Fréttablaðið - 01.12.2007, Side 92

Fréttablaðið - 01.12.2007, Side 92
56 1. desember 2007 LAUGARDAGUR S íðast þegar ég hitti Ragnar Sólberg var hann ellefu ára og nýbú- inn að gefa út fyrstu sólóplötuna sína, Upp- lifun! Nú verður hann tuttugu og eins árs á morgun og er orðinn ansi rokkaðri í útliti en þegar ég talaði síðast við hann. Hvað er hann búinn að læra á þessum tíu árum? „Ég er búinn að læra rosalega mikið,“ segir Ragnar. „Það er til dæmis miklu verri lykt í þessu en ég hélt. Hrein og klár skítafýla stundum. Ég hugsaði ekkert út í það hvað maður þyrfti að gera til að meika það, enda ekkert skrýtið verandi bara ellefu ára. Ég var bara að semja músik og það var bara nóg. Mér fannst rokkheimur- inn mjög fjarlægur þá. Þegar ég horfði á Skid Row-plaköt uppi á vegg í herberginu mínu þá var það bara allt önnur veröld. Mig hefði aldrei grunað að ég ætti eftir að stíga inn í plakatið, eins og gerðist eiginlega núna á síðasta túr.“ Á fyrstu sólóplötunni þinni varstu að fást við eins konar nýbylgjurokk en svo hefurðu meira og minna verið í glysrokkinu síðan – hvað kom til? „Kiss og Skid Row höfðu verið uppáhaldshljómsveitirnar mínar síðan ég var fjögurra ára, en á þessu tímabili þegar ég gerði sóló- plötuna hafði ég kúplað mig aðeins út úr því. Var að hlusta á það sem var í gangi í kringum mig þá. Svo á unglingsárum datt ég bara aftur í þessa músik sem hafði átt hug minn sem barn.“ Taka ekki AC/DC pakkann Sign-bræður eru þó ekkert alltof hrifnir af því að þeim sé endalaust líkt við glysrokk og amerísk hár- metalbönd frá 1988. Finnst stimp- illinn óverðskuldaður og grunn- hygginn. „Ég get svo sem alveg viður- kennt að plötur númer tvö og þrjú voru svolítið glysrokk, en ekki þessi nýja,“ segir Ragnar. „Mér finnst nýja platan ekki klisjuleg sem glys eða glamrokk- plata og hún hefði aldrei gengið upp ef hún hefði komið út 1988,“ segir Egill. „Þá hefði fólki ekki fundist neitt glysrokklegt við hana.“ Eruð þið þá kannski búnir að finna ykkar eigin hljóm núna? „Við erum allavega búnir að finna farveg sem okkur líður mjög vel í,“ segir Egill. „Ég held við höfum farið mjög skrítnar og óhefðbundnar leiðir í mörgum laganna á þessari plötu,“ segir Ragnar. „Í útsetningum, kaflaskiptingum og slíku. Það var mikil ævintýramennska í gangi hjá okkur við gerð þessarar plötu.“ „Við erum líka búnir að liggja yfir þessu í rúmt ár og löngu búnir að missa okkur,“ segir Egill. „Ég er samt ekkert viss um að þessi plata sé lýsandi fyrir það sem kemur frá okkur síðar,“ segir Ragnar. „Það er aldrei að vita nema við gerum eitthvað allt annað næst, enda finnst okkur mikilvægt að þetta sé síbreytilegt. Við ætlum ekki að taka AC/DC pakkann.“ Hvernig er platan uppbyggð? Er hægt að fara með hana í ræktina? „Fyrstu þrjú lögin eru hröð og ganga í ræktinni en svo er restin til að hvíla sig við, þú ferð bara í jóga á meðan þau eru,“ segir Ragn- ar og hlær. „Þau eru of epísk og dramatísk fyrir hlaupabrettið. Það er ekkert á þessari plötu sem hefði getað verið lag með Mötley Crue, það er alveg á hreinu.“ Stritið skilar árangri Tilraunir til útflutnings á Sign byrjuðu fyrir tveimur árum í kjöl- far útkomu plötu númer þrjú, Thank God for Silence. Síðan hefur sveitin farið í ófáar ferðir um Bretland og Evrópu og spilað með böndum eins og Wednesday 13, The Answer og Wildhearts. Síðasti túr var tveggja vikna, 12 borga túr með æskugoðunum í Skid Row. „Við höfum verið heppnir og erum með gott teymi í kringum okkur,“ segir Ragnar. „Þetta geng- ur vel og ég held að stritið sé farið að skila árangri. Við sjáum helling af fólki í Sign-bolum, fólk eltir okkur og er kannski að mæta á 3-5 tónleika í hverjum túr.“ Á Skid Row einhverja aðdáend- ur lengur? „Já, alveg fullt,“ fullyrða strák- arnir. En er þetta ekki svindl fyrst söngvarinn Sebastian Bach er ekki með? „Það finnst mér ekki,“ segir Ragn- ar. „Ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var fjögurra ára og ég varð ekki fyrir vonbrigðum.“ „Nýi söngvarinn, Johnny Solinger, er búinn að vera með í níu ár og bandið hefur gert tvær plötur með honum svo hann ætti að vera kominn ágætlega inn í þetta,“ segir Egill. Eru menn eitthvað fúlir út í Sebastian – eitthvað að dissa hann fyrir að leika í Mæðgunum (Gil- more Girls í Sjónvarpinu)? „Nei, þeir töluðu lítið um hann, nema þeir sögðu okkur að þeir hefðu rekið hann á Þorláksmessu 1997 til að það yrði sem þungbær- ast fyrir hann,“ segir Ragnar. „Það er ekki gott á milli þeirra,“ segir Egill. „Sebastian var víst að segja í einhverju viðtali að honum fyndist asnalegt að Skid Row væri enn þá að spila. Að þeir fari illa með nafnið. Miðað við Gilmore Girls ætti hann þó ekki að segja mikið.