Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR TIL LEIGU skrifstofu/ verslunarhúsnæði í miðbæ Akureyrar, samtals 71,2 fm að stærð. Eignin er til afhendingar fljótlega. Allar frekari uppl. veitir Björn Guðmundsson í síma 897 7832 FRÍÐINDAKORT Kaupfélags Ey- firðinga kemur á markað í lok febr- úar næstkomandi og verður það af- hent félagsmönnum. Þeir eru nú um 9.500 talsins, en á síðastliðnum vik- um hafa tæplega 2000 nýir fé- lagsmenn bæst í hópinn. Forsvarsmenn KEA undrast mjög harkaleg viðbrögð Kaupmanna- félags Akureyrar sem sendi frá sér harðorða ályktun eftir aðalfund á miðvikudagkvöld. Þar var Fríðinda- kortinu líkt við uppvakning frá danska selstöðutímanum. „Við erum afar hissa á þessum við- brögðum kaupmanna,“ sagði Ingi- björg Ösp Stefánsdóttir markaðs- og kynningarfulltrúi KEA, enda sagði hún fyrirhugað kort ekki í neinu frá- brugðið öðrum vildar- eða afsláttar- kortum sem ýmis hagsmunafélög og -samtök gefa út. Alþekkt væri að stórir hópar, m.a. stéttarfélög, sæktu sér afsláttarkjör til verslunar- og þjónustuaðila. „Það vekur sér- staka undrun okkar að kaupmenn á Akureyri taki þetta eina kort út úr og fari í baráttu gegn því.“ Ingibjörg sagði að KEA-menn hefðu fengið mjög jákvæð viðbrögð hjá þeim sem seldu vörur og þjón- ustu á félagssvæði KEA. Útgáfa fríðindakorts væri í samræmi við ákvæði í samþykktum félagsins þar sem kveðið er á um að KEA afli fé- lagsmönnum sínum viðskiptakjara. Með útgáfu kortsins væri KEA að vinna í þágu eigenda sinna, fé- lagsmanna, en stefnt væri að því að þeir yrðu um 10 þúsund talsins þeg- ar kortið verður gefið út. „Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá íbúum á svæðinu og einnig frá kaupmönnum,“ sagði Ingi- björg. Öllum lögaðilum á starfssvæð- inu hefur verið sent bréf þar sem þeim er boðin þátttaka, þ.e. að fé- lagsmenn KEA fái afslátt af vöru og/ eða þjónustu viðkomandi beini þeir viðskiptum sínum til þeirra. „Það liggur ekki endanlega fyrir hverjir verða með, menn eru að gefa sig fram þessa dagana, en þetta hefur gengið vonum framar.“ Fríðindakort KEA mun gefa út fríðindakort fyrir félagsmenn, býðst þeim afsláttur af margs konar vöru og þjónustu. Morgunblaðið/Margrét Þóra KEA undrast harkaleg viðbrögð kaupmanna Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is AKUREYRI ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | Sjöþúsundasti íbúi Árborgar leit dagsins ljós fimmtudagsmorguninn 12. jan- úar klukkan 6.30, á fæðing- ardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Þetta er Eyrbekkingur, myndarlegur drengur sem var 16 merkur og 52 sentimetrar við fæðingu. Hann er sonur Guðrúnar Lilju Magnúsdóttur og Björns Emils Jónssonar sem búa við Búðarstíg á Eyr- arbakka. Fulltrúar bæjarstjórnar, Ein- ar Njálsson bæjarstjóri, Þor- valdur Guðmundsson, formað- ur bæjarráðs, og Ásmundur Sverrir Pálsson, forseti bæj- arstjórnar, heiðruðu foreldr- ana og litla drenginn með heimsókn og færðu honum peningagjöf og foreldrunum blóm í tilefni dagsins. Einnig kynntu þeir að dreng- urinn fengi skrautritað skjal þegar hann yrði skírður, til vitnis um það að hann væri sjö- þúsundasti íbúi sveitarfélagsins Árborgar. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Tímamót Óskírður Björnsson, sjöþúsundasti íbúi Árborgar, í örugg- um höndum Einars Njálssonar bæjarstjóra. Forsvarsmenn sveitarfé- lagsins komu færandi hendi á fund fjölskyldunnar á fæðingardeild. Sjöþúsundasti íbúinn er Eyrbekkingur Selfoss | „Við höf- um ekki fengið hlið- stæð framlög til uppbyggingar og miðlunar háskóla- náms eins og Vest- firðir, Norðurland og Austurland,“ seg- ir Þorvarður Hjalta- son, framkvæmda- stjóri Samtaka sunnlenskra sveitar- félaga, sem hafa ákveðið að verja 80 milljónum króna til uppbyggingar há- skólanáms á Suður- landi. Skipaður hefur verið verkefnishópur um þetta verkefni samtakanna. Orri Hlöð- versson bæjarstjóri í Hveragerði er formaður hópsins, Gunnar Þor- geirsson formaður SASS á sæti í hópnum ásamt Sveini Aðalsteins- syni úr stjórn Fræðslunets Suður- lands. Hópnum er ætlað að leggja fram tillögur um útfærslu á ráð- stöfun fjárins. Markmiðið er að auka framboð háskólanáms á Suð- urlandi og koma á fót stofnun til að annast það á Suðurlandi. Hug- myndin er að sú stofnun nái yfir Fræðslunet Suðurlands og verði í samstarfi við háskólasetur á Suður- landi. „Ástæða þess að