Morgunblaðið - 29.05.2006, Blaðsíða 34
34 F MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Víkurhvarf
7273,7 fm heil húseign við Víkuhvarf í Kópavogi, Hvarf-
ahverfi, bygging ætluð fyrir þjónustu og verslun. Húsið
er glæsilegt, teiknað af Kristni Ragnarssyni arkitekt.
Traustur byggingaraðili (ÁF-hús). Glæsilegt útsýni og
mikið auglýsingagildi er úr húsinu. Hverfið er í mikilli
uppbyggingu. Lóð er 10.500 fm. Nánari upplýsingar á
skrifstofu Miðborgar. Tilboð 7013
Faxafen
668,4 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð í húsi byggðu ár-
ið 1987. Húsnæðið skiptist í stóra móttöku, snyrtingar
og ræstingarkompu, stóran sal með tveimur skrifstofum
innaf, eldhús með borðkrók og geymslu innaf og 6 stór-
ar skrifstofur. Auðvelt væri að innrétta húsnæðið í minni
einingar. Góður gluggafrontur. Lóð er frágengin með
malbikuðu bílastæði. V. 90 m. 5886
Laugavegur
Mjög gott verslunar- og skrifstofuhúsnæði á einum besta stað við Laugaveg-
inn. Um er að ræða alls þrjá eignarhluta sem seldir verða saman eða í sitt
hvoru lagi. Mögulegt er að láta lyftu í húsið þar sem lyftustokkur er til staðar.
Húsnæðið býður upp á ýmsa notkunarmöguleika.
153,8 fm verslunareining ásamt 150,3 kjallara, alls um 305 fm. Verslunarein-
ingin er öll í útleigu.
171,9 fm skrifstofuhæð. Möguleiki er á að breyta hæðinni í tvær íbúðir. Hús-
næðið er leigt út.
177,9 fm skrifstofuhæð. Til eru teikningar þar sem hæðin er teiknuð sem
tvær íbúðir. Húsnæðið er í útleigu. Óskað er eftir tilboðum. 7080
Atvinnuhúsnæði
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i !
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvk
Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Sími 533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Björn Þorri
hdl., lögg. fast.sali
Brandur Gunnarss.
sölumaður
Karl Georg
hrl., lögg. fast.sali
Bergþóra
skrifstofustjóri
Perla
ritari
Þórunn
ritari
Þorlákur Ómar
sölustjóri
Guðbjarni
hdl., lögg. fast.sali
Magnús
sölumaður
Sogsbakki
heilsárshús
Glæsileg 115 fm heilsárshús við Sogsbakka í landi Ás-
garðs við Sogið í Grímsnes- og Grafningshreppi. Húsin
standa á stórum lóðum og skilast fullfrágengin að utan
sem innan. Húsin skiptast í forstofu, stofu, eldhús, þrjú
svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eik-
arinnrétting er í eldhúsi með uppþvottavél og ísskáp
ásamt eyju með gashelluborði. Eikarparket og flísar á
gólfum, gólfhiti. Verönd er um 100 fm og að stærstum
hluta yfirbyggð. Heitur pottur er á veröndinni. Heitt og
kalt vatn. Gert er ráð fyrir afhendingu í maí/júní. V. 35
m. 7049
Staðarhvammur
85,5 fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð auk 29 fm inn-
byggðs bílskúrs, alls 114,5 fm. Íbúðin skiptist í hol,
svefnherbergi, eldhús með borðkrók, baðherbergi með
baðkari, stofu og borðstofu. Nýlega er búið að setja
glæsilegt svalalokunarkerfi yfir svalirnar sem eru ca 10
fm. Innaf bílskúr er góð geymsla. V. 20,9 m. 7116
Víghólastígur
Laus strax
51,9 fm 2ja herbergja talsvert endurnýjuð íbúð, sem er
efri sérhæð, á góðum stað í Kópavogi. Íbúðin skiptist í
anddyri, stofu, herbergi, eldhús, baðherbergi, geymslu
ásamt sérgeymsluskúr á lóð. Sérlóð norðanmegin við
húsið, mikil veðursæld. Grunngólfflötur íbúðarinnar er
töluvert stærri en skráningartölur FMR segja til um.
