Tíminn - 10.12.1991, Qupperneq 9
8 Tíminn
Þriðjudagur 10. desember 1991
Þriðjudagur 10. desember 1991
Tfminn 9
Sovétríkin ekki lengur til
Laustengt efnahagsbandalag Rússlands, Ukraínu og Hvíta-Rússlands orðið til:
SJALFSTÆÐRA
Hér á eftir fer hluti af texta samkomulags sem undirritað var á
sunnudag í Minsk milli Rússlands, Úkraínu og Hvíta-rússÍands,
þar sem lýst er yflr stofnun samveldis sjálfstæðra ríkja. Skjalið
undirrituðu þeir Stanislav Shushkevich og Vyacheslaw Kebich,
f.h. Hvíta-rússlands; Boris Yeltsin og Gennadiy Burbuiis fyrir
Rússland og Leonid Kravchuk og Vitold Fokin fyrir Úkraínu:
„Við, lýðveldið Hvíta-rússland, Rússneska sambandslýðveldið, og Úkraína,
sem eru stofnaðllar í Ráðstjórnarríkjunum og undlrrituðu Elningarsáttmál-
ann X922, og verður héðan í frá vísað til sem samningsaðilar, lýsum því yfir
að Ráðstjómarríkin sem aðill að alþjððalögum og landfræðilegum og pólitísk-
um veruieika, eru ekki lengur til.
Leiðtogar þessara þriggja lýðvelda hafa tekið þessa ákvörðun á grundvelli
sameiginlegrar sögu og banda sem þjóðir þeirra hafa bundist í því augnamiði
að byggja upp lýðræðislegt réttarþjÓðfélag og til að þróa tengsl þeirra á grund-
velli gagnkvæmrar vlðurkenningar á og virðingar íýrir fullveldi hvors annars
og regiunnar um jöfn réttindi og afskiptaleysis um innanríkismál hver hjá
öðrum.
Samningurinn er og gerður t trausti þess að efla vináttu og að samvinna sem
verði öllum til gagns þjóni hagsmunum þjóðanna og efli frið og öryggi.
Samningsaðilar staðfesta skuldbindingar sínar gagnvart stofnskrá Samein-
uðu þjóðanna og gangvart Helsingi sáttmálanum, þau sverja hollustu sína at-
þjóðlegum viðhorfum til mannréttinda og réttinda þjóða, ábyrgjast jafnrétti
og frelsi borgara sinna óháð þjóðerni þeirra og skuldbinda sig jafnframt til að
efla, styrkja og varðveita menningarleg, málfarsleg, og trúarleg sérkenni
hinna einstöku þjóðarbrota.
Með það fyrir augum að efla samvinnu þessara ríkja og þjóða á jafnréttis-
grundvelli og til að hún verði tii sem raests gangs fyrir alla aðila, hefur verið
ákveðið að gera sérstakt samkomutag um stjórnmálasamskipti, efnahagsmál,
menningu, menntamál, heilbrígðismál, vísindi, viðskipti, umhverflsmái og
fleiri svið.
Skjai hefur verið undirritað þar sem viðurkennt er sjálfræði viðkomandi
ríkja yfír landi sínu og að núverandi landamærum verði ekki breytt, en að þau
verði opin og borgarar hafi fulit ferðafrelsi um þau.
Aðilar samningsins hyggjast beina samvinnu sinni í þann farveg að varðveita
megi og tryggja frið og öryggi á alþjóðavettvangi og að dregið verði úr útgjöld-
um til hernaðarmála og vopnaframleiðslu.
Þau munu beita sér fyrir útrýmingu kjarnavopna og algerri afvopnun undir
alþjóðlegu eftirliti. Samhliða munu samningsaðilar virða vilja hvors annars
til að ná því marki að verða kjamorkuvopnalaus svæði og hlutlaus riki. Sam-
komulag er um að varðvelta eina yfirherstjóra á sameiginlegu hernaðarlega
mikilvægu svæði og yfir kjarnavopnum.
