Tíminn - 16.07.1982, Page 6
FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1982
6
fréttir
Framkvæmdum við viðgerdarverkstæði BÚR í Bakkaskemmu frestað:
„ÞEGAR mm FYRIR
50% FJÁRFESTINGAR”
— athuga á hvort ekki sé hægt að samreka önnur verkstædi BÚR
■ Á útgerðarráðsfundi BÚR í gær
kom fram tillaga frá sjálfstæðismönnum
um að fresta frekari framkvæmdum við
viðgerðarverkstæði BÚR í Bakka-
skemmu fram til 1. september nk. og
athuga á meðan viðgcrðarmálin i heild.
Þessi tillaga var samþykkt samhljóða.
„Það má segja að búið sé að eyða
helmingi þeirrar fjárfestingar sem ráð-
gerð var fyrir verkstæðið i framkvæmdir
nú eða 175 þúsundum kr.“ sagði
Björgvin Guðmundsson annar fram-
kvæmdastjóra BÚR í samtali við
Timann.
Á sínum tima var núverandi formaður
útgerðarráðs Ragnar Júliusson mjög á
móti þvi að ráðast i framkvæmdir við
þetta viðgerðarverkstæði en það var
ákveðið á tíma fyrri borgarstjórnar og
segja má að ofangreind tillaga sé
málamiðlun.
„Það sem hangir á spýtunni hér og
kemur ekki fram í tillögunni er ma.
hvort ekki eigi að samreka eitthvað af
öðrum verkstæðum BÚR en við höfum
járn- og rafmagnsverkstæði i frystihús-
inu og svo bílaverkstæði en þetta eru allt
litil verkstæði11 sagði Björgvin.
Aðspurður um hvort hann teldi ekki
hættu á að sú fjárfesting sem þegar hefði
verið lögð í viðgerðarverkstæðið nýttist
illa við þessa frestun sagðist Björgvin
ekki telja svo.
„Hér er málamiðlun á ferðinni, menn
eru að reyna að ná samkomulagi um
málin og þessi fjárfesting verður ekki
látin eyðileggjast," sagði Björgvin.
-FRl
■ Byggingarnefnd íbúða
aldraða á Isafirði afhenti
s.I. laugardag bæjarstjórn
ísafjarðar húsið til afnota,
við sérstaka athöfn, að
viðstöddum fjölda gesta.
Guðmundur H. Ingólfs-
son, formaður byggingar-
nefndar rakti byggingar-
söguna, en hún hófst 7.
október 1977. Gat hann
allra þeirra sem unnið hafa
við framkvæmd þessa.
■ Fjöldi gesta var viðstaddur þegar húsið var afhent, þar á meðal margir af þeim sem Bytja inn i það nú næstu daga,
ísafjördur:
íbúdir fyrir aldraða
afhentar til afnota
Myndir G.Sv.
Byggingin er teiknuð af Ingimundi
Sveinssyni arkitekt. { húsinu eru 20
einstaklingsibúðir og 10 hjónaíbúðir.
Allar eru þær fullskipaðar og verður
flutt inn í þær i næstu viku.
Fjöldi manns afhenti stofnunni gjafir
við þetta tækifæri. Málfríður Halldórs-
dóttir afhenti stóra gjöf til minningar um
foreldra sína Svanfriði Albertsdóttur og
Halldór Sigurðsson, en hann var
skipstjóri vestra um fjölda ára. Ólafur
B. Halldórsson lilkynnti gjöf frá Lions-
klúbbi ísafjarðar, vandað píanó.
Kiwanisklúbburinn gaf tvö sjónvarps-
tæki i setustofurnar. íshúsfélag ísfirð-
inga h.f. gaf 25 þús. kr. i tilefni afsjötugs
afmæli fyrirtækisins. En það hefur áður
gefið stórgjafir til hússins. Og stjórnar-
konur úr Kvenfélaginu Hlíf afhentu
blómakörfu.
G.S./HEI
■ Suðurhlið hins nýja húss, sem gefið
hefur verið nafniö „Hlif“. í húsinu eru
30 íbúðir fyrir aldraða.
Sérstæð þjónusta í boði fyrir ferðalanga sem lengi eru að heiman:
VAKTA HÚS, BÍL, GARÐ OG
INNIPLÖNTUR A MEÐAN
■ „Þið sem eruð að fara í ferðalag: Við
bjóðumst til að vakta hús ykkar og bíl,
hlúa að inniplöntum og garði á meðan
þið eruð að heiman. í dagblöðum i gær
gat að líta auglýsingu, þar sem boðið er
upp á þessa nýstárlegu þjónustu fyrir
fcrðalanga. Hver kannast ekki við þetta
vandamál?
