Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 19 ERLENT Ævintýraferðir á ári Hundsins til Kína með KÍNAKLÚBBI UNNAR Haustferð: 7. - 28. september Farið verður til TÍBET (Lhasa, Gyantse, Shigatse), BEIJING, XIAN, CHENGDU, GUILIN, og á KÍNAMÚRINN Heildarverð á mann kr. 350 þús. Allt innifalið: Þ.e. skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum (einb. + 60 þ.), fullt fæði, skattar/gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar Guðjóns- dóttur, sem er sérfræðingur í skipulagningu ferða til Kína, en þangað fór hún með fyrsta hópinn 1992. Jóla- og nýársferð: 21. desember - 2. janúar Farið verður til BEIJING, XIAN, SHANGHAI, SUZHOU og á KÍNAMÚRINN. Heildarverð á mann kr. 250 þús. Allt innifalið: þ.e. skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum (einb. + 40 þ.), fullt fæði, skattar/gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar. Þetta verður 24. hópferðin sem hún skipuleggur og leiðir um Kína. Kínakvöld: Hópar og einstaklingar geta pantað „Kínakvöld“, á Njálsgötunni eða úti í bæ, með myndasýningu og mat, sýningu á Tai-Chi og kínverskum listmunum. Kínaklúbbur Unnar, Njálsgötu 33, 101 R símar: 551 2596 og 868 2726 Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur Netfang: kinaklubbur@simnet.is Geymið auglýsinguna Kynntu þér stóru, sterku og fallegu tjaldvagnana frá Camp-let, uppáhalds ferðafélaga Íslendinga um áratuga skeið! ... og fríið verður frábært með Camp-let Kletthálsi 13 // s. 587 6644 // www.gisli.isUmboðsmaður á Akureyri: Bílasalinn.is // Hjalteyrargötu 2 Savanne er nýr og spennandi kostur frá Camp-let Áfast fortjald Gott rými Pottþéttur tjalddúkur Áföst eldhúseiningLéttur en nýðsterkur Hár tjaldvagn á 13" dekkjum HÁTT heimsmarkaðsverð á olíu hefur stóraukið tekjur rússneska þjóðarbúsins og gert því kleift að greiða niður erlendar skuldir mun hraðar en sérfræðingar gerðu ráð fyrir. Þannig munu Rússar endan- lega gera upp um 1.600 milljarða króna skuld sína við Parísarklúbb- inn svokallaða, hóp lánveitenda frá 19 af ríkustu þjóðum heims, fyrir 21. ágúst nk., eða langt á undan áætlun. „Skuldin verður endurgreidd fyr- ir ágúst,“ sagði Alexei Kúdrín, fjár- málaráðherra Rússlands, í rúss- neska þinginu á miðvikudag þegar skýrt var greiðslunni. „Fyrir sum- arlok verður Rússland ekki lengur viðskiptavinur Parísarklúbbsins. Níutíu og fimm prósent skulda Sov- étríkjanna munu heyra sögunni til.“ Ráðherrann bætti því svo við að til að bæta lánveitendum upp hversu snemma greiðslan bærist myndu Rússar greiða um 77 milljarða króna þóknun til klúbbsins. Renna um 52,5 milljarðar af þessari upp- hæð til Þjóðverja, en afgangurinn til Breta, Frakka og Hollendinga. Að sögn Kúdríns mun greiðslan engu að síður spara Rússum um 578 milljarða króna í vaxtagreiðslur, nú þegar smjör drýpur af hverju strái í rússneska þjóðarbúskapnum vegna hás heimsmarkaðsverðs á olíu. Þjóðverjar voru því upphaflega andvígir að lán Rússa yrði greitt niður svo fljótt, en þeir höfðu reikn- að með vaxtatekjum af sínum hluta lánsins fram til fjárlagaársins 2015. Segir greiðsluna mikilvæga Mikið hefur verið fjallað um skuldalok Rússa við Parísarklúbb- inn í fjölmiðlum en segja má að greiðslan hreinsi upp skuldahala Sovétríkjanna sálugu. Það er m.a. af þessum sökum sem að greiðslan er almennt álitin mikilvægt pólitískt og efnahagslegt skref fyrir Rússa. Dagblaðið Financial Times er meðal þeirra miðla sem eru á þess- ari skoðun en þar segir að sam- komulagið um greiðsluna „sé mik- ilvægt pólitískt skref fyrir Rússa í aðdraganda fundar átta helstu iðn- ríkja heims (G8) í næsta mánuði, sem undirstriki hvernig hátt orku- verð hafi umbreytt fjárhag landsins á síðustu árum“. Þá hefur blaðið það eftir sérfræðingum að niðurgreiðsl- an kunni að leiða til þess að láns- hæfiseinkun rússneska þjóðarbúsins verði endurskoðuð til hækkunar. Fréttavefur breska ríkisútvarps- ins, BBC, fjallaði einnig um greiðslu Rússa í vikunni en þar sagði að þeir hefðu lagt til hliðar um 5.400 millj- arða króna af tekjum sínum af olíu- sölu til stuðnings ríkissjóði. Þar seg- ir einnig að greiðslan muni lækka uppsafnaðar skuldir Rússa frá Sov- étríkjunum um yfir 90 prósent niður