Morgunblaðið - 16.04.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.04.2007, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 16. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ knattspyrna West Ham fór illa að ráði sínu í afar þýðingarmiklum leik gegn Sheffield United en Íslendingaliðið steinlá, 3:0, í viðureign liðanna á Bramall Lane. ,,Við höfum tapað öllum þýðingar- mestu leikjunum frá því ég kom eins og á móti Charlton, Watford og nú Shef- field United og þá töpuðum við stigum gegn Fulham. Það er slæmt að tapa fyrir liðunum sem eru í kringum okkur og gerir okkur erfiðara fyrir. Það er mikið eftir ennþá og við verðum að berjast til þrautar,“ sagði Alan Curbis- hley, stjóri West Ham eftir leikinn en West Ham fær Englandsmeistara Chelsea í heimsókn á Upton Park á morgun.  Brynjar Björn Gunnarsson og Ív- ar Ingimarsson léku allan tímann fyrir Reading sem hafði betur á móti Ful- ham, 1:0. Heiðar Helguson var í byrj- unarliði Fulham en var skipt útaf á 70. mínútu. Hann hafði þá nælt sér í gult spjald. Þetta var áttundi leikur Ful- ham í röð án sigurs og fyrsti leikur liðs- ins undir stjórn Lawrie Sanchez sem tók við liðinu af Chris Coleman. Steph- en Hunt skoraði sigurmark Reading á 15. mínútu en heimamenn máttu telj- ast heppnir með að fara með sigur af hólmi og vinna sinn fyrsta leik í síðustu átta tilraunum. ,,Í sannleika sagt þá fannst mér við spila vel fram að markinu en eftir það var þetta afslöppun hjá mínum mönn- um,“ sagði Steve Coppell, stjóri Read- ing. ,,Ég held að allir sem voru á vell- inum viti að við verðskulduðum stig. Við fengum á okkur ódýrt mark og það kemur ekki til greina að það gerist aft- ur meðan ég stýri liðinu. Mínir menn gáfu allt í leikinn og meira bið ég ekki um. Það var dæmt af okkur mark og við áttum stangarskot svo heppnin var ekki með okkur,“ sagði Lawrie Sanc- hez, knattspyrnustjóri Fulham.  Eftir þrjá tapleiki í röð tókst Ars- enal að landa sigri gegn Bolton, 2:1, á Emirates. Nicolas Anelka kom Bolton yfir en Thomas Rosicky og Cesc Fabregas tryggðu Arsenal sigur. Lengi hafði verið beðið eftir marki frá Fabregas sem fyrir leikinn hafði ekki skorað í 11 mánuði. ,,Enn einu sinni þurftum við að koma til baka eftir að hafa lent undir og ég verð að hrósa liðinu fyrir góða frammi- stöðu. Við spiluðum flottan fótbolta, sköpuðum okkur mörg færi en ég er helst svekktur með að nýta ekki fleiri þeirra. Við erum ekki alveg öruggir með fjórða sætið en stigum stórt skref í þátt átt með þessum sigri,“ sagði Ar- sene Wenger, stjóri Arsenal. ,,Úrslitin voru mikil vonbrigði í ljósi þess hve vel við byrjuðum. Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem við töpum eftir að hafa náð forystu,“ sagði Sam Allardyce, stjóri Bolton.  Manchester City og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í leik sem þótti afar bragðdaufur svo ekki sé meira sagt. Bandaríkjamaðurinn DaMarcus Beasley komst næst því að skora í leiknum en þrumuskot hans skall í þverslá Liverpool-marksins. ,,Við vissum að þetta yrði erfiður leikur þar sem menn eru komnir með hugann við undanúrslitin í Meistara- deildinni. Í fótbolta þarf að nýta færin til að sigra og við fengum þrjú færi í fyrri hálfleik en því miður nýttum við þau ekki og í seinni hálfleik gerðist lít- ið,“ sagði Rafael Benitez, stjóri Liver- pool.  