Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 24
24 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson bih@markadurinn.is og Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 SPÁÐU Í HVAÐ ÞÚ SPARAR! Ný r Or ku lyk ill NÝ JU NG 5 kr. afsláttur þegar þú notar Orkulykilinn í fyrsta sinn! Alltaf 2 kr. afsláttur af dæluverði Bensínorkunnar sem kannanir sýna að er lægra en hjá öðrum! www.orkan.is K rafan um opna umræðu og að upplýsingum sé miðlað á skilvirkan hátt til almennings hefur orðið æ háværari í kjölfar bankahrunsins. Fjölmiðlum hefur gengið treglega að fá svör við þeim fyrirspurnum sem þeir beina til ráðherra, Seðla- banka, Fjármálaeftirlits og bankanna. Rifja má upp leyndina sem hvíldi yfir skilyrðunum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn setti fyrir lánveitingu til Íslendinga, hversu lengi stóð á að upp- lýsingar væru veittar um launakjör bankastjóra nýju bankanna og það hversu illa hefur gengið að fá svör við spurningum um niðurfellingu ábyrgðar á lánum til starfsmanna Kaupþings. Líklega er lítil von til þess að upplýsingaflæðið batni meðan viðhorf þingmanna til þess að veita upplýsingar um eigin fjár- hagstengsl eru eins og í ljós kom þegar Fréttablaðið fór þess á leit að fá upplýsingar um það hverjir hefðu stutt þá í próf- kjörsbaráttunni fyrir síðustu alþingiskosningar. Langt innan við helmingur þingmanna treysti sér til að svara fyrirspurn Frétta- blaðsins, eða 26 af 63. Greinilegt er að þingmenn stjórnarflokkanna eru viðkvæm- ari fyrir því að láta af hendi upplýsingar um fjármálatengsl sín en þingmenn stjórnarandstöðunnar. Einungis tveir af 25 þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins létu Fréttablaðinu í té þessar upplýsingar eða 8 prósent. Samfylkingarþingmennirnir stóðu sig heldur skár og voru sjö af átján tilbúnir að senda blaðinu upplýsingarnar, eða 39 prósent. Helmingur þingmanna Frjáls- lynda flokksins gaf upp um tengsl sín og 86 prósent framsókn- arþingmanna. Þingmenn Vinstri grænna skáru sig algerlega úr, svöruðu allir sem einn og eiga skilið hrós fyrir, sem og vitanlega allir hinir sem veittu upplýsingarnar. Fálegar undirtektir þingmannanna eru í hróplegu ósamræmi við það sem þeir boða í orði. Rætt er um mikilvægi opinnar umræðu þar sem ekkert megi draga undan og mikilvægi þess að öll spilin liggi á borðinu til þess að draga megi úr þeirri tor- tryggni sem byggst hefur upp í samfélaginu síðustu vikur. Kraf- an um að afnema bankaleynd hefur hljómað og er studd af bæði þingmönnum og ráðherrum í ríkisstjórninni, þeim hinum sömu sem treysta sér ekki til að upplýsa um tengsl sín við fyrirtæki, félög og einstaklinga. Við þetta má svo bæta að bæði Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur eiga eftir að skila ársreikningum fyrir árið 2007 til ríkisendurskoðanda en stjórnmálaflokkar eiga nú í fyrsta sinn að standa skil á ársreikningum. Frestur þeirra rann út 1. október. Það er þingmönnum mikilvægt að leggja sitt af mörkum til þess að byggja upp traust almennings á stjórnvöldum. Viðbrögð þeirra við umleitan Fréttablaðsins eru svo sannarlega ekki lóð á þær vogarskálar. Það hefði vissulega verið líklegra til árangurs að þeir gengju á undan með góðu fordæmi og upplýstu undan- bragðalaust um eigin tengsl. Opin umræða og minnkandi tortryggni er meðal þess sem skiptir sköpum þegar reisa á samfélagið úr þeim rústum sem það er nú komið í. Mikilvægt er að uppræta tortryggni. Á eða undir borði STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR Kreppan á Íslandi er dýpri en í öðrum löndum, enda hafa Íslendingar einir þjóða í Vestur- Evrópu óskað eftir og fengið neyðarhjálp á vegum Alþjóðagjald- eyrissjóðsins. Staðhæfingar stjórn- valda um, að Ísland sé saklaust fórnarlamb erlendra fjármála- sviptinga, eru villandi og duga ekki til að firra stjórnarvöldin ábyrgð á ítrekuðum afglöpum og yfirsjónum. Yfirvöldunum virðist fyrirmunað að axla ábyrgð á eigin misgerðum og biðjast afsökunar, hvað þá draga sig í hlé. Það máttu kommúnistar í Austur-Evrópu eiga, að þeir kunnu sumir að skammast sín og báðust afsökunar, eftir