Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.01.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 2006 19 UMRÆÐAN Sími 5050 305 w w w . s a g a b o u t i q u e . i s Tollfrjáls verslun skýjum ofar Glæsilegt vöruúrval í vetrarlista Saga Boutique. Náðu þér í eintak af nýjasta Saga Boutique á söluskrifstofum Icelandair, á ferðaskrifstofum eða um borð í flugvélum Icelandair. SK A PA R IN N A U G L Ý SI N G A ST O FA MÁLEFNI og rekstur Kópavogs- bæjar hafa verið nokkuð til umræðu að undanförnu. Þar kem- ur eðlilega til að fram- undan eru sveitar- stjórnarkosningar, en einnig sú staðreynd að, að undanförnu hafa núverandi stjórn- endur sýnt nokkuð grímulaust hvaða sýn þeir hafa á það hvern- ig eigi að stjórna næstfjölmennasta sveitarfélagi landsins. Kópavogur ehf.? Þegar litið er yfir ákvarðanir undanfar- inna mánaða og miss- era, gæti manni frem- ur dottið í hug að þeir sem stjórna bænum litu á hann og reksturinn sem einkafyrirtæki, held- ur en félagslega einingu þ.s. velferð íbúanna ætti að koma fyrst. Þegar kemur að launum starfsmanna bæj- arins er það reksturinn og afkoma hans sem kemur fyrst, en ekki sú þjónusta sem bærinn veitir. Þannig er í þeirra huga ágætt að starfsfólk leikskólanna sé fátt eða lítið mennt- að, því þannig kostar reksturinn minna og hægt er að borga lægri laun. Og það er ekki fyrr en kjós- endur hóta aðgerðum, sem bæjaryfirvöldum dettur í hug að hreyfa sig, en með semingi þó. Nú heyrast allt í einu raddir frá meirihlut- anum í bæjarstjórn um að hækka þurfi lægstu launin, korteri fyrir kosningar. Þetta eru sömu menn og hafa haft 16 ár til að bæta kjör þessa fólks! Málið er hins vegar ekki bara spurning um laun og starfsfólk og starfs- mannaveltu, heldur einn- ig spurning um þjónustu við bæjarbúa. Það er ekki hægt að stæra sig af rekstrarafgangi sem er á kostnað þjónustu við fólk. Barnafjölskyldum sem búa við óvissu um hvort börn þeirra fái þá leikskólagöngu sem þeim hefur verið lofað, er líklega nokkuð sama um hvort Gunnar Birgisson langar að byggja óperuhús, henda meiri peningum í höfnina eða eitthvað ann- að gæluverkefni. Öldruðum og ör- yrkjum sem bíða á sjúkrahúsum eftir þjónustu sem bæjarfélagið á að veita, eða í heimahúsum við erfiðar að- stæður er líklega nokkuð sama um hvort rekstrarafgangur bæjarins er milljóninni meiri eða minni. Þetta fólk er ekki að borga skatta til bæj- arins til að búa við óöryggi. Það borgar ekki skatta svo Sjálfstæð- isflokkurinn og Framsóknarflokk- urinn geti rekið bæinn eins og sitt eigið Ehf. Fyrirgreiðslupólitík En sjálfhverfni bæjaryfirvalda kemur fram í fleiru. Nýlegar lóðaút- hlutanir og „reglur“ sem farið er eft- ir við þær hafa orkað mjög tvímælis, og minnt óþægilega á þá fyrir- greiðslupólitík sem svo mjög var ríkjandi á Íslandi eftir seinna stríð og fram eftir seinustu öld. Á sama tíma og gegnsæi í ákvarðanatöku og samráð við íbúa sækja á annars stað- ar, virðist stjórnlyndi og pukur eiga við hér. Ekki er hlustað á hugmyndir íbúa um skipulag gróinna bæjar- hverfa, heldur farið fram með full- mótaðar hugmyndir um nýtt skipu- lag, byggingarmagn og samsetningu byggðar. Þrjú nýleg dæmi um þetta sýna hugarfarið vel, Lundarhverfið, bryggjuhverfið og skipulag Kópavog- stúns. Í öllum þessum tilvikum var farið fram með fullmótaðar hug- myndir, og jafnvel búið að semja við verktaka, áður en ástæða þótti að ræða við íbúana. Íbúar vesturbæjar lögðu til á fjölmennum borgarafundi að skipulag bæjarhlutans yrði rætt í heild en ekki var orðið við því. Það er ljóst