Fréttablaðið - 07.10.2005, Qupperneq 32
2 ■■■ { helgarferðir } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
uppáhalds flugvöllurinn }
„Mér finnst Barselóna bera af.
Flughöfnin þar er rosalega flott,“
segir Árni Pétur. Inntur nánar eftir
því í hverju þau flottheit felist svar-
ar hann: „Hún er bara svo listræn.
Það hýtur að hafa verið einhver
frábær arkitekt sem teiknaði hana.
Hún er svo falleg og smekkleg.“
Árni Pétur segir líka margt snið-
ugt í boði á Shiphol-flugvellinum í
Amsterdam. „Þar eru góðar skrif-
stofur sem útvega sniðugar ferðir
ef maður er tilbúinn að skella sér í
eitthvað óvænt næsta dag, eða
jafnvel bara eftir klukkutíma,“ seg-
ir hann og kveðst hafa keypt þar
sólarlandaferðir á síðustu stundu
fyrir lítið fé. „Það eru þessir tveir
vellir sem ég er hrifnastur af. Svo
finnst mér alltaf gaman að koma á
Kastrup. Bara heimilislegt.“
Árni Pétur hefur lent í að bíða á flugvöllum og finnst það misjafnlega skemmtilegt..
Listræn flughöfn í Barselónu
ÁRNI PÉTUR GUÐJÓNSSON LEIKARI ÞARF EKKI AÐ HUGSA SIG
UM LENGI ÞEGAR HANN ER SPURÐUR HVAÐA FLUGHÖFN HON-
UM FINNIST BERA AF ÖÐRUM.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
fe
rð
ir
í a
llt
haust
D
ub
lin
ar-
Lifandi borg með
fjörugu mannlífi!
... Dublin bí›ur flín
Helgarferðir
3 eða 4 nætur.
Komdu með til Dublin.
Sértilbo›
Ferðir til Dublinar 30. sept., 4. nóv. og 2. des.
Innifalið: Flug gisting 2 nætur á Camden Court
hótelinu íslensk fararstjórn og allir flugvallar-
skattar. M.v. 2 fullorðnir ferðist saman.
39.319 kr. Netverð
The Merry Plaughboys
Íslendingar verða seint sakaðir um
að leiðast það að ferðast. Flugleiðir
flytja út sem nemur 0,8% af íbúa-
fjölda Íslands dag hvern, sem hlýtur
að vera einhvers konar met, svo
aðrir séu ekki taldir með. Í haust og
vetur bjóða ferðskrifstofur landsins
upp á fjölbreytt úrval borgar- og
helgarferða og fólk innan ferða-
bransans er allt á einu máli um að
eftirspurn hafi aldrei verið meiri.
Einstaklingar sækja mikið í heims-
borgirnar og hópar eru sérstaklega
virkir í utanlandsferðum nú um
stundir. Alls konar hópar eru byrjað-
ir að ferðast saman erlendis og er þá
langvinsælast að fara í stuttar helg-
arferðir. Oftast er farið út á fimmtu-
dagsmorgni og komið heim á
sunnudagskvöldi. Úrval borga er
mikið og á það eftir að aukast mik-
ið á næsta ári, til hagsbóta fyrir ís-
lenska ferðalanga.
Eftir að Austur-Evrópa opnaðist fyr-
ir umheiminum hafa Íslendingar
verið duglegir að ferðast þangað.
Flogið hefur verið til Prag og Búda-
pest síðastliðin ár en undanfarin
misseri hafa borgir eins og Varsjá,
Ljubljana og Kraká bæst í hópinn og
notið geysilegra vinsælda. Tómas
Gestsson, aðstoðarframkvæmdstjóri
Heimsferða, segir að að Kraká hafi
sem dæmi algjörlega slegið í gegn í
ár og hafi þeir þurft að bæta við
nokkrum ferðum þangað. Nokkrar
ferðaskrifstofur buðu upp á flug til
Varsjár í haust og var iðulega upp-
selt í þær ferðir. Kraká og Varsjá eru
báðar í Póllandi sem er eitt ódýrasta
land Evrópu og hefur að geyma
ótrúlega magnaða sögu.
