Fréttablaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 16
51 40% 500B A N K A H Ó L F I Ð Heiti á fyrirtækjum geta stundum staðið lengi í fólki. Skiljanlega, svo sem þar sem bestu nöfnin eru stundum löngu frátekin. Sumir bregða því á það ráð að taka upp undar- leg en skemmtileg og stundum alíslensk heiti. Forsvarsmenn nýjasta götublaðsins, Kjallarans, eru nokkuð frumlegir í nafnavali. Útgáfufélagið heitir Pörupiltar ehf. en í lýsingu á því segir að það eigi sér engan fjárhagslegan bakhjarl. Vafasöm lýsing það, svo ekki sé meira sagt. Nú er bara að vona að þeir geri ekkert af sér þar sem bakhjarlinn virð- ist harla ótraustur. Ótraustir pörupiltar Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, fór á kostum á ráð- stefnu Glitnis í New York um jarðvarmavirkjanir. Þar dró hann upp skemmtilega mynd af því hvernig Reykjavík væri eina höfuðborgin sem hlyti nafn af jarðvarma, þegar Ingólfur Arnarson nefndi staðinn eftir reyknum sem steig upp frá heit- um laugunum. Ólafur vísaði til fjármálalegs bakgrunns þjóðar- innar í ljósi þess að landnáms- menn hefðu flúið skattheimtu Noregskonungs og því mætti segja að landið væri fyrsta skattaparadísin. Skattaparadís Ingólfs Ólafur Ragnar fór ekki síður á kostum um kvöldið í mikilli veislu. Þar kynnti hann gest veislunnar, sjálfan Georges Soros. Ýmsum þótti heimur- inn hafa þróast skemmtilega þegar fyrrverandi formaður vinstriflokks á Íslandi fór fögr- um orðum um Soros, sem var löngum persónugervingur hins skeytingarlausa kapítalisma. Soros gerði sem kunnugt er fræga árás á breska pundið og felldi það í upphafi níunda ára- tugarins. Krónan kæmist vænt- anlega fyrir í rassvasanum hjá Soros, en í veislunni munu menn hafa tekið af honum loforð um að láta litlu myntina okkar vera. Krónunni hlíft

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.