Tíminn - 09.10.1993, Blaðsíða 19

Tíminn - 09.10.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 9. október 1993 Tíminn 19 Hjónaminning: Dagmar Öskarsdóttir og Karl Marteinsson Dagman Fædd 2. nóvember 1911 Dáin 1. október 1993 Karl: Fæddur 9. nóvember 1911 Dáinn 25. nóvember 1976 Dagmar Óskarsdóttir frá Leiti í Mjóafirði er látin. Maður hennar, Karl Marteinsson frá Skálateigi, lést fyrir sautján árum. Þau bjuggu inni á Norðfjarðarsveit, lengst af í Skála- teigi. Með örfáum orðum vil ég minnast þeirra heiðurshjóna. Karl var fæddur í Skálateigi, sonur hjónanna Ingibjargar Einarsdóttur og Marteins Sigfussonar, er þar bjuggu lengi. Hann ólst upp með foreldrum sínum og vann síðan að búi þeirra um skeið. Hugur hans stóð til verknáms og hann byrjaði að læra klæðskeraiðn. Þá veiktist hann alvarlega og þau veikindi drógu langan slóða. Hann hvarf frá námi. Dagmar og Karl gengu í hjónaband 27. júní 1942 og byrjuðu búskap sinn í Skálateigi með foreldrum hans. Dagmar fæddist í Firði í Mjóafirði. Foreldrar hennar voru Óskar Ólafs- son frá Firði og seinni kona hans, Sesselja Þórama Jónsdóttir frá Úlfs- stöðum í Loðmundarfirði. Þau bjuggu fyrst í Firði og síðan á Leiti, nýbýli sem Óskar byggði í landi Fjarðar. Hann féll frá þegar Dagmar var átta ára. En Þórama bjó áfram á Leiti með aðstoð Sigurðar bróður frá Skálateigi í Norðfirði síns og bama sinna eftir að þau komust til þroska. Dagmar naut góðrar bama- og unglingafræðslu hjá Guðmundi Stefónssyni bónda og kennara í Firði. Hún var löngum heima á Leiti næstu árin. Fór þó í vist syðra vetrarlangt og dvaldist öðm hverju nokkrar vikur hjá Guð- rúnu föðursystur sinni á Seyðisfirði. Karl og Dagmar byrjuðu sinn bú- skap í Skálateigi 1942, sem fyrr get- ur. En 1945 færðu þau sig um set eftir að hafa fengið ábúð á Hólum, einnig á Norðfjarðarsveit Þá fluttist og fjölskyldan á Leiti til þeirra í Hóla og bjuggu þar saman næstu ár. Var íbúðarhúsið á Leiti tekið ofen og hús reist úr viðum þess á Hólum. Næst er þess að geta að 1954 fluttu Karl og Dagmar að Skálateigi á ný ásamt skylduliði sínu. Ingibjörg, móðir Karls, hafði látist árið áður og Marteinn faðir hans dó 1956. Dvölin á Skálateigi að þessu sinni varð rösk tuttugu ár og þar ólust upp börn þeirra fimm, sem nú skulu nefnd í aldursröð: Óskar er elstur, verkamaður í Grindavík. Marteinn, bifreiða- og vinnuvélastjóri, kvæntur Þórdísi Ág- ústsdóttur og búa í Grindavík. Björg, gift Helga Jónssyni rafvirkja. Gerður, gift Sveini Guðmundssyni rennismið, búa í Garðabæ. Baldur var yngstur, en er nú látinn. Hann stundaði söngnám í Reykjavík og vann ýmis störf jafnframt. — Hér er þess og að geta að Sesselja Þórarna Hansdóttir frá Asknesi kom að Leiti bamung og ólst síðan upp hjá nöfnu sinni og Dagmar, þar og á Norðfirði, og telst með systkinahópnum. Mað- ur hennar er Nikulás Brynjólfsson sjómaður og búa þau í Keflavík. Karl og Dagmar bmgðu nú búi í Skálateigi 1975 og fluttu til Grinda- víkur. Karl átti þá skammt eftir ólif- að og lést þar á heimili sínu árið eft- ir. Dagmar hélt heimili í Grindavík næstu árin með Óskari syni sínum, uns hún fór að Hrafnistu í Hafnar- firði vorið 1984. Hjónin í Skálateigi vom aldrei heilsusterk og búsýslan af þeim sök- um örðugri en ella. En þau vom vel verki farin og samhent f hvívetna. Þau nutu og nokkurs stuðnings í störfum frá ættingjum húsfreyju og börnin komu snemma til léttis. Snyrtimennska var þeim í blóð bor- in og þau fóm vel með það sem þau höfðu undir höndum, búsmala sem annað. Karl hafði yndi af hestum og átti gæðinga. Bæði vom þau hjón heimakær í bestu merkingu