Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 24.06.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 2006 49 MENNING Koi fiskadagar í Dýralífi laugardaginn 24. júní Rene Kruter sérfræðingur í Koi fiskum og tjarnagerð verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf Af því tilefni er 25% afsláttur til 30. júní af Koi fiskum og öllu til tjarnagerðar. Dýralíf.is, Stórhöfða 15, 110 Reykjavík S. 567 7477 Sögusvið Footloose er lítillbær úti á landi þar semdans hefur verið bannaðurmeð lögum um árabil. Það hristir því ærlega upp í bæjarlífinu þegar ungur maður að nafni Aron flyst þangað frá stórborginni þar sem dansinn dunar án afláts. Aron sýnir þvermóðsku bæjarbúa lítinn skilning og ákveður að taka málin í sínar hendur og sannfæra bæjar- stjórnina um að aflétta banninu. Hann mætir hins vegar mikilli mót- stöðu frá andlegum yfirvöldum. Áð- ur en sagan er öll eru þó allir í bæn- um farnir að dansa, þar með talinn presturinn. „Sumum finnst þetta svolítið hall- ærisleg hugmynd,“ viðurkennir Að- albjörg Árnadóttir um söguþráðinn en Aðalbjörg fer með eitt af stærri hlutverkum sýningarinnar. „En mér finnst þetta persónulega alveg há- dramatískt. Það er fullt af stöðum í heiminum í dag þar sem hreinlega ekkert má gera. Mér verður alltaf hugsað til staða eins og Teheran þar sem það er virkilega bannað að hlusta á kassettur enn þann dag í dag.“ Þorvaldur Davíð Kristjánsson, sem leikur sjálfan danshaukinn Ar- on, tekur í sama streng. „Þetta er rammpólitískt efni að því leyti að hér er fjallað um baráttu fólks, sem haldið er í andlegri gíslingu, fyrir frelsi.“ Byggt á sönnum atburðum Þó ótrúlegt megi virðast á sagan í Footloose sér raunverulega fyr- irmynd. „Myndin, og þar með söng- leikurinn, er lauslega byggð á at- burðum sem áttu sér stað í litlum sveitabæ í Oklahóma í Bandaríkj- unum. Þar var dans bannaður í ein 90 ár en að lokum gerðu krakkarnir á svæðinu uppreisn. Ef ég man rétt er ekki lengra síðan en 1978,“ út- skýrir Aðalbjörg. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, sem fer með tónlistar- stjórn í sýningunni, bendir á að Ís- lendingar þurfi ekki að leita út fyrir eigin sögu eftir dæmum. „Íslend- ingar tóku upp á því margt fyrir löngu að banna söng og dans þar sem það þótti ekki guði þóknanlegt að skemmta sér með þeim hætti. Ég veit reyndar ekki til þess að það hafi verið gerð nein sérstök uppreisn gegn banninu hérlendis. En söng- leikurinn fjallar sem sagt um tján- ingarfrelsi og reyndar líka hið margfræga kynslóðabil.“ Stútfull sýning af stuði Þremenningarnir vilja þó ekki gera of mikið úr einhverri dýpri merkingu sýningarinnar enda segja þeir að hún einkennist fyrst og fremst af frábærum lögum og mögnuðum dansatriðum. „Það verð- ur nóg af stemmningu og stuði eins og gengur og gerist með söngleiki,“ segir Þorvaldur Davíð. „Aðalsmerki sýningarinnar er svo að sjálfsögðu að hún er stútfull af afburða lögum frá 9. áratugnum sem fólk ætti svo sannarlega að geta dillað bossanum við. Svo vorum við svo heppin að fá einn fremsta danshöfund Svía til að vinna með okkur. Hann heitir Roine Söderlundh og er margverðlaun- aður í Svíþjóð, hefur fengið þarlend- ar Grímur nokkrum sinnum. Dans- arnir eru mjög flottir enda erum við með toppdansara úr ýmsum áttum í öllum stöðum.“ Aðspurð segja Aðalbjörg og Þor- valdur Davíð að þeim gangi vel að takast á við dansinn. „Þetta er mikil ögrun en ótrúlega skemmtilegt,“ segir Þorvaldur. „Það er engu að síður tvöfaldur snúningur án und- irbúnings niður í splittstökk sem ég hef átt í smá vandræðum með, en ég held að ég sé engu að síður að ná honum,“ bætir Aðalbjörg sposk við. Þorvaldur Bjarni segir að listræn- ir stjórnendur sýningarinnar nýti sér klárlega stemmninguna sem Ást og uppreisn í Borgarleikhúsinu Hafi einhver á lífsleið- inni sett upp grifflur og bleikar legghlífar með hrottalega sítt að