Við nánari athugun kom i ljós að
aóstandendur auglýsingarinnar reynd-
ust vera hjónakornin Sif Þorsteinsdóttir
og Ólafur Garðarsson og vinafólk þeirra
Svanhvit Guðbjartsdóttir og Gunnar
Páll Þórisson. „Það er greinilegt að
þessa þjónustu hefur vantað tilfinnan-
lega, því símarnir hafa varla stöðvað frá
þvi auglýsingin birtist. Þannig hringdi
t.d. einn í dag sem er að fara erlendis
strax í fyrramálið. Hann sagði að sér
hefði alltaf þótt leiðinlegast við ferðalög
að þurfa að byrja á því að slá garöinn
þegar heim kæmi. Einnig var hann
feginn að vera laus við eilifar áhyggjur
af húsi og bíl“, sagði Gunnar Páll þegar
blaðamaður Tímans ræddi við hann í
gær.
Þegar Sif var spurð um upphaf
þessarar starfsemi sagði hún að strák-
arnir hefðu átt hugmyndina, en þær
stelpurnar betrumbætt hana. „Við höf-
um öll orðið vör við þennan vanda hjá
ættingjum og vinum, og fannst þvi
tilvalið að bjóða fólki upp á þessa
þjónustu“, sagði hún.
Þjónustan sem boðið er upp á er
fjórþætt. I fyrsta lagi er hús og bill
vaktað, þ.e. komið er i húsið og bílinn
og athugað einu sinni á dag. Þannig
verður þess strax vart ef eitthvað
óeðlilegt er á seyði s.s. vatnsleki,
innbrot o.fl. í öðru lagi er boðið upp á
vökvun inniplantna, en þeim er oft ekki
sinnt sem skyldi þegar fólk er að heiman.
í þriðja lagi er boðist til þess að slá
garðinn og er þá miðað við að hann sé
sieginn einu sinni í viku. Mönnum er í
fjórða lagi boðið upp á að hitta bilinn
fyrir nýþveginn og bónaðan þegar heim
er komið. Auk þessa er hægt að semja
við þau um ýmis smáviðvik.
Skiljanlega gera fjórmenningarnir
þetta ekki endurgjaldslaust, en að-
spurð um verðið sagði Svanhvít að því
væri mjög stillt i hóf. Grundvöllur
þessarar starfsemi væri fyrst og fremst
fjöldi viðskiptavina. Sem dæmi má
nefna að það að vakta hús og bfl, vökva
inniplöntur og slá garðinn kostar 290
krónur á viku.
-Kás
Umferðarráð:
Rall-
keppni
lúti há-
marks-
hraða-
reglum
■ „Umfcfðarráð telur að eigi skuli
veita undanþágu frá reglum um
hámarkshraða i railkeppni nema
viðeigandi varúðarráðstafanir séu
jafnframt gerðar,“ segir i frétt frá
Umfcrðarráði.
Ennfremur segir í fréttinni, að
nauðsynlegt sé, að um akstursiþrótt-
ir gildi strangar reglur, er framfylgt
sé vandlcga af hálfu allra hlutað-
eigandi, keppendum, skipuleggjend-
um og yfirvöidum.
Sam-
ræming
á gjald-
töku
■ Fjármálaráðherra hefur skipað
sex manna nefnd til að gera tillögur
um greiðslu aðflutningsgjalda og
söluskatts af efnivörum til verk-
smiðjubygginga. Að því er stefnt að
samræma gjaldtöku vegna bygging-
arstarfsemi i þágu atvinnuveganna,
og tryggja um leið að hagsmunir
innlendra byggingaraðila séu ekki
fyrir borð bomir.
Nefndinni er ætlað að ljúka
störfum fyrir 15. ágúst n.k.
-SVJ
höfunda
söng-
texta
stofnað
■ Félag höfunda sönglagatexta,
F.H.S., var nýlega stofnað i Reykja-
vík. Að félagsstofnuninni standa
flestir höfundar sem hafa átt söng-
iagatexta á íslenskum hijómplötum
síðari árin.
Tilgangur félagsins er að gæta
hagsmuna félagsmanna gagnvart
hljómplötuútgefendum og öðmm
aðilurn i málum þar sem höfundar-
réttur kemur til álita. Félagið hefur
m.a. látið útbúa sérstakt eyðublað
fyrir samninga milli hljómplötu-
útgefenda og höfunda texta.
Fyrsti formaður félagsins er
Ólafur Gaukur, en aðrir i stjórn eru
Þorsteinn Eggertsson og iðunn
Steinsdóttir. _syj
Þorskveiði-
bann geng-
ur í gildi 25.
julí n.k.
■ Sjávarútvegsráðuneytið hcfur
gefið út reglugerð um bann við
þorskveiðum timabilið frá 25. júli til
3. ágúst n.k.
Bann þctta tekur til allra veiða,
annarra en togveiða skipa er falla
undir skrapdagakerfið, og handfæra-
veiða báta sem eru 30 rúmlestir og
minni. _svj