Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 1
Veldu það besta Morgunblaðið/Árni Sæberg BEKKURINN var þétt setinn í messu helgaðri réttindabaráttu sam- kynhneigðra í Fríkirkjunni í Reykjavík í gær. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur telur að hátt í þrjú hundruð manns hafi sótt messuna. Fulltrúar samkynhneigðra, Sigursteinn Másson og Ragnhildur Sverrisdóttur, predikuðu og tónlistarmenn léku. Sigursteinn kvaðst ekki vilja trúa að Alþingi Íslendinga myndi beygja sig fyrir biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni, og veita ekki trúfélögum heimild til lögformlegrar vígslu samkynhneigðra para. Ragnhildur Sverrisdóttir sagði að hún vildi, sem samkynhneigð kona, njóta sama réttar innan kirkjunnar og aðrir. Ragnhildur skráði sig úr þjóðkirkjunni og í fríkirkjuna í upphafi árs vegna orða biskups Íslands um mál samkynhneigðra í nýárspredikun sinni. | 20 Messa helguð baráttu samkynhneigðra Arndís Björg Sigurgeirsdóttir, Margrét Friðriksson og Bára Kristín Kristinsdóttir í messu helgaðri baráttu samkynhneigðra í Fríkirkjunni í gær. Fasteignir og Íþróttir í dagFegursti dýrgrip- ur úr svínseyra Umsögn um Vínartónleika þar sem gestir æptu af hrifningu Menning STOFNAÐ 1913 15. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Fasteignir | Sundhöllin í fullu gildi  Baðið verður heilsu- og dekurherbergi  Þéttiefni eykur þol steypu Íþróttir | Handboltagull í Noregi  Arnar Þór til Twente? VÍSINDAMÖNNUM Íslenskrar erfða- greiningar hefur tekist að finna erfðabreyti- leika sem hefur veruleg áhrif á hættuna á að fólk fái sykursýki 2 sem einkum herjar á fullorðið fólk. Sykursýki fullorð- inna er sjúkdómur sem leitar í síauknum mæli á vestræn velmegunar- samfélög og hafa þættir á borð við offitu mikil áhrif á tíðni hennar. Í niðurstöðum ÍE seg- ir að um 7% Íslendinga hafi erft breytileikann frá báðum foreldrum. Sá hópur er í um 140% meiri hættu á að fá sykursýki fullorðinna. 38% hafa fengið breytileikann frá öðru foreldri og eru um 40% meiri líkur á að þeir fái sjúkdóminn en þeir sem ekki hafa breytileikann. Ætla að þróa greiningarpróf Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur líkur á að innan tveggja til þriggja ára hafi ÍE þróað einfalt greiningarpróf. Verði prófið markaðssett um heim allan þurfi það ekki að verða svo dýrt. Vísindamenn á sviði mannerfðafræðinnar hafa löngum átt í erfiðleikum með fullorð- inssykursýki, eða sykursýki 2 eins og hún nefnist einnig. „Mér kom það töluvert á óvart að finna breytileikann; einn erfðavísi sem hefur svo mikil áhrif,“ segir Kári og bætir því við að hann sjálfur hefði veðjað gegn því að þetta tækist vegna sterkra áhrifa umhverfisþátta á sjúkdóminn. Vísindamenn ÍE finna erfða- breytileika sykursýki 2 Hefur veru- leg áhrif á sykursýki fullorðinna Dr. Kári Stefánsson Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@hi.is  ÍE finnur | 6 Helsinki. AP, AFP. | Tarja Halonen, forseti Finn- lands, fékk ekki þau 50% atkvæða, sem þurfti til að sigra í forsetakosn- ingunum í landinu í gær, og því verður að efna til annarrar umferðar. Þegar búið var að telja rúmlega 99,9% at- kvæða hafði Halonen 46,3% en Sauli Niinistö, leiðtogi Hægri- flokksins, 24%. Matti Vanhanen forsætis- ráðherra fékk 18,6%. Þau Halonen og Niin- istö munu því takast á aftur 29. janúar nk. Kannanir sýndu lengi, að Halonen, sem er jafnaðarmaður, myndi sigra örugglega en á síðustu dögum dró heldur úr stuðningi við hana. Almennt er talið, að hún muni sigra í síðari umferðinni. Ekki var mikill ágreiningur með frambjóðendunum og snerust kosningarnar því meira um menn en málefni. Önnur umferð í Finnlandi Tarja Halonen Santíagó. AP, AFP. | Læknirinn og sósíalistinn Michelle Bachelet bar sigur úr býtum í forsetakosning- unum í Chile í gær. Verður hún fyrsta konan til að gegna forseta- embætti í landinu. Þegar talin höfðu verið 97,5% af átta milljónum atkvæða, hafði Bachelet, sem er fyrrverandi, pólitískur fangi, fengið 53,5% en keppinautur hennar, hægrimaður- inn og auðjöfurinn Sebastián Piñ- era, 46,5%. Nokkru síðar játaði Piñera sig sigraðan og óskaði Bachelet velfarnaðar í starfi. Mun sigur hennar tryggja áframhald- andi ríkisstjórn mið- og vinstri- flokka í Chile en samstjórn þeirra hefur verið við völd síðan einræði Augusto Pinochet og hersins lauk 1990. Bachelet fékk flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninganna, 46%, en Piñera 25%. Þótt þau séu hvort á sínum kanti í stjórnmál- unum, þá virtust þau sammála um flest í kosningabaráttunni og studdu þann markaðsbúskap, sem gert hefur efnahagslífið að einu því öflugasta í Rómönsku Am- eríku. Kona, sósíalisti og trúleysingi Bachelet mun taka við embætti 11. mars og þá af Ricardo Lagos, flokksbróður sínum, en hann á mikinn þátt í efnahagsumbótun- um í Chile og nýtur mikilla vin- sælda. Lögum samkvæmt gat hann þó ekki boðið sig fram nú en stuðningsmenn hans segjast þeg- ar vera farnir að vinna að fram- boði hans 2010. Bachelet, sem er 54 ára, var um hríð heilbrigðisráðherra í stjórn Lagos og síðar varnar- málaráðherra en lét af því emb- ætti fyrir rúmu misseri vegna for- setaframboðsins. Þykir það merkilegt hve langt hún hefur náð í fremur íhaldssömu, kaþ- ólsku samfélagi því að hún er ekki aðeins kona, einstæð móðir, og sósíalisti, heldur einnig yfir- lýstur trúleysingi. Michelle Bachelet verður þriðja konan til að gegna forsetaemb- ætti í Rómönsku Ameríku en þær tvær fyrri voru Violeta Cham- orro, sem var forseti Níkaragúa 1990 til 1997, og Mireya Moscoso, forseti Panama frá 1999 til 2004. Bachelet sigraði í Chile Verður fyrsta konan til að gegna forsetaembætti í landi sínu Michelle Bachelet eftir að hún hafði greitt atkvæði í gærmorgun. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.