Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 71

Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 71 Einleikarar með hljómsveitinni eru: Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðluleikari, Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari, ásamt tenórsöngvaranum Braga Bergþórssyni. Kammerhljómsveitin Ísafold er skipuð einvalaliði ungs íslensks tónlistarfólks sem er við nám og störf víðsvegar um heim en hittist nú á Íslandi og heldur tvenna tónleika í Langholtskirkju Miðvikudaginn 15. ágúst kl. 20:30 Uppselt Fimmtudaginn 16. ágúst kl. 20:30 L O N D O N F R E I B U R GB E R L I N B A S E L P A R I S L Ü B E C K H E L S I N K I A M S T E R D A M N E W Y O R K R E Y K J A V Í K Miðaverð kr. 2.500 en kr. 1.500 ef greitt er með VISA kreditkorti. Miðasala fer fram á midi.is og við innganginn. Menningarsjóður VISA styrkir tónleikana. Ekki missa af þessum einstaka tónlistarviðburði. Inga Dóra stendur fyrir opnun á listasýningunni "Litræn ásetning" á milli kl. 16-18 laugard. 18. ágúst á Radisson SAS 1919 Hótelinu, Pósthússtr. 2. Allir hjartanlega velkomnir RAUÐI þráðurinn í dagskrá Iceland Airwaves-hátíðarinnar er óneit- anlega að stórum hluta útrás og kynning áhugaverðrar og spenn- andi íslenskrar hljómlistar. Þá er út- rásin vitaskuld einnig mikilvæg kynning á hátíðinni. Í ár hefur Airwaves til að mynda staðið fyrir tónleikum á tónlistarhátíðunum go- North og Rock Ness í Skotlandi, By:Larm í Noregi og G! Festival í Færeyjum. Nú er svo framundan eitt metn- aðarfyllsta útrásarverkefni hátíð- arinnar til þessa. Íslensku sveitirnar Seabear, Reykjavík! og Ultra Mega Technobandið Stefán stíga á stokk á sérstöku Iceland Airwaves-kvöldi næsta fimmtudag, hinn 16. ágúst, á C/O POP í Köln í Þýskalandi. Dag- inn eftir leika svo Hairdoctor og FM Belfast á vegum Airwaves á Public Service hátíðinni í Kaupmannahöfn. Ráðstefnan og tónlistarhátíðin C/O POP er allvirt meðal sambæri- legra hátíða í Evrópu. Þá þykir Pu- blic Service-húllumhæið einkar glæsilegt; og sennilega ein flottasta og stærsta tónlistarhátíð Norð- urlanda á sviði rafrænnar tónlistar. Vonast aðstandendur hátíðarinnar til þess að spilirí Íslendinganna verði til þess að breiða út hróður ís- lenskrar músíkur og efli um leið tengsl við blaðamenn og fólk úr tón- listarbransanum ytra. Morgunblaðið/Eggert FM Belfast Sveitin kætir útlönd með tápmikilli spilamennsku. Útrás Iceland Airwaves á fullu BANDARÍSKA indípopphljóm- sveitin The Besties heldur tvenna tónleika hér á landi á næstunni ásamt fimm íslenskum hljómsveitum. Fyrstu tónleikarnir fara fram í dag, sunnudag, kl. 21 á veitingastaðnum Paddy’s í Keflavík og munu hljóm- sveitirnar Vicky Pollard og Hellvar spila, en Hellvar er með Keflavík- urmærina Heiðu í broddi fylkingar en hún var áður í sveitunum Unun og Heiðu og heiðingjunum auk þess að syngja Evróvisjónlag eftir doktor Gunna. Seinni tónleikarnir eru miðviku- daginn 15. ágúst á Organ, nýopn- uðum tónleikastað í miðbæ Reykja- víkur og þar koma einnig Jan Mayen, Foreign Monkeys og Dýrðin fram. The Besties á rætur sínar að rekja til Flórídafylkis en síðastliðin ár hafa meðlimir hennar verið búsettir í New York og gáfu þau út sína fyrstu breið- skífu í fyrra, Singer. Sveitina skipa þau Marisa Bergquist og Kelly Wald- rop sem leika á hljómborð og syngja, Rikky Walsh sem plokkar gítarinn og trommarinn Frank sem sinnir störf- um skurðhjúkrunarfræðings auk trommusláttar. Þetta unga léttpönkaða band nefn- ir Green Day, Archers of Loaf, The Clash, Elvis Costello, R.E.M. og The Replacements sem áhrifavalda sína og hver veit hvort íslenski hesturinn bætist í þann hóp en sögur herma að þau séu ákveðin í að bregða sér á bak í ferðinni. Bestust? Meðlimir The Beasties valhoppa af spilagleði. Besties í Keflavík www.myspace.com/thebesties www.thebesties.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.