Morgunblaðið - 13.05.2006, Side 6

Morgunblaðið - 13.05.2006, Side 6
BERGUR Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landverndar, segir ákvörðun bæjarstjórnar Ölfuss um að veita framkvæmdaleyfi fyrir efnis- töku á fjallsbrún Þórustaðanámu í Ingólfsfjalli marka tímamót, en þar sé gengið gegn fyrsta áliti Skipulags- stofnunar sem gert er eftir að breyt- ingar á lögum um mat á umhverfis- áhrifum gengu í gildi 11. maí í fyrra. „Upp á dag, einu ári eftir að breyt- ingin tekur gildi, tekur sveitarstjórn Ölfuss ákvörðun sem áður hefði ekki verið hægt að taka nema af umhverf- isráðherra og þá að undangenginni kæru. Að þessu leyti teljum við að hér sé um tímamótaákvörðun að ræða,“ segir Bergur. Í ljósi ákvörðunar bæj- arstjórnar Ölfuss megi spyrja hvað taki við. Bergur bendir á að álit Skipulagsstofnunar hafi verið afar vel rökstutt og stjórn Landverndar hafi tekið undir niðurstöðu stofnunarinn- ar í apríl þegar álitið var gefið út. Ákvörðun bæjarstjórnar Ölfuss valdi Landvernd áhyggjum en við blasi neikvæð og óafturkræf sjónræn áhrif vegna efnistökunnar. Brún Ing- ólfsfjalls muni lækka um allt að 80 metra á 400 metra löngum kafla. „Þetta er við þéttbýlisstað og við fjöl- farinn þjóðveg, en á sumardögum aka um 8.000 bílar hjá. Þá er lega fjallsins á víðáttumiklu svæði á Suðurlands- undirlendinu og ummerkin munu sjást langt og víða að,“ segir Bergur. Hann segir Landvernd vona að ákvörðun bæjarstjórnar Ölfuss vegna efnistökunnar í Ingólfsfjalli sé ekki það fordæmi sem aðrar sveitarstjórn- ir muni fara eftir. Samkvæmt skipulags- og upplýs- ingalögum nr. 73 frá árinu 1997 skulu ákvarðanir sveitarstjórna um útgáfu framkvæmdaleyfis vegna mats- skyldra framkvæmda birtar með auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu og dagblaði sem gefið er út á landsvísu innan tveggja vikna frá útgáfu leyfis. Í auglýsingunni skal einnig birta nið- urstöðu álits Skipulagsstofnunar samkvæmt lögum um mat á umhverf- isáhrifum, eins og fram kemur í 8. grein laganna. Í 27. grein sömu laga er kveðið á um það að þeir einir geti skotið mál til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála sem eiga lögvarða hagsmuni tengda hinni kærðu ákvörðun. Tekið er fram að sé um að ræða ákvarðanir vegna fram- kvæmda sem falli undir lög um mat á umhverfisáhrifum eigi umhverfis- og hagsmunasamtök sama rétt. Sem kunnugt er samþykkti bæjar- stjórn Ölfuss umsókn Fossvéla ehf. um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku í Ingólfsfjalli. Þess ber raunar að geta að Baldur Kristjánsson, sem sæti á í bæjarstjórninni, greiddi einn atkvæði gegn leyfisveitingunni á efnistöku úr Ingólfsfjalli. Með ákvörðun sinni fór bæjarstjórn þvert gegn áliti Skipu- lagsstofnunar sem taldi fyrirhugaða efnistöku í Ingólfsfjalli, eins og hún var kynnt í matsskýrslu, „ekki við- unandi vegna verulegra neikvæðra, varanlegra og óafturkræfra sjón- rænna áhrifa og áhrifa á landslag sem hún mun óhjákvæmilega hafa í för með sér,“ eins og segir í niðurlagi álitsins. Sú breyting sem gerð var í maí í fyrra á lögum um mat á umhverfis- áhrifum nr. 106 árið 2000 fól í sér að Skipulagsstofnun getur ekki lengur kveðið upp úrskurði heldur aðeins veitt álit. Fram að lagabreytingunni gat Skipulagsstofnun kveðið upp úr- skurði þar sem framkvæmdum var t.d. hafnað og þá úrskurði var síðan hægt að kæra. Lagabreytingin þýðir því í reynd að ákvörðunarvaldið varð- andi leyfisveitingar á framkvæmdum hefur færst frá Skipulagsstofnun til viðkomandi sveitarfélaga. 80% efnis nýtt á Selfossi Eins og fram kom í blaðinu í gær lagði Sveitarfélagið Ölfus ríka áherslu á að efnisflutningabifreiðir fari sem stysta leið frá námu til not- enda vegna áhrifa á umferð og um- ferðaröryggi. Samkvæmt upplýsing- um frá Magnúsi Ólasyni, framkvæmdastjóra Fossvéla ehf., fara um 80% af efninu úr námunni til Selfoss sem er í um 6 km fjarlægð frá Ingólfsfjalli, þar sem efnið nýtist í jafnt vegagerð sem og nýbyggingar. Restin af efninu nýtist annars staðar á Suðurlandi, s.s. á Hellu, Eyrar- bakka og Stokkseyri, en að sögn Magnúsar er yfirleitt í mesta lagi keyrt með grjótmulning í um 30 km fjarlægð. Magnús bendir á að miklir hagsmunir séu fólgnir í því að hús- byggjendur á Selfossi geti gengið að grjóti í stöpla og grunna í nokkurri nálægð við bæinn því þeim hefði ella aðeins staðið til boða að sækja grjót í námu í Lambafelli í Þrengslum sem er í um 70 km fjarlægð. Landvernd ósátt við ákvörðun bæjarstjórnar Ölfuss um að heimila efnistöku á brún Ingólfsfjalls „Um tímamóta- ákvörðun að ræða“                            Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur og Silju Björk Huldudóttur Morgunblaðið/RAX Brún Ingólfsfjalls mun lækka um allt að 80 metra á 400 metra löngum kafla. 