Fréttablaðið - 10.10.2006, Side 75

Fréttablaðið - 10.10.2006, Side 75
ÞRIÐJUDAGUR 10. október 2006 39 HANDBOLTI Fyrir tæpu ári síðan sýktist Baldvin Þorsteinsson, leik- maður Vals í handbolta, af ein- kirningasótt sem gengur einnig undir nafnagiftinni kossasótt. Um er að ræða veirusýkingu sem getur reynst afar þrálát eins og er í tilfelli Baldvins. Hann hefur ekki getað æft af fullum krafti síðan hann veiktist og þurfti einnig að draga sig úr íslenska landsliðinu skömmu fyrir EM í Sviss. „Þetta er orðin löng saga,“ sagði Baldvin í samtali við Frétta- blaðið. „Ég veiktist í desember en byrjaði samt að spila eftir ára- móti og veiktist ég aftur fljótlega eftir það og hvíldi út tímabilið. Í haust ætlaði ég svo að byrja aftur af fullum krafti en entist í tvær vikur áður en mér sló niður.“ Síðan þá hefur Baldvin æft 2-3 sinnum í viku til að halda sér við. Í millitíðinni hefur hann gengist undir margvíslegar rannsóknir og meðal annars farið á sjúkrahús í Þýskalandi. „Ég hélt að það væri eitthvað mikið að mér eins og krabbamein eða eitthvað þvíum- líkt. En síðar fór ég til Más Kristj- ánssonar sýkingarfræðings á Landsspítalanum og sagði hann að ég væri með „post-viral syn- drome“ sem eru eftirköst af því að hafa verið með veirusýkingu. Allar blóðrannsóknir eru eðlileg- ar hjá mér en þetta ástand hefur gert það að verkum að orkukerfið og ónæmiskerfið hafa verið kýld niður. En ég er núna á lyfjum sem hefur bætt ástandið mikið.“ Baldvin segir að hann reyni að æfa 3-4 sinnum í viku en inni á milli komi dagar þar sem hann sé slappur. „Ef ég er slappur hvíli ég og er vanalega fljótur að jafna mig. Yfirleitt kemst ég á æfingu strax næsta dag. En þetta þýðir að maður hefur bara vissa orku í lík- amanum og fyrir íþróttamann sem er alltaf að þenja líkamann dugir maður bara nokkra daga í einu.“ Baldvin getur sinnt námi sínu af eðlilegri getu sem og hvers- dagslegum hlutum. Hann er í verkfræðinámi við HÍ og útskrif- ast með BS-gráðu í vor. Hann segir erfitt að segja til um bata- horfur. „Það er staðreynd að sumir jafna sig aldrei. Þeir verða aldrei það góðir að þeir geti tekið þátt í keppnisíþróttum. Sumir eru 1-2 ár að ná sér en þetta getur verið mjög misjafnt. Ég tel mig vera á hægum batavegi og maður vonast auðvitað til að vinna bug á þessu en maður veit aldrei. En í mínum huga kemur ekkert annað til greina að spila handbolta áfram.“ Baldvin hefur áður þurft að glíma við erfið meiðsli en hann segir þessa reynslu vera allt öðru- vísi. „Þegar íþróttamaður slítur krossbönd í hné getur hann sett sér tímamarkmið hvenær hægt er að snúa aftur. Hjá mér snýst þetta um næstu æfingu og hagar maður öllu í kringum það, bæði svefn og mataræði sem ég hef tekið ræki- lega í gegn eftir þessa reynslu.“ Hann segir félaga sína í Val styðja sig dyggilega og þeir séu óþreyjufullir að fá sig aftur. „En þeir eru þolinmóðir og Óskar Bjarni þjálfari hefur verið frá- bær. Við erum með samkomulag um að ef ég næ að æfa fjórum sinnum í viku kem ég til greina í leikmannahóp. Ég gæti þess vegna spilað leik á morgun en það er engin framtíðarlausn á ástandinu. Ég reyni frekar að sjá framfarir innan raunhæfra marka og undir- búa mig á sem bestan hátt þegar ég verð loksins klár aftur.“ Baldvin getur ekki neitað því að öll þessi reynsla hefur verið erfið fyrir hann. „Þetta hefur verið mjög erfitt. Ég var til að mynda á leiðinni á EM á sínum tíma. En ég reyni að hugsa sem minnst um þetta dagsdaglega og ég er ánægður ef ég kemst á æfingu um kvöldið.“ eirikur.asgeirsson@frettabladid.is BALDVIN ÞORSTEINSSON Sinnir náminu samviskusamlega en hann er í verkfræði við Háskóla Íslands. Hann hefur hins vegar ekkert getað leikið með Valsmönnum lengi vegna veikinda. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Veikindi ógna handboltaferlinum Baldvin Þorsteinsson handboltamaður í Val hefur átt við veikindi að stríða síðan í desember síðastliðnum. Þá sýktist hann af einkirningasótt og hefur ekki enn jafnað sig. Sumir ná sér aldrei að fullu, segir hann. FÓTBOLTI Svo kann að fara að Garry O`Connor hafi leikið sinn síðasta landsleik fyrir Skotland í bili. Hann lét sig vanta upp á hótel á sunnudagskvöldið þegar leikmenn áttu að koma aftur eftir að hafa verið gefið frí um daginn eftir frækinn sigur á Frökkum á laugardaginn. Hann mætti ekki og fór því ekki með liðinu til Úkraínu í gærmorgun. Síðar um daginn gaf hann út afsökunarbeiðni en útskýrði ekki mál sitt. Er talið að það tengist því að eftir leikinn sagði hann í viðtölum að hann vildi hætta hjá félagsliði sínu, Lokomotiv Moskvu, vegna heimþrár. Hann var seldur þangað í mars síðastliðnum frá Hibernian á 1,6 milljónir punda. - esá Garry O`Connor: Missti af flug- inu til Úkraínu O`CONNOR Braut reglur Walter Smith landsliðsþjálfara. NORDIC PHOTOS/GETTY KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson lék sinn fyrsta leik fyrir Pamesa Valencia í spænsku ACB-deildinni á Spáni á dögunum. Lið hans tapaði með níu stiga mun fyrir Polaris Murcia en Jón Arnór skoraði þrjú stig á þeim rúmu 20 mínútum sem hann lék. Pamesa er sem stendur í 14. sæti deildarinnar. - esá Jón Arnór Stefánsson: Spilaði í fyrsta sinn á Spáni

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.