Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ KOSNINGAR 2007 Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ÉG tel að þetta sé gríðarlega góður árangur hjá Sjálfstæðisflokknum og mjög góður sig- ur,“ sagði Geir H. Haarde, formaður Sjálf- stæðisflokksins, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Flokkurinn bætir við sig þremur þing- mönnum eftir nær óslitna sextán ára forystu í ríkisstjórn og fær mikla traustsyfirlýsingu að ég tel. Við erum með fylgi sem er yfir með- alfylgi síðustu áratuga. Niðurstaðan er sú að við fáum níu glænýja þingmenn í hópinn og verðum með átta konur í þingflokki okkar. Það þýðir að þetta verður stærsti hópur kvenna í þinginu á komandi kjörtímabili.“ Í þingflokki sjálfstæðismanna verða nú 25 þing- menn. Mikilvægt að ríkisstjórnin hélt velli Geir taldi það einnig mjög mikilvæga nið- urstöðu alþingiskosninganna á laugardaginn var að ríkisstjórnin hélt velli. Ríkisstjórnin geti því starfað áfram án sérstakra stjórn- armyndunarviðræðna, ef flokkarnir sem að henni standa vilja það. „Þetta er auðvitað naumur meirihluti, en ég tel að þetta sé starf- hæfur meirihluti,“ sagði Geir. Hann sagði aug- ljóst að það væri tæpt að vera með aðeins eins atkvæðis meirihluta á Alþingi, en þeir Jón Sig- urðsson, formaður Framsóknarflokksins, væru að fara yfir stöðu mála að loknum kosn- ingunum. En var eitthvað sem olli Geir vonbrigðum varðandi kosninganiðurstöðurnar? „Ég hefði gjarnan viljað að stjórnin hefði fengið rýmri meirihluta en þetta og ég tel að hún hafi átt innistæðu fyrir því. Mér finnst ómaklegt hvað Framsóknarflokkurinn fær lít- ið fylgi miðað við hans ágætu störf við stjórn landsins.“ Aðspurður um skýringar á því sagð- ist Geir ekki telja að þar væri ríkisstjórn- arsamstarfinu um að kenna, heldur hugs- anlega innri málum í Framsóknarflokknum. Nýliðar með fjölbreytta reynslu Miklar breytingar verða nú á þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Ýmsir skörungar sem verið hafa áberandi í stjórnmálunum hverfa nú úr þingliði sjálfstæðismanna og af Alþingi. Geir sagði að inn væri að koma stór hópur af mjög efnilegu fólki sem örugglega ætti eftir að geta sér mjög gott orð í stjórnmálunum. Í hópi nýliðanna væri bæði ungt fólk og eins fólk með reynslu af öðrum sviðum í þjóðfélaginu sem ætti eftir að nýtast vel. „Við bjóðum þessa ein- staklinga mjög velkomna í þingflokkinn okk- ar,“ sagði Geir. Samkvæmt fréttum í gær var talsvert um útstrikanir á listum Sjálfstæðisflokksins í Suð- urkjördæmi og eins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Geir var inntur álits á því. „Útstrikanir eru fyrirbæri sem gert er ráð fyrir í kosn- ingalögum okkar. Það hefur alltaf verið eitt- hvað um þær í kosningum á undanförnum ára- tugum,“ sagði Geir. „Það mun vera eitt dæmi um það, reyndar gamalt, að maður hafi misst þingsæti vegna útstrikana. En það liggur nú ekkert staðfest fyrir um það í hve miklum mæli útstrikanir áttu sér stað að þessu sinni. Ég get því ekkert fullyrt um áhrif þeirra. Það er hlutverk landskjörstjórnarinnar að reikna út áhrifin af því.“ Pólitískur grundvöllur framhaldsins Geir og Jón Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins, áttu fund í gær. Geir var spurður út í efni fundarins. „Við erum að fara yfir hvort það er pólitísk- ur grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi. Þetta snýst ekki bara um reikningslegan meirihluta heldur líka hinn pólitíska grund- völl. Það er það sem við erum að tala um. Þá er það auðvitað fyrst og fremst í ljósi þess að Framsóknarflokkurinn hefur misst fylgi og við þurfum líka að fara yfir hvort það er ein- hver áherslumunur sem hefur komið fram í kosningabaráttunni sem þarf að taka afstöðu til í áframhaldandi samstarfi. Ríkisstjórnin situr einfaldlega áfram þar til ákvörðun er tekin um eitthvað annað. Það er í sjálfu sér einfalt.“ En hvenær verður framhaldið ákveðið? „Við höfum ekki viljað setja neina tíma- pressu á okkur í því, það er alveg ástæðu- laust.