í um 225 milljarða króna, sem þeir skuldi ríkjum sem ekki eiga aðild að Parísarklúbbnum. Fyrir vikið segir BBC að allar erlendar skuldir Rússa muni lækka í um 3.756 millj- arða króna, sem sé um fimm pró- sent af vergri þjóðarframleiðslu. Gengust við skuldunum 1993 Rússneskir fjölmiðlar fjalla eins og gefur að skilja mikið um greiðsl- una til klúbbsins sem þeir telja flestir táknrænt skref og tímanna tákn. Þannig segir Itar-Tass-fréttastof- an að Kúdrín hafi ákveðið að halda eftir 225 milljarða skuld Rússa við einstök ríki sem ekki séu aðilar að Parísarklúbbnum, á borð við Kúveit, í því skyni að styðja við rússneskan útflutningsiðnað. Þá segir einnig á vef Itar-Tass að Rússar muni á næstunni greiða niður skuldaafgang Sovétríkjanna og að stofnaður verði fjárfestingarsjóður fyrir hluta þess fjár sem sparast í vaxtagreiðslur af láni Parísarklúbbsins. Rússneska fréttastofan RIA No- vosti gerir málinu einnig góð skil en á vefsíðu hennar segir að Rússar hafi gengist við erlendum skuldum Sovétríkjanna árið 1993, fjórum ár- um áður en þeir gengu í Parísar- klúbbinn. Kemur þar einnig fram að árið 2005 hafi Rússar greitt til baka 1.127 milljarða króna af láni sínu til klúbbsins, sem hafi þá verið stærsta einstaka endurgreiðslan í sögu hans. Dagblaðið Moscow Times gengur á vefsíðu sinni einna lengst fjölmiðla í umsögn sinni um greiðsluna og segir hana „lykilsigur sem undir- striki að Rússland sé að verða efna- hagsstórveldi í aðdraganda fundar G8-ríkjanna í St. Pétursborg“. Rússar hreinsa upp skuldahala Sovétríkjanna AP Verkamaður stekkur niður af gasleiðslu í eigu orkurisans Gazprom við framkvæmdir nærri bænum Boksitogorsk, um 300 km austur af St. Péturs- borg, á fimmtudag. Gasleiðslan mun liggja í gegnum Eystrasaltslöndin og tengja þýska neytendur við gasframleiðslu Rússa. Framkvæmdir hófust í desember sl. og er áætlað að þeim muni ljúka árið 2010. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Greiða niður lánið hjá Parísarklúbbnum Miami. AP, AFP. | Sjö menn eru nú í haldi bandarísku al- ríkislögreglunnar, FBI, á Miami, en þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að sprengja upp Sears-turninn í Chicago og aðalstöðvar FBI á Miami. Fimm mannanna, sem voru handteknir á fimmtu- dag, eru bandarískir borgar- ar, en hinir tveir með erlent ríkisfang, þar af annar frá Haítí. Eru þeir allir sagðir róttækir múslímar, sem hlynntir séu al-Qaeda- hryðjuverkasamtökunum án þess þó að hafa nein tengsl við þau. Sagt er, að mennirnir hafi verið handteknir eftir að FBI-maður, sem þóttist vera útsendari al-Qaeda, setti sig í samband við þá, en ekki hefur fundist í fórum þeirra neinn búnaður til hermdar- verka, hvorki sprengiefni né annað. Þeir eru þó sagðir hafa skoðað og tekið myndir af hugsanlegum skotmörk- um, til dæmis Sears-turnin- um, þriðja hæsta mannvirki í heimi. Mennirnir bjuggu í Li- berty City, fátæktarhverfi norður af Miami, og stund- uðu ásamt nokkrum öðrum eins kon- ar heræfingar í vöruhúsi, sem þeir höfðu til umráða. Héldu þeir þar til og oft klæddir herbúningi. Haft er eftir manni í þessum hópi, sem ekki er meðal þeirra handteknu, að í vöruhúsinu hafi þeir iðkað trú sína, beðið til Allah, en ekki lagt á ráðin um hryðjuverk. Sagði hann, að þeir ættu sína „hermenn“ í Chicago, en tók fram, að þeir notuðu bara það orð um félagana. Haft er eftir nágrönnum mann- anna, að þeir hafi verið mjög fálátir, aðeins kinkað kolli væru þeir ávarp- aðir, og allir með túrban á höfði þannig að ekki sást í annað en augun. Hefðu þeir hagað sér eins og her- menn og alltaf eins og á verði, einn hér og annar þar. Yfirvöld leggja áherslu á, að engin yfirvofandi hætta hafi stafað af mönnunum, en verið sé að kanna þau gögn, sem komu í leitirnar. Suður-Flórída hefur áður komið við sögu í hryðjuverkamálum, en nokkrir þeirra, sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum 11. septem- ber 2001, bjuggu þar og stunduðu flugnám. Sagðir hafa ætlað að sprengja Sears-turninn AP Sears-turninn í Chicago, þriðja hæsta bygging í heimi. Sagt er, að mennirnir, sem voru handteknir á Miami, hafi haft áhuga á að sprengja hann upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.