Tíminn - 31.10.1979, Blaðsíða 6

Tíminn - 31.10.1979, Blaðsíða 6
6 Miðvikudagur 31. október 1979 r v tJtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór- 'arinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur ölafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Augiýs- ingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15 simi StiJoo. — Kvöldsimar blaðamanna: H6562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 200.00. Askriftargjald kr. 4000 á mánuöi. Blaðaprent. Erlent yfirlit Hvert atkvæði kostaði fimmttu þúsund krónur Framsókn má treysta Það er ekki að undra að ýmsir kjósendur eigi bágt með að átta sig á orðum og athöfnum vanefnda- flokkanna i islenskum stjórnmálum. Sjálfstæðisflokkurinn knýr fram þingrof og kosn- ingar, en hefur ekki samstöðu i eigin herbúðum til þess að standa að stjórnarmyndun. Sjálfstæðis- menn tala um að samsteypustjórnir þriggja flokka hafi ekki gefist vel, en sjálfur er flokkurinn svo sundraður að innan hans eru að störfum að minnsta kosti þrir skipulegir flokkar sem finna hver öðrum allt til foráttu. Alþýðuflokkurinn vann stórkostlegan kosninga- sigur með óheyrilegu brambolti og stóryrðum. Sið- an settist hann i rikisstjórn og lét hátt fyrsta kastið. Innan tiðar virtist draga af flokknum og loks lét hann sig hafa það, undir eftirliti og i umsjá Sjálf- stæðismanna, að hlaupast út úr rikisstjórninni, en situr siðan á ráðherrastólunum upp á náð ihaldsins. Alþýðubandalagið vann einnig mikinn kosninga- sigur i fyrra með ótrúlegustu yfirboðum og blygð- unarlausri misbeitingu á aðstöðu sinni i forystu- sveit launþegasamtakanna. Að kosningum loknum tók flokkurinn þátt i stjórnarsamstarfi, en tafði fyr- ir flestum stjórnarathöfnum sem beindust að þvi markmiði rikisstjórnarinnar að sigrast á verðbólg- unni. Siðasta sprettinn i stjórnarsamstarfinu lagði Alþýðubandalagið mesta áherslu á taugastrið gegn Alþýðuflokknum, og var helst að heyra að Alþýðu- bandalagið fagnaði upphlaupi kratanna þegar það kom. Það er ekkert skrýtið þótt kjósendur þessara þriggja vanefndaflokka séu vonsviknir og þyki illa farið með umboð sitt. í öllu þvi mikla uppþoti sem einkennt hefur is- lensk stjórnmál siðustu árin hefur aðeins einn stjórnmálaflokkur haldið fullri skynsemi og forðast öfgar. Framsóknarflokkurinn hefur ekki logið að þjóðinni. Framsóknarflokkurinn hefur sagt sann- leikann um verðbólguna, enda þótt sá sannleikur hafi verið og sé óþægilegur fyrir ýmsa. Fram- sóknarflokkurinn hefur lagt á það áherslu, að þjóðin verður að sigrast á óðaverðbólgunni án þess að setja hér allt i kaldakol atvinnuleysis og kreppu. Og Framsóknarflokkurinn hefur bent á það, að haldi óðaverðbólgan áfram mun hún snúast i ógnun við sjálft frelsi og lýðræði þjóðarinnar. Framsóknarmenn hafa i öllum störfum sinum lagt á það megináherslu að stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn eiga að vinna að málefnum frem- ur en hástemmdum upphrópunum. Þeir hafa stöð- ugt unnið að þvi að koma framfara- og umbótamál- um fram eftir eðlilegum lýðræðisreglum, meðan fulltrúar vanefndaflokkanna hafa hamast með yfir- lýsingum og gylliboðum i fjölmiðlum. Nú hefur reynslan sýnt hve litlu hávaðamennirnir fá áorkað, og hve litið er að marka orð þeirra og æði. Þess vegna eru kjósendur Framsóknarflokks- ins ekki slegnir neinni furðu yfir þvi hvað orðið hef- ur úr loforðaglamri vanefndaflokkanna. Kjósendur Framsóknarflokksins eru alls ekki undrandi yfir þvi að forystumenn flokksins störfuðu stöðugt og af fullum drengskap i rikisstjórn. Og þeir vissu það einnig fullvel að Framsóknarflokkurinn myndi ekki hlaupa i ofboði frá hálfunnu verki. Þess vegna rikja engin svartsýni og engin von- brigði i röðum Framsóknarmanna. JS Fyrsta viðureign Carters og Kennedys EDWARD Kennedv hefur taliö sig ekki geta dregiö þaö lengur aö gefa þaö glöggt til kynna, aö hann stefndi aö framboöi i for- setakosningunum næsta haust. I fyrradag setti hann á laggirnar