Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 45 MINNINGAR að sjá það spaugilega sem fyrir hann bar í dagsins önn. Hann brynjaði sig gjarna með gríni og glensi en í raun var hann mjög viðkvæmur, og mátti ekkert aumt sjá. Ég hygg að margir afkomendur þeirra Júllu og Björns finni hjá sér þessa eiginleika. Björn hafði gaman af því að spila bridge. Það var siður á Siglufirði að spila sitt á hvað heima hjá hvor öðr- um. Man ég að um það leyti sem ég kynnist fjölskyldunni, spiluðu saman hjá Birni Óli Olsen, Eggert Theó- dórsson og Jóhannes Jósepsson en þeir eru allir látnir. Björn starfaði í Skipstjórafélagi Siglufjarðar sem var mjög virkt félag um miðja síðustu öld. Einnig var hann félagi í Bridgefélagi Siglufjarð- ar og var snjall spilari. Lengst af spil- aði hann við Steingrím Magnússon og síðar Jóhann Möller, sem báðir eru látnir, veit ég að þeir unnu til fjöl- margra verðlauna. Björn var kosinn heiðursfélagi Bridgefélags Siglufjarðar. Björn og Júlía tóku mér einstak- lega vel og fannst mér þau ætíð líta á mig sem einn af sonum sínum. Þegar við Auður höfðum eignast Björn elsta son okkar tóku þau ekki í mál annað en hafa hann einn vetur hjá sér svo við gætum klárað nám í Reykjavík. Fyrir það er mér ljúft að þakka. Júlía og Björn voru oft nefnd sam- tímis eins og tíðkast um samhent hjón. Heimili þeirra stóð öllum opið á Hafnargötu 6, og þau voru bæði vin- mörg og vinföst, hjá þeim var oft gestkvæmt, sérstaklega á sumrin er til Siglufjarðar komu ættingjar og vinir. Björn missti Júlíu 1997, þá fannst mér hann missa alla lífslöngun, hann var þá búinn að ganga í gegnum mjög erfiða „stómaaðgerð“ og mér fannst á honum að til lítils væri að lifa lengur. Vissulega var hann búinn að skila sínu lífsstarfi afkomendum og þjóð- inni til heilla, en trú okkar segir að enginn ræður sínum tíma og við það verður hver og einn að sætta sig. Hann dvaldi sín síðustu ár á Sjúkrahúsi Siglufjarðar og áður á öldrunardeild Sjúkrahússins, þar sem ég veit að hann naut frábærrar þjónustu og þakka ég starfs- og hjúkrunarfólki og læknum frábæra umönnun, hlýlegt og elskulegt við- mót og meðferð. Ég kveð nú tengdaföður minn sem er einn af þessum mönnum, sem þessi kynslóð sem nú lifir á hvað mest að þakka fyrir þær stórkostlegu breytingar sem urðu á síðustu öld, til sjávar og sveita. Við stöndum í þakkarskuld við þá sem færðu okkur á þann stað sem við stöndum í dag. Ég vil að leiðarlokum, kæri tengdafaðir, þakka þér fyrir öll okkar samskipti sem aldrei bar skugga á og vona að þú finnir þann frið sem þú þráðir og bið þér guðsblessunar. Ljúfi faðir, leiðir skilja, lífið tekur hverja gjöf. Heilög minning veginn vísar, veginn yfir dauða og gröf. Blessuð sé minning þín. Sverrir Sveinsson. Elsku Björn afi. