Tíminn - 13.10.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn
RmtntUdaður 13. o'któber 1988
llllllllllllllllllllllllillllllllillllilllllllllllllllllillllllllHllllllL^^ScÍB^^^agffSlllllllllilllllllllllllllllHHiil!liílllí!llllllIílllllll!llllllll|||||
Hafnarfjörður Páll Pétursson ræðir baksvið stjórnmálaumróts síöustu mánaða og spáir í framtíðina á fundi í Hafnarfirði þriðjudagskvöldið 18. þ.m. ki. 21 að Hverfisgötu 25. Fundur, opinn öllum liðsmönnum Framsóknarflokksins, veröur hald- inn af Fulltrúaráði Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. október aö Hverfisgötu 25. Fundarefni: I. Innri mál, kl. 20.30 til 21. Formaður fulltrúaráösins setur fundinn og kynnir fulltrúaráðsmönnum m.a. tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum, sem fyrirhugað er að leggja fyrir aðalfund fulltrúaráös- ins, sem haldinn verður í byrjun nóvember. Formaður Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Reykjaneskjör- dæmi ræöir um undirbúning Kjördæmisþings, sem haldiö verður sunnudaginn 13. nóvember, og flokksþings, sem haldið veröur dagana 18. til 20. nóvember. II. Stjórnmálaumræður. Páll Pétursson þingflokksformaður mætir kl. 21 og ræðir m.a. ástæöur stjórnarslita, myndun og stefnumörkun nýrrar ríkisstjórnar og viöfangsefnin á nýbyrjuðu þingi. Má vera aö frummælandi og framkvæmdastjóri fulltrúaráösins lumi á einhverjum stjórnarmyndunar-kveöskap og þingvísum handa mönnum meö kaffinu. Almennar umræöur og fyrirspurnir meöan kvöldiö endist. Brýnt er fyrir fulltrúaráðsmönnum aö mæta stundvíslega kl. 20.30 og öörum fundarmönnum aö mæta eigi síðar en kl. 21. Stjórnin
l||f Framsóknarf^lag Kjósarsýslu Fundarboð Aöalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu veröur haldinn að Hlé- garði, Mosfellsbæ, sunnudaginn 23. okt. n.k. kl. 17.00. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, þar með taliö kjör fulltrúa á kjördæmisþing og flokksþing. Kjör heiöursfélaga. Að aðalfundi loknum er gerl hlé tii skrafs og viöræðna til kl. 19.00, en þá hefst kvöldverður. Matseðillinn býöur upp á: Blómkálssúpu, lambalæri (Bernaise) og kaffi á eftir. Verð er kr. 1.595,00. Gestir fundarins veröa: Steingrímur Hermannsson, forsætisráöherra Jóhann Einvarðsson, alþingismaöur, og eiginkonur þeirra. Fólki, sem ekki hefur tök á aö sitja aðalfundinn, er bent á, aö þaö er velkomið til kvöldverðarins. Vinsamlega hafiö samband vegna matarpantana eigi síöar en þremur dögum fyrir aðalfundinn viö: Gylfa, vs. 985-20042, hs. 666442. Helga, vs. 82811, 985-21719, hs. 666911. Stjórnin
TOLVUNOTENDUR
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
i PRENTSMIDI AN ■
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000
50 ára afmæli S.Í.B.S.
Afmælishátíð S.Í.B.S. verður haldin að viðstödd-
um forseta íslands í Súlnasal Hótel Sögu, föstu-
daginn 14. október n.k. og hefst stundvíslega kl.
15.00.
Eftir kaffiveitingar verður fræðsludagskrá í hliðar-
sal A um nýjungar í ofnæmisforvörnum og endur-
hæfingu lungna- og hjartasjúklinga.
Stjórn S.Í.B.S.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður og afa
Baldurs Þórarinssonar
Sæbóli, Blönduósi.
Guðrún Erlendsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn.
