Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 10
10 6. desember 2008 LAUGARDAGUR
EÐALHANI Á SÝNINGU Á fuglaræktar-
sýningu í Leipzig í Þýskalandi var
þessi borginmannlegi hani mættur og
spígsporaði sigurviss um sviðið. Hann
mun vera af ítalskri hænuætt og sló
aldeilis í gegn á sýningunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÉLAGSMÁL Hjálparstarf kirkjunnar
og Mæðrastyrksnefnd fengu á
fimmtudaginn afhentar 50 milljónir
króna úr Pokasjóði verslunarinnar.
Peningarnir eru ætlaðir skjólstæð-
ingum samtakanna nú fyrir jólin og
fram eftir vetri.
Styrkurinn er í formi gjafakorta
sem gilda í matvöruverslunum
innan Pokasjóðs en kortin eru notuð
með sama hætti og önnur greiðslu-
kort. Um tvær tegundir korta er að
ræða. Kort með 5 eða 10 þúsund
króna inneign.
Úthlutunin nú er sú hæsta í 13 ára
sögu Pokasjóðs. Frá stofnun sjóðs-
ins hafa verkefni á sviði umhverfis-
mála, mannúðarmála, lista, menn-
ingar, íþrótta og útivistar verið
styrkt með upphæðum á bilinu frá
nokkrum tugum þúsunda til allt að
7,5 milljóna. Í tilkynningu frá stjórn
Pokasjóðs segir að í ljósi aðstæðna í
þjóðfélaginu sé í ár eingöngu úthlut-
að til mannúðarmála. Þá segir að
stuðningur sjóðsins við Hjálpar-
starf kirkjunnar og Mæðrastyrks-
nefnd sé ekki síst veittur í ljósi
styrkleika þeirra og getu til að koma
til aðstoðar um land allt. Þó stuðn-
ingurinn sé veittur í nafni Pokasjóðs
sé mikilvægt að hafa í huga að neyt-
endur standi að baki sjóðnum, með
kaupum á plastburðarpokum í mat-
vöruverslunum en helmingur sölu-
verðsins rennur í Pokasjóð. - ovd
Úthlutun Pokasjóðs til Hjálparstarfs kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar sú hæsta frá stofnun sjóðsins:
Fá fimmtíu milljónir úr Pokasjóði
50 MILLJÓNA GJAFAKORT Ragnhildur G. Guðmundsdóttir og Margrét K. Sigurðar-
dóttir, frá Mæðrastyrksnefnd og herra Karl Sigurbjörnsson, biskup, taka við styrknum
frá Höskuldi Jónssyni, stjórnarmanni í Pokasjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÆKKAÐ
VERÐ
Vnr. 88949763-5
Ljósaturn
Ljósaturn 40cm-90cm.
20 ljósa, 40 cm 1.190 kr. 2.490 kr.
30 ljósa, 60 cm 1.790 kr. 3.590 kr.
50 ljósa, 90 cm 2.990 kr. 5.990 kr.
Ódýr
t
50%
afsláttur
1.190
Verð frá
INNISKRAU
T
Á VÖLDUM
JÓLAVÖR
UM
www.ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
-2
1
7
4
Hátíðlegir
um jól in
BANDARÍKIN, AP Hillary Clinton
ætlar að hafa með sér í utanríkis-
ráðuneyti Bandaríkjanna bæði
nánustu stuðningsmenn sína og
sumt af fyrrverandi samstarfs-
fólki eiginmanns síns, Bills Clin-
ton, frá forsetatíð hans.
Margir helstu ráðgjafar hennar í
utanríkismálum verða fyrrverandi
embættismenn ráðuneytisins, sem
störfuðu þar þegar Madeleine
Albright gegndi ráðherraembætt-
inu í stjórn Bills Clinton.
Hillary Clinton virðist með þessu
ætla að tryggja að hún nái fram
þeim málum sem hún leggur
áherslu á frekar en að lúta stjórn
Obama og ráðgjafa hans í einu og
öllu.