aftan er öruggt að sá hinn sami kannast við dans- myndina Footloose frá árinu 1984. Á fimmtu- daginn verður sam- nefndur söngleikur frumsýndur í Borg- arleikhúsinu og er verkið undirlagt af vin- sælum lögum frá 9. áratugnum. Flóki Guð- mundsson tók tali þrjá af þeim listamönnum sem hlut eiga að máli og var lofað fram- úrskarandi stuði. Morgunblaðið/ Jim Smart Ásta Bærings Bjarnadóttir, Selma Björnsdóttir, Aðalbjörg Árnadóttir, Halla Vilhjálmsdóttir og Lovísa Ósk Gunn- arsdóttir í hlutverkum sínum. Fjöldi leikara, dansara, söngvara og hljóðfæraleikara kemur að sýningunni. Halla Vilhjálmsdóttir leikur Evu sem Aron fellur fyrir. Þorvaldarnir tveir, Þorvaldur Davíð og Þorvaldur Bjarni, með Aðalbjörgu á milli sín. Þorvaldur Davíð leikur Aron sem er lítt gefinn fyrir dansbönn. Stemmning níunda áratugarins svífur yfir vötnum í Footloose. floki@mbl.is eftir Dean Pitchford og Walter Bobby í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikendur: Aðalbjörg Árna- dóttir, Guðlaug Elísabet Ólafs- dóttir, Halla Vilhjálmsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Jörundur Ragnarsson og Þorvaldur Dav- íð Kristjánsson, auk fjölda ann- arra leikara, dansara og söngv- ara. Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Danshöfundur: Roine Söderl- undh. Útlitshönnun: Egill Ingibergs- son og Móeiður Helgadóttir. Búningahönnun: Hildur Haf- stein. Hljóð: Gunnar Árnason. Hár: Magni Þorsteinsson. Leikstjórn: Unnur Ösp Stef- ánsdóttir. Footloose fylgir tónlist frá 9. áratugnum. „Það er liðinn hæfilega langur tími til að við getum skoðað þetta tímabil án þess að fá hrollinn niður hrygginn. Nú horfa menn frekar til þessa tíma með vægri nostalgíu. Í dag eru tón- listarmenn til dæmis að leika sér mikið með aðferðir sem þróuðust á 9. áratugnum og sækja óspart í hljóðgervla og gítareffekta frá tíma- bilinu. Við gerum 9. áratugnum góð skil í lykillögum sýningarinnar. Síðan er- um við auðvitað að segja ákveðna sögu og mörg minni lög eru samin sérstaklega til að keyra hana áfram. Í þeim lögum leyfum við okkur að losa okkur aðeins undan 80’s fíl- ingnum.“ Og Aðalbjörg umorðar: „Þar er búið að skafa mesta 80’s pastelið af og rokka lögin aðeins upp.“ Auk laganna sem gerðu allt vit- laust í kjölfar myndarinnar hefur nokkrum lögum frá sama tímabili verið bætt inn í sýninguna. „Við höf- um fengið leyfi til að bæta nokkrum þekktum lögum inn sem okkur þóttu við hæfi,“ segir tónlistarstjór- inn og nafni hans bætir við að vegna þessa megi margir áhorfenda búast við að fá nettan nostalgíuskjálfta. „Það er svo gaman hvað tónlistin höfðar til breiðs hóps. Margir eiga góðar minningar tengdar einmitt þessum lögum en eins höfða þau til ungs fólks í dag. Það er í rauninni margt sammerkt með 9. áratugnum og þeim tímum sem við lifum á núna. Tískan er til dæmis mjög lík, fullt af skærum litum og auka- hlutum.“ Ástarsaga Ástin kemur líka mikið við sögu í Footloose. Uppreisnarseggurinn Aron verður ástfanginn af Evu, sem leikin er af Höllu Vilhjálmsdóttur, en Eva er dóttir eins helsta tals- manns dansbannsins. Meðan Aron og Eva eru aðalparið eru svo Sara og Mikki „bestu vinir aðal“ að sögn Aðalbjargar. „Við Jörundur [Ragn- arsson] leikum krakka sem eru allt- af að klúðra tækifærinu á að enda saman. Þau eru svo góðar og ein- lægar sálir að fyrir vikið verða til- svör þeirra svolítið fyndin. Húm- orinn er sem sagt ekki langt undan.“ Feta í fótspor stórstjarna Í mynd Deans Pitchford fór Ke- vin Bacon með hlutverk Arons og Sara var leikin af Söruh Jessicu Parker. Þorvaldur Davíð og Aðal- björg segjast óhrædd við sam- anburðinn. „Ég hef reynt að horfa sem minnst á myndina og takast á við hlutverkið á eigin forsendum,“ segir Þorvaldur Davíð hvergi bang- inn. „Það er samt aldrei að vita nema maður fái að láni einhverja flotta takta frá Kevin.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.