11 DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllillllllliiillllllllllllilillllllllllllll
Guðný Guðmundsdóttir, fíðluleikari og Gunnar Kvaran, sellóleikari, halda tónleika í
Borgameskirkju, sunnudaginn 16. október n.k.
Tónleikar í Borgarnesi
Sunnudaginn 16. þ.m. halda þau
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og
Gunnar Kvaran sellóleikari, tónleika í
Borgarneskirkju, og hefjast þeir kl. 16.00.
Þessir tónleikar eru á vegum Tónlistarfé-
lags Borgarfjarðar, en á vegum þess
verða að venju haldnir nokkrir tónleikar
á þessu starfsári, þar sem kennir margra
grasa. M.a. hefur komið fram sú
hugmynd, að tónlistarmenn úr Borgar-
fjarðarhéraði leggi félaginu lið sitt á
einum tónleikum næsta vor, auk þess sem
margra góðra gesta er von í vetur.
Líffræðifélag íslands:
Fyrirlestur um erfðafræði
í dag, fimmtudaginn 13. október, held-
ur dr. Ástríður Pálsdóttir fyrirlestur í
Odda, húsi hugvísindadeildar Háskóla
Islands, og hefst hann kl. 20.30.
I Blóðbankanum hefur um árabil verið
unnið að rannsóknum á arfgengum heila-
blæðingum í nokkrum ættum frá Breiða-
fjarðarbyggðum. Undanfarin ár hefur dr.
Ástríður unnið á erfðarannsóknardeild
Blóðbankans. Hún hefur beitt svokallaðri
erfðatækni við rannsóknirnar. I fyrirlestr-
inum mun hún greina frá því hvernig nota
má þessa tækni við sjúkdómsgreiningu og
erfðaráðgjöf.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3 í dag
kl. 14.00. Frjáls spilamennska kl. 19.30.
Félagsvist, hálft kort. Kl. 21.00, dans.
Ath. danskennsla hefst f Tónabæ, laug-
ardaginn 15. þ.m. Tilkynnið þátttöku á
skrifstofu félagsins, í síma 2 88 <i2.
„Undir pilsfaldinum11
Laugardaginn 15. október opnar Hall-
dór Dungal málverkasýningu í gallerí
„Undir pilsfaldinum" Hlaðvarpa, Vest-
urgötu 3. Halldór lauk námi úr MHÍ árið
1977 og fór síðan til Spánar, þar sem hann
vann að list sinni. Hann hefur tekið þátt
í nokkrum samsýningum hér heima og
var með einkasýningu 1987.
Málverk Haíldórs eru unnin í olíu,
akrýl, lakki pírrosít o.f.l. og eru öll til
sölu.
Sýningin er opin alla daga frá kl.
14.00-18.00, fram til 30. október.
Fermingar
Þau börn, sem ætla að fermast hjá sr.
Gunnari Björnssyni fríkirkjupresti, vorið
1989, eru beðin um að koma til skráningar
og viðtals á Frakkastíg 6a, laugardaginn
15. október n.k., kl. 13.00.
Gallerí Borg
Jón Þór Gíslason sýnir olíumyndir og
teikningar í Gallerí Borg, Pósthússtræti
9. Þetta er seinni sýningarhelgin og er
opið virka daga frá kl. 10.00-18.00 og um
helgar frá kl. 14.00-18.00.
Sýningunni lýkur þriðjudaginn 18.
október.
Upplýsingaþjónusta
um tónleikahald
Islensk tónverkamiðstöð hefur fýrir
hönd Tónlistarbandalags íslands, tekið
að sér að veita upplýsingar um tónleika-
háld á íslandi. Upplýsingum frá þeim sem
standa fyrir tónleikahaldi, er safnað sam-
an og þeim síðan dreift til þeirra sem geta
nýtt sér þær. Þeir sem hyggja á tónleika-
hald, geta þá tryggt sér tíma og sent
upplýsingar sínar til Tónverkamiðstöðv-
arinnar.