“ „Skid Row er frábær á tónleik- um enn þá, ég skil ekki hvernig það á að vera slæmt fyrir nafnið,“ segir Ragnar. Örugglega enn í rútu eftir tuttugu ár Hvernig komu svo Skid Row fram við litlu strákana frá Íslandi? „Þeir voru rosa almennilegir og komu fram við okkur eins og bestu vini,“ segir Egill. Voruð þið saman í rútu? „Nei, þetta var nú ekki alveg svo náið,“ segir Ragnar. „Þeir eru nátt- úrulega búnir að vera í rútu í 20 ár og nenna ekkert að fara í rútu með hverjum sem er. Eru komnir yfir fertugt og vilja bara slappa af í rútunni, held ég.“ Voru þeir með börnin sín með á túrnum? „Nei, enda held ég að þeir eigi engin börn nema söngvarinn. Hann er giftur, held ég. Hinir eru enn þá bara í ruglinu, enn þá bara „youth gone wild“. Þeir hegðuðu sér ekki deginum eldri en tvítugir.“ Er þetta eftirsóknarverð fram- tíðarsýn fyrir Sign? Þið fertugir í góðu stuði í rútu í Bretlandi? „Neeeei,“ segir Ragnar og dregur seiminn hugsi. „Við verðum örugg- lega í rútu einhvers staðar enn þá, því það er alveg best sko að vera on ðe ród og hitta nýtt fólk og upplifa þennan klukkutíma á hverjum degi þegar allt snýst um músíkina. En eftir tuttugu ár verðum við eflaust búnir að breyta um lífsstíl og áherslupunkta. Kannski bara orðn- ir rólegir og farnir að spila á píanó.“ Engin öryggisbelti Er það fúl tæm djobb að vera í Sign? „Já, þetta er 100 prósent vinna,“ segir Egill, „og svo verður maður bara að vinna aukavinnu til að eiga í sig og á.“ „Við værum ekki búnir að ná þessum árangri ef við værum í ein- hverri annarri vinnu sem við þyrftum að hugsa um,“ segir Ragn- ar. Er eitthvert nám í bakhöndinni, eitthvert plan B? „Nei, ekkert. Það er bara keyrt áfram og engin sætisbelti,“ segir Ragnar. „Með bundið fyrir augun,“ bætir Egill við. Hvað segja kærusturnar? „Þær eru skilningsríkar og sýna okkur fullan stuðning, sem betur fer,“ segir Ragnar. „Ég dauðvor- kenni þeim að þurfa að halda okkur uppi. Ef við værum ekki svona góðir strákar myndi þetta aldrei ganga.“ Hvað er svo næsta skref hjá Sign? „Það er að kynna nýju plötuna hérna á Íslandi. Hún fer ágætlega af stað. Svo kemur platan út í Bret- landi stuttu eftir áramót og þá þarf að spila, plögga og láta sjá sig.“ Sem sé, bara áfram og meira rokk? „Já, það er engin pása. Það er ekk- ert jólafrí í rokkinu. Við værum ekkert að þessu nema við ætluð- um að gera það almennilega,“ segir Ragnar og bróðir hans bætir við: „Við erum búnir að leggja svo mikinn tíma, hugsun og vinnu í þetta að það væri út í hött að fara að slappa eitthvað af núna.“ Tónleikar Sign og Skid Row eru eins og áður segir á Nasa í kvöld. Sign stígur á svið klukkan hálfníu en Skid Row um klukkan tíu. Góða skemmtun. GÓÐAN DAGINN Dr. Gunni tekur viðtal Það er ekkert jólafrí í rokkinu Ragnar Sólberg og Egill Rafnssynir skipa hljómsveitina Sign ásamt Arnari Grétarssyni og Heimi Hjartarsyni. Hljómsveitin er meðal þeirra duglegustu í bransanum, er nýbúin að gefa út fjórðu plötuna sína, The Hope, er nýkomin úr tveggja vikna túr og heldur í kvöld tónleika á Nasa með vinum sínum í Skid Row sem hún var að flækjast með um Bretland. SIGN-BRÆÐURNIR RAGNAR OG EGILL RAFNSSYNIR „Það er bara keyrt áfram, engin sætisbelti og bundið fyrir augun.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Eftirminnilegasta ferming- argjöfin mín var … átta rása upptökutæki (Ragnar). / Peningur- inn (Egill). Mesti lúxus sem ég hef veitt mér var … að vera í Sign (báðir). Ef ég ætti tímavél myndi ég stilla hana á … 1. desember 2007 (Ragnar). / Ég myndi fara með nýju plötuna og leyfa pabba að heyra hana (Egill). Á náttborðinu liggur … útprent- að hjartalínurit frá því að það leið yfir mig á alþjóðlega flugvellinum í Toronto. Já, það var soldið rokk (Ragnar). / Hvaða náttborði? (Egill). Ef ég væri rekinn á eyðieyju með plötuspilara og þrjár plötur tæki ég … Slipknot – Slit- knot, The Used – In love and death, Crosby, Stills, Nash & Young – Déjà vu (Ragnar). / Sign – The Hope, Nine inch nails – Fragile, Filter – Title of record (Egill). Ef ég hitti George W. Bush myndi ég … hunsa hann (Ragnar). / Taka mynd af mér með honum (Egill). Ef ég væri síamstvíburi vildi ég vera fastur við … sjálfan mig (Ragnar). / Hann Ragnar bara. Við rífumst aldrei (Egill). ➜ RAGNAR OG EGILL … fylla í eyðurnar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.