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (Maren Jakobsdóttir.) Takk fyrir allt, þín Auður. Afi minn Björn Þórðarson hefur lokið sínum síðasta róðri og náð lang- þráðum lendingarstað þar sem amma bíður hans. Ekki var ég gamall þegar ég áttaði mig á því að það er ekki sjálfgefið að hafa afa sér við hlið í uppvextinum. Sjómennskan getur verið erfið og það fékk ég að upplifa snemma. Ég var ásamt vini mínum í fótbolta í blíð- skaparveðri, hafflöturinn spegilslétt- ur, afi var á dýpkunarskipinu Birn- inum ásamt öðrum manni að ná í sand rétt til móts við vitann á Siglu- firði. Ég hafði fylgst með skipinu öðru hverju og allt virtist eins og best var á kosið, bæði hjá mér og afa. En skyndilega sá ég að dýpkunarskipið snérist og fljótlega eftir það reis það upp á endann og byrjaði að sökkva. Ég varð alvarlega hræddur því að Björn afi kunni ekki að synda. Við hlupum heim til vinar míns til að láta vita og fengum fljótlega vitneskju um það að menn væru nú þegar lagðir af stað til björgunar. Þegar björgunar- menn komu á slysstað voru skip- brotsmenn komnir í julluna, bát sem þeir drógu alltaf á eftir sér, guði sé lof. Ég var 9 ára gamall þegar þetta gerðist en þessi alvarlegi atburður kenndi mér margt og varð öðrum yrkisefni. Björn er svo léttur og lundin ei klökk og lítið hann grét þegar nafni hans sökk karlinn hann fann hvorki fát eða skrekk sem frelsari mannanna á sjónum hann gekk. (Bjarki Árnason.) Þessi gamanvísa var afa að skapi. Margar á ég góðar minningarnar um afa, en erfitt er að minnast hans án þess að amma komi þar við sögu. Þau voru samrýnd hjón. Á unglingsárum mínum fór ég oft til afa og ömmu. Stundum fannst mér eins og ég væri fullorðinn en þau bálskotnir ungling- ar. Afi alltaf að stríða ömmu og hún að reyna að siða hann til, en það leyndi sér ekki að hún hafði gaman af þessum látum í honum. Þegar amma kvaddi þennan heim vildi afi sigla í kjölfarið, sorgin endalaus en hjarta hans sterkt, hans hlutskipti var að róa lengur í lífsins ólgusjó. Elsku afi, minningin um þig lifir. Sveinn Sverrisson. Elsku besti afi minn, besti vinur minn, loksins fékkstu hvíldina. Það var erfitt að koma og sjá þig svona veikan og lasburða eins og á jóladag þegar ég og stelpurnar mínar litum inn til þín. Já þú sem varst van- ur að sprella við okkur og gera að gamni þínu, en nú var það búið, svona er lífið. Elsku afi, við Birgir, Auður Björk, Guðrún Sonja og Hólmar Björn þökkum þér allar góðu stund- irnar. Það rifjast margt upp og nefni ég t.d. heimsóknir mínar til þín í Sunnu- braggann (góður var saltfiskurinn þinn) eða heima í kjallaranum á Hafnargötunni, uppi á lofti í herberg- inu þínu þar var alltaf til súkkulaði og brjóstsykur í skúffunni þinni, þar varst þú glaður með spilin þín. Já afi, jólaboðin stóru þar sem allir ykkar komu saman og skemmtu sér. Nóg var af matnum og kræsingunum. Og rúnturinn inn fyrir göngin á Trabant- inum, já það eru margar minningarn- ar, elsku afi. En einn dagur er mér eftirminnilegri en aðrir og er það brúðkaupsdagurinn minn, 10. júní 1984, gleðidagur hjá okkur á Siglu- firði en skugga bar á. Enginn veit hvað hver dagur ber með sér, dánarfregn, barnabarn ykk- ar ömmu Júllu, frændi minn og jafn- aldri Hermann Þórisson látinn, blessuð sé minning hans. Afi þú og amma Júlla voruð hetjurnar mínar þennan dag og oft hugsa ég um hvað þið voruð dugleg og sterk, en við ræddum mikið saman eftir þetta, sumt fer á annan veg en