Tíminn - 16.09.1988, Page 11
,10 Tíminn;
Föstudagur 16. september 1988
Föstudagur 16. september 1988
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR 1
London. Lolp; kom að því að
Englendingar ynnu knattspyrnu-
landsleik. í fyrrakvöld báru þeir
sigurorð af Dönum í vináttulands-
leik 1-0. Það var Niel Webb sem
gerði sigurmark Englendinga á 28.
mín. en litlu munaði að Danir gerði
mark strax á fyrstu mín. leiksins,
þegar Michael Laudrup átti skot rétt
framhjá enska markinu. Nýliðinn
David Rocastle átti mjög góðan leik
í enska liðinu, sem þurfti sannarlega
á því að halda að sigra, en leikurinn
var upphitun fyrir fyrsta leik Eng-
lendinga í undankeppni heimsmeist-
arakeppninnar, gegn Svíum í næsta
mánuði.
Genf. Sigurður Grétarsson gerði
sigurmark Lucerne í fyrrakvöld, er
liðið sigraði meistarana frá því í
fyrra, Neuchatel Xamax, 1-0. Með
þessum sigri náði Lucerne forystu í
svissnesku I. deildinni með 16 stig,
þremur stigum á undan Grasshopp-
ers og Sion. Meistararnir Neuchatel
Xamax eru með neðstu liðum í
deildinni.
Guðríður Guðjónsdóttir skoraði 5/4 mörk fyrir íslenska landsliðið í Vestmannaeyjum í gærkvöldi, þegar ísland vann
Spán 19-13. ísland var yfir allan leikinn, en í hálfleik var staðan 10-7 fyrir fsland. Tímamynd Pjetur
Handknattleikur:
Tórínó. Alexander Zavarov lék
sinn fyrsta leik með Juventus á Ítalíu
í fyrrakvöld. Zavarov, sem er fyrsti
Sovétmaðurinn sem leikur með
ítölsku liði, haltraði af lcikvelli eftir
aðeins 19 mínútur og í hans stað
kom gamli maðurinn Antonio Ca-
brini. Juventus borgaði Dinamo
Kiev fimm milljónir dollara fyrir
Zavarov í sumar.
I
London. Terry Venables fram-
kvæmdastjóri Tottenham hefur í
hyggju að kaupa írska landsliðs-
manninn Paul McGrath frá Man-
chester United. Kaupverðið mun
vera 850 þúsund pund. Ekki mun
verða af sölunni fyrir helgi þannig að
McGrath getur ekki leikið með Tot-
tenham gegn Liverpool eins og Ven-
ables hafði gert sér vonir um.
Snurða hjóp á þráðinn á síðustu
stundu þannig að samningar tefj ast.
Chiba, Japan. Ben Johnson
heimsmethafi í 100 m hlaupi tók í
vikunni þátt í frjálsíþróttamóti í
Japan, en þar keppti sveit Kanada í
4x100 m boðhlaupi karla og sigraði.
Þegar Johnson var spurður að því á
hvaða tíma hann myndi hlaupa 100
m í Seoul sgist hann ekkert vita um
það, en hann væri öruggur um að
sigra. Það er greinilega mikið tauga-
stríð í gangi milli Johnsons og Carls
Lewis, því Lewis Iýsti því yfir í
vikunni að hann mundi aldrei aftur
tapa 100 m hlaupi fyrir Johnson. í
þau 15 skipti sem þeir hafa mæst á
hlaupabrautinni síðan þeir kepptu
sem unglingar 1980, hefur Lewis
sigrað 9 sinnum, en Johnson 6
sinnum.
Heimsmeistara-
keppnin 1995
haldin á íslandi
Á þingi alþjóða handknattleiks-
sambandsins sem haldið var ■ Seoul
í S-Kóreu í fyrrinótt að íslenskum
tíma var ákveðið að heimsmeistara-
keppnin 1995 fari fram á fslandi.
Samkomulag tókst við Svía á síð-
ustu stundu og var hlutkesti varpað
um það hvor þjóðin fengi keppnina
1993. Það kom í hlut Svía og verður
heimsmeistarkeppnin í handknatt-
leik 1995 því haldin á íslandi.
Upphaflega átti keppnin að fara
fram 1994, en fyrirkomulagi keppn-
innar hefur verið breytt þannig að
framvegis verður keppnin haldin á
tveggja ára fresti í stað fjögurra
áður.
Miklu hefur verið til kostað til að
kynna umsókn íslands að fá heims-
meistarakeppnina hingað og hafa
þar margir lagt hönd á plóginn, svo
sem forseti íslands, ríkisstjórnin,
HM nefnd Handknattleikssam-
bandsins undir forystu Matthíasar
Á. Mathiesen samgönguráðherra,
borgarstjórinn í Reykjavík og stjórn
HSÍ svo einhverjir séu nefndir.
