Tíminn - 16.07.1982, Blaðsíða 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðumfs
Sími (!tl) 7 - <5-51. («1 ) 7 - 80-30.
Uirnn UTT1 Skemmuvegi 20
íltiUll ra1. K.tpavogi
Mikið úrval
Opió virkit daga
9 19 Laugur-
ditga 10 16
HEDD HF
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
v
abriel
HOGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armúla 24
Simi 36510
■ Roland Jokl og Súsanna Eiriksdóttir á hlaupabrautinni í Laugardal, en þangað kemur hann daglega frá Kellavík til að æfa sig, þar sem aðstaöa til xfínga er ekki
nægilega góð það syðra. Tímamynd: Ari
„OLYMPÍULEIKARNIR
'84 ER DRAUMURINN
— rætt vid Roland Jokl spretthlaupara og Súsönnu
Eiriksdóttur unnustu hans
■ Nýlega litu þau inn á ritstjóm
Timans, Súsanna Eiriksdóttir, ættuð úr
Keflavik, og unnusti hennar, Roland
Jokl frá Austurríki. Þótt Súsanna sé
íslensk og tali þar af leiðandi islensku,
eins og vera ber, þá er hún nú samt orðin
meiri Austurrikismaður en íslcndingur,
enda hefur hún búið i Vín frá 5 ára aldri.
Roland er hins vegar ein skærasta
stjama Austurríkismanna í iþróttum,
þvi hann ber meistaratitil lands sin i 100
og 200 metra hlaupi.
„Ég fluttist til Austurríkis 5 ára,“ segir
Súsanna, „faðir minn er austurrískur og
móðir mín er islensk. Já, ég hef búið í
Vin síðan og þar kynntumst við
Roland.“
Þau eru hér aðeins í heimsókn, -
Roland fer aftur til Austurríkis eftir
nokkra daga, en Súsanna ætlar að dvelja
lengur, þvi hún á sæg aT ættingjum í
Keflavík. Það er ekki sist vegna
hlaupsins sem Roland ætlar að hraða sér
heim aftur, því aðstaða til æfinga er ekki
nógu góð í Keflavík og þessa daga hefur
hann orðið að koma daglega til
Reykjavíkur, til þess að geta æft sig.
Hann er þó ekki í sinu besta formi núna,
þar sem hann meiddist litillega á fæti í
hlaupi um síðustu helgi i Austurríki. Þau
komu hér til Islands á mánudag. Auk
aðstöðunnar til æfinga segir Roland að
sér lítist ekki heldur á kuldann á íslandi
og langar ekki til þess að spreyta sig á
að læra íslensku, enda ekki auðhlaupið
að þvi.
Sem dæmi um árangur hans má nefna
að hann varð þriðji í 200 metra hlaupi
á stórmóti i Lille í Frakklandi fyrir
þremur árum, náði 21.73 sek. og enn
þriðji fyrir nokkru i 100 metra hlaupi á
alþjóðlegu móti i Riga, þar sem hann
náði 10.58 sek. Þetta mun betri árangur
en okkar íslensku hlauparar eiga og
sagðist Roland gjarna vilja koma og
keppa hér fengi hann boð um það.
Draumur hans er að keppa á
Olympiuleikunum árið 1984 í Los
Angeles og það sýnist ekki vera svo
óraunhæfur draumur, þvi hann er aðeins
19 ára. En hann gerir sér grein fyrir að
i fremstu röð munu hlauparar ekki
endast nema í nokkur ár og þvi hefur
hann vaðið fyrir neðan sig og leggur
stund á viðskiptafræði og tölvutækni i
Vínarborg.
Súsanna segist ekki ætla að reyna sig
við eiginmanninn á hlaupabrautunum,
en leggur þess í stað stund á blak.
Við óskum þessu unga fólki allra
heilla, bæði á hlaupabrautinni og á
vegferð lífsins. -AM
fréttir
Unglingspiltur
á slysadeild.
■ Unglingspiltur var
flúttur á slysadeild Borgar-
sjúkrahússins í Reykjavik
eftir að hann varð fyrir bíl
á skellinöðru sinni á Bílds-
höfða um klukkan 16 í gær.
Meiðsli piltisins voru
ekki talin alvarleg. —Sjó
Sænsk hertoga-
hjón í heimsókn
hér á landi.
■ Hertogahjónin af Hal-
landi, Bertil prins og Lilian
prinsessa koma i heimsókn
til íslands í dag.