“ Aðspurður sagði Geir að aðrir stjórnmála- foringjar hefðu ekki gert sér tilboð um sam- starf, málið væri ekki á neinu slíku stigi. „Það gera sér held ég allir grein fyrir því að stjórn- in heldur velli og það er það eðlilega að við för- um yfir það hvort við viljum halda áfram þessu samstarfi sem hefur skilað svo miklum árangri sem raun ber vitni.“ Ástæða til að skoða kosningakerfið Nokkuð hefur verið rætt um kerfið sem nú var kosið eftir í annað sinn, ekki síst hvernig uppbótarþingsætum er úthlutað. Geir var spurður hvort honum þætti ástæða til að end- urskoða kosningakerfið, í ljósi fenginnar reynslu. „Gallinn við þetta kerfi, eins og önnur kosn- ingakerfi sem við höfum reynt hérna á Íslandi, er að það er verið að reyna að fullnægja mörg- um markmiðum samtímis. Út úr því geta kom- ið skringilegir hlutir,“ sagði Geir. „Nú er búið að prófa þetta kerfi í tvennum kosningum með þeim jöfnunarsætum sem gert er ráð fyrir í því. Mér finnst alveg ástæða til þess að fara yfir það hvort við getum náð markmiðum kerf- isins með betri hætti en þessum. Það er áreið- anlega ekki einfalt mál. Kosningafyr- irkomulagið sem var á undan þessu var með svokölluðum „flakkara“ sem enginn vissi í hvaða kjördæmi myndi lenda. Ekki var það nú betra fyrirkomulag. En það er sjálfsagt að skoða þetta í ljósi reynslunnar sem af þessu er fengin.“ Geir kvaðst ekkert geta fullyrt nú um hvort umræða um kosningakerfið yrði tekin upp á næsta kjörtímabili. „Þetta hefur í gegnum árin alltaf byggst á samkomulagi stjórnmálaflokk- anna. Það er því ótímabært að svara til um það.“ Gríðarlega góður árangur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Endurnýjun Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, er að vonum ánægður með sterka kosningu flokksins og segir öflugan hóp bætast nú í þingflokk sjálfstæðismanna. Í HNOTSKURN »Geir H. Haarde forsætisráðherravar kosinn formaður Sjálfstæð- isflokksins í október 2005 og hafði þá verið varaformaður flokksins frá árinu 1999. »Þetta voru fyrstu alþingiskosning-arnar sem Geir stýrði Sjálfstæð- isflokknum. »Geir var skipaður forsætisráðherraog ráðherra Hagstofu Íslands 15. júní 2006. »Áður hafði Geir verið utanrík-isráðherra og þar áður fjár- málaráðherra á síðasta kjörtímabili. »Geir var einnig fjármálaráðherra áárunum 1998–2003. »Geir var fyrst kjörinn til setu á Al-þingi 1987 og hefur setið á þingi síð- an. NIÐURSTÖÐUR alþingiskosning- anna eru mjög mikið áfall fyrir fram- sóknarmenn, að sögn Jóns Sigurðs- sonar, formanns Framsóknar- flokksins. Hann segir að í sjálfu sér hafi framsóknarmenn ekki verið óviðbúnir niðurstöðunum eftir skoð- anakannanir og umræður um langt skeið. „Við komum út úr kosning- unum með svipaða niðurstöðu og í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra, þannig að við höfum stöðvað það undanhald sem áður hafði verið,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið í gær. Engu að síður sé þetta mjög mikið áfall og um leið hvatning um það að byrja að byggja flokkinn aftur upp. Átti fund með Geir í gær Jón og Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráð- herra, hittust í gær og fóru yfir ýmis mál viðkomandi ríkisstjórnarsam- starfi. „Við ákváðum að taka okkur tíma til þess að fara yfir þau mál,“ sagði Jón. „Það er enginn almennur ágreiningur í ríkisstjórninni og við erum einfaldlega að fara yfir alla þessa þræði og þætti með vinsam- legum, málefnalegum hætti. Þá reyn- ir á hvort samstaða verður um að starfa saman áfram.“ Fyrir kosningarnar lét Jón að því liggja að yrði fylgi við Framsókn- arflokkinn í samræmi við slæmt gengi hans í skoðanakönnunum yrði flokkurinn líklega ekki áfram í rík- isstjórn. „Þá var ég að tala um stjórnarmyndunarviðræður,“ sagði Jón. „Stjórnarmyndunarviðræður eru ekki hafnar. Við erum að tala saman sem samstarfsmenn í rík- isstjórn sem hefur meirihluta á þingi. Það er alveg ljóst að miðað við nið- urstöður kosninganna þá munu Framsóknarmenn ekki hafa neitt frumkvæði, að minnsta kosti ekki í fyrstu áföngum, í stjórnarmynd- unarviðræðum.