að þeir höfðu keyrt lönd sín í kaf, og áttu þá sumir þeirra afturkvæmt í stjórnmálastarf. Virðingarleysi Hvers vegna er kreppan hér dýpri en annars staðar? Höfuðskýringin liggur að minni hyggju í rótgrónu virðingarleysi stjórnmálastéttar- innar gagnvart hagkvæmum og réttlátum búskaparháttum. Stjórnvöldum tókst lengi vel að breiða yfir landlægt hirðuleysi í hagstjórn og hagskipulagi með erlendri skuldasöfnun, verðbólgu og ofveiði. Þessar leiðir lokuðust ein af annarri. Lánstraust Íslands í útlöndum er ekkert eins og sakir standa, svo að eigið sparifé þjóðarinnar, stórlega skert eftir gereyðingu undangenginna vikna, verður að duga til framkvæmda næstu ár. Verðbólga var lengi notuð til að rýra lífeyri almennings og annan sparnað til að breiða yfir óhagkvæmni í atvinnurekstri, en nú er sú leið ekki lengur fær vegna verðtryggingar. Nýlegar reglur gegn ofveiði leggja bann við auknum veiðum umfram ráðgjöf fiskifræðinga Hafrannsóknastofn- unar. Stjórnvöld neyðast nú til að grípa til harkalegra aðgerða, sem munu skerða lífskjör almennings. Skaðinn er skeður: nú er komið að skuldaskilum. Sjálftekinn auður fer forgörðum Vert er að rifja upp sjávarútvegs- partinn af sögunni. Þegar þorsk- stofninn rambaði á barmi útrým- ingar árin eftir 1980, ákvað Alþingi að hefta veiðarnar með útgáfu aflakvóta. Í stað þess að selja kvótann á markaði, svo að allir sætu við sama borð og ríkið eða byggðirnar öfluðu tekna á hagkvæman hátt, ákvað Alþingi að afhenda útvegsmönnum kvótann án endurgjalds í samræmi við lög, sem útvegsmenn höfðu sjálfir samið skv. frásögn sjónarvotta. Þannig var búin til ný stétt auðmanna, sem ruddu sér í krafti kvótans braut til enn frekari áhrifa og neyttu þeirra m.a. til að halda Íslandi utan Evrópusambandsins gegn vilja meiri hluta þjóðarinnar skv. skoðanakönnunum. Réttmæt- ar tekjur af sameign þjóðarinnar fóru forgörðum. Þær tekjur kæmu sér vel nú, þegar hulunni hefur verið svipt af fyrirhyggjulausri fjármálastjórn undangenginna ára. Kvótakerfið er einnig ranglátt, eins og alþjóð veit og Mannrétt- indanefnd Sameinuðu þjóðanna staðfesti fyrir ári með því að afhjúpa mannréttindabrot af völdum kvótakerfisins. Hæstirétt- ur Íslands hafði áður lagt vald- hlýðna blessun sína yfir mannrétt- indabrot Alþingis. Sjálftekinn auður fer oftast forgörðum. Eða hvað skyldu útvegsfyrirtækin hafa gert við kvótann? Þau veðsettu sameignina til að steypa sér í skuldir í boði bankanna. Skuldir útvegsfyrir- tækja eru nú um 500 milljarðar króna skv. upplýsingum Hagstof- unnar og öðrum opinberum heimildum. Skuldirnar nema nú rösklega þreföldu útflutningsverð- mæti sjávarafurða 2008. Til viðmiðunar námu þær rösklega tvöföldu útflutningsverðmætinu um mitt ár 2007 og voru nokkurn veginn jafnar útflutningsverð- mætinu 1995. Skuldir útvegsfyrir- tækjanna hafa því þrefaldazt miðað við útflutningsverðmæti sjávarafurða frá 1995. Ætla má, að eignirnar, sem keyptar voru fyrir lánsféð, hafi sumar verið í svipuðum gæðaflokki og fjárfest- ingar útrásarvíkinganna, enda samhentir menn að verki. Ekki munaði nema hársbreidd, að borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokksins í Reykjavík tækist að tefla orkulindum Reykvíkinga í hendur sömu manna og settu bankana á hliðina og sjávarútveginn á vonarvöl. Bindum raftana við bryggju Kvótakerfið varðaði veginn fram af bjargbrúninni. Það slævði svo siðvitund stjórnmálastéttarinnar, að hún afhenti einnig bankana mönnum í talsambandi við flokkana að sögn þeirra sjálfra. Nýju eigendurnir þurftu ekki nema örfá ár til að keyra bankana í kaf og fengu grunlausa útvegs- menn til að steypa sér í botnlausar skuldir með sameign þjóðarinnar að veði. Ábyrgðin á hruni bank- anna liggur ekki sízt á herðum þeirra, sem völdu kaupendur bankanna úr hópi vina sinna. Að svo miklu leyti sem útvegsfyrir- tækin rísa ekki undir skuldum, eru veðin – það er að segja kvótinn, þjóðareignin – komin aftur í hendur ríkisins, sem á nú nýju bankana. Nú er lag að slá tvær flugur í einu höggi og taka til í bönkunum og sjávarútveginum og binda gömlu sótraftana við bryggju. Kvótinn