Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ● GLITNIR banki hefur boðað til há- degisverðarfundar í New York á morgun, þriðjudag, þar sem afkoma fyrstu þriggja mánaða þessa árs verður kynnt fyrir bandarískum grein- ingaraðilum og fjárfestum. Þar verð- ur jafnframt greint frá opnun útibús Glitnis í New York næsta haust. Á fundinum, sem fram fer í Scand- inavian House, verða þeir í forsvari Bjarni Ármannsson, fráfarandi for- stjóri Glitnis, og arftaki hans, Lárus Welding. Ekki hefur verið tilkynnt hvenær Bjarni muni formlega ljúka störfum hjá bankanum. Glitnir opnar útibú í New York í haust ● SAMANLAGT markaðsvirði félaga þeirra sem skráð eru á aðallista kauphallarinnar nam í lok aprílmán- aðar ríflega 3.300 milljörðum króna og hefur það aldrei verið hærra. Í lok aprílmánaðar á síðasta ári nam samanlagt markaðsvirði 1.944 milljörðum króna og hefur það því hækkað um 69,8% á 12 mánuðum en þá ber að taka tillit til stórra ný- skráninga á markaði, s.s. Exista og Icelandair. Síðan um áramót hefur samanlagt markaðsvirði hækkað um 20,7%. Samþykki hluthafar í Actavis Group yfirtökutilboð Novators í félag- ið er ljóst að samanlagt markaðs- virði mun lækka. Markaðsvirði í kauphöll eykst OMX Nordic Exchange mun í dag setja á laggirnar sér- stakan markað með afleiður á íslensk hlutabréf og vísitöl- ur. Jafnframt verður settur á stofn lánamarkaður með hlutabréf í Úrvalsvísitölunni. Með afleiðunum er átt við framtíðarsamninga og val- rétti á hlutabréf Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, framtíðarsamninga á Úrvalsvísitöluna, framvirka samn- inga á vísitölu neysluverðs og sérsniðnar afleiður á hluta- bréf skráð í kauphöllinni og Úrvalsvísitöluna. Markaður með íslenskar afleiður verður því hluti af hinum samnorræna markaði (LEC) með afleiður. Til við- bótar við núverandi aðila að OMX afleiðumarkaðnum má gera ráð fyrir að fimm íslenskir aðilar geti átt viðskipti með íslenskar afleiður frá fyrsta degi. Mikilvæg viðbót Þórður Friðjónsson, forstjóri Nordic Exchange á Ís- landi, segir að afleiður séu mikilvæg viðbót við fjárfest- ingarkosti á íslenska markaðnum. Með hliðsjón af mikilli aukningu viðskipta undanfarin ár og auknum áhuga er- lendra fjárfesta sé hún einnig tímabær. Afleiðumarkaður og virkur lánamarkaður muni vafalaust efla skoðana- myndun á markaði og styrkja verðbréfamarkaðinn í heild sinni. Viðskipti með afleiður hefjast í dag starfrækir verkefnastjórn í tengslum við ljósmyndun og kvik- myndatöku í Austurríki, Frakk- landi, Portúgal, S-Ameríku, Banda- ríkjunum og Afríku. Stór hluti viðskiptavina í útrás Samkvæmt tilkynningu frá Pipar býr hollenska stofan yfir mikilli reynslu af alhliða verkefnum en hefur einkum unnið fyrir lyfjageir- ann og hátæknifyrirtæki, auk hönn- unar á umbúðum fyrir framleiðslu- fyrirtæki. Fyrirtækið hefur einnig haft milligöngu um stór prentverk og frágang á margs konar bækl- ingum fyrir Evrópumarkað. Af ís- lenskum viðskiptavinum sem hafa nýtt sér þjónustu fyrirtækisins má nefna Össur, Samskip, Akureyr- arbær og No Name. AUGLÝSINGASTOFAN Pipar hef- ur hafið útrás til meginlands Evr- ópu með sameiningu við Reynders Reclame & Project Management í Hollandi, skammt frá Eindhoven. Fyrirtækin munu starfa undir sam- eiginlegu nafni og verður stjórnað frá Íslandi. Hjá hollensku stofunni hafa starfað upp í 50 manns, allt eftir verkefnastöðu hverju sinni, en stofan hefur verið með und- irverktaka á sínum