Eins og áður hefur komið fram er
fyrirhugað að byggja nýja íþrótta-
höll í Laugardal og mun hún rúma
um 8000 áhorfendur. Nýja höllin
mun standa við hlið hinnar gömlu,
sem löngu er orðin of lítil fyrir allar
þær sýningar sem þar fara fram
árlega. Nýja höllin mun eiga að taka
við þessu sýningahlutverki og reynd-
ar vera allsherjar funda- og ráð-
stefnumiðstöð. Þar að auki er löngu
Ijóst að fleiri íþróttahús vantar í
borgina eins og sést á því að landslið-
in í handknattleik og körfuknattleik
eiga oft í erfiðleikum með að fá inni
fyrir æfingar. Með tilkomu nýju
hallarinnar ætti mjög að rýmkast um
fyrir landsliðin hvað æfingahúsnæði
varðar.
Það má segja að það séu nokkur
vonbrigði fyrir íslendinga að fá ekki
keppnina 1993, en um leið sárabætur
fyrir forystu HSÍ að fá keppnina
1995. Sú keppni er aðeins ári á
undan Ólympíuleikum og efstu sæti
keppninnar gefa þátttökurétt til
keppni á leikunum 1996.
Svíar misstu af vetrarólympíu-
leikunum 1994 til Norðmanna, en
heimsmeistarakeppnin í handknatt-
leik ætti að vera þeim nokkur sára-
bót þrátt fyrir að handknattleikur sé
ekki hátt skrifaður í Svíþjóð, miðað
við aðrar íþróttagreinar. BL
Ólympíuleikar:
Vetrarólympíu-
leikarnir 1994
í Lillehammer
Það kemur í hlut Norðmanna að halda
vetrarólympíuleikana 1994. í atkvæðagreiðslu
sem fram fór á fundi alþjóða ólympíunefndar-
innar í fyrrinótt var ákveðið að leikarnir færu
fram í Lillehammer, en fjórar borgir sóttust
eftir leikunum.
Flestir reiknuðu með að Sofia, höfuðborg
Búlgaríu, yrði fyrir valinu, en Búlgarar sóttust
einnig eftir leikunum 1992, en biðu þá lægri
hlut fyrir frönsku borginni Albertville.
Leikarnir verða haldnir tveimur árum á undan
sumarleikunum frá og með leikunum í Lille-
hammer og verða því vetrarleikar bæði 1992
og 1994. Aðrar borgir sem sóttust eftir leikun-
um '94 voru Östersund í Svíþjóð og Anchorage
í Alaska.
Öllum á óvart heltust Búlgarar úr röðinni
strax í fyrstu umferð atkvæðagreiðslunnar í
fyrrinótt, en í lokin stóð baráttan milli Lille-
hammer og Östersund. Svíar voru mjög von-
sviknir eftir atkvæðagreiðsluna, eins og fram
kemur annars staðar á síðunni.
Gleðin var aftur á móti mikil í Noregi og
Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra
sagði að þetta væri stórkostlegt fyrir Noreg.
BL
Svíþjóö sótti um vetrarólympíuleikana 1994:
Fengu synjun
í fimmta sinn
Frá Þét lónwyní frétunani Tímans í stokkhótmi: Fréttamaður í sænska sjónvarpinu sagði
Vonbrigðin voru óskapleg í Östersund og strax að lokinni beinni útsendingu frá útnefn-
raunar allri Svíþjóð í gærmorgun, þegar Ijóst ingunni t Seoul, að Svíar hefðu fallið á
var að Svíar höfðu tapað í 5. sinn í atkvæða- óþokkabragði, slík voru vonbrigðin.
greiðslu alþjóða ólympíunefndarinnar um að Aðeins fáeinir mundu eftir, fyrir kurteisis-
halda vetrarólympíuleika. sakir að óska Norðmönnum til hamingju, en
um þetta leyti dönsuðu íbúar Lillehammer á
Gremjan spettur ekki síst af því að heiður- götum úti í gleði sinni.
