Tíminn - 27.10.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Föstudagur 27. október 1989
GuðmundurG.
Þórarinsson
Sigurður
Geirdal
Kjördæmisþing framsóknarmanna
á Norðurlandi-vestra
Steingrimur
Hermannsson
Gunnarsson
Unnur
Stefánsdóttir
verður haldið í félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28. og 29.
október nk.
Dagskrá: - Laugardagur
Kl. 14.00 Þingsetning og kosning starfsmanna þingsins.
Kl. 14.10 Skýrsla stjórnar KFNV og blaðstjórnar Einherja. Umræður
um skýrslur og afgreiðslu reikninga.
Kl. 14.45 Ávörp gesta.
a) Árni Gunnarsson, stjórnarmaður í SUF.
b) Unnur Stefánsdóttir, form. LFK.
Kl. 15.00 Sérmál þingsins. Framtíðarmöguleikar í uppbyggingu
iðnaðar á Norðurlandi vestra meðtilkomu Blönduvirkj-
unar. FramsögumaðurGuðmundurG. Þórarinsson, alþ.m.
Kl. 15.30 Frjálsar umræður.
Kl. 16.30 Kaffihlé.
Kl. 16.45 Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra.
Kl. 17.45 Frjálsar umræður.
Kl. 19.00 Kosning nefnda.
Kl. 20.00 Kvöldverður á Hótel Blönduósi.
Sunnudagur
Kl. 10.00 Nefndastörf.
Kl. 12.00 Matarhlé.
Kl. 13.00 Nefndir skila áliti. Umræður og afgreiðsla.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 15.45 Kosningar.
Kl. 16.15 Önnur mál.
Kl. 17.00 Þingslit.
Stjórn KFNV.
Steingrímur Steinunn Alexander StefánJ.
30. kjördæmisþing
framsóknarmanna á Vesturlandi
verður haldið á Hótel Borgarnesi dagana 3. og 4. nóvember nk.
Dagskrá:
Föstudagur 3. nóvember
Kl. 17.00 Þingsetning: Kosning starfsmanna og nefnda; skýrslur og
reikningar.
Umræður og afgreiðsla.
Kl. 18.00 Sveitarstjómarkosningar 1990.
- framsögur (Steinunn Sigurðardóttir, Akranesi og
Stefán Jóh. Sigurðsson, Ólafsvík), umræður.
Kl. 19.30 Þinghlé.
Kl. 20.30 Haustfagnaður framsóknarmanna á Vesturlandi i
Hótel Borgarnesi.
Laugardagur 4. nóvember
Kl. 9.30 Stjórnmálaviðhorfið. Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra.
Kl. 10.40 Ávörp gesta.
Kl. 11.00 Málefni kjördæmisins. Alexander Stefánsson, alþingis-
maður.
Kl. 11.30 Almennar umræður.
Kl. 12.30 Hádegisverður.
Kl. 13.30 Framhald umræðna. Afgreiðsla mála, kosningar, önnurmál.
Kl. 16.00 Þingslit.
Stjórn K.S.F.V.
Haustfagnaður framsóknarmanna
á Vesturlandi
verður haldinn á Hótel Borgarnesi föstudagskvöldið 3. nóvember.
Dagskrá hefst kl. 20.30.
Kvöldverður, skemmtiatriði og dans.
Miðapantanir og nánari upplýsingar í símum: Bjarni, s. 70068,
Ingimundur, s. 71777, Þorvaldur, s. 38951 og Sædís, s. 71509.
DAGBÓK
llllllllilllli
Frítt helgarnámskeið
í yoga og hugleiðsiu
Þessa helgi mun Sri Chinmoy setriö
gangast fyrir námskeiöi í yoga og hug-
lciðslu í Árnagarði. FArið verður í margs
konar slökunar- og einbeitingaræfingar
jafnframt því sem hugleiðsla er kynnt
sem aðferð til meiri og betri árangurs í
starfi. Þá verða haldnir tónleikar. Þá
verður fjallað um íþróttir og hverju
hlutverki þær gegna í andlegri þjálfun og
sýnd kvikmynd.
