Fréttablaðið - 12.12.2008, Side 40

Fréttablaðið - 12.12.2008, Side 40
4 föstudagur 12. desember núna ✽ toppurinn á ísjakanum... Dreifingaraðili: Fæst í verslunum um land allt Nú er komið af því loksins á Íslandi Stelpur á móti strákum Inniheldur: 1200 spennandi spurningar fyrir stelpur og stráka 2 teningar fylgja Hægt er að spila án spilaborðs Hva ð my nda r bó ksta finn O í plak ati kvik myn dari nna r Th e sim pso ns M ovie ? Hvert var söluhæsta ítalska tískuvörumerki heims árið 2007? Hvaða söng-og leikkona kallaði fyrsta ilmvatnið sitt Glow? Hva ða ís lens ka h ljóm svei t sön g um kind ina E inar ? Helga Ólafsdóttir, fatahönnuð- ur hjá Latabæ og Isay í Dan- mörku, töfraði fram ekta ís- lenskt matarboð á dögun- um. Það sem er óvenjulegt við boðið er að það var haldið fyrir blaðamenn frá tímaritun- um Monocle og New Yor- ker. Blaða- mennirn- ir komu til Ís- lands til að taka púls- inn á unga fólkinu í versn- andi efnahagsástandi. Aðal- hugmynd blaðamannanna var að skrifa jákvæða grein um ástandið á Íslandi. Helga töfraði fram matarboð með ís- lensku þema. Fiskisúpu og skyrköku í eftirrétt. Með þessu var að sjálfsögðu drukkið malt og appelsín. Helga var þó ekki ein í matarboðinu því Berg- ur Ebbi í Sprengihöllinni var á svæðinu ásamt Rán Ingvars- dóttur, Daníel Frey Atlasyni hjá Johnson & Lemark´s aug- lýsingastofunni og Jóni Hauki Baldvinssyni hjá Marel. - mmj Erlendir blaða- menn í heimsókn FRÍÐA OPNAR SÝNINGU Fríða Kristín Gísladóttir myndlistarkona opnar sýningu í dag kl. 17 í versluninni Heimili og hugmyndir. Sýningin ber heitið Ísland er landið og þar mun Fríða sýna olíumálverkin sín. Þetta er sýning sem enginn má missa af. O kkur langar ti l að gefa ungum íslenskum hönn- uðum tækifæri til að sýna verk sín í borginni,“ segir Rut Marrow Theodórsdóttir innanhússhönn- uður sem rekur arkitektastofuna Room-Service í Vínarborg með eiginmanni sínum, Norbert Gra- bensteiner. Þau hafa rekið stof- una síðastliðin þrjú ár í glæsilegu húsnæði í miðborginni, en stof- an skiptist niður vinnustofu þar sem hönnunarvinnan fer fram og sýningarsal þar sem haldnar eru vínkynningar, málverkasýning- ar, matarboð og plötusnúðakvöld. Verkefnin sem Rut og Norbert hafa unnið að eru ekki af verri endan- um, en það nýjasta er húsnæði fyrir Traunsteinsport-heildsöluna í nágrenni við Salzburg sem selur hátísku sportfatnað og á teikni- borðinu er nýtískulegt vínhús fyrir vínbóndann Hubert Sandhofer. Rut segist heilluð af íslenskri hönnun. Sjálf prjónar hún og þæfir úr íslensku ullinni og lang- ar nú, í samvinnu við Helgu Stein- þórsdóttir í Linz, að gefa ungum fatahönnuðum tækifæri til að sýna verk sín í Vínarborg. „Yngri kynslóðin er mjög meðvituð um náttúruperlur og tækifæri Íslands. Okkur langar að halda tískusýn- ingu fyrir unga íslenska fatahönn- uði og þá er hugmyndin að hafa hana í portinu á bak við arkitekta- stofuna okkar,“ útskýrir Rut sem var byrjuð að skipuleggja sýning- una þegar bankakreppan skall á og tónlistin, sem er samin af Ívari Marrow, er nú þegar tilbú- in. „Ég var komin í samband við tvo hönnuði og við vorum að fara að hrinda verkinu í fram- kvæmd þegar kreppan skall á. Það reyndist því erfitt fyrir hönnuðina að fá styrk til að koma, en við ætlum að kýla á þetta í byrjun næsta árs,“ segir Rut. - ag Rut Marrow Theodórsdóttir innanhússhönnuður: TÍSKUSÝNING Í VÍN Hvítt Húsnæði Traunsteinsport-heildsölunnar, sem selur hátísku sportfatnað, er alhvítt og viðskiptavinir fá sérstaka inniskó þegar þeir koma og kaupa inn. Öflug Rut vill gefa ungum íslenskum fata- hönnuðum tækifæri til að sýna verk sín í Vín- arborg þar sem hún rekur arkitektastofuna Room-Service. Glæsilegt Rut og Norbert hönnuðu vín- hús Schilhans sem var tilbúið í júní. Það er í Suður-Styria, við landa- mæri Sló- veníu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.