að núverandi valdhafar í Kópa- vogi hafa setið alltof lengi. Svo lengi að þeim finnst þeir eiga tilkall. Vinstri grænir hafa lagt áherslu á íbúalýðræði, opna stjórnsýslu og fé- lagslegar áherslur í stjórn bæjarins. Við höfum lagt fram mótaðar tillögur um hvernig bærinn okkar á að standa að leikskólamálum í gjald- frjálsum leikskóla, þ.s. metnaður bæjarfélagsins birtist í gæðum þjón- ustunnar, ánægju fjölskyldunnar og starfsmannanna. Við viljum tryggja að bærinn verði þekktur sem fjöl- skyldubær með umhverfisvænar áherslur, þ.s. stjórnendur stjórna með fólkinu og fyrir það, en ekki bæjarstjórn sem telur það hlutverk sitt að stjórna fólkinu. Fjölskyldubærinn Kópavog- ur eða Kópavogur ehf.? Ólafur Þór Gunnarsson fjallar um bæjarstjórnarmál í Kópavogi Ólafur Þór Gunnarsson ’… núverandivaldhafar í Kópavogi hafa setið alltof lengi.‘ Höfundur er oddviti Vinstri grænna í Kópavogi, í komandi bæjarstjórn- arkosningum. MENN sem kalla sig fjárfesta kaupa með látum hesthús í Glaðheimum í Kópa- vogi. Nú eiga þeir þriðjung hesthúsanna, jafnvel þótt hesta- mannafélagið Gustur berjist á móti. Samningur félags- ins og Kópavogs um Glaðheima gildir til ársins 2038. Það er ekki nýtt að kaupa upp á yfirverði fasteignir á heilum svæðum til að brjóta niður og byggja aftur á uppsprengdu verði. En hér þarf líka að mölva æskulýðsstarf og tómstundir fólks. Svo beygja bæjaryf- irvöld og breyta skipulagi. Verð lélegustu húsanna í Glað- heimum hefur þrefaldast í verði síð- an vitleysan byrjaði í sumar. Beitt er gylliboðum og loddaraskap. Fólki er sagt að aðrir hafi þegar selt, verðið lækki og það missi af lestinni. Við suma eru gerðir tveir samningar, einn um hús og gervisamningur um „búnað“. Lægri samningi er svo veifað framan í næstu seljendur. Mörgum finnst allt í lagi að hest- húsin fari. En þetta er miklu stærra mál. Óvandaðir menn reyna að hrifsa til sín völd í bænum. Með kaupunum þagga þeir niður í hverf- inu og lama félagsstarfið. Þá minnka umsvif í glæsilegri reiðhöll Gusts, sem byggð var í sjálfboðavinnu. Þar er enn eitthvert blómlegasta æsku- lýðsstarf íslenskra hestaíþrótta. Öll íþróttahreyfingin á að bregð- ast við í þessu máli. Hér er ekki ein- asta reynt að brjóta niður heilt íþróttafélag. Hér er atlaga gerð að heilli íþróttagrein. Hér er vegið að fjölda atvinnugreina sem henni tengjast. Hesthúsaverð á öllu höf- uðborgarsvæðinu er sprengt uppúr öllu valdi. Bráðum kostar helmingi meira að hýsa hvert hross. Ung- mennin hrekjast fyrst í burtu. Síðan fleiri og hestamennska verður að- eins íþrótt hinna ríku. Hreyfingu hestamanna hefur tekist að byggja upp á löngum tíma íþrótt fyrir al- menning. Víða um land hefur alls kyns atvinnu- uppbygging fylgt í kjöl- farið. Þar er gert út á íslenska hestamenn. Fækki þeim hefur það víðtækar afleiðingar. Það er engin þörf á því að sportið sé á heið- um uppi. Ég hef lagt til að á málinu verði tekið með táknrænni endur- nýjun, lengri og betri samningi við Gust. Hestamennska er vel sett í Glaðheimum. Þess má gæta í skipu- lagi og með því að leyfa aðeins hesthús á svæð- inu. Fjármálamennirnir geta spreytt sig á því að reisa ný hesthús fyrir þau gömlu sem þeir hafa keypt, eða bara selt aftur. Gróðapungar spilla æskulýðsstarfi Samúel Örn Erlingsson fjallar um hesthúsaverð í Kópavogi Samúel Örn Erlingsson ’Óvandaðirmenn reyna að hrifsa til sín völd í bænum.‘ Höfundur hefur fjallað um hesta- íþróttir í sjónvarpi í tæpa tvo áratugi og stundar hestamennsku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.