Fréttablaðið - 16.07.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er miðvikudagurinn 16.
júlí, 199. dagur ársins.
3.45 13.34 23.20
3.01 13.18 23.33
Þá smælar heimurinn framan í þig
Við hjá Toyota erum stolt af því að hafa verið hluti af
íslensku samfélagi í hartnær 40 ár og hlökkum til að takast
á við verkefni morgundagsins, með bros á vör. :-)
www.toyota.is
framan í heiminn
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
26
76
0
6/
08
Toyota á Íslandi
Nýbýlavegi 2-8
200 Kópavogi
Sími: 570-5070
Á vinnustað mínum starfar maður sem gefur sig út fyrir að
vera mikið karlmenni. Máli sínu til
stuðnings gortar hann oft af því að
hafa farið í Smuguna, sálgað þar
norskum þorski í tonnavís og vakn-
að í fangaklefum í tveimur löndum.
Þá raupar hann oft um að fátt sé
skemmtilegra að skjóta en sel, því
ekki sé hægt að komast nær því að
drepa mann.
VERANDI íhaldssöm, kurteis og
glaðlynd ljóska gein ég lengi fliss-
andi við grínaktuga karlmenninu.
Ég leit á hann sem sjaldgæft en
harðgert afbrigði mannskepnunnar
sem ætti að meta að verðleikum.
Ekki spillti fyrir að vinnufélaginn
er með eldrautt hár og yfirleitt
órakaður, þannig að ósjálfrátt varð
mér hugsað til Eiríks rauða, bers að
ofan í glímu við bjarndýr og rost-
unga í grænlenskum frera fyrir
þúsund árum. Þessi tálsýn hélst
ólöskuð þar til karlinn í krapinu tók
sig til og reif hana niður í nokkrum
snaggaralegum atrennum. Í vor
mætti sá rauði í vinnu með þrútin
augu og þrálátan hnerra. Spurður
hvað amaði að svaraði heljarmenn-
ið: „Ég er mbeð frjókobnaobnæmi.“
Jæja, forherti smugufarinn þolir
ekki gras, hugsaði ég með mér og
horfði á karlmennsku hans rýrna
með hverri lóritíntöflunni sem
hann stakk upp í sig. Hins vegar
rak ég mig á að undir okkar gulu
sól er algengt að ofurmenni séu
veiklunduð fyrir því sem grænt er;
það er stigs- en ekki eðlismunur á
kryptóníti og grasi.
SÁ jarpi launaði mér hins vegar
meðvirknina með því að afhjúpa
blekkinguna enn frekar. Hann kom
í vinnuna á hjóli. Fyrir það fyrsta á
maður eins og hann að vera á dæld-
uðum pallbíl, sem eyðir svo miklu
bensíni að hann kemst varla á milli
bensínstöðva. En ekki nóg með að
hann færi ferða sinna eins og kerl-
ing með áhyggjur af línunum held-
ur þurfti hann líka að detta og
brjóta á sér höndina á leið í vinnu.
KYNNI mín af rauðhærða rost-
ungabananum gerðu mér grein
fyrir því að væntingar mínar um
karlmennsku geta verið óraunhæf-
ar. Mér varð hugsað til þess þegar
ég flissaði að sveittu gríni Geirs
Haarde um að þótt maður gæti ekki
alltaf farið með sætustu stelpuna
heim af ballinu væri hægt að finna
eitthvað sem gerði sama gagn. Ég
hef áttað mig á því að hann hefði
aldrei lagt í að bjóða sjálfur upp
flottasta kostinum af ótta við höfn-
un. Hins vegar sé ég að kolleggi
hans Björn þorir að minnsta kosti
að bjóða því flottasta upp í dans þótt
hann viti vel að fyrstu danssporin
verði ekki stigin alveg strax. Svona
svo notað sé líkingamál Geirs.
Rostungabanar
og evra