Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 65
er lögð á að sýna tár og hversu fólki
getur liðið illa á sorgarstundu.
Hvergi í heiminum velta menn sér
meira upp úr tilfinningum syrgj-
enda. Hvaða tilgangi þjónar slíkur
fréttaflutningur?
Hér í Virginíu getur maður gengið
út úr byssuverslun samdægurs með
nýja byssu. Hér þarf ekki þrjá daga
eins og í mörgum ríkjum til að hægt
sé að finna út hvort kaupandinn er á
bannlista. Og vegna þess að morð-
inginn í Tækniskóla Virginíu notaði
ákveðnar tegundir af byssum, þá
hlaupa menn upp til handa og fóta
og kaupa sér samskonar byssur. Um
daginn var sýnt fréttaskot frá byssu-
verslun þar sem maður var að kenna
4ra ára syni sínum hvernig hann
ætti að nota byssu og sagði honum
að hann gæti með þessari byssu
drepið allt fyrir framan sig.
Og við hvað skyldu menn vera
svona hræddir? Jú, allir úti í heimi
hata þá vegna þess að Bandaríkja-
menn eiga svo mikið af öllu. Það er
sá áróður sem rekinn er hér. Er
þetta frelsi? Og hvernig bregðast
menn svo við svona gagnrýni eins og
minni? Jú, það ríkir hér líka mál- og
prentfrelsi eða svo á að vera. (Skyldi
þetta verða birt?)
Mér finnst það vel við hæfi einmitt
núna að ein sjónvarpsstöðin skyldi í
gærkvöldi sýna myndina Bowling
for Columbine’ eftir Michael Moore.
Það sýnir að einhver þorir og að það
finnst fólk hér sem finnst nóg komið.
Skrifað í Virginíu föstudaginn 20
apríl 2007.
ELÍN KÁRADÓTTIR,
fv. ritstjóri og eigandi
Gestgjafans.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 65
Ármúla 15 • Sími 515 0500 • Fax 515 0509 • www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Guðmundur
Valtýsson
Páll
Höskuldsson
Sveinn
Skúlason
Erna
Valsdóttir
Höfum fengið til sölu einstakalega fallegt sumarbústaðarland við Vaðnes í Grímsnesi.
Landið sem er við Mosabraut er u.m.þ. 7-8.000 fm. Vaðnes er í 45 mín. akstri frá Reykjavík
og þar er frábær aðstaða fyrir sumarbústaðareigendur.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir sölustjóri Fasteignakaupa,
Páll Höskuldsson, í síma 864 0500.
Sumarhúsalóðir í landi Vaðnes
• 3ja herbergja íbúð í
Grafarvogi eða Grafarholti
með stuttan
afhendingartíma.
• Einbýlishús á svæði 108,
110, 112 eða 113.
• Íbúð í Sóleyjarima fyrir 50
ára og eldri.
• 3ja til 4ra herbergja íbúð
eða hæð í 20 mín.
göngufæri frá
Landspítalanum við
Hringbraut, helst á 1.
hæð.
Óskum eftir
fyrir ákveðna
kaupendur:
Opið hús í dag
í Stuttárbotnum 26 í landi Húsafells
Afar glæsilegt finnskt bjálkahús frá Vulkatti með einstöku útsýni á
besta stað við Stuttárbotna 26 í landi Húsafells. Eignin sem er
120 fm og þar af gestahús. Allt í húsinu er sérstaklega vandað og
mikið í lagt. Stór og mikil verönd u.þ.b. 150 fm. Heitur pottur.
Lóðin er 0,5 hektara leigulóð, skógi vaxin og er bústaðurinn vel
varinn umferð. Einstakt útsýni er úr bústaðnum. Verð 41,5 millj.
Allar nánari upplýsingar um bústaðinn veitir sölustjóri
Fasteignakaupa, Pál Höskuldsson, í síma 864 0500.
Eigendur sýna bústaðinn í dag á milli kl. 16 og 18.
Sjón er sögu ríkari.
Furuhlíð - Hafnarfirði
Fasteignakaup kynnir nýlegt og fallegt 196,7 fm endaraðhús á
tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr. Eldhús er með fallegri
ljósri innréttingu og parketi á gólfi, fjögur svefnherbergi.
Hellulagt bílaplan og aðkoma til fyrirmyndar. Nýlokið er við að
ganga frá garði og sólbaðsaðstöðu við húsið þar sem er skjólgott
og notalegt. Verð 42,5 millj.
www.heimili.is
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
OPIÐ HÚS ENGIHJALLA 11 ÍBÚÐ 0306
MERKT 3C KL. 16.00 TIL 18.00 Í DAG
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Mjög góð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli. Gangur með flísum á
gólfi. Hol með parketi og skáp. Baðherbergi flísalagt með baðkari, upp-
hengdu salerni og innréttingu. Tvö herbergi með parketi á gólfi og skápum.
Eldhús með parketi á gólfi, góðri innréttingu, borðkrók og opið í hol. Stofa
með parketi á gófi og góðum vestur svölum. Á hæðinni er þvottahús ein-
göngu fyrir 6 íbúðir með nýlegri þvottavél og þurrkara. Í sameign í kjallara er
góð sérgeymsla með hillum og hjóla og vagna geymsla. Öll sameing í góðu
lagi, nýleg lyfta og allur stjórnbúnaður vegna hennar.
Brynhildur og Þórður taka vel á móti gestum
á milli kl. 16.00 og 18.00 í dag.
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Bragi Björnsson lögmaður og löggiltur fasteignasali
GARÐASTRÆTI - EINBÝLISHÚS
SÖRLASKJÓL - HÆÐ
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Einbýlishús á eftirsóttum stað við Garðastræti í Reykjavík.
Húsið er 182 fm á þremur hæðum auk riss (ris ekki inní skráðum fm
fjölda). Búið er að endurnýja mikið í húsinu. Sérstaklega mikil lofthæð.
Fjögur svefnherbergi, tvær fallegar stofur og rúmgott eldhús.
Gestasnyrting auk stórt endurnýjað baðherbergi. 2ja herbergja
íbúð í kjallara. Gott hús á afar eftirsóttum stað í Reykjavík.
Verð 62 milljónir.
Falleg og björt 4ra herbergja miðhæð á frábærum stað við Sörlaskjól í
Vesturbænum í Reykjavík. Eignin er alls 104,9 fm. Búið er að endurnýja
nánast allt á mjög smekklegan og vandaðan hátt. Fallegt parket á
gólfum nema flísar á baðherbergi. Rúmgóðar flísalagðar svalir.
Vönduð tæki og innréttingar.
Einstök eign á eftirsóttum stað í Vesturbænum.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn