Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 06.05.2007, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 6. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN SJÁLFSTÆÐISMENN í Reykjavík máluðu fálkann í merki flokksins grænan. Með því og rán- dýrum auglýsingum reyna þeir að telja fólki trú um að þeir séu um- hverfissinnar. Þetta minnir á ráðamenn Sovétríkjanna sál- ugu sem lögðu mik- ið á sig til að villa á sér heimildir. Á síð- asta landsfundi Sjálfstæðisflokksins var mynd af mjög svo grænni ís- lenskri náttúru. Hún var ekki örum skorin en flokkurinn ber þó ábyrgð á mestu náttúruspjöllum sem unnin hafa verið hérlendis. Já, óskamm- feilnin er alger. Sjálfstæðismenn í Reykjavík þykjast vera grænir og bjóða íbú- um borgarinnar að vera grænir af fúsum og frjálsum vilja eins og for- maður umhverfisráðs orðar það. Þeir hvetja borgarbúa til að nota reiðhjól sem samgöngutæki. Ég hef hjólað og gengið í vinnuna í 20 ár. Á veturna er mjög erfitt að hjóla í vinnuna því menn sinna því ekki að ryðja snjó af gangstígum. Ég er nýfluttur í Norðlingaholt og hef beðið einn af oddvitum sjálfstæð- ismanna í Reykjavík að koma þess- um snjóruðningsmálum í lag en án árangurs. Ég hef því neyðst til þess að fara á bíl í vinnuna alltof oft í vetur. Vorsólin bræddi svo snjóinn af stígnum sem liggur héðan úr Norðlingaholtinu og áleiðis niður Elliðaárdal. Það er auðvitað um- hverfisvænt að láta sólina sjá um hálkueyðingu. Ég hef þó ekki séð auglýsingu frá borginni um að stefnan sé að láta sólina sjá um þetta. Þessi sami malbikaði stígur var grafinn í sundur fyrir meira en hálfu ári vegna framkvæmda. Mold var svo mokað ofan í sárið og þann- ig er þetta búið að vera í hálft ár. Nú segja sjálfstæðismenn í stórum auglýsingum að þeir ætli að hugsa jafnvel um hjólreiðastíga og götur borgarinnar. Trúi því hver sem vill. Og þeir ætla að breikka og hita upp hjólastíginn meðfram Ægisíðunni þar sem aldrei kemur vetur. Þetta er tóm sýndarmennska. Það er orkusóun að hita upp hjólastíga, nóg að ryðja og sandbera. Því þarf að sinna, ekki bara niðri í bæ. Þegar ég hef hjólað í vinnuna í vetur hefði ég stundum þurft að nota rykgrímu vegna ryksins sem nagladekk bíla framleiða. Samt er ég á ferð í úthverfi. Sjálfstæð- isflokkurinn ætlar ekki að stemma stigu við þessari tilgangslausu notkun nagladekkja í Reykjavík. Þar á allt að vera af fúsum og frjálsum vilja. Þeir sem sitja í bíl- unum sínum og valda menguninni verða ekki fyrir henni. Það gera þeir sem eru gangandi, hjólandi eða að bíða eftir strætó. Rykmengunin í Reykjavík er alvarleg heilsufarsvá og sjálfstæðismenn gera ekkert bitastætt í málinu. Þeir ætla að umbuna þeim sem nota sparneytna bíla.Það er gott en á sama tíma hafa samflokksmenn þeirra í ríkisstjórninni ákveðið að hafa lægri innflutningsgjöld á eyðslufrekum amerískum pallbílum en á smábílum. Nú á að gefa frítt í strætó. Hvaða strætó? Eitt af fyrstu verkum Græna fálkans í borginni var að fella niður leið 5 sem þjónaði Árbæjarhverfi. Þá var því borið við að reksturinn væri of dýr. Nú má gefa frítt í strætó. Auð- velt að hafa frítt í strætó sem búið er að leggja niður. Börnin mín hafa alla tíð notað strætó til að fara í skóla niðri í bæ. Eftir að við fluttum hingað í Norð- lingaholtið er þetta orðið snúið. Héðan fer enginn vagn eftir Miklu- brautinni niður í miðbæ. Sonur minn, sem er í MH, þarf því að skipta um vagn á leiðinni en skipt- ingarnar bregðast stundum. Marg- ar óskir um bætta þjónustu skila engu og því miður virðist þurfa bíl undir piltinn. Það er undarleg staða hjá manni sem hefur sýnt þá ábyrgð í umhverfismálum í 20 ár að hjóla eða ganga í vinnu. Sjálfstæðismenn í Reykjavík hvetja fólk til vorhreinsunar á lóð- um sínum. Ég hef þurft að hreinsa lóðina mína í allan vetur. Þetta er hundaskítur sem kemur frá lausa- gönguhundum og byggingaúrgang- ur sem fýkur um allt hverfið frá verktökum sem hér eru að byggja og ganga sóðalega um. Allt af fús- um og frjálsum vilja eins og sjálf- stæðismenn vilja hafa