Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Sími - 564 0000Sími - 462 3500 - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir Tenacious D in the Pick of Destiny kl. 3.50, 8 og 10 B.i. 12 ára Artúr & Mínimóarnir kl. 4, 6 Eragon kl. 8 og 10.10 B.i. 10 ára The Holiday (Síðasta sýning) kl. 5.40 Artúr & Mínimóarnir kl. 1, 3.10 og 5.20 Eragon kl. 12.30, 3, 5.20, 8 og 10.20 B.i. 10 ára Eragon LÚXUS kl. 12.30, 3, 5.20, 8 og 10.20 Casino Royale kl. 8 og 10.50 B.i. 14 ára Hnotubrjóturinn og Músakóngurinn kl. 1 og 2.40 Mýrin kl. 8 og 10.20 B.i. 12 ára Hátíð í bæ / Deck the halls kl. 1, 3.10 og 8 Borat kl. 10.10 B.i. 12 ára e Frábær fjölskyldu- og gamanmynd sem kemur öllum í gott jólaskapAðeins 500 kr. Hinn ungi og og bráðefnilegi Freddie Highmore úr Charlie and the Chocolate Factory fer á kostum í hlutverki Artúrs. ÍSLENSKT TAL JÓLAMYNDIN 2006 FRÁBÆR ÆVINTÝRAMYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Mynd eftir Luc Besson Þegar myrkrið skellur á...hefst ævintýrið! Stórkostleg ævintýramynd byggð á magnaðri metsölubók JÓLAMYNDIN 2006 M eee SV MBL 2 TILNEFNINGAR TIL GOLDEN GLOBE VERÐL AUNA staðurstund Laugardaginn 30. desember er síðastatækifærið til að skoða nokkrar sýningar sem hafa verið uppi í Hafnarborg í Hafnar- firði í desembermánuði. Í Sverrissal og Apó- teki getur að líta steinleirsmyndir og verk unnin á pappír með akrýl, olíukrít, pastel og bleki eftir listakonuna Rúnu. Starfsferill Rúnu er orðinn langur en allt frá árinu 1950 til dagsins í dag hefur hún tekið þátt í ótal sýningum innanlands sem utan, sinnt mynd- listarkennslu, hönnun, bókaskreytingum og skreytingum á byggingum svo eitthvað sé nefnt. Ljósmyndarinn Spessi sýnir verk í Aðalsal Hafnarborgar sem eru úr bók hans sem kom út fyrir jólin. Rétt eins og bókin nefnist sýningin Locations. Þarna er fyrst og fremst um að ræða myndir af stöðum sem bera ummerki mannfólksins, staði þar sem fólk hefur komið sér fyrir, hvort sem er í bæ, sveit eða uppi á fjöllum. Í Kaffistofu sýna svo Guðný Magnúsdóttir, Jean Antonine Posocco og Yngvi Guðmundsson verk sín. Myndlist Síðustu sýningardagar í Hafnarborg Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Tónlist Café Paris | DJ Lucky spilar Soul, Funk og Reggí á Café Paris kl. 21.30. DOMO Bar | Í dag, 28. des. mun MoR halda tónleika á Domo. MoR skipa Margrét Eir söngur og Róbert Þórhalls á bassa. Fluttar verða fjölþjóða dægurlagaperlur í þeirra útsetningum. Í byrjun næsta árs verður MoR með stuttan túr í USA sem hefst í New York. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og kostar 1500 kr. inn. Hallgrímskirkja | Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Trompeteria-hópurinn, Hörður Áskelsson orgelleikari ásamt trompetleikurunum Ásgeiri. H. Steingríms- syni og Eiríki Erni Pálssyni, koma fram á hátíðartónleikum í Hallgrímskirkju á gaml- ársdag kl. 17. Á efnisskrá eru m.a. bassaarí- ur úr Messíasi og Jólaóratóríunni. Neskirkja | Jólatónleikar Kammersveitar- innar Aþenu. Sónata nr. 1 í G-dúr e. Rossini, Hljómsveitarsvíta í h-moll BWV1067 e. J.S. Bach og Divertimento í F-dúr KV.247 e. Mozart. Hljóðfæraleikarar Aþenu eru flest- ir úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einleikari á flautu er Freyr Sigurjónsson. Tónleikarnir hefjast kl. 17. Samtökin ́78 | Páll Óskar og Monika halda sína árlegu jólatónleika og leika nýleg frumsamin lög og önnur eldri af sívinsæld- arlistanum. Dagskráin hefst kl. 21 í Regn- bogasal