þess orðs, bóndi hinn góði heimilisfaðir, húsfreyja ástrík og umhyggjusöm móðir. Dagmar var sem fyrr getur fædd og uppalin f Mjóafirði og dvaldist þar ungdómsárin. Við vomm á líku reki, en sóttum ekki sama barnaskóla, því langt var bæja á milli. Faðir minn var í vinfengi við fólkið á Leiti og samskipti jukust með heimilunum þegar ég var unglingur. Frá þeim á ég sérstæðar minningar, góðar og bjartar. Yngra fólkið átti og um ára- bil mikið saman að sælda í félags- starfi, á mannfundum og gleðimót- um. Er raunar af því allnokkur saga, sem alltaf var gaman að rifja upp þegar fundum bar saman. Við Margrét heimsóttum hjónin í Skálateigi stöku sinnum, gistum þá gjarnan og nutum gestrisni þeirra og góðvildar. Höfum við átt samleið með Dagmar ærið langa þegar nú leiðir skiljast um sinn. Við bættust svo kynni af Karli manni hennar og bömum þeirra og öll á einn veg. Það er því margs að minnast og margt að þakka þegar Dagmar er kvödd. Seinast hittum við hana í vor á Hrafnistu, þar sem hún dvaldi síð- asta áfangann og undi eftir hætti vel sínum hag. Niðjar hennar og vensla- fólk var í seilingarfjarlægð og vitjaði hennar oft, eins og vænta mátti. í lífi Dagmar hafa vissulega skipst á skin og skúrir. Hún missti föður sinn ung, en naut áfram samvista með móður sinni, sem var traust kona með hjartað á réttum stað. Hún eignaðist góðan eiginmann og með honum mannvænleg börn. En missti yngsta son sinn á besta aldri og hafði áður séð á bak kæmm bróð- ur ungum að árum. Þetta er einatt gangur lífsins, það er gefið og tekið á víxl. Og Dagmar var gefinn styrkur og hugarró, sem ekki er allra, og hún naut sólskinsstundanna. Við Margrét minnumst með hlýj- um huga hjónanna frá Skálateigi og biðjum þeim blessunar. Ástvinum þeirra sendum við alúðarkveðjur. Vilhjálmur á Brekku Bridge UMSJÓN: BJÖRN ÞORLÁKSSON Bikarkeppnin 1993: Öruggur sigur Samvinnuferða Eins og flestum er kunnugt varð sveit Samvinnuferða-Landsýn bikar- meistari í bridge um síðustu helgi. Liðsmenn sveitarinnar spiluðu ágæt- lega allt frá undanúrslitunum til síðasta spils. Ofanritaður var á staðn- um og lýsir hér nokkru af því forvitnilegasta sem fyrir augu bar. Undanúrslit: Leikur Samvinnu- ferða gegn TVB 16.1. lota spil 15 Suður gefur; NS á hættu NORÐUR Á ÁKD9742 * D86 i8 * K4 VESTUR AUSTUR * G65 A T3 V T432 * Á5 * GT4 ♦ D753 * 975 * GT862 SUÐUR A 8 V KG97 * ÁK962 * ÁD3 pass Ragnar 3gr. pass pass 5* pass pass pass pass Suður Vestur Norður Austur Páll 1 + 4* 6* „Það sem eyðilagði spilið var að makker skyldi eiga hjartadrottn- inguna," sagði Páll Valdimarsson þótt afrakstur spilsins væri 12 slag- ir og 1430 í húsi. Hvað átti Páll við? Jú, sagnserían var góð og vissulega mjög vandað að spila samninginn í suður. Ef hjartadrottninguna vant- ar er slemman í bráðri hættu í norður en þar var hún einmitt spil- uð á hinu borðinu með sama ár- angri svo spilið féll. Páll og Ragnar höfðu í vopnabúri sínu geymt 3ja granda sögnina á móti sterku laufi sem mjög var nú orðin rykfallin, hafði legið í geymslu í 3 ár án þess að vera notuð en nú kom loks tæki- færið. Sögnin lofar gegnheilum lit einhvers staðar með hliðarstyrk. Páll spurði um hliðarstyrkinn með fjórum Iaufum og fékk þá 5 lauf. Það voru allar líkur á að Ragnar væri með spaðalitinn og Páll sagði því svellkaldur 6 spaða á einspilið, en sem fyrr segir bölvaði hann hjartadrottningunni. Ef hana hefði vantað, hefði spilið mögulega boð- ið upp á sveiflu. Það varð hins vegar sveifla til Páls og Ragnars í spili 33 í úrslita- leiknum gegn Bimi Th. (sjá stöðumynd Lh.). Norður; enginn Norður Austur Suður Vestur Ragnar Gísli Páll Björn 3 grönd! pass 5 ♦! pass pass pass Hér hindruðu Ragnar og Páll (Samvf.) grimmt og komust ekki bara upp með það, þeir unnu líka spilið. Eins og sést má jafnvel standa 4 hjörtu í austur ef suður hittir ekki á tígulútspilið en annars eru 9 slagir tryggir. 