Morgunblaðið - 18.02.2007, Síða 80

Morgunblaðið - 18.02.2007, Síða 80
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 49. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Suðaustan 10– 15 m/s og rigning með köflum sunn- an- og vest- anlands, annars hæg- ari og skýjað. » 8 Heitast Kaldast 7°C 0°C Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is NÝ stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti á fundi sínum í gær að skipa þriggja manna starfshóp til að koma með tillögur um jafnréttisstefnu KSÍ. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, lektor í mann- auðsstjórnun við Háskóla Íslands og for- maður Jafnréttissjóðs, er formaður starfs- hópsins en með honum í starfshópnum eru Guðrún Inga Sívertsen, nýr gjaldkeri KSÍ, og Ingibjörg Hinriksdóttir, sem er í lands- liðsnefnd kvenna. Geir Þorsteinsson, sem kjörinn var nýr formaður KSÍ fyrir viku, segir að mikil umræða hafi verið um jafnréttismál innan knattspyrnuhreyfingarinnar og í nýjum lögum, sem hafi verið samþykkt á árs- þingi KSÍ í liðinni viku, komi meðal ann- ars fram að KSÍ skuli gæta jafnræðis og jafnréttis. „Þetta er eitthvað sem við sem frjáls félagsskapur viljum standa fyrir,“ segir Geir. Hann bendir jafnframt á að í aðdraganda formannskosninganna hafi komið fram ásakanir um að jafnræðis og jafnréttis væri ekki gætt innan hreyfing- arinnar en þó að stjórnin teldi að þessar ásakanir ættu ekki við rök að styðjast, hefði hún talið rétt að setja sér jafnrétt- isáætlun, því knattspyrnuhreyfingin væri landssamtök opin öllum. | 4 Morgunblaðið/RAX KSÍ er landssamtök opin öllum Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is STÓRFELLT eignatjón varð en enginn slasaðist í tveimur umferð- aróhöppum í Reykjavík í gærmorg- un sem urðu meðal annars vegna ofsaaksturs ökumanna. Bætast þessi tilvik við eftirför sem lögregl- an á höfuðborgarsvæðinu þurfti að veita ökumanni í ofsaakstri seint á föstudagskvöld. Lögreglan sat fyrir ökumanni bif- reiðar sem var að koma frá Selfossi rétt ofan við bæinn laust fyrir klukkan fimm í fyrrinótt. Hann sinnti ekki stöðvunarskyldu lög- reglu og ók á ofsahraða eftir Breið- holtsbraut um Víðidal. Þegar öku- maður hægði ferðina við hringtorg á Stekkjarbakka tókst lögreglumönn- um að stöðva för hans með því að aka utan í bifreið hans og snúa henni. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun, eins og ökumaður bílsins sem stöðvaður var eftir mikla eft- irför seint í fyrrakvöld. Á níunda tímanum í gærmorgun lenti svo bíll sem ekið var austur Hringbraut á girðingu á umferðar- eyju til móts við Rauðarárstíg og felldi hana á löngum kafla. Endaði bíllinn á akreininni á móti og varð að loka götunni fyrir umferð um tíma. Talið er að bíllinn hafi verið á ofsa- hraða en hann rakst utan í annan bíl, rétt áður en hann lenti á girðing- unni. Þrír menn voru í bílnum og voru þeir í haldi lögreglu í gær- morgun. Málið var rannsakað með það í huga hvort um hefði verið að ræða akstur undir áhrifum fíkni- efna eða áfengis. Almannahætta Ljóst er að mikil hætta steðjaði að öðrum vegfarendum í öllum þessum tilvikum. Ásgeir Ásgeirsson aðalvarðstjóri sagði að magn alkó- hóls í blóði ökumanna réði ökuleyf- issviptingu og sektum. Erfiðara væri að meta almannahættu sem af háttalagi þeirra stafaði. Sagði hann þó hraða og aksturslag betur skráð en áður með eftirlitsmyndavélum sem komnar væru í lögreglubílana. Tveir ökumenn um tvítugt og einn 25 ára áttu hlut að þessum mál- um. Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu segir þessi tilfelli al- varleg, sérstaklega í ljósi þess að ár- ið hafi farið frekar vel af stað í um- ferðinni. Grunur um ölvunar- og ofsaakstur í 3 tilvikum Lögreglan þurfti að stöðva för bíls með því að aka á hann – ökumaður missti stjórn á bíl sínum á miklum hraða og reif niður girðingu á umferðareyju Morgunblaðið/Árni Sæberg Flæktur í girðingu Bíllinn sem lenti á girðingu á umferðareyju á Miklubraut til móts við Rauðarárstíg og reif hana niður á löngum kafla hafnaði á öfugum vegarhelmingi og varð að loka götunni fyrir umferð. Í HNOTSKURN »Ekki urðu alvarlegmeiðsl á fólki í þremur tilvikum þar sem bílum var ekið á ofsahraða. Ökumenn eru grunaðir um akstur und- ir áhrifum. »Tveir ökumannanna eruum tvítugt og einn um 25 ára aldur. Farþegar voru í tveimur bílanna. ♦♦♦ HÆGT verður að ganga að öllum íslensk- um safnkosti landsbókasafnsins á staf- rænu formi á Netinu þegar fram líða stundir. Þá geta Íslendingar sest við tölv- una sína, flett í gegnum forn skinnhandrit eða gömul dagblöð, gluggað í skáldsögu frá síðustu öld eða lesið tímarit frá síðasta ári. „Notandinn sæti þá heima við tölvuna sína og gæti t.d. nálgast allt efni sem til er hjá Árnastofnun, í Þjóðskjalasafni, á Þjóð- minjasafni, hjá Ríkisútvarpinu eða hér í Þjóðarbókhlöðunni,“ segir Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, verðandi lands- bókavörður. Nú þegar er hægt að nálgast hluta af safnkosti landsbókasafns á Netinu, m.a. Morgunblaðið frá upphafi til ársloka 2000, skinnhandrit af Íslendingasögum og öll Ís- landskort gefin út fyrir 1900. | 19 Skinnhandrit á Netinu LJÓSMYNDARAR Morgunblaðs- ins sópuðu að sér verðlaunum í árlegri keppni Blaðaljósmynd- arafélags Íslands. Árni Torfason, sjálfstætt starfandi ljósmyndari sem einnig vinnur fyrir Morg- unblaðið, átti mynd ársins í keppninni. Mynd Árna er af Sif Pálsdóttur sem varð fyrst íslenskra kvenna Norðurlandameistari í fjölþraut fimleika á Norðurlandamótinu sem fram fór í Versölum í apríl á síðasta ári. Hún vann til fjöl- margra annarra verðlauna en hætti síðar á árinu keppni í áhaldafimleikum. Fram kemur í rökstuðningi dómnefndar að hún hafi fallið fyrir fegurð mynd- arinnar.| 4Morgunblaðið/Árni Torfason Féllu fyrir fegurð myndar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.