Fréttablaðið - 27.06.2005, Page 19
3MÁNUDAGUR 27. júní 2005
Alvöru
gasgrill
Ryðfrítt alvöru gasgrill - engar málamiðlanir!
Perfectglo gasgrillið fæst hjá
ECC Skúlagötu 63 - Sími 511 1001 - Opið 10-18
!
"""
Grindvíkingar framleiða amerískt
parkett fyrir íslenskar aðstæður
Geo Plank í Grindavík notar íslenska orku til að þurrka við og hefur aðferðin vakið mikla athygli.
„Parkettið er í raun aukabúgrein
hjá okkur,“ segir Stefán Jónsson,
framleiðslustjóri Geo Plank. „Við
sérhæfum okkur mestmegnis í
svokölluðum iðnaðarspóni sem við
flytjum út til Svíþjóðar. Þetta er há-
gæðavara sem hingað til hefur að-
eins fengist í Ameríku. Nú erum
við farnir að vinna ameríska viðinn
hér og það er hagkvæmara fyrir
Svíana að kaupa við frá Íslandi en
að láta flytja hann alla leið frá
Ameríku.
Geo Plank notar íslenska orku til
að þurrka viðinn og hefur aðferðin
vakið töluverða athygli. „Við notum
heita vatnið til að þurrka harðvið-
inn og það hefur gefist mjög vel.
Parkett sem er framleitt annars
staðar hentar kannski ekki alveg
fyrir íslenskt rakastig. Hér er loft-
ið kalt og þurrt og við reynum að
þurrka viðinn niður í það rakastig
sem hentar húsum á Íslandi.“
Geo Plank hefur þegar flutt tölu-
vert magn af iðnaðarspóni úr landi
og parkettframleiðslan gengur vel.
„Nú erum við að vinna parkett fyrir
stórt hús í Kópavogi sem verður
um 300 fermetrar. Það er fyrsta
stóra verkefnið en við höfum selt
fjölmörgum einstaklingum parkett
til að leggja heima hjá sér,“ Segir
Stefán.
„Sumir eru með sérþarfir og
vilja kannski fá kvistlaust parkett
eða einhvern sérstakan lit sem ekki
er til annars staðar. Þar sem við
vinnum viðinn frá grunni getum við
orðið við slíkum óskum. Við eigum
líka töluvert af parketti á lager sem
hægt er að kaupa tilbúið, til dæmis
hnotu. Hún hefur reyndar verið svo
vinsæl að okkur hefur gengið
hálfilla að koma á fót almennileg-
um lager. Hann tæmist alltaf.“ ■
Geo Plank sérhæfir sig í amerískum viðar-
tegundum svo sem hnotu, eik, kirsuberjaviði
og hlyni.
Olíuborin eik. Parkettið er unnið úr há-
gæðaviði frá Ameríku sem er þurrkaður og
unninn í Grindavík.
Notuð er íslensk orka til að þurrka viðinn og hefur hún vakið töluverða athygli. Viðurinn
er þurrkaður niður í það rakastig sem hentar íslenskum húsum.
Margir heyja baráttu við mosann á hverju sumri meðan öðrum þykir
mosinn fallegur og njóta þess að leggjast í sólbað í mjúka mosabreiðu.
Kalk er besta ráðið
gegn mosanum
Mosi getur verið til vandræða í görðum og margir eyða miklum
tíma í að berjast við mosa á hverju sumri. Ráðin eru mörg en
kalkáburður virkar einna best.
Eiríkur Ómar, garðyrkufræðing-
ur hjá Garðheimum, segir að
ýmislegt sé hægt að gera til að
losna við mosa úr görðum. „Yfir-
leitt er notað kalk til að vinna bug
á mosa og það hentar vel. Best er
að nota kornað kalk eða skelja-
kalk en skeljakalkið virkar ekki
eins fljótt. Kalkinu er þá stráð
yfir garðinn um leið og áburður
er borinn á,“ segir Eiríkur. Mosi
þrífst best í súrum jarðvegi og
með því að bera kalk á grasflöt-
ina breytist sýrustigið og grasið
nær yfirhöndinni.
„Það þarf að kalkbera einu
sinni á ári og þá er um að gera að
bera góðan grasáburð á í leiðinni.
Þrífosfat er gott til að styrkja
grasið því það styrkir ræturnar
og þá á mosinn erfiðara með að
brjótast í gegn,“ segir Eiríkur.
Nái maður ekki að bera kalk á
í tæka tíð á vorin má alltaf reyna
að tæta mosann upp. Eiríkur
segir að það geti gefið góða raun
og margir sái grasfræi í sárið til
að hindra að mosinn komi strax
aftur. „Annars nær maður aldrei
að losna við mosa til frambúðar.
Það er svo margt sem hefur
áhrif. Raki er góður fyrir mosa
og hann dafnar vel í skuggsælum
görðum með háum trjám. Fann-
fergi getur líka aukið mosavöxt,“
segir Eiríkur. ■
Hún mætir aftur næsta sunnudagsmorgun kl. 9