Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 11.07.2008, Blaðsíða 46
22 11. júlí 2008 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is BANDARÍSKA TÓNSKÁLDIÐ GEORGE GERSHWIN LÉST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1937 „Sönn tónlist verður að endur- spegla hugsun og væntingar fólksins og tíðarandans. Mitt fólk eru Bandaríkjamenn og minn tími er í dag.“ George Gershwin samdi mikið af sinni tónlist í samstarfi við bróður sinn, Ira Gershwin. Tón- list hans hefur verið notuð í bíó- myndum og sjónvarpsþáttum og margir tónlistarmenn í gegnum tíðina hafa sungið lögin hans. To Kill a Mockingbird eftir Harper Lee kom fyrst út þennan dag árið 1960. Bókin varð strax mjög vinsæl og er í dag orðin ein af sígildum verkum bandarískra nútímabókmennta. Harper Lee hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir bók- ina árið 1961. Bókin byggist lauslega á fjölskyldu og nágrönnum höfundar- ins en líka á atburðum sem gerðust ná- lægt heimabæ hennar árið 1936 þegar hún var tíu ára gömul. Sagan gerist á kreppuár- unum í smábæ í Alabama. Sögumaður bókarinn- ar er sex ára gömul stúlka að nafni Scout Finch. Faðir hennar, Atticus Finch, er lögfræðingur sem tekur að sér að verja blökkumann ákærðan fyrir að hafa nauðgað hvítri konu. Málið er viðkvæmt og hefur mikil áhrif á líf Scout, bróður hennar og allt samfélagið. Sagan er bæði hlý og fyndin þótt hún taki á alvarlegum málefnum eins og nauðg- un og kynþáttamisrétti. Aðalumfangs- efni bókarinnar eru misrétti og glötun sakleysis, en jafnframt tekur Harper Lee á stéttaskiptingu, hugrekki, ástríðu og kynjahlutverkum í suðurríkjum Banda- ríkjanna. Bókin er námsefni úti um allan heim og notuð til að kenna umburðar- lyndi og uppræta fordóma. Oft hefur komið upp sú umræða að hætta að kenna bókina vegna þess hversu op- inskátt hún fjallar um kynþáttafordóma, en það hefur ekki gengið eftir. Í gegnum tíðina hefur þó bókin verið vinsælli hjá hvítum lesendum en blökkufólki. Árið 1962 var gerð bíómynd eftir bókinni þar sem Gregory Peck fór með hlutverk Atticus Finch, en myndin hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta handrit og leik Gregorys Peck í aðalhlutverki. ÞETTA GERÐIST: 11. JÚLÍ 1960 Tekið á kynþáttafordómum MERKISATBURÐIR 1750 Borgin Halifax í Kanada gjöreyðileggst í eldsvoða. 1800 Alþingi afnumið með konunglegri tilskipun og ákveðið er að stofna Landsyfirrétt. 1848 Waterloo-lestarstöðin í London tekin í notkun. 1911 Íslenskar konur fá fullt jafnrétti á við karla til menntunar og embætta. 1936 Triborough Bridge í New York-borg er opnuð fyrir umferð. 1972 Skákeinvígi aldarinnar hefst í Reykjavík þegar Robert Fischer og Boris Spasskí keppa um heims- meistaratitilinn. 1987 Einar Vilhjálmsson setur Norðurlandamet í spjót- kasti. Djasshátíð í Skógum undir Eyjafjöll- um verður haldin um helgina í fimmta sinn. Mikill metnaður hefur verið lagður í dagskrána á þessu afmælisári hátíðarinnar en alls koma fram ellefu tónlistarmenn á sex tónleikum. Að sögn Sigurðar Flosasonar, tónlist- armanns og listræns stjórnanda hátíð- arinnar, er það ákveðið afrek að kom- ast upp í fimm ár með svona litla hátíð. Það hefði ekki verið hægt nema fyrir stuðning sveitarfélagsins fyrst og fremst og bendir á að það þurfi sam- stillt átak til þess að svona lagað gangi upp. „Hátíðin hefur lifað svona lengi af því að fólk hér á svæðinu hefur viljað styðja við bakið á okkur og svo hefur hátíðin ætíð verið vel sótt. Við erum þakklát fyrir allan stuðninginn á þess- um tímamótum,“ segir Sigurður. Hátíðin hefur verið breytileg ár frá ári og er hátíðin í ár stærri í sniðum en í fyrra. Að sögn Sigurðar er þetta þó ekki hátíð með stóra stækkunar- drauma. „Við viljum frekar gera hana eins góða og mögulegt er hverju sinni. Við höfum prófað að dreifa henni á þrjá daga og þjappa henni saman á einn dag en hátíðin er alltaf sú sama þótt formið á henni hafi verið mismunandi.