Réttur


Réttur - 01.01.1987, Blaðsíða 6

Réttur - 01.01.1987, Blaðsíða 6
SIGURSVEINN E>. KRISTINSSON: Magnús Kjartansson - Tjóðfrelsisbarátta — Jafnréttisgangan 1978 Þegar herstöðvaandstæðingar hefja að nýju Keflavíkurgöngur vorið 1971, eru þeir haldnir nýrri bjartsýni. í forsetakosningunum 1968, hafði myndast samfylk- ing Alþýðubandalags, Framsóknarflokks og vinstrisinnaðs fólks, sem myndað hafði flokk „Frjálslyndra og vinstri manna“. Alþingiskosningar voru skammt undan og útlit fyrir samstöðu um að krefjast brottflutnings bandaríska hersins frá Keflavík. í kosningunum í júní 1971 hlutu þessir 3 flokkar 32 þingsæti (af 60 á þingi). Með því var bundinn endir á 11 ára hægri stjórn Sósíaldemokrata og Sjálfstæðisflokksins. Magnús Kjartansson hafði verið þing- maður síðasta kjörtímabil og var nú kos- inn öðru sinni. Allan sjöunda áratuginn hafði hann verið í forustusveit Sósíalista- flokksins og síðan Alþýðubandalagsins og jafnframt aðalritstjóri Þjóðviljans. Nú er hann skipaður ráðherra iðnaðar-, heil- brigðis- og tryggingamála, og einnig falið að fylgjast sérstaklega með framkvæmd stjórnarsáttmálans að því er varðar utan- ríkismál. Þegar stjórn Ólafs Jóhannes- sonar var mynduð, voru liðin 11 ár frá því að herstöðvaandstæðingar hófu fyrstu gönguna frá Keflavík til Reykjavíkur. í viðtali sem Magnús Kjartansson átti við þýskan blaðamann í byrjun október 1973, segir að þrjú stór verkefni, sem öll vörðuðu fullt sjálfstæði íslensku þjóðar- innar hefðu verið tekin upp í stjórnarsátt- málann og skyldu þau hafa forgang á kjörtímabilinu: 1. Útfærsla fiskveiðilögsögunnar. 2. Öflug uppbygging iðnaðar í landinu, án erlendrar íhlutunar. 3. Brottflutningur Bandaríkjahers frá Keflavík. Fiskveiðar og fiskvinnsluiðnaður skyldi einnig í framtíðinni verða grundvöllur efnahags þjóðarinnar, — þessvegna hefur stjórnin nú þegar keypt eða pantað 40 tog- ara og með því endurnýjað úthafsveiði- flotann. Til þess að vernda lifandi auðs- uppsprettu á fiskimiðunum kringum land- ið hefur fiskveiðilögsagan verið færð út í 50 sjómílur, gegn harðri mótstöðu Nató- ríkjann, Bretlands og Vestur-Þýskalands. Nú vaknar hin örlagaríka spurning. Hvort tekst íslensku þjóðinni í þetta sinn að reka dátana á Keflavíkurflugvelli heim til sín? Munu heimsvaldasinnar Banda- ríkjanna láta landið í friði? Eða munu þeir hefja mótaðgerðir? Það átti eftir að 6

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.