kvað hann orku- og
iðnaðarmál verða efst á baugi á
fundi Norðurlandaráðs að þessu
sinni.
Bratteli sagði, að þegar væri
hafinn undirbúningur aö norrænu
samstarfi á sviði orkumála, en of
snemmt væri að segja, aö beinar
viðræöur hefðu verið teknar upp
milli stjórnvalda hinna einstöku
rfkja.
Þá vék norski forsætisráðherr-
ann talinu að landhelgismálinu.
Hann vildi þó ekki tjá sig um
árangur lslendinga á því sviði, en
kvað norsku rikisstjórnina fylgj-
ast náið með undirbún. að Haf-
réttarráöstefnu S.Þ., sem haldin
verður í Genf slðar i vetur.
Aðspurður lýsti hann þeirri
skoðun sinni, að Norðmenn yröu
knúnir tfl að gera eitthvað, þ.e.
færa út fiskveiðilögsöguna, ef
ekki næöist neinn árangur á Haf-
réttarráðstefnunni. Norska
stjórnin stefnir sem kunnugt er að
útfærslu i 50 og siðar i 200 sjómil-
ur, I náinni framtfð. Ekki vildi
Bratteli tjá sig um þá spurningu,
hvort Norömenn neyddust
hugsanlega til að færa út einhliða
eins og Islendingar.
Að lokum var Bratteli spurður,
hvort til þess kæmi á næstunni, að
Norðmenn seldu tslendingum
oliu. Hann sagði, að enn sem
komið væri framleiddu Norð-
menn ekki næga oliu til innan-
landsneyzlu, en það kæmi til með
að breytast þegar á næsta ári. 1
framtiðinni er svo gert ráð fyrir,
að ársframleiðsla á oliu 1 Noregi
nemi tiu sinnum meira magni en
nú er neytt af oliu i Noregi á einu
ári. Svo að forsætisráðherrann
þvertók ekki fyrir, að svo gæti
farið, að innan fárra ára flyttu
Islendingar inn oliu frá Noregi.
Jörgensen: Bjartsýnn á
lífdaga nýju stjórnarinnar
Ég vil ekki á þessu stigi spá
neinu um, hversu langlif hin nýja
stjórn min verður, sagði Anker
Jörgensen, hinn nýoröni forsætis-
ráðherra Danmerkur. Ég er þó
bjartsýnn á llfdaga hennar, bætti
hann við.
Jörgensen var hress i bragði og
engin þreytumerki á honum að
sjá, þrátt fyrir annir siðustu
vikna. Hann taldi atvinnuleysiö
alvarlegasta vandamál Dan-
merkur um þessar mundir, en
kvaöst að svo komnu máli ekki
geta tjáð sig um, hverra ráða
rikisstjórn hans ætlaði að leita til
lausnar vandanum.
Jörgensen sagöi afstöðu rikis-
stjórnar sinnar til Efna-
hagsbandalagsins óbreytta, en að
sjálfsögðu yrði fylgzt náið meö
hvaða afstöðu Bretar tækju til aö-
ildarinnar að bandalaginu.
Aöspurður sagði Jörgensen, að
það væri stefna Jafnaðarmanna,
að Danir segðu sig úr bandalag-
inu, ef Bretar tækju þann kostinn,
en hins vegar taldi hann óliklegt,
að til þess kæmi.
Forsætisráðherrann taldi mörg
mikilvæg mál biða fundar
Norðurlandaráðs i Reykjavik, en
vildi ekki tjá sig um, hverja
málaflokka hann teldi mikilvæg-
asta.
Palme: — Viljum taka
fullt tillit til þeirra þjóða,
er byggja afkomu sína að
mestu leyti á fiskveiðum
Olof Palme, forsætisráöherra
Sviþjóðar, sagði fyrst, að þetta
væri I þriðja sinn, er hann kæmi
til Islands — fyrst árið 1970, svo
1972 og loks nú. — Og það er alltaf
jafn gaman að vera kominn hing-
aö, bætti hann við, brosmildur.