5 tíglar em alltaf einn niður en einhver óná- Helgi Jóhannsson, forsQóri Sam- vinnuferða og einn af bikarmeist- uranum 1993, fhugar hér stöóuna. Þetta er önnur stórkeppnin á stuttum tíma sem Samvinnuferöir vinna þvf sveítin sfgraði á Bridgeháb'ð í ár. kvæmni olli því að eftir að Bjöm spilaði út hjartaás, spilaði hann aftur hjarta. Páll trompaði, spilaði seinni tíglinum á ás, svínaði síðan laufi og kastaði spaða niður í blind- um í laufásinn. Þar með vom tap- arar spilsins aðeins tveir, einn á hjarta og einn á spaða. í lokaða salnum fengu AV að spila hálitabút í vitlausri hendi og fóm einn niður. Afraksturinn því 450 til sveitar Samvinnuferða eða 10 imp. NORÐUR * T6 V 64 ♦ ÁK86543 * 3 VESTUR AUSTUR ♦ ÁDG82 4 K3 V ÁK98 V DGT532 ♦ 7 ♦ D9 ♦ 972 * K54 SUÐUR ♦ 9754 V 7 ♦ GT * ÁDGT86 Bjöm Theódórsson átti að mínu mati hraustlegustu meldingu keppninnar og jafnframt eina þá glæsilegustu í spili no 47 í undan- úrslitunum gegn H.P Kökugerð. Hvað myndi maður gera í fjórðu hendi eftir að andstæðingamir hefðu sagt sig upp í fjögur hjörtu í einum sagnhring með þessi spil: ♦ÁD653V644K4+ÁG32 Suftur gefur; NS NORÐUR A K84 v ÁK95 ♦ DG9 ♦ T87 VESTUR AUSTUR ♦ GT7 ♦ ÁD653 V T V 64 ♦ T7632 ♦ K4 ♦ D954 A ÁG32 SUÐUR ♦ 92 V DG8732 ♦ Á85 ♦ K6 Bjöm var undir í leiknum og þetta var næstsíðasta spilið í undanúr- slitunum og hann sá að hér dygðu engin vettlingatök og setti 4 spaða á borðið. Reyndist sú karlmennska hreinasta snilld. Ef vömin hefði staðið sig í stykk- inu er spilið aðeins einn niður og segir 100-kallinn lítið upp í þá 620 sem í boði vom ef Björn hefði pass- að. Það sem er enn merkilegra er þó að Björn vann spilið! Ústpilið var hjartadrottning og aftur hjarta sem Bjöm trompaði í blindum. Því næst spilaði hann litl- um tígli og lét kónginn eldsnöggt á borðið þegar suður setti níuna. Suður dúkkaði í hita augnabliksins og þar með fór síðasta von Selfyss- inganna. Ef til vill hefði borgað sig fyrir norður að hindra í spili no 40. Opinn salur, vestur; enginn I3 * ÁG98532 VESTUR AUSTUR ♦ ÁDGT7 A3 V K V ÁG9 ♦ ÁKD82 ♦ T7654 ♦ 74 * KDT6 SUÐUR A K96542 V D9743 ♦ G9 Vestur Norftur Austur Suður 1* pass 2 ♦ 3^ 4 gr. 6* pass 5* pass pass pass pass í lokaða salnum opnaði Einar Sveins- son í sveit Bjöms á einu laufi (sterkt) norður sagði pass (sem orkar tvímæl- is) og Bjöm Th. gat því í rólegheitun- um sagt tvo tígla. Suður sagði þrjá tígla sem lofuðu hálitunum. Eftir það leist Einari mjög vel á slemmuna og eftir ásaspumingu sagði hann 6 tígla sem em óhnekkjandi í þessari hendi vegna þess að suður á ekkert Iauf. í opna salnum lentu Selfyssingamir aft- ur á móti f því að vegna kerfissagna varð vestur sagnhafi í 6 tíglum. Norður spilaði út laufás og gaf félaga sínum stungu og 14 imp út: Sveitimar sem kepptu í úrslitunum um síðustu helgi vom skipaðar eftirtöldum spilurum: Samvinnuf: Helgi Jóh., Guðm. Herm., Páll Vald., Ragnar Magnúss., Bjöm Eysteinss. og Aðalsteinn Jörgensen. Sv. Bjöms Th: Bjöm Th., Gísli Hafliðason, Kristján Blöndal, Einar Svanss. og Stefán Guðjohnsen. Sveit TVB: Júlíus Snorrason, Sigurður Sig., Jón P. Sigurjónss., Borgþór Péturss., Trausti Valss. og Ólafur Ólafsson. HP: Grímur Amars., Bjöm Snorras., Helgi G. Helgas., Kristján Gunnarsson, Ólafur Steinason og Stefán Jóhannsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.