Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.11.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. NÓVEMBER 2006 17 VESTURLAND                                              !"                                               # $  %&       '          !" #$ % !%  & '   '  $                    (   )  *   !" +,      *   -    '           *       ('   .  /   0 1+23%4 5 4+-678498.:/5 $2+;:2#4 4#484.:2 & '   ()   * ) +,       -./ 0123  2.!04#4#56 .67.11. 21.#82 5 !" .67.11.##.9 !" $         ' !"       %& :  <  <    %& :  < ;=<          %&  ,'    : '         # $ :         *           $          ' !" & '   '  $   # $        (>   ( #          ,'  Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson seth@mbl.is „ÉG er að sjálfsögðu ánægður með árangurinn og þetta hvetur mann áfram í framhaldinu. Það er ekkert á döfinni að draga úr æfingum, líkamsræktin er minn lífsstíll og hjálpar mér að halda mér heilbrigðum,“ segir Jóhann Pétur Hilmarsson frá Akranesi sem á dögunum varð Íslands- meistari í hreysti á Icefitness- mótinu í Laugardalshöll í Reykja- vík. Þetta er sjötta árið sem hinn 35 ára gamli matreiðslumaður tekur þátt í slíkri keppni en að sjálfsögðu er Íslandsmeistaratit- ilinn hápunkturinn á ferlinum. „Ég hef gríðarlega gaman af því að æfa en ég reyni að fara hinn gullna meðalveg í æfing- unum. Ég æfði sund sem barn og unglingur. Grunnurinn var því góður þegar ég byrjaði í hreysti. Það var skorað á mig að byrja þegar ég var að vinna á veit- ingastaðnum Barbró sem for- eldrar mínir áttu. Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að taka á þeirri áskorun en ég ákvað að fara út í sal og segja öllu starfs- fólkinu að ég væri byrjaður að æfa hreysti. Annars hefði ég aldrei gert neitt í málunum og ég gat ekki gengið á bak orða minna.“ Í keppninni í Laugardalshöll var gríðarleg spenna og hafði Jó- hann nauman sigur. Keppt er í þremur greinum, upphífingum og dýfum, hraðabraut og sam- anburði þar sem líkamshlutföll keppenda eru tekin út af dóm- urum. Jóhann stóð uppi sem sig- urvegari þar sem hann náði best- um árangri í samanburðinum en hann var að sjálfsögðu á meðal þeirra efstu í hinum tveimur greinunum. „Ég klikkaði aðeins í köðlunum í hraðabrautinni en að öðru leyti hef ég aldrei verið léttari eða snarpari. Það er ekki hægt að æfa sig neitt sérstaklega í hraða- brautinni. Þar standa allir jafnir að vígi þar sem brautin er aðeins sett upp fyrir keppnirnar.“ Jóhann starfar sem mat- reiðslumaður í Hyrnunni í Borg- arnesi og vinnur hann þar vakta- vinnu. Hann finnur sér ávallt tíma til þess að æfa en leggur áherslu á að mikilvægt sé að taka sér hvíld frá æfingum með reglu- legu millibili. Stuttar æfingar „Ég byrja oft að æfa kl. 6 að morgni og ég reyni að taka snarpar æfingar. Aldrei meira en klukkustund í einu og þá er sturtan tekin með í reikninginn. Ég er á þeirri skoðun að margir eyði of miklum tíma í líkams- ræktarsalnum. Mér finnst árang- ursríkast að taka vel á lóðunum í stuttan tíma í einu. Lyfta eins þungu og ég get og ekki end- urtaka of oft. Ég hef prófað að æfa með öðrum hætti. Lyfta litlum þyngdum og endurtaka oft. Það hefur ekki skilað mér neinu.