“ En hefur verið rætt við Framsókn- arflokkinn um að koma að annars konar stjórnarmynstri? „Það eru alls konar kviksögur á ferðum sem fara eins og goluþytur um eyrun,“ var svar Jóns. Framsókn refsað Jón sagði framsóknarmenn vera að leita skýringa á kosningaúrslit- unum. En mistókst kosningabar- áttan? „Við finnum ekki að kosninga- baráttan hafi í sjálfu sér mistekist. Við fengum ágætar viðtökur þar sem við fórum um og okkur tókst að halda þær áætlanir sem við höfðum gert. En þetta er eitt af þeim atriðum sem við þurfum að fjalla um á næstunni og meta,“ sagði Jón. Hann sagði vel kunna að vera að niðurstaðan end- urspeglaði að einhverju leyti erf- iðleika sem hefðu verið á liðnum tíma í Framsóknarflokknum. Það væri eitt af því sem eftir væri að fara yfir. Mjög góð samstaða hefði verið í Framsóknarflokknum síðastliðið ár, en margir hefðu haldið því fram að það eimdi eftir af fyrri deilum. En getur verið að áhersla Fram- sóknarflokksins á áframhaldandi uppbyggingu og framkvæmdir hafi valdið því að honum, frekar en sam- starfsflokknum, hafi verið refsað fyr- ir stóriðjustefnuna? „Það er alveg augljóst að okkur hefur verið refsað fyrir þá hluti sem sjálfstæðismenn voru verðlaunaðir fyrir,“ sagði Jón. Hann vildi þó ekki meina að þessi áhersla framsókn- armanna hefði haft neikvæð áhrif. Þvert á móti hefði hún haft mjög góð áhrif og vakið jákvæðan áhuga á kosningabaráttu flokksins. Framsóknarflokkurinn fékk einn þingmann kjörinn í Suðvest- urkjördæmi en engan úr Reykjavík- urkjördæmunum tveimur. Aðrir þingmenn koma úr víðfeðmu kjör- dæmunum utan höfuðborgarsvæð- isins. Jón neitaði því að þetta væri til marks um að Framsóknarflokkurinn væri orðinn landsbyggðarflokkur. „Framsóknarflokkurinn hefur til- tölulega sterkt félagskerfi á höf- uðborgarsvæðinu og hefur lengi haft það. En hann hefur orðið fyrir áfalli í þessum kosningum eins og alþjóð hefur orðið vör við.“ Sjálfur náði Jón ekki kjöri, en hann bauð sig fram í Reykjavík- urkjördæmi norður. Hvaða áhrif hef- ur það á stöðu hans í flokknum? „Ég hef trúnaðarstörfum að gegna á vegum flokksins,“ sagði Jón. „Flokksmennirnir eiga þær trún- aðarstöður og þeir ákveða hverjir fara með þær.“ Aðspurður kvaðst hann ekki eiga sérstaklega von á því að að honum yrði sótt sem formanni. Jón kvaðst sjá ýmsa varnarsigra í niðurstöðum kosninganna. T.d. hefði Framsókn fengið sama fylgi nú og í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra. „Ég er með sama fylgi í Reykjavík norður og framboðið fékk í borg- arstjórnarkosningunum í fyrra, eftir að flokkurinn hafði verið undir nafni R-listans sem hluti í öðru framboði um árabil. Þetta sýnir að við erum komin með fasta fótfestu aftur undir okkar eigin nafni.“ Jón telur mikla þörf á að stokka upp kosningakerfið, en kvaðst telja að það hefði staðist miðað við þær forsendur sem það hvíldi á. En hvernig kosningakerfi myndi hann vilja? „Ég vildi hafa jafnan atkvæðisrétt og fleiri lítil kjördæmi. Það mætti þá annað hvort vera írska kerfið eða þýska kerfið. Í þýska kerfinu eru tvö atkvæði á mann. Þar er annars vegar landslisti og hins vegar persónu- bundin kosning. Í írska kerfinu greiðir kjósandinn persónulega at- kvæði en tilgreinir valkosti.“ Jón kvaðst ekki ætla að eiga frum- kvæði að breytingum á kosningafyr- irkomulaginu. „Þetta er stjórn- arskrármál og við munum taka þátt í umræðum um þessi efni. Þetta verð- ur að leysa sameiginlega.“ Niðurstaðan er mikið áfall Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hvatning Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, segir úrslit al- þingiskosninganna vera hvatningu um að byggja flokkinn aftur upp. Í HNOTSKURN »Jón Sigurðsson, iðnaðar-og viðskiptaráðherra, var kosinn formaður Framsókn- arflokksins í ágúst 2006. »Þetta voru því fyrstu kosn-ingarnar sem Jón stýrði Framsóknarflokknum. »Jón varð iðnaðar- og við-skiptaráðherra 15. júní 2006 og sat utanþings til loka kjörtímabilsins. »Áður hafði Jón starfaðsem einn af þremur banka- stjórum Seðlabanka Íslands frá 1. október 2003.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.