Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.05.2007, Blaðsíða 20
Á ferðalögum og framandi stöðum er margt öðruvísi en heima og því mikilvægt að vera með viðeigandi tryggingar. Óvæntir atburðir gera ekki boð á undan sér og geta kostað ferðalanga mikil fjárútlát. Unnur H. Jóhannsdóttir gerði tilraun til að grisja ferða- tryggingafrumskóginn. ,,Mér líður eins og strút í frumskógi (Við morgunverðarborðið) „Elskan, varstu búin að athuga með ferðatryggingarnar?“ „Ja, ég var aðeins búin að skoða þær en þetta er svolítið flókið mál.“ „Flókið? Það er alveg merkilegt með ykkur karlmenn, þið ráðið nú ekki við einföldustu hluti. Það er al- veg stórmerkilegt hvernig maður eins og þú, sem situr í stjórn fyr- irtækis sem skráð er í Kauphöll Ís- lands, getur ekki fundið út úr ein- földum ferðatryggingum.“ „Ekki æsa þig svona ástin mín, það getur eyðilagt allan daginn að byrja hann á svona formælingum, mundu hvað jóginn sagði.“ „Þú skalt ekki segja mér neitt um það hvernig ég á að byrja daginn, hvernig heldurðu að kona verði í skapinu þegar hún þarf að gera alla hluti á heimilinu. Ég skil ekki hvern- ig mér datt í hug að fara með þér í þessa Amazon-ferð. Það er ekki eins og þú sért Tarsan.“ „En ég get alveg gert þetta elskan mín, ég þarf bara aðeins meiri tíma. Þú verður að læra að treysta mér eins og jóginn sagði. Mér líður bara svolítið eins og strút í frumskógi, þessar ferðatryggingar eru svo margslungnar.“ (Við kvöldverðarborðið) „Haraldur, kjörlendi strúta eru eyðimerkur og þurrar sléttur, vaxn- ar strjálum runnagróðri og trjám. Ég held að þér sé ekki treystandi fyrir þessu, ég sé bara um þetta.“ „Takk Guðrún mín.“ „Guðrún mín, þú ættir ekki að æsa þig svona, kannski ættirðu að tala við jógann.“ „Ég er búin að hringja í hann, Haraldur, SOS-símtal. Hann sagði mér að ég yrði bara að taka ferða- trygginga-kerfinu eins og það er, trúirðu því? Ég sagði honum að þetta væri ekkert kerfi, þetta væri frumskógur.“ „Já en Guðrún mín, þetta var ég búin að segja þér. Mér leið eins og strúti í frumskógi.“ „Jú en þú varst ekki búin að segja mér að það væri SVONA. Þið karl- menn getið aldrei útskýrt hlutina al- mennilega.“ „Svona, svona, snúllan mín. Við strútarnir stingum höfðinu ekkert í sandinn. Við leggjumst bara saman yfir þetta og leysum. Ég Tarzan, þú Jane. Sérðu okkur ekki fyrir þér í Amazon?“ miðann. Og var ekki konan á ferða- skrifstofunni að bjóða þér einhverja forfallatryggingu? Áttarðu þig á þessu? Ha? Við gætum verið búin að tryggja okkur tvisvar eða þrisvar fyrir því sama. Og mamma sem sagði að alltaf ætti að fara vel með peninga. Það er ekki eins og kona geti auðveldlega haft yfirsýn yfir eigin ferðatryggingar. Mér líður eins og apa í eyðimörk. Það er ekki nokkurt tré að hanga í!“ „Haraldur! Veistu hver munurinn er á ferða- og sjúkratryggingu, ferðarofstryggingu og forfallatrygg- ingu? Borgaðirðu ferðina með Visa gullkortinu okkar eða Platinum MasterCard? Þetta skiptir allt máli! Ef svo er gætum við þegar verið tryggð. Ferðatryggingarnar gætu líka allar saman verið inn í F+ tryggingunni okkar. Svo getur verið að við höfum óvart keypt forfalla- tryggingu þegar við bókuðum flug- fjármál fjölskyldunnar 20 MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Algeng tjón á ferðalögum eru á farangri, þegar honum er stolið eða hann týnist í flugi en einn- ig reynir oft á ferðasjúkratryggingu, ferða- slysatryggingu og forfallatryggingu að sögn Rúriks Vatnarssonar, forstöðumanns vöruþró- unar hjá Sjóvá. „Skynsamlegast er fyrir fólk að tryggja sig að lágmarki fyrir slíkum tjónum en fyrir þann sem vill vera þokkalega vel tryggður eru fleiri tryggingar í boði eins og farangurs- tafatrygging, en sá sem hefur hana fær bætur ef farangri seinkar til komustaðar. Einnig hefur komið sér vel fyrir fólk að hafa ferðarofstrygg- ingu ef fólk þarf að stytta dvöl sína vegna skyndilegra veikinda ættingja eða jafnvel frá- falls. Rúrik segir erfitt að bera saman þær ferða- tryggingar sem innifaldar eru í kreditkortunum og t.d. Fjölskylduverndina hjá Sjóvá, einkum vegna þess að verndin sem kreditkortin veita er mjög mismunandi eftir tegund þeirra. ,,Sú vernd sem felst í ferðatryggingum í Gull- kreditkortunum er líkust þeirri sem fæst í Fjöl- skylduverndinni en þó er sú síðarnefnda betri að því leyti að engin eigin áhætta er í henni nema hvað varðar farangur. Í kortatryggingum er hins vegar eigin áhætta t.d. í forfallatrygg- ingu og sjúkrakostnaðartryggingu.