Það sem fellur undir sameiginleg vericefni sambandsveldisins eru eftirfar-
andi: Samhæfíng stefnumörkunar útávið; að koma á fót sameiginiegu efna-
hagssvæðí, Evrópska og evrasíska efnahagssvæðið; tolla og útlendíngaeftir-
litsmál; þróun saragöngu- og fjarskiptakerfís; umhverfisvernd og mengunar-
varnir; barátta gegn skipulagðri glæpastarfsemi.
Þar sem samningsaðilar eru sér fyllilega meðvitaðir um skelfílegar afieiðing-
ar Chernobyl-slyssins fyrir alla heimsbyggðina, hafa þeir komiö sér saman
um að sameinast í samstilltu átaki til að yfírvinna áhrif þess. Sérstakt skjal
verður undirritað í tengslum við þetta verkefni.
Frá þelrri stund sem samkomulag þetta hefur verið gert, mun óheimilt að yf-
irfæra gildi og vilja þriðja aðila á þessi ríki, það á líka við um Ráðstjórnarrík-
in fyrrverandi, og starfsemi stofnana og stjórnsýslueininga Ráðstjórnarríkj-
anna í þessum ríkjum hættir.
Aðildarríkin ábyrgjast að allir aðljóðasamningar og skuldbindingar sem
gerðar hafa verið af Ráðsljórnarríkjunum standa óbreyttir.
Öllum fyrrum lýðveldum Ráðstjóraarríkjanna er heimilt að ganga inn í sam-
komulagið sem hér hefur verið gert sem og öðrum ríkjum, svo framarlega
sem þau eru sammáia þeim markmiðum og sjónarmiðum sem þar eru sett
fram.
Borgin Minsk hefur verið valin opinbert aðsetur þeirra stjórnsýslueininga
sem sjá um málefni híns nýja samveldis fullvalda ríkja.“
Margir telja að Boris Jeltsín og leiðtogar Úkraínu og Hvíta- Rússlands hafí niðurlægt
Gorbatsjov með yfírlýsingunni í fyrrakvöld um að Sovétríkin, sem félagi Lenín sálugi
stofnaði árið 1922, séu ekki lengur til. Með yfírlýsingu sinni hafa Jeltsín og félagar
hans í raun gert Gorbatsjov að ríkislausum forseta, en ljóst þykir að Gorbatsjov geti
ekki haldið Sovétríkjunum saman þegar þijú öflugustu lýðveldin eru gengin úr ríkja-
sambandinu.
Samkvæmt yfirlýsingunni sem birt er hér í
opnunni hafa ríkin þijú myndað laustengt
samband, eins konar efnahagsbandalag. Þar
með er orðið Ijóst að þau litlu völd sem Gor-
batsjov hafði enn í sínum höndum eftir bylt-
ingartilraun harðlínumanna í ágúst sl. eru nú
frá honum tekin. Hver framtíð þess manns
sem kynnti lýðræðið fyrir íbúum Sovétríkj-
anna verður, er alls óljóst. Kosyrev utanríkis-
ráðherra Rússlands sagði þó í gær að ekki væri
loku fyrir það skotið að finna mætti eitthvert
opinbert starf handa Gorbatsjov hjá hinu nýja
efnahagsbandalagi. Staða Gorbatsjovs hefur
verið afar veik allt frá því að valdaránstilraunin
var gerð og segja fréttaskýrendur að yfirlýsing-
in staðfesti í raun orðinn hlut.
Kózyrev sagði í gær að ljóst væri að allir emb-
ættismenn Sovétríkjanna yrðu að hætta störf-
um, enda fráleitt að halda áfram störfum fyrir
ríki sem ekki væri Iengur til. Hann bætti við að
líklegt væri að full þörf væri fyrir starfskrafta
flestra þeirra í hinni nýju þjóðfélagsskipan.
