Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 68
44 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR > AÐDÁANDI TEKINN Karlmaður frá Phoenix var hand- tekinn eftir að hann reyndi að ýta til hliðar öryggisverði á næt- urklúbbi til að komast að leik- konunni Lindsay Lohan. Lohan og kærastan hennar, Samantha Ronson, voru á leiðinni inn í klúbbinn þegar maðurinn gerði sig líklegan til að komast að henni. Eftir atvikið sögðust þær ekkert hafa kannast við manninn sem ku vera eld- heitur aðdáandi Lohan. Logi Bergmann verður með óvenjulang- an jólaþátt á föstudaginn. Þar verður boðið til mikillar tónlistarveislu og góða gesti ber að garði. Nægir þar að nefna Sprengjuhöllina, Stefán Hilmarsson og Baggalút. Athyglisverðasta „parið“ verður þó án nokkurs vafa feðgarnir Gissur Sigurðsson fréttamaður og Giss- ur Páll stórtenór. Með sanni má segja að þeir séu báðir gullbarkar þótt raddir þeirra njóti sín á sitthvoru sviðinu; Gissur eldri með leðurþykka rödd sem grípur hlustendur Bylgjunnar í frétta- tímum en Gissur yngri þenur heilu og hálfu óperurnar með sinni einstöku tenórrödd. Gissur fréttamaður velktist þó í vafa um hvort hann myndi taka lagið með stráknum, „Það yrði þá eitthvað algjört leyninúmer,“ segir Gissur og útskýrir að sennilega hafi strákurinn erft sönghæfileikana frá ömmu sinni í föðurætt. Hún hafi verið mikil söng- manneskja. Hæfileikarnir komi í það minnsta ekki frá honum. Gissur hefur reyndar reynt sig við söng, æfði öll lög Hauks Morhtens fyrir stuttmynd sem gerð var fyrir nokkru. „Ég fékk þjálfun og lærði öll lögin hans. En það var hætt við á síðustu stundu að nota mína rödd,“ útskýrir Gissur eldri. Sá yngri upplýsir að hann hafi aldrei heyrt pabba sinn syngja. Og leyfði sér stórlega efast um að af því yrði í jóla- þætti Loga Bergmanns. „Það er samt aldrei að vita hvað Logi getur platað hann út í, það yrði þá kannski svona svipað og ef ég myndi lesa frétt,“ segir sá yngri. - fgg Logi sameinar gullbarka í jólaþætti SAMEINAÐIR GULL- BARKAR Feðgarnir Gissur Sigurðsson og Gissur Páll sameinast væntanlega ekki í dúett á föstudaginn í jólaþætti Loga Bergmanns. Það er frumsýning hjá Gísla Erni Garðarssyni í kvöld í konunglega Shakespeare- leikhúsinu í Bretlandi. Hann leikur í pönkútgáfu af óperunni Don Giovanni. „Hérna eru menn vanir fimm tíma Shakespeare-sýningum þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig þeir bregðast við pönkútgáfu af óperunni Don Giovanni,“ segir Gísli Örn Garðarsson sem stígur ósmeykur á svið hins virta Royal Shakespeare leikhúss í smábæn- um Stratford-upon-Avon í kvöld þegar leikritið Don John verður frumsýnt. Gísli leikur aðalhlutverkið en eiginkona hans, Nína Dögg Filipp- usdóttir fer einnig með stórt hlut- verk í sýningunni. Boðið er til heljarinnar frumsýningarveislu og þar eiga gestir að mæta í fatn- aði frá pönktímabilinu. Gísli var þó ekki viss um að allt fína fólkið myndi mæta í leðurjökkum með gaddaólar. „En það verður spenn- andi að sjá,“ segir Gísli. Þótt bærinn Stratford-upon- Avon sé á stærð við Garðabæ þá er leikhúsið frægt og gestir þess frá London víla ekki fyrir sér að keyra klukkutíma til að geta notið sýninga þess. Leikhúsið var byggt í lok nítjándu aldar til heiðurs leik- ritaskáldinu og þar hafa ekki ómerkari menn en sir Laurence Olivier og Daniel Day Lewis stigið sín fyrstu skref. Gísli kveðst ekk- ert smeykur við breska gagnrýn- endur þótt að þarna væri vissu- lega verið að brjóta blað í sögu leikhússins. „Það verður bara for- vitnilegt að sjá hvernig þetta rót- gróna leikhússamfélag bregst við.“ Gísli og Nína verða úti yfir jólin ásamt dóttur sinni. Hann segir Breta ekkert sérstaklega mikið fyrir jólastemningu. „Nei, jólin eru aðallega bara fyllerí hjá þeim, það er bara verið auglýsa vodka og Baileys,“ segir Gísli. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá fer Gísli með stórt hlut- verk í kvikmyndinni Prince of Persia sem framleidd er af Jerry Bruckheimer. Tökum á myndinni lauk fyrir viku síðan en Gísli úti- lokar ekki að kallað verði í hann aftur eftir áramót í frekari tökur í Marakkó. Aðspurður hvort hann hafi náð að blóðga einhverja Holly- wood-stjörnu í þessari fokdýru bardagamynd vildi hann ekki meina það. Hann hefði aftur á móti slegið á putta Jake Gyllenhaall. Í bókstaflegri merkingu. „Við slóg- umst með sverðum og lömdum ítrekað á fingur hvors annars. Þegar maður sá þetta aftur á skjá vorum við hræddir um að hafa fingurbrotið hvorn annan,“ segir Gísli. freyrgigja@frettabladid.is Pönkast á breskri leikhúshefð HVERGI SMEYKUR Gísli Örn er hvergi smeykur við hina fornu leikhúshefð hjá Royal Shakespear-leikhúsinu. Hann sé þvert á móti spenntur að sjá hvernig rótgróna leik- hússamfélagið taki pönkaðri útgáfu af óperunni Don Gioavanni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Krabbameinssamtökin Kraftur og Andkristnihátíðin slá saman í tón- leika á Café Amsterdam á laugar- dagskvöldið. „Við erum að slá hagsmunum okkar saman í eitt rosagigg og þetta er skemmtilegt samkrull,“ segir Atli Jarl Martin andkristnimaður. „Við tökum þeim fagnandi sem fúlsa ekki við okkur með sleggjudómum.“ Andkristnihátíðin er nú haldin í níunda skipti. „Þetta byrjaði sem andóf gegn kristnihátíðinni árið 2000 og hefur verið árlegt síðan. Okkar inntak er alltaf það sama, að kynna besta þungarokkið hverju sinni og standa fyrir and- kristilegum boðskap. Við erum ekki að boða djöflatrú, svo það sé nú alveg á hreinu. Félagsskapur- inn Vantrú er með í þessu.“ Kraftur er stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein og aðstand- enda þeirra. Félagið hefur gefið út diskinn Ojjj … ertu með krabba- mein og ætlaði að halda tónleika með fjórum sveitum til að kynna hann. „Það var eins og það væri einhver bölvun á þessum tónleik- um,“ segir Páll Jens Reynisson hjá Krafti. „Hver af annarri gengu sveitirnar úr skaftinu, trommar- inn í Jan Mayen handleggsbrotn- aði og ég veit ekki hvað og hvað, þangað til hljómsveitin Reykja- vík! var ein eftir.“ Þá kom andkristnifélagið til skjalanna og bauð samstarf. Aðgangseyriririnn, þúsundkall, skiptist jafn á milli hinna tveggja ólíku félaga. Auk Reykjavíkur! kemur fram þungarokksrjómi landsins um þessar mundir: Sól- stafir (ný plata frá þeim í janúar), Darknote („bjartasta vonin í dag,“ segir Atli Jarl), Bastard („old school-þungarokk“), rafmagnshá- vaðasveitin Snatan:Ultra og hljóm- sveitin sem Atli er í, Helshare. Það er alltaf nóg að gerast í þunga- rokkinu. - drg Andkristni og krabbamein STEFNIR Í ROSAGIGG Atli Jarl Martin í fremstu víglínu með félögum í hljóm- sveitinni Helshare. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR ÓLI PÁLMASON Uppgjörið heitir nýtt kreppu- spil sem háskólaneminn Björn E. Jónsson og tveir félagar hans, sem vilja ekki láta nafns síns getið, hafa gefið út. „Hugmynd- in kviknaði þegar við vorum að spila annað spil, Guillotine, þar sem fólk er afhausað eftir frönsku byltinguna,“ segir Björn. Spilið samanstendur af 56 aðgerðaspjöldum og mega leik- menn spila út einu slíku spjaldi í einu. Á þeim eru 35 sökudólgar íslensku kreppunnar að mati Björns og félaga, þar á meðal Davíð Oddsson og útrásarvík- ingarnir Hannes Smárason, Björgólfur Thor, Bjarni Ármannsson og Jón Ásgeir Jóhannesson. Á spjöldunum fylgja með ummæli sem þeir hafa haft uppi í gegnum árin og þykja nokkuð brosleg í dag. „Vorum orðnir þreyttir á því að það væri ekkert talað um stóran hluta af þessu fólki heldur bara Geir og Davíð. Það eru margir sem bera einnig ábyrgð og við viljum láta þá sæta reiknings- skilum,“ segir Björn. „Það eru allir að öskra á Davíð en enginn sem stendur fyrir utan Baugs- húsið og öskrar út með Jón,“ segir hann og bætir við: „En þetta er smekklegt. Við ákváð- um að fara ekki yfir strikið.“ Til að vinna í spilinu þurfa keppendur að safna 25 stigum. „Sá sem nær að búa til sem veg- legastan sukkhóp vinnur,“ segir Björn. Spilið er fáanlegt í verslunun- um Spilavinir og Nexus. - fb Útrásarvíkingar „afhausaðir“ BJÖRN E. JÓNSSON Björn E. Jónsson er einn af mönnunum á bak við nýja kreppuspilið Uppgjörið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON folk@frettabladid.is BILLIARD BORÐ MIKIÐ ÚRVAL, HEITIR POTTAR & HITAVEITUSKELJAR Kleppsvegur 152 heitirpottar.is s: 554 7755 PÓKER BORÐ OG PÓKER STÓLAR Bjóðum VAXTAL AUS VIS A Lán til a llt að 12 mán
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.