Tíminn - 14.01.1994, Qupperneq 3

Tíminn - 14.01.1994, Qupperneq 3
Föstudagur 14. janúar 1994 WCTTHllM tflgtK 'S'T'ffmTTr 3 „Vib segjum upp allir sem einn efþeir setja á okkur brábabirgbalög". Baráttufundur sjómanna: Kvóta- braskið skal af- numið! „Vi5 segjum upp allir sem einn ef þeir setja á okkur bráöa- brigðalög," sagði Þórarinn Sig- valdason sjómaöur á baráttu- fundi sjómanna í Bíóborginni í gær viö mikinn fögnuö fundar- manna. Fjölmenni var á fundinum í gær sem forystumenn sjómanna boö- uöu til í þeim tilgangi að gera fé- lögum sínum grein fyrir stöðu mála í þeim viðræðum sem fram hafa farið við útvegsmenn undir forystu VSÍ, frá því verkfall sjó- manna hófst. í ályktun fundarins em stjómvöld m.a. vömð viö því að hlutast enn einu til um að rýra kjör sjómanna meö lagasetningu. En forsætisráðherra hefur ekki útilokaö að gripið verði til laga- setningar til að leysa sjómanna- verkfallið. í gærmorgun gerðu út- gerðarmenn Davíð og Þorsteini grein fyrir stööu mála og skömmu eftir baráttufundinn mættu for- ystumenn sjómanna á fund ráö- herra. Eftir þann fund átti að það skýrast hvort ástæða væri til að kalla aðila til fundar í Karphúsinu eða ekki. Mikil stemmning var á baráttu- fundinum og einhugur meðal sjó- manna um að knésetja kvótabras- kið í eitt skipti fyrir öll, að kjara- samningar veröi virtir, ákveðinn grunnur verði tryggður í fisk- veröi, allur fiskur á fiskmarkað og réttarstaða sjómanna verði betur tryggð en nú er. „Þótt við ráðum ekki við veður- guðina þá eigum við að ráöa við saminganefnd LÍÚ," sagði efnis- lega í einu af þeim fjölmörgu bar- áttuskeytum sem bárust fundin- um. Kristján jökulsson sjómaður sagði að kvótabraskið væri hreinn og klár þjófnaður. Hann sagði að ef stjómvöld settti lög á verkfall- ið, þá væm þau með því að lög- vemda þjófnaö í þjóðfélaginu. Helgi Laxdal formaður Vélstjóra- félags íslands sagði aö barátta sjó- manna gegn kvótabraskinu væri krafa um lágmarks-mannréttindi. Hann nefndi m.a. dæmi um sjó- mann sem heföi átt aö fá 400 þús- und krónur við uppgjör en hefði aðeins fengið helminginn af því. „Restin fór í kvótakaup." Guðjón A. Kristjánsson formað- ur Farmanna- og fiskimannasam- bandsins sagði að ef kvótabraskiö mundi fá að viögangast mundi það sem áunnist hefði í kjarabar- áttu sjómanna síðustu tvo til þrjá áratugina hverfa. Hann sagöi að barátta sjómanna gegn kvóta- braskinu væri ekki aöeins mál sjó- manna heldur allra landsmanna. Formaður FFSÍ sagöi að sjómenn krefðust þess að ákvæði kjara- samninga væri virt og ef sú laafa næði ekki fram aö ganga mundu öll önnur stéttarfélög súpa seyðið af því í sinni kjarabaráttu. Jafn- framt yrði þess ekki langt að bíða að klipið yrði af kaupi fisk- vinnslufólks til kvótakaupa undir yfirskyni atvinnuöryggis. Guðjón A. skoraði jafnframt á alla heiöarlega útgerðarmenn að láta í sér heyra og sagðist ekki trúa því aö óreyndu að þeir tækju því með þegjandi þögninni að sam- tök þeirra væru á fullu við aö verja þá óheiðarlegu. Óskar Vigfússon formaður Sjó- mannasambands íslands sagði að barátta sjómanna fyrir gerð samninga um nýjar veiðigreinar heföi staðið yfir í ein sjö ár. Hann sagöi það sína persónulegu skoð- un að LÍÚ væru ekki lengur til sem samtök sjálfstætt starfandi útgeröarmanna. Þess í stað væru starfandi Landssamtök íslenskra fiskvinnslu- og útgeröarmanna, LÍFÚ. „Ef við náum ekki fram réttmæt- um kröfum okkar og réttindamál- um er eins gott fyrir okkur að pakka saman öllu draslinu," sagði formaður SSÍ. -grh Símaskráin í tveimur bindum Ný og breytt símaskrá kemur út í mars, en hún veröur þá í fyrsta skipti í tveimur bind- um. Annars vegar veröur um heföbundna nafnaskrá aö ræöa, en hins vegar kemur út sérstaklega ný og endurbætt þjónustuskrá. í þjónustuskránni verða talin upp öll fyrirtæki eða nöfn þeirra sem skráðir em fyrir fyrirtæki eða rekstri. Þessi þjónusta er ókeypis. Gulu síðumar verða endurbættar og skipting á milli atvinnuflokka skýrari. Þá bætast viö sérstakar bláar síður, þar sem verður að finna símanúmer stjómsýslustofnnana og stofn- anna er þeim tengjast. Stefnt er að því að auglýsingar veröi fyrst og fremst í þjónustuskránni. Þá veröur væntanlega ekki sérstök skrá yfir farsímanúmer, heldur er