Ljubljana, höfuðborg Slóveníu sem
áður tilheyrði gömlu Júgóslavíu, er
einnig borg sem hefur verið afar
vinsæl að undanförnu. Þangað sæk-
ir fólk sem vill sjá eitthvað nýtt og
framandi en ekki spillir frábært verð
og ótrúleg náttúrufegurð enda borg-
in staðsett í dal sem er umlukinn
Ölpunum.
Menning og matur í stórborg-
um Evrópu
,,Það er ekki spurning að það sem
fólk er að sækjast eftir í borgum eins
og Madrid og Róm er menningin,
sagan og maturinn. Svo er andrúms-
loftið í þessum borgum ákaflega að-
laðandi,“ segir Laufey Jóhannsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Plúsferða.
Þessir stórborgir ásamt öðrum
margfrægum höfuðborgum eru sí-
vínsælar meðal Íslendinga enda eiga
þessar borgir engan sinn líka. Aðrar
borgir í svipuðum dúr sem ávallt
laða til sín marga eru Vín, Amster-
dam, Barselóna og París en einnig
hafa vinsældir Lissabon í Portúgal
aukist. Gunnar Már Sigurfinnsson,
framkvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Icelandair, segir að sífellt
fleira fólk beini ferðum sínum til
borga eins og til dæmis Parísar og
Amsterdam. ,,Amsterdam er nátt-
úrulega alltaf vinsæl, þar er gott að
versla og næturlíf sérstakt. Það er
einhver karakter og sjarmi sem fólk
sækir þangað. Borgin er fjölþjóðleg
og afþreying mikil.“
Gott að versla í Bandaríkjunum
Icelandair hefur flogið til Bandaríkj-
anna í mörg ár við góðan orðstír.
Gunnar hjá Flugleiðum, segir að Or-
lando, Boston og Minneapolis séu
vinsælastar núna á þessu hausti en
markaðurinn hafi fagnað komu New
York aftur í vetrarferðabækling
þeirra. New York sé borg sem komi
gríðarlega sterk inn. ,,Ætli flestir fari
ekki til Bandaríkjanna til að versla,
enda er hvergi eins þægilegt að
versla og þar. Sérferðir á tónleika og
annað seljast einnig mjög vel,“ seg-
ir Gunnar. San Fransiskó var nýr
áfangastaður í sumar og verður aft-
ur boðið upp á ferðir þangað næsta
sumar. Ef vel gengur mun verða
flogið þangað allt árið um kring.
Gamlar góðar
Það þarf engan að undra að lang
flestir Íslendingar ferðast til Kaup-
mannahafnar og London, enda flog-
ið þangað oft á dag alla daga. Þess-
ar borgir þarf vart að kynna enda
virðast þær alltaf vera jafn vinsælar.
Aðrir góðkunningjar íslenskra
ferðalanga er borgin græna, Dublin
á Írlandi. Guðrún Sigurgeirsdóttir,
framleiðslustjóri Úrvals Útsýnar,
tekur jafnvel svo djúpt í árina að
hún segir að engin borg hafi verið
jafn vinsæl og Dublin í gegnum tíð-
ina. Andrúmsloftið þar sé eitthvað
sem Íslendingar geta sótt í aftur og
aftur. Borgir nágrannalanda okkar
virðast því heilla þjóðina og í borg-
um Norðurlandanna finna allir eitt-
hvað við sitt hæfi. Iceland Express
mun hefja flug til nokkurra borga
Norðurlandanna í maí og Icelandair
hefur einnig gert það um margra ára
skeið. Nýr áfangastaður þessara
flugfélaga, Frankfurt, var mjög vel
sóttur í sumar og verða ferðir þang-
að auknar á næstu misserum.
Icelandair og Iceland Express munu
þar að auki bæta við fleiri áfanga-
stöðum á næsta ári og má þar nefna
borgir eins og Manchester og
Friedrichshaven. Það verður því
ekkert lát á ferðum landans til stór-
borga beggja vegna Atlantshafsins
og ljóst að strax næsta haust lítur út
fyrir að framboðið verði orðið mun
meira en það er nú.
Borgarferðir slá í gegn
sem aldrei fyrr
Prag hefur verið mjög vinsæl meðal íslenskra ferðalanga um árabil.
Heimasíður:
icelandair.is
icelandexpress.is
uu.is
heimsferdir.is
plusferdir.is
terranova.is