Aöspuröur sagði Palme, að Svi-
ar ættu við mun minni vandamál
aö glima en flestar aðrar Vestur-
Evrópuþjóðir, t.d. Danir. Hann
taldi þetta fyrst og fremst vera að
þakka þeirri stöðugu efnahags-
þróun, er átt hefði sér stað I
Sviþjóð. — En ekki góðri stjórn
minni, sagði hann og glotti.
Palme hvað orkumál verða
ofarlega á baugi á þessum fundi
Norðurlandaráðs, svo og stofnun
sameiginlegs fjárfestingarbanka
Norðurlanda. Forsætisráð-
herrann sagði, að Sviar stæðu nú
frammi fyrir nokkrum vanda á
sviði orkumála — vatnsorka væri
að fullu beizluð og olian væri dýr.
Þá vék Palme stuttlega að
landhelgismálinu. Hann sagði, að
Reuter-Nikósiu. Stjórn Makarios-
ar erkibiskups hefur vfsað
Kýpurdeilunni-til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna eftir siðustu
atburði á eynni, en tyrknesku-
mælandi eyjarskeggjar hafa lýst
yfir stofnun sjálfstæðs rikis á
norðurhluta eynnar, eins og skýrt
var frá i Timanum i gær.
Glafkos Klerides, fyrrum
Kýpurforseti og nú forseti full-
trúadeildar Kýpurþings, fór i gær
til Aþenu til viðræðna við griska
ráðamenn um siðustu atburði. 1
för með Klerides eru nokkrir
háttsettir embættismenn Kýpur-
stjórnar.
Klerides svaraði spurningum
fréttamanna við komuna til
Aþenu slðdegis I gær. Hann var
sænska ríkisstjórnin hefði mark-
að ákveðna stefnu I þeim málum.
Einn liðurinn I þeirri stefnu væri
sá, að viö ákvöröun auðlindalög-
sögu yrði tekiö fullt tillit til þjóöa
á borð við Islendinga er byggja
afkomu sina að mestu leytiá fisk-
veiöum.
m.a. spurður um, hvort Banda-
rikjastjórn standi að baki aðgerð-
um Tyrklands og bandamanna
þeirra á Kýpur. — Tyrkir heföu
aldrei gert innrás á Kýpur i
sumar án stuðnings frá einhverju
öðru riki, svaraði Klerides. Hann
sagöi, að stjórnir Bandarikjanm
og Bretlands hefðu lýst yfir, aö
þær styddu st jórn Makariosar og
litu á hana sem einu löglegu
stjómina á Kýpur. — En þessar
yfirlýsingar eru ekki annað en
innantóm orð — að baki þeim
virðist ekki búa neinn vilji til að
skerast I leikinn, bætti hann við.
Klerides sagði ennfremur, að
flest riki vildu stuðla að lausn
Kýpurdeilunnar, en þau hliðruðu
sér hjá að taka beina afstöðu með
öðrum hvorum aðilanum. Fyrr en
slikt gerðist, væri ekki að vænta
viðunandi lausnar á deilunni.
Kýpurstjórn vísar Kýpurdeilunni
til Öryggisróðs S.Þ.:
Klerides far-
inn til Aþenu
Harðorður í garð stjórna Bandaríkjanna
og Bretlands
fílH-SHORNA
/ Mll I I
Kissinger
svartsýnni
NTB/Reuter-
Damask as / Jerúsalem /Tel
Aviv. Henry Kissinger, utan-
rikisráðherra Bandarikjanna,
sneri aftur tii tsracl I fyrradag
eftir för sina til Egyptalands
og Sýrlands. Kissinger ræddi
svo viö israelska ráöamenn
um svör egypzkra og sýr-
ienzkra ráöamanna viö tillög-
um tsraelsstjórnar um sam-
komulag um friö.
Reuter-fréttastofan haföi
eftirfarandi eftir einum af
samstarfsmönnum Kissingers
I fyrrakvöld: — Likur á, að
samkomulag takist að þessu
sinni eru varla 50-50. Þessi
ummæli stungu nokkuö I stúf
viö þá bjartsýni, er báðir
deiluaöilar — að ógleymdum
Kissinger sjálfum — hafa látið
i ljós að undanförnu.
