Fréttablaðið - 06.12.2008, Blaðsíða 54
● heimili&hönnun
hönnun
Abhijeet Kumar, iðn- og húsgagna-
hönnuður, býr og starfar í Ah-
medabad á Indlandi. Hann hann-
ar undir merkinu THINKS sem
er samansett úr orðunum „thing“,
eða hlutur og „think“, eða hugsun.
Kumar líkir aðdragandanum
að hönnun sinni sem skákleik. Í
huga skákmannsins úi og grúi af
hugmyndum og hugsunum um
næsta leik en útkoman sjáist að-
eins í færslu á næsta peði. Hann
segir THINKS leið Kumars til að
finna slíkt samhengi í hlutum í
umhverfi okkar. Einfaldir hlut-
ir sem hafi notagildi. Sjá http://
thingks.wordpress.com/ - sg
Sameinar hluti og hugsun
● Abhijeet Kumar er húsgagnahönnuður sem hannar undir merkinu THINKS.
Spline er
húsgagn sem
hægt er að raða saman á
mismunandi hátt. Það getur
bæði verið stóll, sófi, bekkur
og legubekkur. Spline er
samansett úr þremur hlutum
úr plasti sem bæði er hægt að
nota innandyra og utan.
Frumútgáfa af ljósakrónu úr pappír sem ætlunin er að lýsi upp rými með LED-ljósum.
Meðal þeirra íslensku hönnuða sem bjóða hönnun sína til sölu á jóla-
basar Kling og Bang í dag eru Thelma Design en hún kynnir nýja línu af
höfuðskrauti. Heklaðar púðluhundatöskur frá Hildi
Yeom- an verða á basarnum auk prjónaselanna
hlýju frá Vík Prjónsdóttur. Töskur frá
Hidden goods verða á boðstólum auk
skartgripa eftir Maríu Kristínu. Þarna
gefst gestum og gangandi tækifæri
til að kaupa íslenska hönnun til jóla-
gjafa á góðu verði, hlýða á tónlist
og gæða sér á jólasmákökum og
kakói.
Basarinn er haldinn í Kling og
Bang að Hverfisgötu 42 í dag, milli
klukkan 12 og 20.
● TEHETTA FYRIR
HRYÐJUVERKAMENN
Tehettur eru til þess ætlaðar að
halda hita á tekönnum. Oft eru
þær útsaumaðar, aðrar útbúnar
vösum sem setja má í ilmjurtir eða
blóm. Svo eru aðrar tehettur sem
líkjast helst höfuðfötum en gaman-
leikarinn Billy Connolly sagði eitt sinn að sé maður skilinn eftir
einn í herbergi með tehettu og reyni ekki að setja hana á haus-
inn, sé þeim manni ekki treystandi. Það er hins vegar spurning
hvort maður fengi góðar viðtökur með þessa tehettu á hausnum
sem finna má á vefsíðunni www.suck.uk.com. Þó getur verið að
íslenskir „hryðjuverkamenn“ setji þessa skemmtilegu tehettu á
jólagjafalistann hjá sér.
Welcome
chair er
stóll sem
líkist helst
háhæluð-
um skó.
Fallegt og einfalt viðarborð
með fögrum smáatriðum.
Dreifingaraðili:
Fæst í verslunum um land allt
NÝTT Á ÍSLANDI
Hin geysivinsæla Disney útgáfa er komin í verslanir:
Opnaðu töfraheim Disney og
spilaðu Trivial Pursuit með
allri Fjölskyldunni.
6. DESEMBER 2008 LAUGARDAGUR4