við viljum, við fáum engu breytt. En elsku afi, nú ertu kominn til ömmu Júllu og vona ég að ykkur báðum líði vel og góður guð geymi ykkur. Hjartans þakkir fyrir allt, elsku besti afi minn. Þín Júlía Linda. Kallið er komið, hann Björn afi minn er dáinn. Við Brynja kona mín erum innilega þakklát fyrir að hafa náð á Siglufjörð til að sjá hann áður en hann kvaddi. Margs er að minnast og hægt að telja upp óteljandi atburði og atvik þar sem afi var þungamiðja hring- iðunnar. Afi sitjandi við skrifboðið að spila bridds við sjálfan sig er eitthvað sem er fast og órjúfanlegt minning- unni. Afi hafði sterkar skoðanir á mönn- um og málefnum. Réttsýni var hon- um í blóð borin og var hann ekki mik- ið fyrir að hlusta þegar talað var illa um annað fólk. Tók hann þá gjarnan upp hanskann fyrir þann sem ekki gat varið sig og lét viðkomandi heyra það. Afi var alnafni langafa síns, Björns Þórðarsonar hreppstjóra og Danne- brogsmanns frá Skálá í Sléttuhlíð, sem sagður var fyrirmynd Davíðs Stefánssonar að Trausta hreppstjóra í Sólon Íslandus. Hann var, af þeim sem vel þekktu til, kallaður Lilli, því hann var orðinn tveggja ára þegar hann var skírður. Nafnið Lilli var hreint öfugmæli þar sem afi var stór og stæðilegur maður. Afi var fæddur 19. september 1913 á Hraunum í Fljótum, en for- eldrar hans voru þar í vinnu- mennsku. Eitt ferðalag var afa ofarlega í minni, það var þegar hann fór frá Hraunum með föður sínum og þeir lentu í stórhríð uppi í Siglufjarðar- skarði. Þurfti langafi að binda afa fastan efst í Skarðinu til að hann týndist ekki á meðan hann rak láns- hest niður í Hraunadal svo hann skil- aði sér heim að Hraunum. Löng og óttaleg stund hefur það verið fyrir sex ára drenginn að bíða föður síns og hlusta á norðanvindinn næða í Skarðinu. Þegar þeir feðgar komu loks heim á Hafnargötuna var Jó- hannes bróðir hans nýfæddur. Afi sigldi á stríðsárunum til Skot- lands á Dagnýju SI 7 með fisk frá Vestmannaeyjum og hefur það örugglega tekið á taugarnar að sigla myrkvuðu skipi þar sem kafbátar og flugvélar gátu birst ófyrirséð hvenær sem var og grandað skipinu. Heima á Siglufirði beið amma með börnin fimm og hefur án efa átt erfiða tíma meðan afi var í þessum siglingum. Síldveiðar þegar snurpað var á höndum áður en kraftblökkin kom til sögunnar voru veiðar sem afi þekkti vel sem sjómaður. Hann var verkstjóri um árabil á síldarplönum á Siglufirði, en ósér- hlífni við vinnu einkenndi afa og gerði hann kröfur til annarra í samræmi við það. Þegar afi var verkstjóri á Hjaltalínsplaninu hjálpaði hann mér að veiða minn fyrsta fisk á bambus- stöng. Afi minn var mikið náttúrubarn og var mikið fyrir íslenskan mat. Hann verkaði fisk og hákarl og bjó til há- karlastöppu sem hann smurði ofan á rúgbrauð sem amma bakaði. Þetta var eitthvað sem við barnabörnin átt- um mörg hver erfitt með að tileinka okkur að borða, við vorum meira fyr- ir sætmetið. Jólaboðin hjá afa og ömmu voru mikilvægur og ógleymanlegur þáttur í jólahaldinu og var margt um mann- inn þegar öll barnabörnin voru sam- an komin og mikið fjör. Ekki var fjör- ið síst vegna