inn af að halda vetraólympíuleikana 1994 féll «Eg á ekki orð til að lýsa vonbrigðum
Lillehammer í Noregi í skaut. mínum,“ segir Leif Forsberg formaður um-
„Niðurstaðan sýnir að allt getur gerst í sóknarnefndar Svta, sem var í S-Kóreu um
þessum heimi,"segir Gunnar Jonsson, bæjar- Þe»a leyti. „Östersund og Liliehammer hafa
fulltrúi í Östersund, en undanfarið hálft nokkurn veginn uppá það sama að bjóða;
annað ár hefur öllu verið kostað til að kynna östersund stendur að mínu viti nokkuð betur
Östersund og þá frábæru aðstöðu sem þar er ae) v'gL en Þa& ætt' að skipta' alþjóða
fyrir hendi til iðkunar vetraríþrótta. ólympíunefndina einhverju að Svfar hafa
„Þetta er ekki rökrétt, nú má gera ráð fyrir sótt urn leikana 5 sinnum, en ailtaf fengið
að annað land í Skandinavíu fái ekki að halda synjun, en Norðmenn hafa haldið vetraról-
vetrarólympíuleika næstu 30-40 ár‘\ ympfuleika áður. Sanngirni hefur ekki ráðið
Svíum gremst það innilega að hafa aldrei atkvæðagreiðsla meirihluta fulltrúa í nefnd-
hlotið náð fyrir augum alþjóða ólympíu- inni“.
nefndarinnar hvað varðar vetrarólympíu- Þv> er kastað fram sem líklegri skýringu
leika, en Noregur hefur einu sinni áður synjunarnefndarinnaríþettasinn.aðheims-
haldið þá. meistarakeppnin í skíðaíþróttum fer fram í
Fyrir atkvæðatalninguna í gærmorgun Svíþjóð 1993. Það hefur þess vegna þótt
töldu Svíar næsta víst að þeirra eini keppi- réttlátt að fela nágrannanum í Noregi að sjá
nautur væri Sofia, höfuðborg Búlgaríu, en unl Ólympíuleikana. -
hún féll mjög óvænt úr röðinni þegar í fyrstu Beinni útsendingu í sænska sjónvarpinu
atkvæðagreiðslunni. Lillehammar hafði sigur 'auk með ÞV1 að leikið var sænska dægurlagið
á Östersund í þriðju atkvæðagreiðslu. >The winner takes it all“. ÞJ/BL
Reykjavík. Á miðnætti í kvöld
hefst bein útsending frá setningarat-
höfn Ólympíuleikanna í Seoul. At-
höfnin stendur í rúma 3 tíma og á
næstu dögum verða með litium hlé-
um beinar útsendingar frá leikunum.
Nánar verður sagt frá dagská sjón-
varp annars staðar í blaðinu og á
íþróttasíðum næstu daga verður
kynnt dagskrá sjálfra leikanna.
Seoul. Þrettán manna keppnislið
Líbýu er enn ókomið til Seoul.
Samkvæmt síðustu fréttum var lið-
inu sagt að koma sér heim til sín, en
þá var liðið statt á hóteli í Trípólí
höfuðborg landsins þegar tilkynning
kom frá valdhöfum að íþrótta-
mennirnir ættu að fara til síns heima.
Juan Antonio Samaranch formaður
alþjóða ólympíunefndarinnar hefur
sent Muammar Gaddafi leiðtoga
Líbýu skeyti þar sem hann er beðinn
að vera svo vænn að leyfa nú líbýsku
íþróttamönnunum að fara til Seoul.
Líbýumenn fylgja mjög N-Kóreu-
mönnum að málum, en þeir mæta
sem kunnugt er ekki í Seoul.
Knattspyrna:
Landsleikur gegn
Ungverjum í næstu viku
íslenska landsliðið í knattspyrnu
mætir því ungverska n.k. miðviku-
dagskvöld á Laugardalsvelli kl.
17.30. Leikurinn verður liður í
undirbúningi beggja þjóðanna fyrir
leiki haustsins í undankeppni HM.
Leikurinn á miðvikudag verður 2.
landsleikur þjóðanna frá upphafi.
Fyrsti leikur þjóðanna var í Búda-
pest í vor og þá sigruðu Ungverjar
3-0. íslenska liðið leikur 2 leiki í
undankeppni HM í október, gegn
Tyrkjum í Istanbul 12. okt. og gegn
A-Þjóðverjum í Berlín þann 19.
Ungverjar stefna að því, eins og
við íslendingar, að komast í úrslita-
keppni HM á Ítalíu 1990, en þeir eru
ein af frægustu knattspyrnuþjóðum
Evrópu og leika einfalda og áferðar-
fallega knattspyrnu. Liðið kemur til
landsins á mánudag.
Siegfried Held landsliðsþjálfari
hefur valið 22 leikmenn til undirbún-
ings fyrir leikinn.
Markverðir:
Bjami Sigurðsson ..........Brann
Guðmundur Hreiðarsson . Víkingi
Birkir Kristinsson ........Fram
Aðrir leikmenn:
Ágúst Már Jónsson ............KR
Arnljótur Davíðsson ......Fram
Átli Eðvaldsson .............Val
Guðni Bergsson ..............Val
Gunnar Gíslason.............Moss
Halldór Áskelsson............Þór
Kristinn R. Jónsson.........Fram
Ólafur Þórðarson ............ ÍÁ
Ómar Torfason...............Fram
Pétur Amþórsson.............Fram
Pétur Ormslev ...............Fram
Ragnar Margeirsson............ÍBK
Rúnar Kristinsson..............KR
Sigurður Grétarsson .... Lucerne
Sigurður Jónsson . Sheffield Wed.