Mánaðarlega er gefið út yfirlit yfir
tónleikahald og til að unnt sé að birta
upplýsingar um tónleika í þessu yfirliti,
þurfa þær að berast miðstöðinni tíu
dögum fyrir upphaf tónleikamánaðarins.
Berist þær seinna, verða þær skráðar, en
birtast ekki í útgefnu yfirliti.
Þeir sem áhuga hafa, geta gerst áskrif-
endur og fengið yfirlit sent mánaðarlega
gegn vægu áskriftargjaldi.
Húnvetningafélagið
Félagsvist laugardaginn 15. október,
kl. 14.00. Spilað í Húnabúð Skeifunni 17.
Vetrarfagnaður félagsins verður laugar-
daginn 22. október, í Félagsheimili Sel-
tjarnarness.
Allir velkomnir
Ferðamálaráðstefnan 1988
Ferðamálaráð Islands heldur 19. ferða-
málaráðstefnuna á Hótel KEA, Akureyri
dagana 3. og 4. nóvember n.k.
Á ráðstefnunni verða flutt framsöguer-
indi um skattlagningu ferðaþjónustunnar,
gengismál, verðlagningu Islandsferða,
verðlagsþróun og stöðu ferðaþjónustunn-
ar í þjóðarbúskap Islendinga. I stað
hefðbundinna nafndarstarfa, verður rúm-
ur tími til almennra umræðna um þessa
málaflokka.
Steingrímur J. Sigfússon, samgöngu-
ráðherra mun ávarpa ráðstefnuna.
Skipadeild Sambandsins:
Áætlun á Vestfirði
og Norðurland
Skipadeild Sambandsins hefur hafið
reglubundnar áætlunarsiglingar á Vest-
firði og Norðurland.
Skipið fer frá Reykjavík á fimmtudags-
kvöldum, eftir að hafa lestað framhalds-
frakt úr millilandaskipum félagsins.
Strandferðin tekur 7 daga og er skipið
aftur komið til Reykjavíkur á miðviku-
degi, þannig að framhaldsfrakt til útlanda
utan af landi heldur viðstöðulaust áfram
með millilandaskipunum, sem sigla á
miðvikudögum.
Meginhafnir fyrst um sinn verða Isa-
fjörður, Húsavík, Akureyri og Dalvík.
Þjónustuhafnir verða Patreksfjörður,
Þingeyri, Suðureyri, Sauðárkrókur,
Siglufjörður og Grundarfjörður/Ólafs-
vík.
Þá mun skipið ennfremur annast frakt-
flutninga innanlands.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur LindaJónsdóttir Holtagerði 28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavík GuðriöurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdótfir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGísladóttir TjarnarbrautlO 94-2122
Þingeyrl KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132
Hvammstangl Baldur Jessen Kirkjuvegi 95-1368
Blonduos Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bemódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdótfir Hvanneyrarbraut54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Ólafsfjörður HelgaJónsdóttir Hrannarbyggðð 96-62308
Reykjahlíð lllugi Már Jónsson Helluhraun 15 96-44137
Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn KristinnJóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður ÞóreyÓladóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiríksson Hlíðargötu 8 97-51239
Stöðvarfjörður Svava G. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur Óskar Guðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerðiö 98-31211
Laugarvatn HalldórBenjaminsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur JónínaogÁrný Jóna Króktún 17 98-78335
Vik VíðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
Ráðstefna um meðferð
ávana- og fíkniefnaneytenda
Haldin veröur ráöstefna um meöferöarúrræöi fyrir ávana- og f íkniefna-
neytendur. Ráöstefnan veröur haldin miðvikudaginn 26. október næst
komandi aö Borgartúni 6, 4. hæö og stendur frá 13.00-17.00.
Nánar auglýst síöar.
5. október 1988
Samstarfsnefnd ráðuneyta um ávana- og fíkniefni.