Námskeiðið er ókeypis og öllum opið.
Það er í sex hlutum og byrjar fyrsti
hlutinn í kvöld, föstudag, kl. 20:00.
Frekari upplýsingar er hægt að fá í síma
13970.
Neskirkja:
Félagsstarf aldraðra
verður á morgun, laugardag kl. 15.00.
Farið verður í ferð frá kirkjunni í Fclla-
og Hólakirkju og hún skoðuð. Kaffi í
Gerðubergi, verð kr. 300.-. Munið kirkju-
bílinn.
Húnvetningafélagið
Félagsvist veröur spiluö á laugardag
28. okt. kl. 14:00 í Húnabúð, Skeifunni
17. Allir velkomnir.
Jóklarannsóknafélag íslands:
Haustfundur
Haustfundur Jöklarannsóknafélags ís-
lands verður haldinn að Hótel Lind,
Rauðarárstíg, þriðjudaginn 31. október
kl. 20:30.
Dagskrá:
1. Fornveðurfar. Rannsóknir á veður-
fari með samsætumælingum á ískjörnum.
- Árný E. Sveinbjörnsdóttir.
2. Kaffí.
3. Yfir jöklana þrjá. Myndband úr
jeppaferð þvert yfir landið, frá Egilsstöð-
um vestur í Borgarfjörð.
Ath. Árshátíð verður haldin í NOrður-
Ijósum 4. nóv. kl. 20:00. Húsið opnað kl.
19:00. Miðar verða til sölu á haustfundin-
um 31. okt. og á Rakarastofunni Dalbraut
1.
Vikuleg ganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardaginn
28. október. Lagt af stað frá Digranesvegi
12 kl. 10:00.
„Nú fara vetrarvindar að gnauða og við
klæðum okkur eftir veðrinu. Við röltum
undir kjörorðinu: Samvera, súrefni,
hreyfing. Nýlagað molakaffi," segir í
tilkynningu frá Frístundahópnum Hana
nú.
Útivist:
Haustblót á Snæfellsnesi
27.-29.okt.
Gist á Lýsuhóli. Ný gönguleið um
fagurt umhverfi. Sameiginleg máltíð á
laugardagskvöldi. Kvöldvaka. Sundlaug
á staðnum. Heiðursgestur á haustblótinu
verður Kristján M. Baldursson. Farar-
stjóri: Sigurður Sigurðsson. Upplýsingar
og farmioar á sknfstofunni Grófmni 1.
Símar: 14606 og 23732.
Dagsferð Útivistar á sunnudag
Gengið um hverasvæði í nágrenni
Hengils: Innstidalur - Ölkeldan. Brottför
kl. 13:00 frá Umferðamiðstöð - bensín-
sölu. Einnig er hægt að koma í rútuna við
Árbæjarsafn.
Júlíana Rún Indriðadóttir
Burtfarartónleikar
í Tónskóla S.D.K.
Laugard. 28. október heldur Júlíana
Rún Indriðadóttir burtfarartónleika sína
frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinsson-
ar. Tónleikarnir verða í Norræna húsinu
og hefjast kl. 17:00.
Júlíana Rún Indriðadóttir hóf píanó-
nám í Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar haustið 1979. Vorið 1988 lauk hún
píanókennaraprófi frá skólanum og í
nóvember sl. lauk hún fyrri áfanga burt-
fararprófs er hún lék píanókonsert í A
dúr K.488 eftir W. A. Mozart í Bústaðar-
kirkju. Á tónleikunum á laugardaginn
leikur Júlíana verk eftir Bach, Beethov-
en, Berg, Skrjabin og Chopin.
Allir eru velkomnir á tónleikana.
Kvóldvökufélagið
UÓÐ0GSAGA
Kvöldvökufélagið Ljóð og saga heldur
fyrstu kvöldvöku vetrarins laugardaginn
28. október í Skeifunni 17. Mætum öll og
tökum með okkur gesti.
Stjórnin
Oliver! Síðasta sýningarhelgi!
Allra síðustu sýningar á söngleiknum
Oliver! eru nú um helgina. Sýnt er öll
kvöld kl. 20:00 og síðdegissýningar á
laugardag og sunnudag kl. 15:00.