það. Við Búðatorg er trjálundur sem ætti að vera einn fallegasti staðurinn í Norðlingaholti en er eins og sorp- haugur af því að Græni fálkinn í Reykjavík sér enga ástæðu til að hreinsa til þarna. Heiðmerkurvegur frá Suður- landsvegi að Elliðavatni er mal- arvegur. Hann er á kafla ætlaður akandi, hjólandi, gangandi og ríð- andi. Rykið er allt að kæfa þarna en ekkert fæst gert til lagfæringa. Því er haldið fram að ekki megi setja bundið slitlag á veginn vegna vatnsverndar. Það er rangt. Í nefndaráliti frá 2002 um vatnsvernd á þessu svæði er talið óhætt að malbika eða steypa veginn en lagst gegn olíumöl. Aðskilja þarf umferð bíla og hesta frá gangandi og hjól- andi og fyrirbyggja þessa ryk- mengun þótt ekki væri með öðru en að bleyta veginn öðru hverju. Liðsmenn Græna fálkans í Reykjavík ættu að hugsa sitt ráð í umhverfismálum. Það er ekki nóg að mála fálkann grænan og eyða stórfé í auglýsingar til að blekkja borgarbúa. Verkin þurfa að tala. Ég vona að hinn ungi borgarfulltrúi sjálfstæðismanna, sem ég hafði samband við varðandi sum þessara mála, sé ekki svo djúpt sokkinn í valdastólana að hann fái sig hvergi hrært. Græni fálkinn í Reykjavík Eftir Björn Guðmundsson Höfundur er efnafræðingur og framhaldsskólakennari og íbúi í Norðlingaholti. OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 15 FJÖLNISVEGUR 18 Berg fasteignasala, Háaleitisbraut 58 Sími 588 5530 • Netfang: berg@berg.is Pétur Pétursson lögg. fasteignasali Um er að ræða 135 fm íbúð á tveimur hæðum auk 22,5 fm bílskúrs við eina virðulegustu og fallegustu götu Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í fjögur svefnherbergi, stofu, baðherbergi og gott eldhús. Eigninni fylgir vel gróinn sérgarður. Sigríður og Halla taka á móti gestum. Dvergahraun 18 - Miðengi - Grímsnesi Sölusýning í dag kl. 15:00 - 16:00 28.900.000 Fallegt og vandað 102 fm 4. herb. heilsárshús á steyptum grunni með gólf- hita. 6.700 fm kjarri vaxin eignarlóð til móts við Kerið. 140 fm verönd í kring- um húsið. Húsið er tilbúið til afhendingar strax. Möguleiki að taka íbúð uppí! Akstursleið: Fyrsta beygja til vinstri eftir að komið er framhjá Kerinu í Grímsnesi merkt Miðengi – Ekið þaðan eftir merkjum Draumahúsa. Upplýsingar gefur Ólafur í síma 824 6703 *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög glæsilegt 201,6 fm raðhús á tveimur hæðum við Eiðismýri á Seltjarnarnesi. Þetta er fallegt raðhús byggt árið 1992, staðsett innst í botnlanga á góðum stað. Stofa, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi á efri hæð, 3 svefn- herbergi, baðherbergi og þvot- tahús á neðri hæð. Þetta er eign sem vert er að skoða. Eiðismýri - Seltjarnarnesi OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 17-18 Einar Páll Kjærnested löggiltur fasteignasali. Sími 586 8080 • Fax 586 8081 www.fastmos.is SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali. OPIÐ HÚS Í DAG EINBÝLI VIÐ ELLIÐAVATN GRUNDARHVARF 15 EINSTÖK EIGN Nýlegt einlyft einbýlishús 106 fm ásamt 38,3 fm bílskúr (hefur verið breytt í hesthús f/6 hesta með sérgerði).Húsið er með kjallara og stendur á 1,930 fm mjög fallegri lóð sem gefur óendan- lega mikla og skemmtilega möguleika á bæði stækkun íbúðarhúss, byggingu sér hesthúss og fl. því lóðin er þannig í laginu með mjög góðu aðgengi og fallegu útsýni. ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐI Í EIGNINA ÓLAFUR B BLÖNDAL HJÁ FASTEIGN.IS SÝNIR EIGNINA Í DAG Á MILLI KL. 14 OG 15 OPIÐ HÚS SOGAVEGI 112 Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is Í dag sunnudag frá kl 15 - 17 sýnum við fjórar lúxus þriggja herbergja íbúðir við Sogaveginn. Einstakt tækifæri. Glæsilegar 93,3 fm og 98,1 fm íbúðir. Glæsilega innréttingar. Tilbúnar til afhendingar strax. Tvö bílastæði fylgja hverri íbúð. tákn um traust Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir á skrifstofu Hóls, Þverholt 14. Upplýsingar gefur Stefán Bjarni í síma 694 4388 smáauglýsingar mbl.is Fréttir í tölvupósti Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.