varðaði veginn Í DAG | Rætur kreppunnar ÞORVALDUR GYLFASON Ábyrgðarleysið Þingmaðurinn Jón Gunnarsson hefur ekki legið á þeirri skoðun sinni að yfirlýsingar umhverfisráðherrans og viðskiptaráðherrans um að kjósa beri fyrr en síðar séu ábyrgðarlaus- ar. Aðstæðurnar í samfélaginu séu þannig. Sjálfur hefur Jón hins vegar ekki átt í vandræðum með að lýsa yfir að þessir sömu ráðherrar eigi að víkja úr ríkisstjórn. Á þeim sjáist þreytumerki. En hvort ætli feli í sér minni ábyrgð að telja að kjósa beri innan tiltekins tíma eða að segja að ráðherrar þurfi að víkja? Að meta pólitíska stöðu á þann veg að heppilegt sé að þingmenn fái endurnýjað umboð til starfa eða lýsa því yfir að tveir ráðherrar séu í slíku ásigkomulagi að þeim sé ekki sætt í embættum? Veikt þing Margt hefur verið sagt um veika stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdavald- inu í lagasetningaflóði síðustu vikna. Lögmenn og þingmenn – og ekki síst löglærðir þingmenn – hafa fordæmt vinnubrögðin enda segir það sig sjálft að talsverð hætta er á mistökum þegar kappsamir ráðherrar sjá þörf á nýjum lögum fyrir hádegi, semja frumvarp eftir hádegi, leggja það fram að kvöldi og fá það samþykkt sem lög um nótt. En samt sterkara En hugsið ykkur, Alþingi gæti verið enn veik- ara. Fyrir aðeins fáum mánuðum var nefnilega ákveðið að þingmenn landsbyggðarkjördæmanna og formenn stjórnarandstöðuflokk- anna fengju sérstaka aðstoðarmenn. Það var gert til að bæta starfsaðstöðu þingmanna og efla þannig þingið. Vart er hægt að hugsa þá hugsun til enda ef engir væru aðstoðarmennirnir og landsbyggðarþingmennirnir þyrftu að sinna skyldum sínum einir og óstudd- ir. Kjartan Ólafsson væri sjálfsagt algjörlega úti á þekju í sínum störfum ef hann nyti ekki krafta Einars Bárð- arsonar. Og hvar væri Atli Gíslason staddur í sinni pólitík ef hann hefði ekki Heiðu í Unun sér til aðstoðar? Einar og Heiða eru nefnd hér af því að þau eru þekkt. En aðstoðarmennirnir eru 22. Og kosta 60 milljónir á ári. bjorn@frettabladid.is UMRÆÐAN Anna Pála Sverrisdóttir skrifar um enduruppbyggingu Íslands Ísland þarf nú að endurbyggja samfélagið á jöfnuði. Vinda ofan af misskiptingunni sem seinasta ríkisstjórn hafði unnið leynt og ljóst að. Til þess þarf að beina hugarfars- breytingunni sem er að verða, í réttan farveg. Augljós farvegur eru fjárlög íslenska ríkisins sem nú eru til umræðu. Hvernig er verið að forgangsraða þar? Spurningin er sérstaklega mikilvæg nú þegar mikið þarf að skera niður. Hrópandi dæmi um einkennilega forgangsröðun er hinn mikli niðurskurður til Háskóla Íslands og Lánasjóðs íslenskra námsmanna sem nú blasir við. Rifjum fyrst upp þá staðreynd að ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að opna háskólana til að mæta auknu atvinnuleysi. Gott. Bara í HÍ hafa nú 1.400 manns sótt um nám, þar af helmingur í meistaranámi. En það eru svik að beina fólki inn í skóla á sama tíma og jafn mikið fjármagn er tekið út úr þeim. Tæpur milljarður er tekinn af HÍ. 270 milljónir í almennan rekstrarkostnað og 656 milljónir í fyrirhugaða hækkun á rannsókna- framlagi sem búið var að ráðstafa. Framlög til LÍN lækka um 1.360 milljarða. Miðað við fjölda nýrra lánþega og hversu brýnt er að hækka framfærslulánin blasir við að sjóðurinn stendur ekki undir þessu. Hátekjuskattur væri e.t.v. að miklu leyti táknræn aðgerð, þótt orð formanns Sam- fylkingarinnar um það mál hafi verið teygð. Hún myndi samt skila peningum. Ég vil frekar fara þá leið en taka upp komugjöld vegna innlagnar á sjúkrahús eins nú á að gera. Grafalvar- legt. Er þetta táknræn gjaldtaka sem sýnir að tækifærið til að byggja á jöfnuði, á ekki að nota? UJ sendu frá sér ályktun á mánudaginn. Þar er dregið í efa að Sjálfstæðisflokkurinn sé fær um að taka þátt í enduruppbyggingu Íslands þar sem byggt er á jöfnum tækifærum. Samfylkingin hefur náð mörgum velferðarmálum í gegn í ríkisstjórnarsam- starfinu en nú öskrar Ísland á enn betri forgangsröð- un í þágu jafnaðar. Höfundur er formaður Ungra jafnaðarmanna. Forgangsraða! ANNA PÁLA SVERRISDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.