Wigan og Tottenham skildu jöfn, 3:3, í fjörugum leik á JJB Stadium í gær og þar með er Wigan enn í bull- andi fallhættu. Wigan komst þrívegis yfir í leiknum með mörkum frá Emile Heskey, eftir 55 sekúndur, Leighton Baines og Kevin Kilbane, en Dimitar Berbatov og tvö mörk frá Robbie Keane tryggðu Lundúnarliðinu annað stigið. Það er hægt að bóka mörk þeg- ar Tottenham spilar en liðið hefur skorað 44 mörk í deildinni en fengið á sig 45.  Þær voru dramatískar lokamínút- urnar í leik Everton og Charlton í gær þar sem Everton hafði betur. Darren Bent jafnaði fyrir Charlton þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leik- tíma en Skotinn James McFadden tryggði heimamönnum sigurinn í upp- bótartíma. Með sigrinum komst Ever- ton upp að hlið Bolton í fimmta sætið en Charlton er aftur komið í fallsæti, er í þriðja neðsta sæti, tveimur stigum frá öruggu sæti. West Ham stendur illa ÍSLENDINGALIÐIN West Ham og Charlton, sem hafa verið á góðu skriði undanfarnar vikur, máttu bæði þola tap í ensku úrvalsdeild- inni um helgina og sitja í fallsætum. West Ham stendur verr að vígi en liðið er 5 stigum frá öruggu sæti og á eftir að mæta Chelsea og Man- chester United en West Ham tekur á móti meisturunum á miðvikudag- inn. Charlton fór aftur í fallsæti, hafði sætaskipti við Sheffield Unit- ed, en allt stefnir í æsispennandi fallbaráttu þar sem Wigan og Ful- ham eru komin í harða baráttu um að forðast fallið. Reuters Niðurlútur Eggert Magnússon leynir ekki vonbrigðum sínum eftir tapið sinna manna gegn Sheffield United. Íslendingaliðin West Ham og Charlton töpuðu bæði og eru í fallsætum - fyrsta mark- ið hjá Fabregas í 11 mánuði tryggði Arsenal sigur á Bolton Portsmouthvann sinn 10. sigur á Fratton Park þegar liðið lagði Newcastle, 2:1. Benjani og Matthew Taylor komu heima- mönnum í 2:0 en Emre minnkaði muninn úr vítaspyrnu fyrir New- castle. ,,Félagið er greinilega á réttri leið. Við höfum unnið tíu leiki á Fratton Park og spilað góðan fót- bolta í mörgum leikjum á tíma- bilinu,“ sagði Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, en hans menn halda í vonina um að ná UEFA-sæti.    Aston Villa gulltryggði veru sína íúrvalsdeildinni með góðum úti- sigri á Middlesbrough, 3:1. Thomas Sörensen markvörður Villa færði heimamönnum forystu á silfurfati þegar hann missti boltann klaufa- lega inn eftir skot frá Fabio Rochen- bach en Craig Gardner, Luke Moore og Stilian Petrov tryggðu gestunum stigin þrjú sem í boði voru.    Gary Nevillefyrirliði Manchester United verður ekki með sínum mönnum gegn Sheffield United eins og vonast hafði verið til. Neville, sem meiddist á ökkla í leik gegn Bolton í síðasta mánuði, þarf lengri tíma til að jafna sig að sögn Sir Alex Fergu- sons. ,,Hann verður hugsanlega með gegn Middlesbrough um næstu helgi og hann verður örugglega tilbúinn fyrir leikinn gegn AC Milan í næstu viku,“ sagði Ferguson.    Hvorki Jóhannes Karl Guð-jónsson né Gylfi Einarsson voru í leikmannahópum Burnley og Leeds þegar liðin áttust við á Elland Road, heimavelli Leeds. Matt Heath tryggði Leeds sigurinn, 1:0, en þrátt fyrir það er Leeds enn í fallsæti, er með 45 stig líkt og Hull sem er í fjórða neðsta sætinu.    