Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 95
LAUGARDAGUR 6. desember 2008 75
Leikarinn Tom Cruise vildi kvæn-
ast eiginkonu sinni Katie Holmes
um leið og hann sá hana. „Ég vissi
að ég vildi kvænast Kate þegar ég
hitti hana. Einu sinni hélt ég að hún
ætlaði að bera upp bónorðið og ég
stöðvaði hana með því að breyta
um umræðuefni. Mig langaði til að
spyrja hana sjálfur,“ sagði Cruise.
Hann segist hafa keypt trúlofun-
arhring handa henni skömmu eftir
fyrsta stefnumót þeirra árið 2005.
Sjálf sagði Kate eitt sinn að hana
hafði dreymt um að giftast Cruise
þegar hún var lítil stúlka. „Ég vildi
ekki valda henni vonbrigðum,“
sagði Cruise.
Kate segist hafa verið yfir sig
ástfangin af Cruise eftir fyrsta
stefnumótið. „Hann var svo hlýleg-
ur og ég hugsaði: „Þetta er ótrúlegt.
Þú getur verið stórstjarna og líka
góð manneskja“.“
Hún þvertekur fyrir að hún sé
höfð upp á punt í hjónabandinu og
hafi ekkert fram að færa lengur.
„Þessi misskilningur er í gangi um
að ég sé eins og veggfóður og hafi
enga stjórn á lífi mínu. Það er rangt.
Allt frá upphafi hef ég valið sjálf
það sem ég hef viljað gera í mínu
lífi.“ Katie lék nýverið í fyrsta sinn
á Broadway í leikritinu All My
Sons. Hún segir að fjölskyldan sé
núna í fyrirrúmi og er alveg sama
þótt eiginmaðurinn sé meira í sviðs-
ljósinu. „Ég er móðir og leikkona
sem leikur í leikriti á hverju kvöldi.
Ég get ekkert hugsað um að vera
endalaust í sviðsljósinu.“
Hringur eftir fyrsta stefnumót
ÁSTFANGIN Tom Cruise og Kate Holmes urðu ástfangin við fyrstu sýn þegar þau
hittust fyrir þremur árum.
Kate Beckinsale hefur ekki enn
náð bílprófinu, þrátt fyrir að hafa
reynt það í átján ár. Leikkonan,
sem er 35 ára, segist óttast að
keyra bíl, en sjálfstraustið hafi
aukist til muna eftir að henni tókst
að keyra lítinn golfbíl nýverið.
Hana dreymir reglulega að hún sé
að keyra bíl úti á hraðbraut og
segist óttast það mjög.
Kate hefur náð verklega
bílprófinu en féll á skriflega
hlutanum. Hún segist hrædd um að
Lily, níu ára dóttir hennar, fái
bílprófið á undan sér með þessu
áframhaldi, en þá mun hún samt
geta keyrt Kate milli staða. Annars
segist hún alltaf geta fengið sér
rafknúinn hjólastól líkt og eldri
borgarar.
Reynir enn
við bílprófið
FÉLL Á SKRIFLEGA PRÓFINU Kate óttast
að níu ára dóttir sín nái bílprófinu á
undan sér ef hún heldur áfram að falla.
Myndform ehf • Trönuhraun 1 • Sími: 534 0400 • www.myndform.is • myndform@myndform.is
Leikurinn
Í íslenska spurningaspilinu áttu að svara spurningum
í 6 mismunandi okkum. Teningskast ræður hve
marga reiti þú færir leikpeð þitt áfram á borðinu. Ef
þú lendir á “Sögu” reit þá átt þú að svara spurningu
um sögu lands og þjóðar. Í hvert skipti sem þú svarar
rétt þá færð þú Íslandskort í sama lit og er á reitnum.
Markmiðið er að safna íslandskortum í öllum litum
(þau fást fyrir rétt svör). Þegar þú hefur safnað öllum
6 litunum þá veitir það þér heimild til að fara í átt að
miðju þar sem lokareit er að nna. Ef þú svarar rétt í
síðustu spurningunni þá vinnur þú leikin.
Hversu vel þekkir þú Ísland?
Íslenska spurningaspilið hefur að geyma 2.400 áhugaverðar spurningar sem
tengjast Íslandi. Spurningarnar eru í 6 eftirtöldum flokkum: Saga, menning,
náttúra, landafræði, íþróttir og ýmislegt. Að spila íslenska spurningaspilið veitir
ekki aðeins ánægju heldur eykur þekkingu leikmanna á landi og þjóð.
Það sem gerir spilið spennandi er að spurningar eru miserfiðar, styrkleikar leikmanna
eru mismunandi eftir flokkum og teningakast ræður á hvaða flokki menn lenda.
Innihald:
400 spurningaspjöld með 2.400 spurningum og svörum, leikborð, 6 leikpeð,
36 kort af Íslandi (í 6 mismunandi litum), 1 teningur og reglur.
SAGA
MENNING
NÁTTÚRA
LANDAFRÆÐ
I
ÍÞRÓTTIR
ÝMISLEGT
Auður Auðu
ns
Bjarni Thor
arensen
Systrafoss
Á Hveravöl
lum
Eggert Stefá
nsson
Já
SAGA
MENNING
NÁTTÚRA
LANDAFRÆÐI
ÍÞRÓTTIR
ÝMISLEGT
Hvaða íslenski biskup lét taka upp núverandi nöfn vikudaganna?Hver skrifaði bókina Mávahlátur?
Hvaða smávöxnu dýr eru algeng í Öskjuhlíðinni?
Nálægt hvaða bæjarfélagi er Laxá í Ásum?
Fyrir hvaða íþróttafélag keppti Jón Páll Sigmarsson í kraftlyftingum?Fyrir hvaða stjórnmálaokk sat Ragnhildur Helgadóttir á Alþingi?