Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 18.12.2008, Blaðsíða 60
36 18. desember 2008 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is Þessa dagana er mikill við- gangur í útgáfu tónlistar og það eru ekki bara kórarnir, heldur líka bílskúrsböndin, einyrkjar og tvíeykin. Margir hafa lítil efni til að standa fyrir veigamiklum auglýsingum enda upplögin oft lítil. Í diskaflóð- inu þessa dagana eru meðal annars þrír nýir diskar með tvíleik sem lágt fara. Þær stöllur Laufey Sigurðardótt- ir og Elísabet Waage gáfu nýlega út tónlist eftir ýmsa sem samin er fyrir fiðlu og hörpu. Safnið kalla þær Serena og standa þær sjálfar fyrir útgáfunni. Á disknum er meðal annars að finna verkin Ser- ena eftir Leif Þórarinsson og Haustlauf eftir Mist Þorkelsdóttur sem voru sérstaklega samin fyrir flytjendurna. Hin verkin á diskin- um eru eftir eldri meistara; Boield- ieu, Spohr og Rossini. Upptöku stjórnaði Halldór Víkingsson og Smekkleysa sér um dreifingu. Laufey og Elísabet hafa starfað saman um langa hríð og leikið saman bæði í Hollandi og á Íslandi. Í sumar léku þær á 10. alheims- þingi hörpuleikara sem haldið var í Amsterdam. Geisladiskurinn Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur mezzósópransöngkonu og spænska gítarleikaranum Francisco Javier Jáuregui, er að koma út hjá 12 Tónum. Þau hjón hafa haldið tón- leika í fjölmörgum löndum á liðn- um árum með margs konar tónlist frá ólíkum löndum, en hafa alltaf haft að minnsta kosti nokkur íslensk og spænsk lög með á efnis- skránni. Á Mitt er þitt hafa þau valið þjóðlög og önnur sönglög sem þeim eru sérstaklega kær frá heimalöndum sínum. Á fyrra helmingi geisladisksins eru íslensk þjóðlög útsett af Javier, Vísur Vatnsenda-Rósu og Hjá lygnri móðu eftir Jón Ásgeirsson, Erla, góða Erla og Sofðu, sofðu góði eftir Sigvalda Kaldalóns og frum- upptaka lagsins Síðasti strætó fer korter í eitt, sem þau Guðrún og Javier sömdu við ljóð Kristjáns Þórðar Hrafnssonar. Er fróðlegt að heyra hvernig aðkoma Navarra- mannsins er að íslenskum stefjum. Spænski helmingur disksins inniheldur þjóðlög í útsetningum Federico García Lorca og Graci- ano Tarragó, lög fyrir rödd og gítar eftir Joaquín Rodrigo og Federico Moreno Torroba og nýja útsetn- ingu eftir Javier á hinu ástkæra katalónska þjóðlagi El cant dels ocells (Söngur fuglanna). Tóndæmi af disknum: http://www.myspace. com/gudrunolafsdottir. Til að fagna útkomu disksins ætla þau Guðrún Jóhanna og Franc- isco að flytja lögin af disknum í Langholtskirkju á fimmtudags- kvöld kl. 20.00. Fer miðasala fram á midi.is, http://midi.is. Fyrr í haust sendu þau Guðrún S. Birgisdóttir og Martial Nardeau frá sér diskinn Hlið við hlið, safn af íslenskri flaututónlist. Þar er að finna hljóðritanir af verkum fyrir flautu eftir Mist Þorkelsdóttur, Snorra Sigfús Birgisson, Finn Torfa Stefánsson, Karólínu Eiríks- dóttur, Þorkel Sigurbjörnsson og Hilmar Þórðarson. Með þessum útgáfum bætist enn í aðgengilegt safn íslenskra þjóð- laga og verka af erlendum stofn. Diskarnir eru allir fáanlegir í betri hljómplötudeildum. pbb@frettabladid.is Tvíleikur á nýjum diskum TÓNLIST Elísabet og Laufey. TÓNLIST Guðrún og Javier. MYND SMEKKLEYSA Ath. kl. 20. Tenóraveisla í Íslensku óperunni í kvöld: Jóhann Friðgeir, Snorri Wium, Garðar Thor Cortes og Gissur Páll Gissurarson ásamt gestum syngja vel kunnar aríur og önnur sönglög úr söngbókum sínum. METSÖLULISTINN VERSLANIR EYMUNDSSONAR OG BÓKABÚÐIR MÁLS OG MENNINGAR Listinn er gerður út frá sölu dagana 10.12. til 16.12. 