þess hvað afi hafði gaman af börnum, sérstaklega þeim sem voru svolitlir grallarar í sér. Þennan eiginleika hafði afi enn þó hann væri orðinn gamall og lasinn síðustu árin og minnast börnin okkar Brynju langafa síns sem afa sem þótti gaman að galsast. Afi var ágætur smiður og byggði hæð ofan á húsið við Hafnargötu 6 á sínum tíma og sýndi þessa hæfileika sína þegar hann aðstoðaði Ægi og Birgi syni sína við að innrétta hús sín. Ég fékk oft að fara með afa á dýpk- unarskipinu Birninum og fylgdist með honum og Johansen vinna, lík- lega væri þetta ekki talinn heppileg- ur staður fyrir barn að vera á í dag. Mannbjörg varð þegar dýpkunar- skipið Björninn sökk úti á Siglufirði, en þetta var atvinnufyrirtækið þeirra afa og Johansen. Eitthvað var erfitt um vinnu á þessum tíma og þegar blaðamaður spurði afa að því hvað hann hygðist gera, þá sagði afi: „Ætli maður fari ekki bara á bæturnar eins og allir hinir“. Ekki gekk það nú eftir, þar sem hann átti nú eftir að salta nokkuð af fiski með Sverri syni sínum eftir að þessi orð voru sögð. Með þessum fátæklegu minningar- brotum kveð ég afa minn og þakka honum fyrir það sem hann hefur kennt og gefið mér og fjölskyldu minni. Guð blessi minningu þína. Björn Sverrisson ✝ Ingólfur Gunn-arsson fæddist á Egilsstöðum í Fljóts- dal 12. ágúst 1919. Hann lést á sjúkra- deild Heilbrigðis- stofnunar Austur- lands á Egilsstöðum að kvöldi 5. janúar síðastliðins. Foreldr- ar hans voru hjónin Gunnar Sigurðsson, f. á Egilsstöðum í Fljótsdal 15.9. 1881, d. 2.8. 1963 og Berg- ljót Stefánsdóttir, f. á Glúmsstöðum í Fljótsdal 4.11. 1884, d. 2.12. 1949. Börn þeirra voru Snorri, Sigríður, Stefán, Sig- urður, Sigurbjörg, Pétur, Egill, Björg, Ingólfur, Bergljót, Jóríður, Guðfinna, Ingibjörg og Þórhalla. Þau eru nú öll látin. Ungur að aldri var Ingólfur sett- ur í fóstur að Hóli í Fljótsdal, til móðurbróður síns, Friðriks Stef- ánssonar og konu hans Ingibjargar Benediktsdóttur. Þau áttu tvö börn, Benedikt og Guðfinnu, fóst- ursystkin Ingólfs, en þau eru bæði látin. Á Hóli ólst Ingólfur upp og dvaldi til fullorðinsára. Ingólfur hélt sambandi við fjölskylduna sína á Egilsstöðum alla tíð og þangað var ætíð hans ,,heim“. Ingólfur stundaði nám við Alþýðuskólann á Eiðum veturlangt 1941–1942 og dvaldi um stundarsakir á Reyðar- firði seinnihluta árs 1942 við öku- nám og vinnu samhliða. Eiginkona Ingólfs er Unnur Ein- arsdóttir, f. 10. desember 1924. Foreldrar hennar voru hjónin Ein- ar Sveinn Magnússon frá Mjóanesi í Vallahreppi og Þuríður Þórarins- dóttir frá Valþjófsstað. Ingólfur og Unnur hófu búskap að Valþjófs- stað árið 1948 með föður Unnar og seinni konu hans, Maríu Jónsdótt- ur, frá Bessastöðum í Fljótsdal, en Þuríð- ur móðir Unnar lést af berklum árið 1929. Ingólfur og Unnur eignuðust þrjú börn, sem eru: 1) Þuríður Kolbrún, f. 1947, gift Degi Kristmundssyni, börn þeirra eru a) Jóna Dagbjört, f. 1968, í sambúð með Guðmundi Erni Úlf- arssyni, og börn þeirra tvö eru Úlfar Dagur og Eydís Gyða, b) Unnur Inga, f. 1970, í sambúð með Jó- hanni Halldóri Harðarsyni, og c) Kristmundur, f. 1977. 