„Gorbatsjov er að því ég best veit við ágæta
heilsu og ekki haldinn neinum smitandi sjúk-
dómum. Við munum örugglega finna eitthvað
handa honum að gera. Hann þarf aðeins að af-
sala sér þeim völdum sem hann enn hefur yfir
hernum, til hins nýja efnahagsbandalags,"
Hætt er vlð að grafhýsi Leníns og Rauða torgið verði ekki oftar vettvangur fyrir
skrautsýningar Rauða hersins á afmælisdegi byltingarinnar. Ríkjasambandið sem
þessi bylting fæddi af sér; Sovétríkin, eru nú liðin undir iok og Gorbatsjov þessa
stundina forseti ríkis, sem ekki er lengur til.
sagði Kozyrev. Hann var spurður að því hvað
hefði legið á að lýsa yfir stofnun efnahags-
bandalags lýðveldanna þriggja. Kozyrev svar-
aði því til að það væri öllum frjálsum þjóðum
heims nauðsynlegt að vita að til hefði orðið
nýtt siðað þjóðabandalag sem hyggst gæta
mannréttinda þegna sinna og stuðla að friði.
Slíkt ríki væri nú orðið til í stað hinna gömlu
og óábyrgu Sovétríkja.
Hann sagði að ríkjasambandið stæði opið fyr-
ir þátttöku A-Evrópuríkja, svo sem Rúmeníu
og Búlgaríu. Þá bjóst hann við að Armenía og
fleiri Sovétlýðveldi myndu gerast þátttakendur
innan skamms.
Jeltsín gekk í gær á fund Gorbatsjovs í Kreml
í gær til að tilkynna honum formlega um að
Sovétríkin væru dauð og hann væri orðinn
áhrifalaus. Athygli vakti að hann fór einn full-
trúa ríkjanna þriggja á fundinn í Kreml. Bæði
Kravsjúk Úkraínuforseti og Sjúskevits forseti
Hvíta-Rússlands fóru hvergi. Fundur þeirra
stóð á aðra klukkustund en auk þeirra tveggja
tóku forsetar Kazakstans, Azerbadsjan og Tád-
sekistan þátt í honum. Að fundinum loknum
lýsti Gorbatsjov því yfir að hann hyggðist ekki
segja af sér embætti forseta Sovétríkjanna.
í lýðveldinu Rússlandi, Úkraínu og Hvíta-
Rússlandi búa um 70% af íbúum Sovétríkj-
anna auk þess sem lunginn úr efnahagslegum
og herruðarlegum styrk ríkisins er innan vé-
banda lýðveldanna þriggja þannig að án þeirra
er útilokað að tala um Sovétríkin.
Yfirlýsingin vakti talsverðan óróleika meðal
Sovétlýð^eldanna og á Vesturlöndum. Margir
óttast nti mjög um að það stefni í algera upp-
lausn ogátök milli þjóðabrota og trúarhópa og
að hugsanlega verði kjamorkuvopnum beitt.
James Baker utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna heimsækir lýðveldin þrjú síðar í þessum
mánuði. Hann sagði í gær að ástæða væri til að
óttast um að vopnuð átök brytust út og að
gripið yrði til kjamorkuvopna. „Sú hætta er
vissulega fyrir hendi að svipað ástand skapist
og nú ríkir í Júgóslavíu, að viðbættum kjam-
orkuvopnum," sagði Baker við bandaríska
sjónvarpsstöð í gær.
Kozyrev neitaði því í gær að hætta væri á að
kjamorkuvopn kæmust í rangar hendur með-
an hið nýja efnahagsbandalag er að festast í
sessi. „Það er engin hætta á slíku og það er
engin hætta á upplausnarástandi," sagði hann.
Lýðveldin þrjú hefðu öll yfir að ráða kjam-
orkuvopnum en ætlunin væri að standa við
alla samninga og skyldur sem Sovétríkin hefðu
samið um í tengslum við kjamorkuvopna-
birgðir sínar. Kjamorkuvopnin yrðu áfram
undir einni stjóm.
í Kasakstan eru einnig kjamorkuvopn og for-
seti Kasakstan lýsti því yfir í gær að hann væri
sama sinnis og Gorbatsjov að því leyti að hann
vildi að nýr grundvöllur ríkjasambands og
hemaðarbandalags hinna gömlu Sovétríkja
yrði fundinn. Ekki mætti láta ríkjasambandið
liðast f sundur. Reuter-sá
Stoltir Sovétverkamenn: Skrautsýning — fáránleg blekking kerfis sem byggðist á dellukenningu sem ekki fókk staðist?