1. Myrká Arnaldur Indriðason Vaka-Helgafell 2. Ég ef mig skyldi kalla Þráinn Bertelsson Skrudda 3. Skaparinn Guðrún Eva Mínervudóttir Forlagið 4. Ofsi Einar Kárason Mál og menning 5. Förðun – þín stund Þuríður Stefánsdóttir Salka 6. Fíasól er flottust Kristín Helga Gunnarsdóttir Mál og menning 7. Auðnin Yrsa Sigurðardóttir Veröld 8. Jólin koma Jóhannes úr Kötlum Edda 9. Pollýanna Elenor H. Porter Ugla 10. Útkall – flóttinn frá Heimaey Óttar Sveinsson Útkall HAGKAUP Listinn er gerður út frá sölu dagana 8.12. til 14.12. 1. Þú getur Jóhann Ingi, Sæmundur og Marteinn Jónsson Hagkaup 2. Myrká Arnaldur Indriðason Vaka-Helgafell 3. Landsliðsréttir Hagkaupa Hagkaup 4. Minnisbók handa … Helen Exley Steinegg 5. Útkall – flóttinn frá Heimaey Óttar Sveinsson Útkall 6. Fíasól er flottust Kristín Helga Gunnarsdóttir Mál og menning 7. Förðun – þín stund Þuríður Stefánsdóttir Salka 8. Stórhættulega strákabókin Conn og Hal Iggulden Vaka-Helgafell 9. Auðnin Yrsa Sigurðardóttir Veröld 10. Pollýanna Elenor H. Parker Ugla IÐA Listinn er gerður út frá sölu dagana 9.12. til 16.12. 1. Ferðahandbók fjölskyldunnar 2. Skaparinn Guðrún Minerva Jónsdóttir Forlagið 3. Jólin koma Jóhannes úr Kötlum Edda 4. Vetrarsól Auður Jónsdóttir Mál og menning 5. Stórhættulega strákabókin Conn og Hal Iggulden Vaka-Helgafell 6. Bangsímon A.A. Milne Mál og menning 7. Ég skal vera Grýla Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir Forlagið 8. Jarðið okkur Hugleikur Dagsson Forlagið 9. Ofsi Einar Kárason Mál og menning 10. Steindýrin Gunnar Theódór Eggertsson Vaka-Helgafell Í febrúar kemur Vargurinn, eftir Jón Hall Stefánsson, út í Þýska- landi en afar sjaldgæft er að íslensk skáldsaga sé gefin nánast samtímis út heima og erlendis, en Vargurinn kom í verslanir á Íslandi í október og hefur henni verið vel tekið. Þeir Birtings- menn segja aðeins tvær skáldsögur íslenskar hafa verið svo snöggar á erlenda markaði: Árið 1960 sendi Halldór Laxness frá sér Paradís- arheimt samtímis í Svíþjóð og á Íslandi; og haustið 2006 kom Aldingarður Ólafs Jóhanns Ólafssonar út á Íslandi en í ársbyrjun 2007 í Bandaríkjunum. Hinn þýski útgefandi Jóns Halls, Ullstein Buchverlag, gerir sér miklar vonir um bókina Brand- stifter, enda gekk Krosstré - Eiskalte Stille - reglulega vel hjá forlaginu fyrir tveimur árum. Jón Hallur Stefánsson sendi frá sér sakamálasöguna Krosstré árið 2005. Hún hlaut gríðarlega góðar viðtökur - pbb Vargur seldur Gamlir aðdáendur poppgrúppunnar Prefab Sprout geta nú huggað sig við að þeir bræður Paddy McAloon og Martin hafa hreiðrað um sig í hljóðveri á ný og ætla að gefa út nýjan disk í febrúar. Paddy hefur löngum verið hlaðinn lofi sem lagasmiður en frá 1990 hefur hljómsveitin tekið því rólega, sendi frá sér plötuna Andromeda Heights árið 1997 og The Gunman and other Stories 2001 og Paddy sendi frá sér tilraunaverk- ið I Trawl the Megaherz sem kom út 2003. Nýja platan gengur undir vinnuheitinu Let’s Change the World With Music – The Blueprint, og þar verða sönglög sem þegar eru sögð með betri smíðum Paddy McAloon Let There Be Music og God Watch Over You. Þau má heyra í febrúar 2009. Prefab Sprout gefa út JÓN HALLUR Gefum góðar stundir ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Þjóðleikhúsið Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Hart í bak Jökull Jakobsson Verk sem snertir okkur öll. EB, FBL Sala hafin á sýningar í janúar Leitin að jólunum Þorvaldur Þorsteinsson fim. 18/12 tvær sýningar, uppselt lau. 20/12 þrjár sýningar, uppselt sun. 21/12 þrjár sýningar, uppselt Uppselt í desember! Klókur ertu, Einar Áskell Bernd Ogrodnik Krúttleg brúðusýning fyrir yngstu börnin Sýningar í janúar komnar í sölu Sumarljós Jón Kalman Stefánsson leikgerð og leikstjórn Hilmar Jónsson Frumsýning 26. desember Gjafakort Þjóðleikhússins er sígild gjöf sem gleður alla www.leikhusid.is Kardemommubærinn Sértilboð á gjafakortum til áramóta. GERÐUBERG www.gerduberg. is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.