Tíminn - 27.10.1988, Side 19
Fimmtudagur 27. október 1988
Tíminn 19
Hér eru Vivien Leigh og Clark Gable í hlutverkum sínum í hinni sígildu
mynd „Á hverfanda hveli“.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Söguleg bók
Kona, sem eitt sinn ferðaðist um
og hafði að atvinnu að selja nærföt,
verður að öllum líkindum auðkýf-
ingur á næstunni af því að skrifa
framhald af frægustu ástarsögu
allra tíma, „Á hverfanda hveli“
(Gone With the Wind).
Enn sem komið er hefur Alex-
andra Ripley aðeins gert uppkast
að tveimur köflum, en Warner
Books-útgáfan hefur þegar greitt
heilar 200 milljónir fyrir útgáfurétt-
inn. Alexandra fær í sinn hlut
drjúgan skerf af þeirri köku.
Hún er 54 ára og hefur skrifað
margar bækur um gömlu, góðu
dagana í Suðurríkjunum. Fyrir
rúmu ári fékk hún grænt ljós frá
erfingjum Margaret Mitchell, höf-
undar sögunnar, til að reyna að
skrifa framhaldið.
Talið er víst að Margaret sjálf
hafi verið því mótfallin að fram-
hald yrði á sögunni. Hún lést árið
1949, þegar drukkinn ökumaður
ók á hana. Eina opinbera tilraunin
til að fá framhald sögunnar skrifað,
drukknaði hreinlega í skriffinnsku
og lagaflækjum. Margir hafa þóst
til kallaðir, þar á meðal einn höf-
undur, sem hélt því fram að Marga-
ret hefði lesið sér allt fyrir gegn um
andaglas.
Tildrög þess að einmitt Alexan-
dra Ripley var fengin til að skrifa
hið eina rétta framhald, voru þau
að bækur hennar um lífið í Suður-
ríkjunum á liðinni öld þóttu einkar
sannfærandi og vel skrifaðar. Þegar
umboðsmaður hennar ámálgaði
þetta við hana, hélt hún að hann
væri að spauga, en svo reyndist
ekki og brátt stóð hún augliti til
auglitis við fulltrúa erfingja Marga-
ret Mitchell, sem bað hana að
íhuga málið alvarlega.
Erfingjarnir hafa sína ákveðnu
skoðun á hvað má vera í bókinni
og hvað ekki og í fyrstu fannst
Alexöndru þeir allt of gamaldags
og íhaldssamir. Heimurinn hefði
þrátt fyrir allt breyst allmjög á
heilli öld.
Alexandra er nú búin að lesa Á
hverfanda hveli sjö sinnum, sem er
afrek út af fyrir sig, því bókin er
doðrantur mikill. Hún gerir þetta
til að fá tilfinningu fyrir stíl Marga-
retar og handskrifar gjarnan heilu
síðurnar upp úr verkinu til að ná
stílnum betur.
Þó vill Alexandra ekki skrifa
bók annars höfundar. - Margaret
Mitchell skrifaði miklu betur en
ég, fullyrðir hún. - Gallinn er bara
sá að hún er látin.
Eitt er víst: Scarlett O’Hara og
Rhett Butler halda áfram að elsk-
ast og hatast til skiptis í nýju
bókinni, sem fer til útgefanda árið
1990. Fyrri bókin endaði á að
Scarlett saknaði Rhetts óskaplega.
Upphafsorðin í bók Alexöndru
eru: - Ég hugsa um þetta á morgun.
Ég finn leið til að fá hann aftur.
Það kemur dagur eftir þennan
dag....
Alexandra Ripley er nú ráðin til að skrifa meira um
Scarlett O’Hara og Rhett Butler.
Margaret Mitchell var sögð mótfaliin
framhaldi af hinni margfrægu sögu sinni.
Kráareigandinn Michael Calne.
Caine á kránni
Michael Caine hefur gjarnan
verið að finna í hetjuhlutverkum í
kvikmyndum og bæði þess vegna
og þrátt fyrir það gætu margir
hugsað sér að sitja með honum yfir
ölkollu við gott spjall.
Nú er það raunár orðið mögu-
legt, því Caine er búinn að kaupa
sér gamaldags og notalega krá í
Oxfordshire í Englandi og kallar
hana Uppreisnina á Caine. Hvort
þarna verður jafn líflegt og um
borð forðum, á eftir að koma í ljós,
en Caine hefur lofað viðskiptavin-
um sínum að hann standi sjálfur
við afgreiðsluborðið þegar hann
hafi tíma til.
Yfir
Atlants-
hafið
ábíl
Vitleysan er svo sannarlega ekki
öll eins og það hefur meira að segja
oft sannast á náunga sem kallar sig
G.A. en heitir víst Giorgio And-
retti.
Nýjasta áætlun hans er að fara
yfir Atlanshafið á bíl, hvernig sem
hann hyggst nú framkvæma það.
Með í för ætlar hann að hafa
börnin sín sex. Ekki fer sögum af
móðurinni, hvort hún ætlar að sitja
heima eða hvort hún er búin að
gefa fjölskylduna upp á bátinn.
G.A hefur áður tekið upp á ein-
kennilegum hlutum, svo sem að
aka umhverfis jörðina á skelli-
nöðru, lenda í fallhlíf milli skýjakl-
júfa New York og svo framvegis.
Eitthvað hefur hann upp úr krafs-
inu, því virtustu blöð heims bítast
um ljósmyndir hans. Hins vegar
hefur hann ekki fengið neinn
ennþá til að fjármagna aksturinn
yfir Atlanshafið.
t I
I