snærum. Hollenska stofan hefur mikla reynslu af öllum hliðum hönnunar og markaðsmála og rúmlega 30 ára reynslu í að vinna fyrir fyrirtæki m.a. í Hollandi, Belgíu, Þýskalandi, Sviss, Austurríki, Bretlandi, Ítalíu, Aruba – Curaçao og á Íslandi. Auk þess sinnir fyrirtækið náið mörk- uðum í Sviss og á Bretlandi og Valgeir Magnússon, fram- kvæmdastjóri og einn eigenda Pip- ars, segir að þessi sameining sé rökrétt framhald af núverandi starfsemi félagsins. Hún taki mið af því að stór hluti viðskiptavina stof- unnar sé fyrirtæki í útrás og sér- fræðiþekking um erlenda markaði sé þeim því afar mikilvæg. Þar megi m.a. nefna Marel, TM- software, CreditInfo Group, Open- Hand, Mariteh International, Blum- aris, Geotek, Triton, SecurStore, Stracta, Maredis og Útflutningsráð Íslands. Valgeir segir að með fyrirhug- aðri sameiningu og stóraukinni þekkingu verði Pipar mun betur í stakk búinn til að þjónusta þau fyr- irtæki sem eru með starfsemi og þjónustu á meginlandi Evrópu. Sameiningin mun formlega taka gildi á morgun, þriðjudag, og mun stofnandi hollensku stofunnar, Ron Reynders, verða staðsettur á skrif- stofu Pipars hér á landi frá og með þeim tíma. Önnur starfsemi og verkefnastjórn mun áfram verða í Hollandi. Það var Virtus – lög- fræði-, fjármála- og bókhaldsaðstoð – sem sá um sameininguna. Auglýsingastofan Pipar í útrás á evrópskan markað Útrás Stjórn auglýsingastofunnar Pipars skipa f.v. Sigurður Hlöðversson, Halla Guðrún Mixa, Valgeir Magnússon og Hákon Jónsson. Sameinast hollenskri auglýsingastofu með góð sambönd framleiðslu en fyrir sex árum hafi þetta hlutfall verið 13%. Hætt sé við að álverð geti hríðfallið ef fram- leiðslugetan í Kína muni aukast enn frekar og að á sama tími muni draga úr hagvexti í heiminum. VERÐI af samruna álrisanna Alcoa og Alcan gæti hann mætt ýmsum hindrunum. Í frétt blaðsins Wall Street Journal um helgina segir þannig frá því að þeir sem fagni yf- irtökutilboðinu sjái ekki þá ógn sem felist í mikilli samkeppni frá stækkandi mörkuðum eins og Kína. Bent er á að álfyrirtæki í Kína hafi verið að bæta við stöðugt nýjum ál- verum og þetta muni lækka álverð- ið. Þetta geti þýtt að engin þörf sé fyrir stækkunaráform vestrænna álfyrirtækja eins og Alcoa til að mæta stóraukinni eftirspurn í Kína. Eftirspurn á heimsmarkaði gæti tvöfaldast fyrir árið 2020 og orðið um 60 milljónir tonna á ári, þar sem kínverski markaðurinn muni hafa mestu þörfina. Í WSJ segir að Kína hafi tekið til sín 25% allrar ál- Markaðurinn í Kína gæti orðið mögulegum álrisa afar erfiður Reuters Stjórinn Skyldi Alain Belda, forstjóri Alcoa, verða bænheyrður? ÞÝSKI bílaframleiðandinn BMW hefur áhuga á að kaupa fólks- bílaframleiðslu Volvo af Ford. Frá þessu greinir breska bíltímaritið Autocar. Markaðsgreinar efast þó um að fréttin sé á rökum reist. Autocar segist hafa heimildir fyrir því að BMW hafi fengið evr- ópskan fjárfestingarbanka til þess að greina Volvo en Ford mun einn- ig vera á meðal viðskiptavina bank- ans. Vitað er til þess að fyrirtækið hefur hug á að bæta við sig vöru- merkjum með vöxt í huga. Einn af kostunum við að kaupa Volvo frem- ur en önnur vörumerki mun skv. Autocar vera að Volvo leggur mik- ið upp úr öryggis- og umhverf- ismálum en slíkum áherslum hefur verið ábótavant innan BMW. Autocar er afar virt tímarit innan bílgreinarinnar og fer sjaldan með fleipur en sérfræðingar setja þrátt fyrir það spurningarmerki við frétt blaðsins. Morgunblaðið/Golli