notendum gefinn kostur á ab birta númer farsíma meö heim- ilisnúmeri eða símanúmeri fyr- irtækis. Póstur og sími hefur undanfar- in ár gefið út sérstakar símaskrár fyrir hvert svæðisnúmer fyrir sig. Á þessu verður nú breyting og svæðaskrámar ekki flokkaðar eftir svæðisnúmerum heldur at- vinnusvæbum. Þá er símaskráin einnig fáanleg á tölvutæku formi. Að sögn upplýsingafull- trúa Pósts og síma er útgáfa símaskrárinnar alfariö kostuð meö auglýsingum. Gubjón A. Krístjánsson sagbi á fundinum oð ef samningar sjómanna yrbu ekki virtir hefbi þab'aivarlegar afleibingar fyrír annab launafólk líka. Gísli kokkur Eiríksson á jóni Vídalín var upphaaflega á móti verkfalli en sneríst hugur þegar hann sá hversu umfangsmikib kvótabraskib er. Tímamynd: GS Gísli Eiríksson á Jóni Vídalín ÁR Óttast lagasetningu „Mér finnst þetta bara mjög gott núna, en upphaflega vildi ég ekki fara í verkfall. En eftir aö maður sér hvaö mikiö er um þetta kvótabrask, þá var ekki um annaö aö ræöa," segir Gísli Eiríksson mat- sveinn á togaranum Jóni Ví- dalín ÁR. Hann segir ab togarinn eigi nóg af kvóta og því sé ekki um bein kvótakaup að ræða á þeim bæ. „Hinsvegar fáum við alveg hræbilega lágt verð fyrir fiskinn í staðinn og það má merkja það þannig að við séum ab kaupa kvóta." Gísli segist ekki verða var við annað en ab stuðningur al- mennings við sjómenn sé mjög góður. Hann segist óttast laga- setningu og að LÍÚ muni reyna að draga lappimar í samning- unum þangað til þolinmæði stjórnvalda sé brostin. „Ég væri alveg tilbúinn að segja upp minni stöðu ef þeir gerðu það. En ég held að þessir kallar muni ekki þora ab setja á okkur lög. Eins og fram kom á fundinum þá em menn ekki til- búnir að hætta í verkfalli fyrr en sigur vinnst á kvótabraskinu." Abspurður hvab hann hefði gert í verkfallinu svaraði hann stutt og lagott: „Látib konuna þvo mér." -grh Sverrir Valsson á Ásbirni RE Verður ab uppræta kvótabraskib „Viö eram ekki þátttakendur í kvótabraskinu, en aö sjálfsögöu sýnir maöur samstööu eins og sannur sjómaöur," segir Sverrir yalsson skipverji á togaranum Ásbimi RE. Hann segist vona að verkfallið yrði til aö þess að tekið yrði var- anlega á kvótabraskinu. Sverrir segir aö það megi alveg búast við lagasetningu til að leysa verkfall- ið. „Ef þab verða sett á okkur lög þá munum við bara boba verkfall uppá nýtt. Þab er líka til í dæm- inu. Við verðum að uppræta kvótabraskið." Sverrir segir aö það sé bara spennandi að vera í landi og fylgj- ast með umræðunni og því sem er að gerast í sambandi við verkfall- iö. Hann segist ekki þora aö svara um afstöbu almennings til verk- falls sjómanna en hinsvegar séu vinir hans og vandamenn hlynntir verkfallinu Sverrir segir ab þab sé alveg þokkalegt að vera í landi og lítur á Sverrír Valsson segir ab þab verbi bara ab boba nýtt verkfall ef setja brábabirgbalög. Tímamynd-.cs það sem auka sumarfrí. „Maður slappar bara af og fer í sund og svona og hugsar um fjöl- skylduna," segir Sverrir Valsson. -grh Björn Þorsteinsson á Snorra Sturlusyni RE: Samstaban skiptir öllu „Þaö er ekkert gaman aö þessu en menn veröa aö standa saman gegn þessu kvótabraski og þaö skiptir öllu máli," segir Bjöm Þorsteinsson skipverji á frysti- togaranum Snorra Sturlusyni RE. Hann segir að þótt kvótabraskið snerti ekki hann og félaga hans þá sé ekki um annaö að ræða en standa saman gegn því og þá sér- staklega með framtíöina í huga. „Það verður að vera góð samstaða þegar á reynir." Bjöm sagði aö þaö væri ómögu- legt að spá nokkru um framvindu deilunnar, en bjóst við að það mundi líklega skýrast á allra næstu dögum. Hann sagðist aö vísu óttast lagasetningu og það væri mjög leiðinlegt að hafa þann möguleika hangandi yfir sér. Hann sagöist ekki verða var við annað en ab stuöningur almenn- ings við verkfall sjómanna væri þokkalegur, en engu að síður væri mjög brýnt ab þjóðin stæði með sjómönnum gegn kvótabraskinu. „Maður hefur bara veriö heima Bjöm Þorsteinsson er tilbúinn ab leggja sitt ab mörkum til ab út- rýma kvótabraskinu, en hann hef- ur verib sjómabur í ein 23 ár. Tímamynd-.GS með fjölskyldunni, enda er maöur þetta 250 daga á sjó á ári," sagði Bjöm Þorsteinsson sjómaður. -grh

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.