Sævar Jónsson ................Val
Viðar Þorkelsson............Fram
Þorsteinn Þorsteinsson .... Fram
Þorvaldur Örlygsson ........KA
Endanlegur 16 manna hópur verð-
ur valinn eftir leiki helgarinnar.
BL
Kristinn R. Jónsson, Fram, er í 22 manna landsliðshópn-
um sem rrrætlr Ungverjum á miðvikudag. Tlmamynd:Pje»ur
Osló. Skotar sigruðu Norðmenn
2-1 í 5. riðli heimsmeistarakeppninn-
ar í knattspyrnu í fyrrakvöld. Paul
McStay skoraði fyrir Skota á 15.
mín. en Jan Aage Fjörtoft jafnaði
metin fyrir Norðmenn rétt fyrir
leikhlé. Mo Johnston skoraði sigur-
mark Skota á 63. mín. Norðmenn
urðu fyrir áfalli í upphafi leiksins
þegar framherji þeirra, Tonr
Sundby, varð að fara af leikvelii á 2.
mín. eftir samstuð við Steve Nicol.
OvÍedO. Júgóslavar sigruðu Spán-
verja í vináttulandsleik í knatt-
spyrnu, 2-1, í fyrrakvöld. Michel
skoraði fyrir Spánverja í fyrri hálf-
leik, en Bazdarevic og Cvetkovic
gerðu mörk Júgóslava í síðari hálf-
íeik.
Amsterdam. Hollendingar sigr-
uðu N-íra, 1-0, í 6. riðli undan-
keppni HM í knattspyrnu í fyrra-
kvöld. Það var enginn annar en
fyrirliðinn sjálfur Ruud Gullit sem
gerði sigurmarkið aðeins 7 mínútum
fyrir leikslok. Ronald Koemann tók
aukaspyrnu og Gullit stökk manna
hæst í vítateig N-íra og skallaði að
marki. Neville Southall varði en
Gullit fylgdi vel á eftir og skallaði
knöttinn í netið.
París. Heimaliðið Paris Saint
Germain gerði í fyrrakvöld jafntefli
við Bordeaux, 1-1. Þar með skaust
Paris SG á toppinn í frönsku 1.
deildinni.
VESTURLAND
Föstudagur 16. september
Laugardagur 17. september
Ólafsvik kl. 14.00-16.00 ViðBenslnstöðOHs
Grundarfjörður kl. 17.00-18.00 ViðBensínstöðOlís
AkranesBllás kl. 10.00-19.00 BílásÞjóðbrautl
Akranesi
Mánudagur 19. september
Húsavík kl. 10.00-13.00 BílaleigaHúsavíkur
Akureyri kl. 15.00-20.00 Bifreiðav. Jóh. Krist-
jánssonar
Við Bensínstöð Esso
ViðHótel Bláfell
Við Bensínstöð Esso
Við Shellskálann
Djúpivogur kl. 12.00-13.00
Breiðdalsvík kl. 14.30-15.00
Stöðvarfjörður kl. 15.30-16.00
Fáskrúðsfjörður kl. 17.00-18.00
Þriðjudagur 20. september
Sauðárkrókur kl. 12.00-13.30 Við Esso skálann
Blönduós kl. 15.00-16.00 Við Esso skálann
Hvammstangi kl. 17.00-18.00 ViðShellskálann
Laugardagur 17. september
Neskaupstaður kl. 10.00-13.00 ViðShellskálann
Eskifjörður kl. 14.00-15.00 ViðShellskálann
Reyðarfjörður kl. 16.00-17.00 ViðBifreiðaverkst.Lykil
Sunnudagur 18. september
Stykkishólmur kl. 10.00-13.00 BenslnstöðOlís
Sunnudagur 18. september
Seyðisfjörður kl. 12.00-13.00 Við Herðubreið
Egilsstaðir kl. 15.00-17.00 ViðsöluskálaKaup-
félagsins
BILLINN, SEM BEÐIÐ HEFUR VERIÐ EFTIR!
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF
Ármúla 13 - 108 Reykjavík - 2? 681200
lp|ff|pr ‘
\ 1 Wjr ' i m * ,'ýi v'“ ' ' 1 k uáj^jLXW'f' í
lÍKiHI r
WQ
árgetgj'^
LADA
samaRa
uym
HnUMGFi