BMW Orðrómur er um áhuga BMW á sænsku Volvo-verksmiðjunum. BMW með auga- stað á Volvo? Umræður um fiskveiðistjórnunbyggða á einhvers konar kvóta-kerfi standa nú yfir innan Evrópu-sambandsins. Umræðum þessum er ætlað að verða grundvöllur væntanlegra breytinga á hinni sameiginlegu fiskveiði- stefnu, sem nú gildir. Rætt er um ýmsar leiðir, sem byggjast á lögvörðum réttindum eins og nýtingarrétti eða hugsanlega eign. Þá er talað um að úthluta veiðiréttindum til dæmis til sjó- manna, eða útgerða, einkafyrirtækja, sam- vinnufyrirtækja og fiskveiðisamfélaga. Slíkar leiðir, sem reyndar eru að einhverju leyti við lýði við alla fiskveiðistjórnun, skilgreina í raun réttinn til að nýta fiskveiðiauðlindina. Veiði- réttindi eru verðmæti og þau eru seljanleg. Viðskipti með aflaheimildir voru fyrst rædd innan ESB í tengslum við endurskoðun hinnar sameiginlegu fiskveiðistefnu sambandsins, þegar gerð var skýrsla um hugsanlegar breyt- ingar á fiskveiðistjórnun, bæði innan ESB og á alþjóðlegum svæðum í með það í huga að heimila viðskipti með aflaheimildir, hvort sem réttindin væru einstaklingsbundin eða í sam- eign. Staðreyndin er sú að viðskipti með fiskveiði- réttindi eiga sér stað í flestum aðildarlöndum ESB. Innan sumra svæðisstjórnanna er heim- ilt að selja veiðidaga eða hluta aflaheimilda eða leigja. Á öðrum svæðum þurfa þeir sem vilja auka aflaheimildir sínar að kaupa skip, sem hafa fiskveiðiréttindi. Viðskipti með aflaheimildir eða réttindi til sjósóknar eru mjög mismunandi gegnsæ eða opinber. Það fer eftir veiðistjórnun á hverjum stað. Þrátt fyrir að víðast séu ekki í gildi lög um viðskipti með aflaheimildir eða fiskveiði- réttindi, eiga þau sér stað í flestum löndum ESB. Kostnaðurinn við að eignast slík réttindi er í mörgum tilfellum umtalsverður og getur haft veruleg áhrif á þróunina innan sjáv- arútvegsins. Átökin um fiskveiðistjórnun byggða á eignarrétti munu leiða til þess að við- skiptin verði sýnilegri, draga úr lagalegri óvissu og óöryggi og að lokum leiða til arðbær- ari útgerðar og minnka kostnað þjóðfélagsins vegna fiskveiða. Átökin þurfa líka að leiða til þess að hugsanlegir gallar fiskveiðistjórnunar af umræddu tagi verði skoðaðir, svo sem eins og samþjöppun réttinda á hendur fárra stórra fyrirtækja á kostnað minni sjávarbyggða. Evrópusambandið er nú að skapa opinberan umræðugrundvöll þar sem hagsmunaaðilum verður kleift að koma fram með skoðanir sín- ar. Þegar þessum umræðum lýkur, en þær eiga að standa í þrjá mánuði, mun fram- kvæmdastjórnin fara yfir málið og efna til ráð- stefna og fundarhalda til þess að fara enn bet- ur ofan í kjölinn á þessum málum. Þá verður farið yfir alla þætti málsins og metin þörfin á því á hærri stigum hvað beri að gera. Þessar umræður innan ESB eru mjög at- hyglisverðar, enda hefur kvótakerfi í einhverri mynd oft komið þar til tals. Skýringarnar á þessari umræðu eru tilraunir ESB til að koma sér út úr gífurlegu styrkjakerfi og gera sjávar- útveginn arðbæran með því að færa fisk- veiðigetuna að mögulegum afrakstri fiski- stofnanna. Nú íhuga menn að láta útgerðina sjálfa um nauðsynlega hagræðingu með því að þeir, sem betur geri, kaupi hina út. Hvaðan skyldu þeir hafa fengið þá ágætu hugmynd? Meira rætt um kvótakerfi innan ESB BRYGGJUSPJALL Hjörtur Gíslason hjgi@mbl.is » Töluvert er um viðskipti með aflaheimildir og fisk- veiðiréttindi innan ESB ÚR VERINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.