“ – En er fólk í mörgum tilfellum að vátryggja sig tvisvar fyrir sama, hugsanlega tjóninu? Gæti það sparað t.d. ferðatryggingu hjá trygg- ingafélagi ef það notar að öllu jöfnu kreditkort? ,,Í sumum tilfellum er svarið já en það verður að skoða hvert tilfelli fyrir sig og mikilvægt að fólk leiti upplýsinga hjá sínu tryggingafélagi. Hjá Sjóvá getur fólk valið hvort það tekur Ferðaverndina inn í Fjölskylduverndina, ein- mitt vegna þess að sumir hafa ekki þörf fyrir hana ef þeir eru með fullnægjandi tryggingar á kreditkortinu sínu, nema það vilji tryggja sig fyrir hærri fjárhæðum eða losna við eigin áhættu þannig að það fái allt tjónið bætt. En það eru jafnframt nokkrir bótaliðir í Fjöl- skyldutryggingunni sem gilda hvar sem er í heiminum óháð því hvort sérstök Ferðavernd er keypt. Það á t.d. við um slysatryggingu og innbúskaskó.“ Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að jafnvel þótt fólk sé tvítryggt þá er tjónið ekki í öllum tilfellum tvíbætt. ,,Það er t.d. mun- ur á farangurstryggingu og slysatryggingu hvað þetta varðar. Farangur fær fólk ekki tví- bættan heldur aðeins einu sinni þótt það hafi keypt tvær farangurstryggingar. Hafi fólk hins vegar keypt tvær slysatryggingar þá á það rétt á bótum úr báðum tryggingum og bótafjárhæð- irnar leggjast saman, t.d. örorkubætur vegna slyss.“ Stundum tvítryggt en ekki tvíbætt  Hvert ertu að fara? Hvað ætlarðu að vera lengi? Hvernig eru að- stæður í landinu sem þú ert að fara til? Ertu að ferðast sjálfstætt eða ferðastu með hópi með reynd- um fararstjóra frá ferðaskrif- stofu? Hvernig er almennt heilsu- farsástand þitt? Allar þessar spurningar skipta máli þegar tek- in er ákvörðun um hversu víð- tæka ferðatryggingu á að kaupa. Hversu mikla áhættu ertu að taka og hversu vel þarftu að tryggja þig?  Greiðirðu ferðina með kred- itkorti? Ef ferð er greidd fyr- irfram að ákveðnum hluta með Visa eða Mastercard kreditkorti fylgir ferðatrygging yfirleitt kaupunum. Skilmálar ólíkra teg- unda kreditkorta eru hins vegar mjög mismunandi og því nauð- synlegt að kynna sér skilmála við- komandi kreditkorts. Það eru ís- lensk tryggingafélög sem sjá um þjónustu tjónþola korthafa. Á heimasíðu Vátryggingafélags Ís- lands, www.vis.is, er góð yfirlits- tafla yfir ferðatryggingar mis- munandi tegunda VISA korta ferðatryggingar. Á vef Trygg- ingamiðstöðvarinnar, www.tmhf.is er önnur góð yf- irlitstafla yfir ferðatryggingar mismunandi tegunda Mastercard korta.  Ertu með fjölskyldutryggingu hjá tryggingafélagi? Kannaðu hvort í henni sé ferðatrygging og hvað hún feli í sér. Hjá tryggingafélög- unum er einnig hægt að kaupa stakar tryggingar eða viðbót- artryggingar ef á þarf að halda.  Þegar flugmiði er bókaður á net- inu hjá íslensku flugfélögunum Icelandair og Iceland Express er hægt að kaupa forfallatryggingu þar. Þessi trygging er einnig oft boðin þegar ferð er bókuð hjá ferðaskrifstofum. Gátlisti ferðatryggj- andans Morgunblaðið/Brynjar Gauti Á vefsíðu Icelandair ráðleggur fyr- irtækið viðskiptavinum sínum að kaupa forfallagjald þegar þeir bóka á netinu. Þegar kemur að þessari spurningu í bókunarkerfinu hefur þegar verið hakað í já-reitinn og verður viðskiptavinurinn sér- staklega að haka í nei-reitinn til þess að kaupa ekki forfallagjaldið. Sú spurning, hvort ekki væri eðlilegra að Icelandair léti viðskiptavininn um að velja strax í upphafi var borin undir Guðjón Arngrímsson upplýs- ingafulltrúa fyrirtækisins. ,,Það var algengt að viðskiptavinir töldu sig hafa forfallatryggingu og það kom þeim á óvart, og kom illa við marga, að hún var ekki til staðar. Það var talið heillavænlegra að bjóða fólki að afþakka hana. Flestir kjósa að kaupa trygginguna og reynt er að stilla vefinn þannig að fyrirhöfn neytenda sé sem minnst.“ Þess ber að geta að sams konar fyrirkomulag er hjá Iceland Ex- press, búið að haka fyrirfram í reit- inn þar sem forfallagjald er boðið til kaups og þarf viðskiptavinurinn að taka hakið úr kassanum. Búið að haka við forfalla- tryggingu hjá flugfélögunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.