Meðan hertogahjónin
dveljast hér á landi heim-
sækja þau m.a. Gullfoss,
Geysi og fleiri staði hér
Eru þau sérstakir
gestir forseta íslands og
munu þau hafa aðsetur i
gestaíbúð hans að Laufás-
vegi 72 í Reykjavík.
Mótmæla leng-
ingu grásleppu-
vertíðar
■ „Stjóm Telags smá-
bátaeigenda i Reykjavík
lýsir undrun sinni á fram-
lengingu á veiðiheimild
fyrir grásleppu", segir í
frétt frá Félaginu.
„Sjávarútvegsráðu-
neytinu ætti vel að vera
kunnugt um hinn alvarlega
aflabrest nú á gráslepp-
unni. Engar rannsóknir
liggja fyrir, er skýra hvað
veldur. Sé um ofveiði að
ræða, er heimild til auk-
innar veiði röng ákvörðun
og stórhættuleg. Einnig
ríkir enn slæmt ástand á
markaðnum fyrir grá-
sleppuhrogn og aukin
veiði viðheldur tregð-
unni,“ segir i fréttinni.
Torfí Jónsson
skólastjórí Mynd-
lista- og handíða-
skólans
■ Menntamálaráðherra
hefur ákveðið að Torfi
Jónsson, sem verið hefur
kennari við Myndlista- og
handiðaskólann , verði
settur skólastjóri skólans
til eins árs.
dropar
Fölbláar
bíómyndir
■ Vídeólundur - samtök
videóáhugafólks í Lundahverfí
á Akureyri, stendur i stór-
ræðum þessa dagana, en verið
er að leggja lokahönd á
samtcngingu 500 íbúða i hverf-
inu í eitt lokað kerfi. í Degi á
Akureyri er viðtal við forsvars-
mann Videólunds um efnið
sem boðið er upp á. „Ég átti
von á meiri óánægju með það
efni sem sýnt er. Uppistaðan í
þessum blessuðum videó-
leigum okkar er að verða mest
ofhcldi og klám og það er
einmitt það sem ekki átti að
sýna í þessu kerfí. Við höfum
ekki sýnt eina einustu klám-
spólu ennþá, en hins vegar
hafa verið sýndar vafasamar
myndir.“ Það er greinilegt að
Akureyringar ætla að láta sér
nægja fölbláar myndir, a.m.k.
i stóra kerfinu hvað svo sem
menn gera privat og persónu-
lega.
Fá hjón að
synda
saman?
■Það er greinilegt að forsvars-
menn á Olafsfirði fylgjast ekki
alveg með tiðarandanum i
sundlaugarmálum. Eftirfar-
andi tilvitnun í fundargerð
tómstundanefndar ber það
með sér: „Nefndin æskir leyfis
um að fá að ræða við
sundlaugarvörð um að breyta
karlatimanum i almennistima
fyrir fullorðið fólk. Ástæða er
að ætla að í sumum tilfellum
langi hjón að fara samtímis og
fá sér sundsprett, og væri því
þetta lausn á þvi ef sundlaugar-
vörður sér enga meinloku á
þessu.“
En það er pottur brotinn i
fleiri málum á þessu sviði á
Ólafsfirði. Við skulum lita
aftur i fundargerðina: „Nefnd-
in gerir þá tUlögu til bæjar-
stjórnar að hún láti gera
kostnaðaráætlun á hvað
mundi kosta að girða sundlaug-
ina með mannheldri girðingu.
Með tUliti tíl slysahættu þá
telur nefndin að varla verði
fram hjá þessu litið lengur.
Undanfarin ár hefur komið
fyrir hvað eftir annað að þurft
hefur að loka lauginni til að
hreinsa hana eftir að drukknir
menn hafa þvælst i henni i
óhreinu skótaui og fötum.
Einnig hefur komið fyrir áð
ósynt börn hafa dottið ofaní
laugina og sjá aUir hver hætta
stafar af því, og því spurning
hve lengi við getum látið þetta
afskiptalaust."
‘
Krummi ...
...varð hissa þegar hann las i
Þjóðviljanum að bónusinn
væri „sköpunarverk skratt-
ans“, þar sem hann hélt að þeir
hefðu fundið hann upp Ás-
mundur og Þorsteinn. Eru
kannski einhver tengsl þar á
miUi?