Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 4
4 6. desember 2008 LAUGARDAGUR
PÓLLAND, AP Pólverjar minntust
þess í gær að aldarfjórðungur var
liðinn frá því Lech Walesa, sem þá
var í fararbroddi lýðræðishreyf-
ingar í Póllandi, fékk friðarverð-
laun Nóbels fyrir þau störf sín.
Í tilefni dagsins komu nokkrir
aðrir friðarverðlaunahafar, þar á
meðal Dalaí Lama, leiðtogi
Tíbetbúa, í heimsókn til Póllands.
Þeir Walesa hittust á fundi með
átta hundruð fulltrúum æskulýðs
heimsins í borginni Gdansk.
Við það tækifæri sagði Dalaí
Lama meðal annars að það þyrfti
ekki að taka nema fáeina daga að
leysa deiluna um Tíbet ef Kína
yrði opnara samfélag en nú er.
- gb
Lech Walesa:
Nóbelsverðlaun
í aldarfjórðung
DALAÍ LAMA OG LECH WALESA Hittust í
Póllandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ATVINNULÍF Bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar vill að ríkisstjórnin dragi
ekki lengur að ganga frá fjárfest-
ingasamningi vegna væntanlegs
álvers Norðuráls í Helguvík.
„Það er orðinn nokkuð langur
tími síðan þetta fór fyrir ríkis-
stjórnina og hver vika sem líður
tefur framhald verkefnisins og það
er mjög bagalegt,“ segir Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
Framkvæmdir við álverið í
Helguvík hófust í júní í sumar en
eftir hrun íslenska bankakerfisins
var verkefnið tekið til endurskoð-
unar og verulega hægt á fram-
kvæmdum. Unnið er áfram við und-
irstöður kerskála en ekki er farið í
nýjar framkvæmdir að sögn Ágústs
Hafbergs, talsmanns Norðuráls.
Ágúst segir að Helguvíkurverk-
efnið sé annars vegar til endurskoð-
unar vegna breyttrar stöðu eftir
hrun íslenska bankakerfisins sem
átti að að standa að fjármögnun
þess. Hins vegar hafi myndast tæki-
færi vegna lækkaðs efniskostnaðar
fyrir byggingu álversins.
„Áður en við höfum niðurstöður
úr endurskoðuninni getum við ekk-
ert sagt,“ svarar Ágúst aðspurður
um það hvenær hægt verði að hefja
starfsemi í Helguvík. Áður var
áætlað að það yrði í lok ársins 2010.
Árni Sigfússon telur að töfin verði
sennilega um sex mánuðir, hugsan-
lega lengri. Hann segir útilokað að
allt verkefnið fari út um þúfur. „Það
er það sterkt að það myndi aldrei
gerast. Það er mikið frekar töfin
sem við höfum áhyggjur af á þess-
um tímum.“
Árni undirstrikar mikilvægi þess
að ríkisstjórnin afgreiði fjársfest-
ingasamninginn sem lýtur að skatta-
málum og fleiri þáttum. Þetta þurfi
að liggja fyrir til þess að hægt sé að
ganga frá nýrri fjármögnun. Ekki
sé farið fram á neitt annað en ríkið
hafi þegar veitt vegna annarra
álvera.
Árni kveðst enga skýringu hafa
fengið á töfunum frá ríkinu. „En í
sjálfu sér höfum við fulla trú á að
það sé verið að fara yfir þetta sam-
viskusamlega. Það hlýtur að vera
allra hagur að koma þessu sem
fyrst í gang,“ segir bæjarstjórinn.
Um eitt þúsund manns eru
atvinnulausir á Suðurnesjum og
Árni segir um áttaíu prósent þeirra
vera ófaglærða. Í bókun bæjar-
stjórnar frá því á þriðjudag kemur
fram að álver í Helguvík kalli á 300
milljarða króna fjárfestingu inn í
landið og skapi sjö hundruð „varan-
leg, vel launuð störf og gríðarlegar
gjaldeyristekjur.“ gar@frettabladid.is
Ríkið ljúki samningi
fyrir álver í Helguvík
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar vill að ríkið sýni álversframkvæmdum í Helguvík
stuðning á viðkvæmum tímum og afgreiði fjárfestingasamning. Álverið er í
endurskoðun og óvissu eftir að fjármögnunin hvarf með íslensku bönkunum.
SKÓFLUSTUNGA Í HELGUVÍK Bæði viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra voru með
þegar fyrstu skóflustungurnar að væntanlegu álveri í Helguvík voru teknar í júní. Nú
er óvíst með framhaldið. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Það hlýtur að vera allra
hagur að koma þessu sem
fyrst í gang.
ÁRNI SIGFÚSSON
BÆJARSTJÓRI
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
3
3
2
2 1
1
3
6
4
7
-1
8
10
8
9 8
8
8
9
8
12
10
3
1 -3
-3
1
19°
9°
5°
5°
6°
9°
4°
1°
6°
6°
20°
7°
5°
23°
1°
8°
15°
5°Á MORGUN
10-15 m/s með ströndum
sunnan og austan til annars
hægari.
MÁNUDAGUR
10-15 norðaustan og
austan til annars hægari
1 -4
-3
-3-3
SKAMMVINN HLÝINDI
Enda þótt höfuð-
borgarbúar og aðrir
landsmenn á sunnan-
og vestanverðu landinu
kunni að sjá hitatölur
á bilinu 5-7 stig í dag
þá eru þessar tölur
ekki komnar til að vera.