Bjarni Þór Viðarsson var valinn í17 manna leikmannahóp Ever- ton fyrir leik liðsins gegn Charlton í gær en var ekki valinn í hóp vara- manna liðsins. Hermann Hreið- arsson var fjarri góðu gamni hjá Charlton vegna hnémeiðsla og þá hefur Rúrik Gíslason átt við meiðsli að stríða.    Strákarnir hans Roy Keane í Sun-derland héldu sigurgöngu sinni áfram og stefna hraðbyri í úrvals- deildina. Sunderland, sem ekki hef- ur tapað leik á árinu, lagði QPR, 2:1, og náði fjögurra stiga forskoti í efsta sæti þar eð Derby tapaði fyrir Ips- wich.    Brad Friedelmarkvörður Blackburn hefur framlengt samn- ing sinn við félag- ið til 2009. Frie- del kom til Blackburn frá Liverpool fyrir sjö árum og hefur verið einn besti markörðurinn í ensku úrvalsdeildinni.    Eiður Smári Guðjohnsen komekkert við sögu hjá Barcelona í gær þegar liðið sigraði Mallorca, 1:0, í spænsku úrvalsdeildinni. Fernando Navarro varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á lokamínútunni en Victor Valdez varði vítaspyrnu í fyrri hálfleik. Fólk sport@mbl.is MANCHESTER United leikur til úrslita í ensku bikarkeppninni í 18. sinn, sem er met. Liðið stefnir að því að vinna sinn 12. bikarmeistaratitil en ekkert lið hefur hampað bikarnum oftar en United. Eins og vænta mátti tókst United að leggja Wat- ford, 4:1, en liðin áttust við á Villa Park. Baráttuglaðir liðsmenn Watford náðu að skjóta Manchester United skelk í bingu þegar þeim tókst að jafna metin, 1:1, í fyrri hálfleik og valda nokkrum sinnum usla í vörn United en ,,rauðu djöflarnir“ sýndu mátt sinn og megin og unnu einvígi Davíðs gegn Golíats að lokum á sannfærandi hátt. Wayne Rooney átti stórleik, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Cristiano Ro- naldo og hinn seinheppni Kieran Rich- ardson átti góða innkomu og skoraði fjórða markið. Hameur Bouazza skoraði mark Watford sem var það fallegasta í leiknum. ,,Ég er afar stoltur af mínu liði. Það lék virkilega vel og þetta jafnaðist alveg á við sigurinn á Roma í meistaradeildinni,“ sagði Sir Alex Ferguson eftir sigur sinna manna. ,,Wayne Rooney átti sinn besta leik á tíma- bilinu. Hann var hreint frábær og Ronaldo er magnaður. Hann er kantmaður en er þegar búinn að skora 21 mark og þau eiga eftir að verða fleiri áður en yfir lýkur.“ Man. Utd í úr- slit í 18. sinn CHELSEA lifir enn í voninni um að verða fjórfaldur meistari í ár. Englandsmeist- ararnir stigu skref í þátt í gær með því að leggja Blackburn, 2:1, í framlengdum leik liðanna í undanúrslitum bikarkeppninnar sem háður var á Old Trafford. Þar með er ljóst að draumaúrslitaleikur bíður handan hornsins en Chelsea og Manchester United mætast í úrslitum á nýjum Wembley- leikvangi hinn 19. maí. Þjóðverjinn Michael Ballack skaut Chelsea í úrslitaleikinn en hann skoraði sigurmarkið í framlengingu. Leikurinn var frábær skemmtun og þurftu meistararnir svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum. Frank Lampard kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik en Jason Roberts jafnaði metin í seinni hálfleik. ,,Þetta verður risaúrslita- leikur tveggja ótrúlegra liða. Bæði lið eiga möguleika á að vinna þá þrjá titla sem eftir eru og þetta verður örugglega frábær leik- ur,“ sagði Mourinho, stjóri Chelsea. Fernan lifir hjá Chelsea

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.