Á sunnudagskvöld er 36. og síðasta
sýningin, en uppselt er á þessar sýningar
eins og verið hefur allan tímann.
Sýningarhlé verður á stóra sviðinu þar
til 10. nóv. að frumsýndur verður gaman-
leikurinn Lítið fjölskyldufyrirtæki eftir
Alan Ayckbourn.
Alþýðuleikhúsið:
„Isaðar gellur“
- síðustu sýningar
Alþýðuleikhúsið sýnir í Iðnó nú um
helgina leikritið „fsaðar gellur" eftir
breska höfundinn Frederick Harrison.
Þetta eru síðustu sýningar.
f verkinu segir frá dvöl þriggja stúlkna
frá Hull á Englandi i sjávarþorpi á
Vestfjörðum. Verið var frumsýnt í Hull í
apríl sl. og hefur sýningin farið víða um
England og notið mikilla vinsælda.
Leikarar í „ísaðar gellur" eru Ása Hlín
Svavarsdóttir, Halldór Björnsson, Ingrid
Jónsdót'.ir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Leikmynd og búninga gerir Gerla, lýsingu
annast Sveinn Benediktsson og leikstjóri
er Hávar Sigurjónsson.
Sýningar verða á föstudag kl. 14:30 og
miðnætursýning á laugardag kl. 23:30.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýningin “Málmverk og aðföng" í
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, Laug-
arnestanga 70, er opin laugardaga og
sunnudaga kl. 14:00-17:00 og öll þriðju-
dagskvöld kl. 20:00-22:00.
t
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginkonu minnar
Kristínar Loftsdóttur
Sigurður Gunnarsson
Bjargi
Vík, Mýrdai.
Steingrímur RagnarSnorri
Hermannsson Magnússon
Aðalfundur Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna verður haldinn mánu-
daginn 30. október kl. 20.30 að Hamraborg 5.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lögð fram tilla um hvernig staðið verður að vali á framboðslista í
komandi bæjarstjórnarkosningum.
Gestur fundarins verður Steingrímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra.
Fundarstjóri: Ragnar Snorri Magnússon.
Framsóknarfélögin
Sýning um ALNÆMI
Myndlista- og handíðaskóli fslands og
Landlæknisembættið stendur fyrir sýn-
ingu á niðurstöðum samstarfsverkefnis
um ALNÆMI í anddyri Borgarspítalans.
Sýnd verða málverk og skúlptúrar sem 15
nemendur hafa unnið að undanfarnar
vikur.
Þetta samstarf Myndlista- og handíða-
skóla fslands og Landlæknisembættisins
er liður í sérstakri dagskrá vegna 50 ára
afmælis skólans, en hann var stofnaður
haustið 1939.
Sýningin verður opnuð laugardaginn
21. október kl. 14:00 og stendur til
sunnudags 29. október. Sýningin eröllum
opin.
Valgerður Bergsdóttir
sýnir í NÝHOFN
Valgerður Bergsdóttir opnar sýningu á
verkum sínum í Nýhöfn, Hafnarstræti 18,
laugardaginn 28. októberkl. 14:00-16:00.
Valgerður er fædd í Reykjavík. Hún
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1963 og stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands 1966-
’69og 1971-73. EinnigviðStatenskunst-
industri- og haandværkerskole í Oslo
1969-71.
Á sýningunni í Nýhöfn eru stórar
blýteikningar á pappír, flestar unnar á
þessu ári og að hluta til í Listamiðstöðinni
Sveaborg við Helsinki, þar sem Valgerður
dvaldi í sumar.
Valgerður hefur haldið nokkrar einka-
sýningar, síðast í Gallerí Svart á hvítu í
Reykjavík 1988 og þar áður í Stúdíói
Listasafnsins í Abo í Finnlandi 1983, þar
sem hún var valin teiknari mánaðarins.
Valgerður var fulltrúi fslands á Norræna
teiknitriennalnum í Svíþjóð í ágúst sl.
Hún hefur auk þess tekið þátt í fjölda
samsýninga, bæði hér heima og erlendis.
