Fréttablaðið - 01.12.2007, Síða 47

Fréttablaðið - 01.12.2007, Síða 47
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Anna Runólfsdóttir, verkfræðingur og bóndi, ekur um á vígalegum Cherokee-jeppa og notar hann bæði til fjár- og fólksflutninga. Hefur meira að segja selflutt heila lúðrasveit á honum yfir á. „Við fengum Cherokee-jeppann á Akureyri fyrir tæpum þremur árum. Hann er af árgerð 1997 og okkur leist vel á hann, enda var hann ekki ekinn nema 70 þúsund kílómetra þá. Hann er með 2,5 lítra vél, varahlutir í hann eru ódýrir og hann eyðir engum ósköpum af bensíni. Svo er hann fallega mosagrænn þannig að hann fellur vel að landinu,“ segir Anna og bætir við að bíllinn gangi stundum undir nafninu Mosi. „Sá sem við áttum á undan hét Gráni,“ segir hún til skýringar. Cherokee-jeppinn hefur reynst afskaplega vel að sögn Önnu og er nú kominn í 140 þúsund kílómetra enda fer hann í hverri viku austur í Fljótshlíð þar sem Anna og hennar maður eru með sauðfjárbú á bænum Fljótsdal. „Jeppinn er oft notaður sem land- búnaðartæki til dæmis í smölunum og oft flytjum við lömb í skottinu. Við þurftum að smala milli ála í Markarfljótinu um daginn og jeppinn stóð sig vel. Enginn kvartaði nema kindurnar,“ segir Anna glað- lega. Anna er ekki bara verkfræðingur og bóndi heldur líka gjaldkeri í Lúðrasveitinni Svaninum og í einni af útilegum sveitarinnar tók hún að sér að selflytja liðsmenn hennar yfir á. „Útilegan var í Þórólfsfelli og til að komast þangað þarf að fara yfir Þórólfsá. Ég hafði lofað að ferja mannskapinn á heyvagnin- um en það gekk ekki upp svo þá bjargaði jeppinn málum,“ segir Anna og bætir við að hann komi líka í góðar þarfir þegar flytja þurfi trommusett og aðra umfangsmikla fylgihluti lúðrasveitarinnar. Einnig sjái hann samviskusamlega um að koma henni á æfingar lúðrasveitarinnar sem hafi verið strangar að undanförnu enda séu tónleikar í Neskirkju klukk- an 17 í dag. gun@frettabladid.is Mosi ekta sveitabíll Anna við Cherokee-jeppann á leið á æfingu hjá Lúðrasveitinni Svaninum sem heldur tónleika í Neskirkju klukkan 17 í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LOK, LOK OG LÆS Óðinn Sigurðsson lásasmið- ur tekur á næstu dögum í notkun galdratæki sem lásasmiðir um allan heim hafa beðið eftir. BÍLAR 4 SUMARNÁM Í SÓLINNI Jóhanna Gunnarsdóttir ítölskukennari er að safna saman fólki sem vill læra ítölsku á Ítalíu næsta sumar. FERÐIR 2 undirfatnaður og náttfatnaður í miklu úrvali Gefðu glæsilega gjöf Olympía Mjódd Reykjavík Olympia Glerártorgi Akureyri olympia.is Meiri gæða- harðfisk! Samkvæmt nýrri rannsóknarskýrslu Matís er harðfiskur enn hollari en áður var talið, prótínríkur og inniheldur mikið af vítamínum og bætiefnum. Okkar kælda framleiðsluaðferð kemur mjög vel út í öllum samanburði. Fæst í flestum matvöruverslunum og á bensínstöðvum um allt land N Æ R I N G O G H O L L U S T A Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is Bernhard ehf. er eini viðurkenndi innfl utnings- og umboðsaðili á Fly-Racing búnaði á Íslandi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.