undirbúningsnefnd, sem á aö afla vitneskju um fylgi hans og möguleika til framboös, en könnun nefndarinnar á aö vera lokiö fyrir nóvemberlok, en þá mun hann birta endanlega ákvöröun sina. Af hálfu flestra frétta- skýrenda er litiö á þessa nefnd sem raunverulega kosninga- nefnd, sem eigi aö stjórna baráttu Kennedys fyrst i próf- kosningum og siöar { sjálfum kosningunum, ef hann nær til- nefningu sem frambjóöandi. Meöan Kennedy hefur ekki formlega lýst yfir framboöi, þykir ekki hlýöa aö kalla hana formlega kosninganefnd. Astæöan til þess aö nefndin er sett strax á laggirnar, er m.a. sögö sú, aö Kennedy getur lög- um samkvæmt ekki tekiö viö framlögum i væntanlegan kosningasjóö fyrr en slikur undirbúningur aö framboöi er hafinn. ÞEIR, sem bezt þykja þekkja til, telja þó ástæöuna aöra. Hún sé sú, aö Kennedy og fylgis- menn hans óttist, aö hann veröi sem fyrstaögefaþaöákveöiö til kynna hvaö hann ætlist fyrir. Annars geti dregiö úr þeim meöbyr, sem hann hefur haft aö undanförnu, og þaö styrkt Carter og aöra hugsanlega keppinauta. Kjör fulltrúa á flokksþing demókrata i Floridariki, sem haldiö veröur 17. növember næstkomandi, þykir nokkur vis- bending um þetta. Þaö fór fram 13. þ.m. Bæöi fylgismenn Carters og fylgismenn Kennedys kepptu aö því aö fá sem flesta fulltrúa kjörna og geröu þaö þannig aö eins konar skoöanakönnun. Niöurstaöan varö sú, aö fylgismenn Carters fengu mun fleiri fulltrúa kjörna, en þeir hafa hins vegar svipaö eöa jafnvel minna atkvæöa- magn aö baki sér en þeir full- trúar, sem fylgismenn Kennedys fengu kjörna. Eigi aö siöur telja fylgismenn Carters þetta sigur oghafa reynt aö not- færa sér þaö eftir megni. Þessi úrslit veröa þó ekki talin nema lltil visbending um af- stööu almennings. Aöeins 40 Carter og Jacqueline þúsund kjósendur tóku alls þátt iþessum kosningum, en reiknaö er meö margfalt meiri þátttöku i sjálfu prófkjörinu um forseta- efnin, en þaö fer ekki fram fyrr en i marzmánuöi næstk. Þessi 40 þús. atkvæöi uröu þó býsna dýr, þvi aö reiknaö er meö aö fylgis- menn þeirra Carters og Kennedys hafi eytt um hálfri milljón dollara samanlagt i auglýsingar og kjósenda- smölun. Láta muni nærri að þaö svari til 50 þús. islenzkum krónum á hvern kjósenda, sem tók þátt I þessum kosningum. Af því má ráöa, aö kosninga- baráttan veröur dýr þeim fram- bjóöendum, sem taka þátt i flestum prófkjörunum. Sá, sem sigrar á svo eftir sjálfa kosningabaráttuna og allan þann kostnaö, sem fylgir henni. ÞAÐ ER fleira en þessi úrslit i Florida, sem benda til þess, aö heppilegt sé fyrir Kennedy að draga ekki ákvöröun sina á langinn. Skoöanakannanir eru ekki eins hagstæöar honum og áöur. Biliö milli hans ogCarters hefur veriö aö minnka aö undanförnu. Þá gæti þaö oröiö vatn á myllu Browns rikisstjóra i Kaliforniu, ef Kennedy drægi ákvöröun sina. Kjósendur, sem væru óánægðir meö þetta hik hans, gætu þá skipaö sér um Brown, sem hefur ákveðið gefiö til kynna, aö hann ætli aö gefa kost á sér. Þaö vakti verulega eftirtekt bandariskra fjölmiöla, þegar fundum þeirra Carters og Kennedys bar saman nýlega viö vigslu minningasafns um Kennedy forseta, sem hefur verið reist í Boston. Þar fór þó allt vinsamlega fram. Carter heilsaöi Jacqueline Kennedy Onassis, ekkju Kennedys for- seta, mjögelskulega, og myndir voru teknar af Carter og Kennedy og konu hans. Báöir fluttuþeir lofræöurum Kennedy forseta. En þrátt fyrir vinsam- lega og kurteislega framkomu á yfirboröinu, sáust þó merki þess, aö hér voru keppinautar á ferö. Flest þykir benda til, aö keppnin milli þeirra Kennedys og Carters veröi hörö og geti oröiö tvisýn, þótt skoöana- kannanir bendi nú til þess, að Kennedy sigri. Sá sigur getur hins vegar oröiö dýrkeyptur, ef hann veldur klofningi i flokknum. Þaö getur þó breytzt ef keppnin verður jafnhörö milli forsetaefna republikana.eins og nú eru allar horfur á og klofningur veröi þvi jafnmikill þar. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.