Valgerður fékk 6 mánaða starfslaun frá
íslenska ríkinu á þessu ári.
Sýningin, sem ersölusýning, er opin kl.
14:00-18:00 um helgar og kl. 10:00-18:00
virka daga. Henni lýkur 15. nóvember.
Sýning í Gallerí List
Jónína Magnúsdóttir, Ninný, opnar
sýningu á verkum sínum í Gallerí List,
Skipholti 50B, laugardaginn 28. október
kl. 15:00.
Jónína Magnúsdóttir er fædd 1955 í
Reykjavík. Hún lauk prófi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1978. Hún hefur
einnig stundað nám við Myndlistaskóla
Reykjavíkur og á árunum 1983-’87 stund-
aði hún nám hjá dönsku listakonunni Elly
Hoffmann.
Þetta er önnur einkasýning Jónínu, en
hún hefur áður sýnt í Danmörku. Auk
þess tók hún þátt í IBM sýningunni
„Myndlistamenn framtíðarinnar” á Kjar-
valsstöðum 1987.
Myndirnar á sýningunni eru unnar á
flísar með postulínslitum, olíu á striga og
krít á pappír.
Sýningin verður opin daglega kl. 10:30-
18:00, laugardaga ogsunnudaga kl. 14:00-
18:00. Sýningunni lýkur 5. nóvember.
Aðalheiður Valgeirsdóttir
sýnir í Ásmundarsal
Aðalheiður Valgeirsdóttir opnar sýn-
ingu á grafík- og þurrkrítarmyndum stn-
um í Ásmundarsal, Freyjugötu 41 í
Reykjavík, laugardaginn 28. október.
Á sýningunni eru 36 verk, 15 þurrkrít-
armyndir og 21 dúkrista. verkin eru öll
unnin á þessu ári.
Aðalheiður er fædd 1958, laugk stú-
dentsprófi frá MH1978 og prófi frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands, grafíkdeild
1982. Þetta er fyrsta einkasýning Aðal-
heiðar, en hún hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum.
Sýningin stendur til 12. nóvember og
verður opin kl. 14:00-20:00 alla sýningar-
dagana.
Sýning Kristins G. Jóhannsson-
ar í FÍM-salnum, Garðastræti 6
Kristinn G. Jóhannsson listmálari opn-
ar sýningu í FfM-salnum, Garðastræti 6,
laugard. 21. október kl. 16:00.
Á sýningunni eru 22 ný olíumálverk,
sem öll fjalla um landslag og náttúru
landsins.
Þetta er 17. einkasýning Kristins, en
hann sýndi síðast að Kjarvalsstöðum fyrir
réttu ár, en nú í haust eru 35 ár liðin síðan
hann hélt sína fyrstu sýningu á Akureyri.
Þá hefur hann tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér heima og erlendis.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 5. nó-
vember.
Myndir frá Portúgal
Björgvin Pálsson „myndasmiður” mun
opna sýningu um helgina hjá GALLERÍ
MADEIRA, sem starfrækt er íhúsakynn-
um EVRÓPUFERÐA að Klapparstíg
25,3. hæð í Reykjavík.
Myndefnið sótti Björgvin til Portúgals
sl. sumar. Myndirnar eru ljósmynda-
stækkanir unnar með Gumbichromat-
tækni. Viðstaddir opnunina verða m.a.
fulltrúar potúgalskra ferðamálayfirvalda.
Sýningin verður opin alla virka daga kl.
08:30-18:00. Henni lýkur föstud. 24. nóv-
ember. Allar myndirnar eru til sölu.
Björgvin Pálsson er 34 ára gamall og
starfar hjá sjónvarpinu. Hann hefur feng-
ist við ljósmyndun í 22 ár og titlar sig
„myndasmið”. Reynsla hans er mjög
víðtæk og nær út fyrir hefðbundna Ijós-
myndun, en hann hefur starfað hjá Vísi,
Dagblaðinu, Frjálsu framtaki, SÁM út-
gáfunni og hjá sjónvarpinu.
Björgvin hefur haldið margar sýningar
hér á landi og erlendis og tekið þátt í
samsýningum.