6 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nú bjóðum við frábært tilboð til Alicante/Benidorm á síðustu flugsætunum í maí. Þú bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Gríptu tækifærið og njóttu vorsins á Benidorm í maí. Fjölbreytt gisting í boði á Benidorm. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Alicante 18. og 25. maí frá kr. 19.990 Allra síðustu sætin Verð kr. 19.990 Netverð á mann. Flug og skattar, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 18. og 25. maí í 1, 2 eða 3 vikur. Munið Mastercard ferðaávísunina „Á ÉG að þora?“ gætu þessir kátu krakkar verið að hugsa þar sem þeir bíða eftir því að röðin komi að þeim í veltibílinn sem fangaði athygli ófárra á Vorhátíð Hvassaleitisskóla í gær. Fjöldi hverfisbúa lagði leið sína á hátíð- ina enda lék veðrið við mann- skapinn. Það var þó fleira en bíll- inn öfugsnúni sem trekkti, s.s. kappakstur fjarstýrðra bíla, íþróttakeppnir af óhefðbundnara taginu, kökubasar, glæsileg skemmtiatriði nemenda skólans, pylsugrill og hjólaskoðun lög- reglu svo fátt eitt sé nefnt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Krakkar á hvolfi GREININGARDEILD fjármálafyr- irtækisins Morgan Stanley hefur sent frá sér aðra skýrslu um íslensku viðskiptabankana þrjá; Landsbank- ann, KB banka og Glitni. Skýrsluhöf- undar segjast sannfærðir um að ekki sé hætta á fjármálakreppu á Íslandi, eftir að hafa farið í gegnum nýlega skýrslu hagfræðinganna Tryggva Þórs Herbertssonar og Frederic S. Mishkin um efnahagsmál á Íslandi. Mælir Morgan Stanley með kaup- um á fyrsta flokks skuldabréfum (e. tier 1) allra bankanna og segir kaup- tækifæri á meðan ávöxtunarkrafa bréfanna lækki ekki ennfrekar með dvínandi áhyggjum yfir efnahags- ástandi Íslands. Áhersla skýrslunnar er á KB banka þar sem mest áhætta var sögð honum tengd í síðustu skýrslu deild- arinnar frá 13. mars sl.. Í þeirri skýrslu fengu Landsbankinn og Glitnir góða umsögn og stendur hún óbreytt. Segir greiningardeildin að mat hennar á KB banka sé nú já- kvæðara en í fyrri skýrslunni. Tilgreinir deildin nokkrar ástæður fyrir jákvæðara mati á KB banka. Bankinn sé frekar norrænn banki en íslenskur, þar sem þaðan komi stærri hluti tekna hans en frá Íslandi. Veik- ing krónunnar hafi haft lítil áhrif á bankann, fyrirhugaðar breytingar á krosseignarhaldi við Exista skipti máli, minni áhætta hvað varðar hlutabréfaeign bankans og gott upp- gjör á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þá segir deildin að endurfjármögnun KB banka sé vissulega erfitt við- fangsefni en viðráðanlegt vegna þess hve sterk fjárhagsstaða bankans sé. Í greiningunni eru líkur leiddar að því að Moody’s kunni að lækka láns- hæfismat KB banka þegar bankinn verður endurmetinn eftir hálft ár. Telur deildin að þetta ætti þó ekki að letja fjárfesta nú, þar sem skuldabréf bankans væru hvort eð er vanmetin um þessar mundir. Sannfærðir um hagkerfið Á grundvelli Mishkin skýrslunnar telur deildin jafnframt ekki hættu á að ótti/áhyggjur á markaði geti leitt til kreppu á Íslandi. Hafi rannsókn Mishkin á 26 nýleg- um fjármálakreppum leitt í ljós þrjár meginástæður fyrir óstöðugleika hagkerfanna: Aukið frjálsræði á fjár- málamarkaði án öflugs regluverks og eftirlits, mjög mikið ójafnvægi á fjár- málamarkaði og ómarkviss peninga- málastjórnun. Engin af þessum forsendum eigi við um íslenska hagkerfið og því hafi samanburður við hraðvaxta mark- aðshagkerfi, sem hafi gengið í gegn- um fjármálakreppur, verið villandi. Greiningardeildin segir þó að ákveðnir þættir í hagkerfi Íslands valdi áhyggjum. Eignir bankanna hafi farið úr 60% af landsframleiðslu í 396% Hraður vöxtur bankanna hafi aukið á viðskiptahallann sem nemi um 16% af landsframleiðslu. Grein- ingardeildin tekur þó undir með Mis- hkin, sem segir að fleira þurfi að koma til en mikill viðskiptahalli til að kippa fótunum undan hagkerfinu. Morgan Stanley telur engar líkur á efnahagskreppu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.