Samtakanna ’78, Laugavegi 3. Seltjarnarneskirkja | Jólatónleikar Söng- hópsins Hljómeykis verða fimmtudaginn 28. desember kl. 20 í Seltjarnarneskirkju. Á tónleikunum verða m.a. flutt verk eftir F. Poulanc, S. Rachmaninov, T. Kverno auk hefbundinna jólasálma og jólalaga. Stjórn- andi kórsins er Magnús Ragnarsson. Myndlist Art-Iceland.com | Skólavörðustíg 1a er með smámyndasýningu frá 10. des. 2006 til 14. janúar 2007. Listamennirnar 20 og galleríið gefa 10% af sölu til Barnaheilla. Verkin á sýningunni eru mjög fjölbreytt og áhugaverð. Vikuna fyrir jól er opið frá 11–21. Eftir jól frá 12–18. Allir velkomnir. Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd- listarmaður sýnir teikningar og myndband á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15. Til áramóta. Nánar á www.artotek.is Café Mílanó | Ingvar Þorvaldsson er með málverkasýningu. Sýnd eru 10 ný olíumál- verk. Sýningin stendur til áramóta. Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl. 8.30–16. Gallerí Úlfur | Sigurdís Harpa Arnarsdóttir sýnir út desember. Opið alla virka daga frá kl. 14–18. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starf- ræktar voru sumrin 1988–2004. Fyrirtæki og stofnanir geta fengið leigð verk úr safn- inu til lengri eða skemmri tíma. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skóla- börnum í samstarfi við Borgarbókasafnið. Sjá www.gerduberg.is. Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar sinfónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Verk Guðrúnar vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi hennar. Sýningin stendur til 21. janúar. Sjá www.gerduberg.is. Hafnarborg | Ljósmyndarinn Spessi til 30. desember. Verkin eru úr bók sem mun bera titilinn „Locations“ sem kom út nú fyrir jól- in. Sýningin í Hafnarborg hefur fengið sömu yfirskrift. Þarna er fyrst og fremst um að ræða myndir af stöðum sem bera ummerki mannfólksins. Hafnarborg | Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýnir í Sverrissal og Apóteki. Á sýningunni verða steinleirsmyndir og verk unnin á pappír með akrýl, olíukrít, pastel og bleki. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Kaffi Sólon | Elena Fitts sýnir málverk á Sólon. Verkin eru unnin með olíu á striga. Elena fæddist 1984 í Úkraínu, byrjaði að teikna mjög ung. Hún flutti til Íslands 1999 og ári síðar hóf hún að nota olíuliti. Til 5. janúar. Kling og Bang gallerí | Sirra Sigrún Sig- urðardóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Daníel Björnsson sýna í Kling & Bang gallerí, Laugavegi 23. Sýningin heitir Ljósaskipti – Jólasýning Kling og Bang og stendur til 28.janúar 2007. Listasafn Einars Jónssonar | Lokað í des- ember og janúar. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í upphafi 20.aldar. Sýningin kemur frá Musée des beaux-arts í Bordeaux í Frakk- landi, 52 verk eftir 13 listamenn. Sýning á verkum Jóns Stefánssonar í sal 2. Opið 11– 17 alla daga, lokað mánudaga. Ókeypis að- gangur. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn- ingunni. Sýningarstjórarnir eru í fremstu röð innan hins alþjóðlega myndlistarvett- vangs. Sýningin hefur farið víða um heim, m.a. til New York og Lundúna. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Lokað í desember og janúar. Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar. Sýningin stendur til áramóta og er opin á verslunar- tíma. Þjóðminjasafn Íslands | Á Veggnum í Þjóð- minjasafninu stendur yfir jólasýning með myndum tvíburabræðranna Ingimundar og Kristjáns Magnússona. Myndirnar fanga anda jólanna á sjöunda áratugnum. Margt í þeim ætti að koma börnum í jólaskap og fullorðna fólkið þekkir þar vafalaust hina sönnu jólastemningu bernsku sinnar. Þjóðminjasafn Íslands | Í Myndasal Þjóð- minjasafnsins eru til sýnis þjóðlífsmyndir úr safni hins þjóðþekkta Guðna Þórðar- sonar í Sunnu, blaðamanns, ljósmyndara og ferðamálafrömuðar. Myndirnar tók hann við störf og ferðalög á tímabilinu 1946–60. Þær eru eins og tímasneið frá miklu umbrotaskeiði í sögu þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal Þjóð- minjasafnsins stendur yfir sýning á út- saumuðum handaverkum listfengra kvenna frá fyrri öldum. Sýningin byggist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson textíl- og búningafræðings. Myndefni útsaumsins er fjölbreytt, m.a. sótt í Biblíuna og kynja- dýraveröld fortíðarinnar. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Nú stend- ur yfir á Bókatorg í Grófarhúsi, Tryggva- götu 15, 1. hæð, sýningin „... hér er hlið him- insins“ sem Borgarskjalasafn Reykjavíkur vann í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hall- grímskirkju. Sýningin er opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Til 7. jan. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is Sími 586 8066. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóð- deildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasög- um til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar á heimasíðu: www.landsbokasafn.is Sú þrá að þekkja og nema ... Sýning til heiðurs Jónas Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöf- undur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir bera vott um. Sýningin spannar æviferil Jónasar. www.landsbokasafn.is Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Sýn- ingin stendur yfir til 31. desember. Sjá heimasíðu safnsins www.landsbokasafn.is Þjóðmenningarhúsið | Að vanda eru fjöl- breyttar sýningar í sölum Þjóðmenning- arhússins. Þær eru: Íslensk tískuhönnun, með fatalínum frá níu merkjum eða hönn- uðum í samhengi við íslenska náttúru. Berlin Excursion, bókagerðarlist frá forlagi rithöfunda og myndlistarmanna frá Berlín. Fyrirheitna landið og Handritin að auki. Þjóðminjasafn Íslands | Skoðunarferð um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins er ævin- týralegt ferðalag gegnum 1200 ár sem hefst í skipi landnámsmanna og lýkur í flughöfn nútímans. Fjölbreyttar sýningar, fræðsla og leikir fyrir alla fjölskylduna. Skemmtileg safnbúð og notalegt kaffihús. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11–17. Fréttir og tilkynningar Happdrætti bókatíðinda | Númer dregin út í Happdrætti bókatíðinda 2006: 1. des. 90691; 2. des. 88144; 3. des. 95685; 4. des. 106130; 5. des. 22269; 6. des. 11721; 7. des. 56451; 8. des. 47200; 9. des. 14990; 10. des. 27358; 11. des. 527; 12. des. 61088; 13. des. 66802; 14. des.10799; 15. des. 25279; 16. des.68; 17. des. 72121; 18. des. 30281; 19. des. 74492; 20. des. 794; 21. des. 1573; 22. des. 1925; 23. des. 109542; 24. des. 46978. Börn Þjóðminjasafn Íslands | Á Torginu í Þjóð- minjasafninu stendur yfir sýningin Sér- kenni sveinanna. Á sýningunni er lítið jóla- hús og sitthvað sem tengist jólasvein- unum, svo sem kjöt fyrir Ketkrók og bjúgu fyrir Bjúgnakræki. Sýningin getur hjálpað börnunum til að skilja hin skrýtnu nöfn jólasveinanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.