Laus við kaupsaming. V. 15,9 m. 7025.
Mávahlíð
156,2 fm efri hæð og ris með sérinngangi við Mávahlíð
í Reykjavík. Íbúðin skiptist í hol, tvær stofur, eldhús, tvö
baðherbergi og sex svefnherbergi. Í kjallara er sameigin-
legt þvottahús og sérgeymsla. V. 36,5 m. 7067
Hamrakór
254,4 fm glæsilegt raðhús-tengihús á 2 hæðum með bíl-
skúr á góðum útssýnisstað í Kórahverfinu í Kópavogi.
Gert er ráð fyrir að húsið verði afhent fullbúið að utan og
steinað í ljósum lit. Lóðin verður tyrfð og bílaplan hellu-
lagt götumegin. Að innan verður húsið afhent fullbúið án
gólfefna utan þess að flísar verða á aðalbaðherbergi.
Húsið verður með gólfhita. Möguleiki er á breytingum í
innréttingavali ef kaupendur koma með þær tímanlega.
V. 55 m. 7134
Marteinslaug
128,4 fm 4ra herb. íbúð á 3. hæð við Marteinslaug á
mjög fallegum útsýnisstað. Íbúðin er í 4ra hæða ál-
klæddu lyftuhúsi. Stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin
skilast fullbúin án gólfefna með vönduðum innréttingum
frá Trésmiðjunni GKS og tækjum frá Siemens. Til af-
hendingar strax. V. 32,9 m. 5999
Dalsel
158,7 fm góð 5-6 herbergja endaíbúð á tveimur hæðum
í Seljahverfinu ásamt stæði í bílageymslu. Eignin skiptist
í eldhús, stofu, borðstofu, tvö barnaherbergi, hjónaher-
bergi, sjónvarpshol og baðherbergi á efri hæð (1. hæð).
Á neðri hæð (kjallari) er gott vinnuherbergi, eitt svefn-
herbergi, þvottahús og sturtuaðstaða. Möguleiki á að
nýta neðri hæðina sem séríbúð. Inngangur á báðum
hæðum. V. 28,5 m. 6052
Lækjargata
Miðbær
Snyrtileg 48,1 fm 2ja herbergja íbúð við Lækjargötu í
Reykjavík. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi,
baðherbergi. Góð íbúð í hjarta miðbæjarins. V. 25 m.
7111
Vesturgata
Akranesi
175,7 fm einbýlishús á Akranesi, Reynissstaður. Húsið
skiptist í 4 svefnherbergi, stofu og borðstofu, eldhús,
baðherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og vinnuað-
stöðu/geymslu. Pallur með skjólveggjum, heitum potti
og leikaðstöðu. Fallegt hús með góðum garði. V. 25,9
m. 7130
Boðagrandi
111,3 fm mjög góð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð auk
stæðis í bílageymslu. Íbúðin skiptist í hol, stofu með
verönd til austurs, glæsilegt eldhús með borðkrók, bað-
herbergi, tvö svefnherbergi og sérþvottahús. Í kjallara er
geymsla og sérstæði í bílageymslu. V. 29,5 m. 7010
Ferjubakki
76,9 fm skemmtileg 3ja herb. íbúð við Ferjubakka í
Reykjavík. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, stofu, barnaher-
bergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Þvottahús og
geymsla eru í sameign. V. 16,9 m. 7121
Tómasarhagi
98,8 fm glæsileg 3ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi í fallegu þríbýli. Íbúðin er mikið uppgerð og er
með verönd með skjólvegg. Íbúðin skiptist í hol, stóra
stofu, fallegt eldhús með borðkrók, baðherbergi með
baðkari og sturtuklefa, tvö svefnherbergi og geymslu.
V. 27,9 m. 7077