2) Friðrik Ingi, f. 1952, kvæntur Helgu Hall- björgu Vigfúsdóttur, börn þeirra eru a) Vigfús, f. 1977, b) Ingólfur, f. 1981, í sambúð með Sigríði Huldu Stefánsdóttur, c) Einar Sveinn, f. 1991 og dóttir Friðriks, Iðunn Þóra, f. 1970 í sambúð með Birni Magna Björnssyni. 3) Gunnþórunn, f. 1954, í sambúð með Jósef Val- garð Þorvaldssyni, börn þeirra eru a) Ólöf Sæunn, f. 1976, b) Ingi Val- ur, f. 1983, og c) Dagrún Drótt, f. 1990. Á Valþjófsstað var alla tíð heimili þeirra Ingólfs og Unnar og frá 1976 bjuggu þau þar ásamt Friðriki syni sínum, eiginkonu hans Helgu og sonum þeirra. Ing- ólfur bjó með sauðfé og stundaði refa- og hreindýraveiðar frá unga aldri, auk þess að vera leiðsögu- maður hreindýraveiðimanna frá 1965–1990. Ingólfur fylgdi einnig fjölda ferða- og fræðimanna inn á öræfin ofan Fljótsdals. Ingólfur var grenjaskytta frá 1932 og sinnti því meðan heilsa leyfði. Ingólfur verður jarðsunginn frá Valþjófsstaðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú ertu horfinn á braut, afi minn, og víst verður þín sárt saknað. Við bræðurnir á Valþjófsstað vorum lán- samir að vaxa úr grasi með þig á heimilinu. Ávallt mátti leita til þín ef eitthvað bjátaði á og ávallt hafðir þú einhver úrræði. Þú hvattir okkur áfram í því sem við bræðurnir tókum okkur fyrir hendur og þú varst óþreyttur að hafa okkur með við gegningar og önnur verk. Ófáar ferð- ir fór ég með þér til að kanna netin í Hólmavatninu þó oft væri erfitt að fylgja þér eftir í þúfunum en alltaf sýndir þú þolinmæði. Einnig man ég vel eftir því þegar þú last Árnabæk- urnar fyrir mig. Það tungutak sem okkur bræðrunum var innleitt með móðurmjólkinni verður ekki metið til fjár, þó stundum væri mælt á kjarn- yrtri íslensku á heimilinu, sérstaklega ef órói var undir fréttatímanum. Þú fylgdist vel með og last mikið og hafð- ir einkum áhuga á frásögnum, en varst minna fyrir skáldverk. Eitt skáldverk, ef svo mætti kalla, rataði þó inn á borð hjá þér vikulega því yf- irleitt mátti ég sækja nýjasta eintakið af Andrési Önd inn á borðið við rúm- stokkinn hjá þér þegar ég kom heim úr skólanum. Úr seinni tíð er mér þó minnisstæð- ast þegar við fórum í reisuna á Vest- firðina á áttræðisafmælinu þínu. Þig hafði lengi langað að fara um þetta svæði, enda lesið margt um það. Það gladdi mig að geta gert þann draum að veruleika og við höfðum báðir gaman af, í það minnsta bar þessa ferð ósjaldan á góma síðar. Við gátum líka ávallt rætt veiðiskap og ég held það hafi glatt þig að ég skyldi feta í fótspor þín og fara á hreindýraveiðar. Á síðasta ári ágerðust veikindi þín. Það var mér mikils virði að geta hitt þig og kvatt á sjúkrahúsinu þegar ég kom heim til Íslands yfir hátíðarnar. Ég veit það tók þig sárt að þurfa að dvelja síðustu mánuðina fjarri Fljóts- dalnum og Heiðinni en þar undir þú þér best, helst eitthvað að bardúsa. Ekki eru þó allir eins lánsamir og þú að lifa rúmlega 86 ár og sjá börn, barnabörn og barnabarnabörn vaxa úr grasi og dafna vel. Ég óska að ég verði eins lánsamur. Þinn nafni, Ingólfur. INGÓLFUR GUNNARSSON Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.