Obama sýndi stuðning sinn við
Clinton í gær með því að hvetja
stuðningsfólk sitt til að gefa fé til
hennar svo hún geti greitt niður
skuldir frá kosningabaráttunni
fyrr á árinu, þegar þau kepptu um
útnefningu Demókrataflokksins á
forsetaefni.
Clinton skuldaði í byrjun nóvem-
ber 7,5 milljónir dala vegna kosn-
ingabaráttunnar. Hún hefur mark-
visst unnið að því að greiða niður
skuldirnar síðan í júní, þegar hún
viðurkenndi sigur Obama í barátt-
unni um útnefningu flokksins.
Obama hefur tekið virkan þátt í
að hjálpa henni að afla fjár til að
greiða niður skuldirnar, en tíminn
er naumur því eftir að þingið hefur
fallist á að hún verði utanríkisráð-
herra þá takmarkast möguleikar
hennar til að afla fjár vegna laga
um opinbera embættismenn.
Sjálfur sló Obama öll met í fjár-
öflun til kosningabaráttu sinnar. Í
gær kom í ljós að samtals hafði
hann fengið 745 milljónir dala til
ráðstöfunar, en það nemur um það
bil 90 milljörðum íslenskra króna,
samkvæmt genginu eins og það var
síðdegis í gær.
Þetta er helmingi hærri upphæð
en keppinautur hans úr Repúblik-
anaflokknum, John McCain, safn-
aði.
Þegar baráttunni var lokið átti
Obama eftir 30 milljónir dala í
sjóðum sínum, en óvíst er enn hvað
verður um það fé.
Obama hefur verið óvenju fljót-
ur að velja sér ráðherra í stjórn
sína, sem tekur við 20. janúar næst-
komandi. Nú síðast skýrði hann frá
því að Bill Richardson, ríkisstjóri í
Nýju-Mexíkó, yrði viðskiptaráð-
herra í næstu ríkisstjórn Banda-
ríkjanna sem tekur við í janúar
næstkomandi. gudsteinn@frettabladid.is
Clinton tekur með
sér gamla félaga
Obama hvetur stuðningsmenn sína til að hjálpa Hillary Clinton að greiða 7,5
milljóna dala skuld vegna forkosninganna. Obama sló sjálfur öll met í fjáröflun
vegna eigin baráttu en samtals fékk hann 745 milljónir dala í sjóðinn.
BARACK OBAMA OG HILLARY CLINTON Clinton tekur með sér í utanríkisráðuneytið
nánustu samstarfsmenn sína og fyrrverandi starfsfólk úr utanríkisráðuneytinu frá
forsetatíð eiginmanns hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Jóhann Sigurðarson
hefur verið dæmdur í fjögurra ára
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
fimm ára telpu.
Maðurinn ruddist í heimildar-
leysi inn í hús í Reykjavík. Hann
losaði stormjárn í glugga, sem
hann smaug síðan inn um. Því
næst fór hann inn í svefnherbergi
á neðri hæð hússins þar sem telp-
an svaf við hlið ömmu sinnar.
Hann færði barnið úr náttbuxum
og nærbuxum og sleikti kynfæri
þess.
Amma telpunnar vaknaði við
umganginn og rak manninn út um
útidyrnar. Hún kvað mikinn
áfengisþef hafa lagt frá honum.
Maðurinn neitaði sök fyrir dómi.
Hann bar við minnisleysi og
kvaðst ekkert muna eftir sér
vegna áfengisneyslu á þeim tíma
sem brotið var framið.
Dómurinn taldi sannað að mað-
urinn hefði gerst sekur um þau
brot sem hann var ákærður fyrir.
Auk fangelsisrefsingarinnar
var maðurinn dæmdur til að
greiða telpunni 800 þúsund krónur
í miskabætur. Umræddur maður á
að baki langan sakaferil. Þar á
meðal að taka fjögurra ára gamalt
stúlkubarn sofandi úr rúmi sínu
og fara með það út úr húsi um
hánótt um miðjan vetur.
- jss
Karlmaður smaug inn um glugga á húsi í Reykjavík að næturlagi:
Fjögur ár fyrir kynferðisbrot
gegn fimm ára stúlkubarni