menn eru að gera þetta er að sveitarfélögin telja að það þurfi að efla háskólamenntun á Suðurlandi. Hér er lægra hlutfall háskóla- menntaðra en á höfuð- borgarsvæðinu, líkt og er reyndar á lands- byggðinni. Við sættum okkur ekki við að fá ekki hliðstæð framlög og önnur landsvæði á landsbyggðinni og sveit- arfélögin hafa ákveðið að taka mál- in í sínar hendur með þessu frum- kvæði. Það verður áfram knúið fast á um að fá framlög frá ríkinu til jafns við aðra landshluta“, sagði Þorvarður. Hann sagði 80 milljónirnar koma frá Atvinnuþróunarsjóði Suður- lands en þar væri verið að gera breytingar og hætta lánastarfsemi en leggja þess í stað áherslu á ráð- gjöf. Um væri að ræða ráðstöf- unarfé sem til er hjá sjóðnum við þessi skil á starfsemi hans. Leggja 80 milljón- ir til háskólanáms Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri. SIGBJÖRN Gunnars- son, fyrrverandi sveitarstjóri í Mý- vatnssveit og alþing- ismaður fyrir Alþýðu- flokkinn, hefur gengið til liðs við Sjálfstæð- isflokkinn og mun taka þátt í prófkjöri flokksins vegna bæj- arstjórnarkosninga í vor. Hann stefnir á annað til fjórða sæti listans. Sigbjörn er fæddur á Akureyri árið 1951 og varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1972. Hann stundaði nám við Háskóla Ís- lands 1974–1975 og var kennari við Gagnfræðaskólann á Akur- eyri og kaupmaður á Akureyri á árunum 1972 til 1991. Hann sat á Alþingi 1991 til 1995 og hefur verið sveitarstjóri í Skútustaða- hreppi frá 1997, en lét af því starfi síðla á nýliðnu ári. Sigbjörn hefur setið í fjölda nefnda á vegum ríkis og sveitar- félaga, verið formaður íþrótta- ráðs Akureyrar, formaður heil- brigðis- og trygg- inganefndar Al- þingis, formaður fjárlaganefndar og formaður þing- flokks Alþýðu- flokksins, setið í flugráði og stjórn Byggðastofnunar. Þá var hann fulltrúi Alþingis í Evrópuráðinu í Strassburg og for- maður fiskveiði- nefndar Evrópu- ráðsins. Sigbjörn var á árum áður í aðalstjórn KA sem og í stjórnum knattspyrnu- og handknattleiksdeilda félagsins, í stjórn KSÍ og Golfklúbbs Ak- ureyrar og Golfklúbbs Mývatns- sveitar. Sigbjörn var keppnis- maður í handknattleik og knattspyrnu um margra ára skeið með ÍBA og KA. Eiginkona hans er Guðbjörg Þorvaldsdóttir launafulltrúi. Sigbjörn á fimm börn. Sigbjörn Gunnarsson Sigbjörn til liðs við Sjálfstæðisflokk Bætist í bílaflotann | Fimm nýir bílar bætast brátt í bílaflota SBA en forsvarsmenn félagsins voru á ferð í Þýskalandi nýlega og pöntuðu þá umrædda bíla. Fyrir voru í pöntun fjórir nýir bílar og stækkar þá flot- inn svo um munar þegar allir bílarn- ir verða komnir til Íslands. Bílarnir sem að voru pantaðir núna eru þrír bílar framleiddir af Bova í Hollandi, einn Mercedes Benz O 404 13-RH og einn Mercedes Benz Atego sem sett- ur verður undir Ernst Auwärter Clubstar yfirbyggingu. Fyrir voru í pöntun þrír nýir Mercedes Benz Sprinter 416 CDi sem verða í 20 manna útfærslu og svo einn 42 manna bíll frá Bova verksmiðjunum. SBA á þegar þrjá bíla frá Bova og verða þá amk. sjö Bova bílar í rekstri hjá fyrirtækinu í sumar.    Leikskóli | Umhverfisráð hefur falið skipulags- og byggingafulltrúa að gera tillögu um staðsetningu leik- skóla í Hlíðahverfi í samráði við skólanefnd. Erindið var tekið fyrir að nýju hjá ráðinu, en skólanefnd hafði óskað eftir að hugað væri að leik- skólalóðum í tengslum við endur- skoðun á aðalskipulagi. Í svari skóla- nefndar til umhverfisráðs kemur fram að nefndin áætlar að þörf sé fyr- ir nýja leikskóla fyrir um 170 börn í Síðu- og Hlíðahverfum á næstu árum.    Minnisvarði | Verkalýðsfélagið Eining-Iðja hefur óskað eftir að fá að setja upp minnisvarða um ald- arafmæli samfellds starf verkalýðs- félaga við Eyjafjörð. Umhverfisráð leggur til að verkið verði staðsett við tjörnina við Strandgötu. Ráðið felur skipulags- og byggingafulltrúa frek- ari afgreiðslu erindisins s.s. að ákveða nánari staðsetningu minn- isvarðans í samráði við umsækjanda.    Laun á leikskólum | Launamál leikskólakennara verða til umræðu á fundi sem efnt verður til á vegum Vinstihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri á morgun, laugardaginn 14. janúar kl. 11 í hús- næði VG við Hafnarstræti 98. Á fundinum verða leikskólastjórar og fulltrúar Akureyrarbæjar á þessum vettvangi og taka þeir þátt í pall- borðsumræðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.