Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 32
Í Reykjavík er hægt að fá hamborgara á mörg-
um stöðum en sumir eru betri en aðrir.
Uppruna eins vinsælasta réttar jarðar, hamborgar-
ans, má rekja allt aftur til tíma Rómverja. Í þá daga
tíðkaðist sala á kjötbollum í brauði víða, en hamborg-
arinn, eins og við þekkjum hann í dag kom þó ekki til
sögunnar í endanlegri mynd fyrr en í kringum 1917.
Þremur árum síðar var fyrirbærið alþekkt um gervöll
Bandaríkin og í dag eru margir sem líta á hamborg-
ara og franskar sem þjóðarrétt Bandaríkjamanna.
Vinsældir hamborgarans fóru fljótt að teygja anga
sína út fyrir Bandaríkin. Í dag eru til ótal margar
keðjur sem sérhæfa sig í hamborgaragerð og „sama“
hamborgarann má fá í nánast hvaða borg sem er í
heiminum.
Íslendingar voru fremur fljótir að taka við sér í
hamborgaramálum, en fyrstu hamborgararnir voru
seldir í Reykjavík í kringum 1950, meðal annars á
Austurbar sem þá var í Austurbæjarbíói og á Hressó.
Til að byrja með voru margir óvissir um hvernig
bæri að bera þennan rétt fram og lengi vel var hægt
að fá hamborgara með tómatsósu, sinnepi og steikt-
um lauk. Í dag selja flestir veitingastaðir í borginni
hamborgara og oft er hægt að fá þá í mismunandi
útfærslum (þó ekki með steiktum lauk). Sum veit-
ingahús hafa skipað sér sess sem fyrirmyndar ham-
borgarastaðir en meðal þeirra eru til dæmis Grill-
húsið í Tryggvagötu og Vitabar á Bergþórugötunni
sem býður upp á eðalborgarann, Gleym-mér-ei.
Margir myndu vilja borða hamborgara á hverjum
degi, en þó má ætla að hjá flestum sé þetta helgar-
matur og þá sérstaklega ef fólk hefur stundað ein-
hvers konar skemmtanir daginn áður. Þannig er ham-
borgarinn oftar en ekki sefandi og seðjandi í senn og
orkan frá honum gerir mönnum kleyft að komast út í
næstu myndbandaleigu til að geta haldið afslappels-
inu áfram.
Bæjarins bestu borgarar
Við Fjöruborðið
Eyrarbraut 3 • 825 Stokkseyri • S. 483 1550
www.fjorubordid.is • ifno@fjorubordid.is
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Viltu sei’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Bloggaðu með
símanum!
Hvar sem er og
hvenær sem er!