Í dag verður svalara
norðan og austan til
en strax í kvöld fer að
kólna, fyrst norðan til.
Á morgun verður hiti
víðast hvar eða undir
frostmarki en þó mild-
ara suðvestan til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
VIÐSKIPTI „Lækkunin stendur núna
í um fjörutíu milljörðum, miðað
við það sem hæst var,“ segir
Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga-
fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, um
skuldir fyrirtækisins.
Þær hafa lækkað samfara
styrkingu krónunnar í gær og
fyrradag. Þær hækkuðu mikið
þegar gengi krónunnar lækkaði.
Heildarskuldir Orkuveitunnar
nema um 180 milljörðum króna.
Eiríkur bætir því við að eigið fé
félagsins hafi aukist um fimmtung
við gengishækkunina.
Sé miðað við níu mánaða uppgjör
félagsins má ætla að það nemi um
það bil 50 milljörðum króna. - ikh
Orkuveitan græðir á genginu:
Skuldir lækka
um milljarða
BANDARÍKIN Leikarinn og
ruðningskappinn OJ Simpson var
í gær dæmdur til fimmtán ára
fangelsisvistar
fyrir mannrán
og vopnað rán.
Vitorðsmaður
Simpsons,
Clarence
Stewart, fékk
jafn langan
dóm. Þeir voru
fundnir sekir
um alls tólf
ákæruliði í
október, og hefur verið haldið í
gæsluvarðhaldi síðan.
Simpson og Stewart voru
dæmdir fyrir að ræna tveimur
mönnum sem sérhæfðu sig í sölu
íþróttaminjagripa og halda þeim
á hótelherbergi í september á
síðasta ári.
Árið 1995 var Simpson sýknað-
ur af ákæru um morðið á fyrrum
eiginkonu sinni, Nicole Brown, og
Ronald Goldman vini hennar. - kg
Leikari og ruðningskappi:
OJ Simpson í 15
ára fangelsi
O.J. SIMSPON
Forseti vill efla baráttuanda
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, ræddi á miðvikudag við
danska sérfræðinginn Claus Möller
um hvernig skapa megi baráttuanda
og nýta sóknarfæri á komandi árum.
Þetta kemur fram á heimasíðu for-
setaembættisins.
STJÓRNMÁL
GENGIÐ 05.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,6956
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,19 126,79
185,09 185,99
161,09 161,99
21,621 21,747
17,615 17,719
15,22 15,31
1,3675 1,3755
187,60 188,72
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
ÍRAK, AP Ray Odierno, æðsti yfir-
maður Bandaríkjahers í Írak,
segir að nýgerður samningur
Íraksstjórnar og Bandaríkjanna
um öryggismál í landinu valdi
því að Bandaríkjaher þurfi að
gera ýmsar breytingar á því
„hvernig við skipuleggjum, sam-
hæfum og framkvæmum hern-
aðaraðgerðir í Írak“.
Á fimmtudaginn lagði
forsætisráð Íraks blessun sína
yfir samninginn, en samkvæmt
honum er gert ráð fyrir að
Bandaríkjaher verði horfinn frá
Írak innan þriggja ára. Með sam-
þykki forsætisráðsins getur
samkomulagið gengið í gildi, en
Íraksþing hafði áður samþykkt
það.
Odierno sendi í gær frá sér
skriflega yfirlýsingu til banda-
rískra hermanna í Írak, þar sem
hann segir að Bandaríkjaher
þurfi nú að fá samþykki írak-
skra stjórnvalda fyrir öllum
hernaðaraðgerðum.
Samningurinn kemur í staðinn
fyrir umboð Sameinuðu þjóð-
anna sem Bandaríkjaher hefur
starfað eftir til þessa. Það umboð
veitti Bandaríkjamönnum mjög
víðtækar heimildir til að fara
sínu fram í landinu.
Í yfirlýsingunni segir Odierno
að bandarískir hermenn muni
áfram berjast gegn al-Kaída og
öðrum uppreisnarhópum í Írak,
en nú „verðum við að gera það
með fullri virðingu fyrir stjórn-
arskrá og lögum Íraks“. - aa / gb
Samningur Íraksstjórnar við Bandaríkin breytir stöðu Bandaríkjahers í Írak:
Þarf nú að lúta stjórn Íraks
TILRÆÐI Íraskur hermaður, í hópi
með bandarískum kollegum, heldur á
blóðugri flík á vettvangi sprengjuárásar
á útikaffihús í Bakúba. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Straumur lauk í gær við
fjármögnun upp á 133 milljónir
evra, jafnvirði 21 milljarðs króna.
Þetta er fyrsta fjármögnun
íslensks fjármálafyrirtækis sem
kemur erlendis frá eftir banka-
hrunið fyrir um tveimur mánuð-
um.
Straumur hefur hvorki gefið
upp lánakjör né hverjir standi að
því. Það eru ekki aðilar tengdir
bankanum, samkvæmt upplýsing-
um frá Straumi.
Haft er eftir William Fall,
forstjóra, að fjármögnunin sé
mikilvægur áfangi fyrir Straum,
sérstaklega í ljósi núverandi
aðstæðna á markaði. - jab
Fjármögnun skilar sér í hús:
Straumur nældi
sér fyrstur í fé