Svo virðist sem einhver
snurða hafi hlaupið á þráðinn,
enda hafa báðir aðilar sett —
að þvi er virðist — ósam-
rýmanleg skilyrði: Egyptar
krefjast allsherjarsamkomu-
lags.en Israelsmenn taka ekki
i mál að semja við alla and-
stæöinga sina I einu.
NTB-fréttastofan segist
hafa eftir áreiðanlegum
heimildum i Washington, að
tsraelsstjórn hafi sett þrjú
viðbótarskilyrði fyrir friðar-
samningi við Egypta: 1. Að
Súez-skurður verði opinn
Israelskum skipum. 2. Að út-
lendingar, einkum ferðamenn,
geti ferðazt óhindraö yfir
landamæri Egyptalands og
tsrael og Libanon og tsrael. 3.
Aö aflétt verði viðskiptahöml-
um þeim, er Arabar hafa sett
á fyrirtæki, sem starfa i
tsrael.
Kissinger fór i gær til
Jórdaniu og siðar Saudi-
Arabiu til viðræðna við þar-
lenda ráðamenn, áður en hann
snýr til Bandarikjanna.
GATT-róðstefnan um aukin viðskipti milli landa:
ÁGREININGUR EBE OG USA
TEFUR SAAAKOMULAG
Fulltrúar iðnvæddra ríkja boðnir og búnir
til að hjdlpa þróunarríkjunum
Reuter-Genf. Þessa dagana
stendur yfir I Genf ráöstefna 82
rikja, en markmiö ráöstefnunnar
er aö reyna aö auka viöskipti
milii landa. Ráöstefnan er haldin
innan vébanda GATT — þ.e.
hins almenna samkomulags um
tolla og viöskipti — og sækja hana
fulltrúar iönvæddra sem
þróunarrikja.
Umræöur á ráöstefnunni ein-
kenndust i upphafi á deiium Vest-
ur-Evrópurikjanna og Bandarikj-
anna um viöskipti með land-
búnaðarafuröir. Aö sögn Reuter-
fréttastofunnar hefur ágreiningi
um þetta efni veriö visaö til sér-
stakrar undirnefndar, svo aö nú
viröist loks kominn skriöur á
málin, þótt óljóst sé, hvort sam-
komulags sé aö vænta, fyrr en aö
nokkrum tima liðnum.
Ágreiningurinn er einkum þess
efnis, að Vestur-Evrópurikin —
með aöildarriki Efnahagsbanda-
lagsins i broddi fylkingar — vilja,
að sérsamkomulag verði gert um
viðskipti með landbúnaöarafurð-
ir, en Bandarikin eru andsnúin
sliku sérsamkomulagi.
60 þróunarriki taka þátt i störf-
um ráðstefnunnar, en hagsmunir
þeirra beinast einkum að við-
skiptum með svonefndar ,,hita-
beltisafurðir”, sem I raun og veru
eru hluti landbúnaðarafurða.
Agreiningur um viðskipti með
þessar afurðir er til meðferðar i
sérstakri sendinefnd.
Ráðstefnunni i Genf átti aö
ljúka I dag, en nokkrar undir-
nefndir halda áfram störfum. Bú-
izt er við, að álit þeirra verði lögð
fyrir aðra GATT-ráðstefnu, sem
væntanlega kemur saman i júni
eða júli n.k. Fréttaskýrendur
telja óliklegt, að ofangreindur
ágreiningur verði þá úr sögunni,
þótt þessa dagana sé keppzt við
að samræma hin óllku sjónarmið.
Að sögn Reuter-fréttastofunnar
er I fyrsta lagi búizt við, að alls-
herjarsamkomulag náist innan
árs — en svo gæti þó farið, að tvö
ár liðu, áður en öllum ágreiningi
hefði verið ýtt til hliðar.
Ráðstefnufulltrúar frá iðn-
væddu rikjunum hafa flestir lýst
yfir vilja til að styðja við bakið á
þróunarlöndunum, t.d. með þvi
að veita þeim einhliða viðskipta-
Ivilnanir.