“ Í ár koma fram bæði góðkunningjar hátíðarinnar og nýir tónlistarmenn. Reynt er að höfða til allra, bæði hvað varðar aldur og djassstíl. „Grunnhug- myndin er sú að vera með hóp fólks úti í fallegri náttúru, láta það koma fram í sínum hljómsveitum, en blanda þeim svo saman á annan máta,“ útskýr- ir Sigurður. Sá háttur verður hafður á núna um helgina þegar tvær hljóm- sveitir spila í kvöld í félagsheimilinu Fossbúð. Því tónlistarfólki verður svo blandað saman í önnur bönd sem spila seinni partinn á morgun í Skógarkaffi í Samgöngusafni Byggðasafnsins. Hátíðin hefur alla tíð verið haldin í Skógum en þó ekki alltaf á sama stað. Upphaflega var hátíðin haldin utan- dyra í tjaldi en í dag er hún á tveim- ur stöðum, í félagsheimilinu Fossbúð og á kaffiteríu Byggðasafnsins, Skóg- arkaffi. „Með hátíðinni viljum við bæði reyna að höfða til fólksins hérna á svæðinu en einnig til ferðafólks. Til dæmis verður fjögurra klukkustunda samfelld dagskrá á morgun sem ekki kostar inn á. Fólk getur komið og farið eftir hentisemi þannig að andrúms- loftið er mjög óformlegt og ætti að geta hentað þeim sem eru á ferðinni,“ segir Sigurður. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér dagskrána sem hefst í dag er bent á heimasíðuna www.vik.is. klara@frettabladid.is DJASS UNDIR FJÖLLUM: HÁTÍÐIN HALDIN Í FIMMTA SINN Tónlistarfólk hrist saman SIGURÐUR FLOSASON TÓNLISTARMAÐUR ER ÞAKKLÁTUR FYRIR ÞESSI TÍMAMÓT Djasshátíðin hefur fengið góðan stuðning frá bæði sveitarfélag- inu og velunnurum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR AFMÆLI SUSAN VEGA söngkona er 49 ára í dag. HERMANN HREIÐARSSON fótboltaspilari er 34 ára í dag. ARI EDWALD, forstjóri 365, er 44 ára í dag. GRÉTAR ÖRVARSSON tónlistarmaður er 49 ára í dag. Elskuleg eiginkona mín, Arnbjörg Stefánsdóttir Jónsdóttir Fjarðarseli 15, Reykjavík, verður jarðsungin frá Seljakirkju föstudaginn 11. júlí kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jóhann Gunnar Ásgeirsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Gissurar Símonarsonar, húsasmíðameistara, Bólstaðarhlíð 34, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks dagvistunar við Vitatorg og á Droplaugarstöðum fyrir góða hjúkrun og umönn- un. Bryndís Guðmundsdóttir Jónína Gissurardóttir Bragi Ragnarsson Gunnar Levý Gissurarson Hulda Kristinsdóttir Símon Már Gissurarson Mariam Heydari Ingibjörg Gissurardóttir Örn Sigurjónsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegustu þakkir til þeirra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýju við fráfall og útför sonar okkar og bróðurs Lárusar Stefáns Þráinssonar. Sú ást, kærleikur og umhyggja sem okkur var sýnd er ómetanleg og ógleymanleg. Þráinn Lárusson Ingibjörg Helga Baldursdóttir Þurý Bára Birgisdóttir Þórhallur Birgisson Sigrún Jóhanna Þráinsdóttir Kristján Stefán Þráinsson og aðrir aðstandendur Elskuleg móðir okkar, Brynhildur Jónsdóttir garðyrkjukona verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju 12. júlí kl. 14.00. Björk Snorradóttir Steingrímur E. Snorrason Snorri P. Snorrason Kristján Snorrason. Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi Jón Hauksson lögmaður, Vestmannabraut 11 varð bráðkvaddur á heimili sínu, sunnudaginn 6. júlí sl. Útförin fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum laugardaginn 12. júlí nk. kl. 14.00. Svala Guðný Hauksdóttir Haukur Jónsson Kristbjörg Jónsdóttir Bjarki Jónsson Ósk Gunnarsdóttir Jóhanna Inga Jónsdóttir Hólmgeir Austfjörð afabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.