“ Jóhann er mjög fróður um næringarfræði og orkuþörf íþróttamanna. Hann telur að þar geti margir bætt árangur sinn töluvert og nefnir hann fæðubót- arefni sem eitt af hjálpartækj- unum. „Ég er á því að margir gætu náð miklu betri árangri ef þeir notuðu fæðubótarefni sam- hliða hollri fæðu. Fyrir afreks- íþróttakarla – og -konur er nán- ast ómögulegt að ná að borða allt að 6 góðar máltíðir á dag. Ég nota þessi efni fyrir og eftir æf- ingar. Þar fæ ég nákvæmlega þau næringarefni sem ég þarf á að halda. Margir puða á hlaupa- brettinu í 30–40 mínútur og brenna 350–400 hitaeiningum og fara síðan og fá sér samloku og kók eða Svala. Þessi bræðingur inniheldur meira en 500 hitaein- ingar og mikla fitu. Ég tel að fæðubótarefni séu mun betri kostur eftir og fyrir æfingu fyrir flesta.“ Jóhann hefur viðað að sér fróð- leik í gegnum tíðina og hefur greinilega skapað sér æfingastíl sem hentar honum vel. Hann hef- ur m.a. leitað í smiðju Arnolds Schwarzeneggers í þeim efnum. „Arnold hefur gefið út margar bækur og ég hef lesið þær flest- ar. Ég passa mig á því að hafa æfingarnar fjölbreyttar og ég tek mér alltaf viku frí eftir 8 vikna törn. Það hjálpar mér að halda mér ferskum. Hugarfarið verður allt annað. Ég er alveg tilbúinn í að æfa meira eftir viku frí og ég held að margir gætu tekið upp slíka æfingaáætlun. Hvíldin held- ur mér við efnið.“ Nudd, heitir bakstrar og nálastungur Það vekur athygli að Jóhann stóð efstur á palli á Íslands- mótinu um sl. helgi þrátt fyrir að vera með brjósklos í baki. „Það er í raun aðalhvatinn að æfing- unum. Ég hef verið með brjósklos í mörg ár og um tíma var ég svo kvalinn að ég gat varla keyrt bíl eða farið í bíó. Læknar hafa skoðað mig reglulega og þeirra ráð til mín voru að æfa og halda mér í góðri æfingu. Ég fékk að- stoð til þess að komast yfir erf- iðasta hjallann. Nudd, heitir bakstrar, nálastungur og liðleika- æfingar komu mér af stað og ég finn ekki mikið fyrir brjósklosinu í dag.“ Starfsgrein Jóhanns er vissulega ekki til þess fallin að hann geti alltaf haldið sér frá sæ- tindum og kökum. „Jú, það getur verið erfitt að falla ekki í freist- ingar í vinnunni. Maturinn er ekki vandamál en ég er mikið fyrir kökur og sætindi. Mér tókst hins vegar að hafa hemil á mér í vinnunni fyrir þessa keppni.“ Jóhann var rétt um 75 kg að þyngd í keppninni sjálfri en að öllu jöfnu er hann um 80 kg. „Við reynum að losa okkur við vatn og skera okkur niður fyrir keppnina. Það má hins vegar ekki vera of mikið því það er erfitt að keppa og orkan þarf að vera til staðar. Þessi keppni er sérstök að því leyti að kepp- endur þurfa að hafa orku í hraðabrautina og geta því ekki einblínt eingöngu á að skera sig niður fyrir keppnina til þess að láta vöðvabygginguna njóta sín. Ég passa saltinntökuna fyrir mótin og legg mikla áherslu á að forðast salt í þeim mat sem ég borða fyrir keppnina.“ Ekki stór og sterkur Jóhann hefur leitað í smiðju vaxtarræktarmanna og viðað að sér ýmsum fróðleik sem hann hefur nýtt sér sjálfur í þeirri íþrótt sem hann stundar. Þegar Jóhann er spurður að því hvort hann stefni ekki að því að fá enn meiri vöðvamassa líkt og gerist hjá vaxtarræktarmönnum er hann fljótur að svara. „Ég stefni ekki að því að fara keppa í vaxt- arrækt og verða stór og sterkur. Það er einfaldlega ekki það sem heillar mig mest. Mér líður vel eins og ég er í dag og að sjálf- sögðu ætla ég að halda áfram að keppa í einhver ár til viðbótar,“ sagði Jóhann Pétur Hilmarsson, Íslandsmeistari í hreysti. „Meistari með brjósklos“ Matreiðslumaðurinn Jóhann Pétur Hilmarsson fagnaði Íslandsmeistara- titlinum í hreysti fyrstur Skagamanna Morgunblaðið/Sigurður Elvar Meistari „Ég hef gríðarlega gaman af því að æfa,“ segir Jóhann Pétur. SANDUR MÖL FYLLINGAREFNI WWW.BJORGUN.IS Sævarhöfða 33, 112 Reykjavík, sími 577 2000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.