Morgunblaðið - 09.11.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 17
RÝRNUN í verslunum snýr ekki
eingöngu að þjófnuðum viðskipta-
vina og starfsmanna, heldur einnig
innbyggðri rýrnun á vörum verslana
af ýmsum ástæðum. Einblínt hefur
verið um of á öryggisbúnað í versl-
unum, huga þarf meira að þjálfun og
fræðslu starfsmanna.
Þetta er meðal þess sem kom fram
á morgunfundi Samtaka verslunar
og þjónustu, SVÞ, í gær um rýrnun í
verslunum og hvað væri til ráða.
Fram kom í upphafsávarpi Sigurðar
Jónssonar, framkvæmdastjóra SVÞ,
að niðurstöður nýrrar rannsóknar
um rýrnun í verslunum hér á landi
væru væntanlegar. Gróflega áætlað
mætti þó reikna með að rýrnun í
smásöluverslun væri á bilinu þrír til
fjórir milljarðar króna, en ótalinn
væri kostnaður af öryggisgæslu. Sig-
urður benti á að þessi mál færu seint
og illa gegnum dómskerfið. Allt of
mörgum málum væri vísað frá.
Þannig kom fram í máli Rúnars
Rafnssonar, rekstrarstjóra Árdegis,
sem rekur m.a. verslanir BT, að fé-
lagið hefði tapað máli á hendur
manni sem stal úr verslunum BT.
Hann hefði neitað að hafa sést á ör-
yggismyndavélum, jafnvel þótt
myndin hefði verið skýrari en ferm-
ingarmynd af honum! Sami maður
hefði ítrekað verið staðinn að verki.
Kjartan Már Kjartansson frá
Samkaupum sagði m.a. að skapa
þyrfti innri menningu gegn hnupli og
þjálfa starfsfólk betur. Gefa þyrfti
skýr skilaboð um að allur þjófnaður
væri kærður til lögreglu.
Adrian Beck, breskur sérfræðing-
ur, var aðalfyrirlesari fundarins.
Hann sagði við Morgunblaðið að ís-
lenskir verslunareigendur þyrftu að
ráðast gegn þessum vanda með
markvissum hætti, þetta snerist ekki
eingöngu um þjófnað úr verslunum.
Í mörgum löndum hefði tekist að
draga úr rýrnuninni en í Evrópu
væri hlutfallið almennt talið vera
kringum 1,8% af tekjum verslana.
Rýrnunin 3-4 milljarðar
Morgunblaðið/Eggert
Rýrnun Beðið er eftir nýrri rannsókn um rýrnun hér á landi en síðasta
rannsókn sýndi að starfsmenn hnupluðu alveg eins og viðskiptavinir.
POLIMOON ASA hefur tilkynnt að
nafni félagsins hafi verið breytt í
Promens, nafn móðurfélagsins. Seg-
ir í tilkynningu að nafnabreytingin
marki tímamót í samþættingu félag-
anna, sem hófst þegar Promens
keypti Polimoon í desember 2006.
Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri
Promens, segir í tilkynningu að sam-
eining undir einu nafni sé einfaldasta
aðferðin til að koma til skila kost-
unum við sameiningu Polimoon og
Promens. Promens hafi náð að skapa
sér sterka ímynd á skömmum tíma
og sú ímynd muni styrkjast enn
frekar þegar öll starfsemin fari fram
undir sömu merkjum.
Segir Ragnhildur að Promens hafi
vaxið umtalsvert á undanförnum
tveimur árum og að á þeim tíma hafi
fyrirtækið fært sig inn á nýja mark-
aði. Promens hafi yfir að ráða verk-
smiðjum sem starfi á öllum helstu
framleiðslusviðum plastiðnaðar.
Promens er nú stærsti hverfi-
steypuframleiðandi heims.
Polimoon
verður
Promens
Plastframleiðsla Promens fram-
leiðir fjölda mismunandi plastafurða.
VIRÐI innfluttra vara í október nam
34,9 milljörðum króna samanborið
við 28 milljarða í september og hefur
virði innfluttra vara ekki verið meira
í einum mánuði síðan í júlí á síðasta
ári, þegar innflutningur fjárfestinga-
vara var í hámarki. Kemur þetta
fram í Vefriti fjármálaráðuneytisins,
en um bráðabirgðatölur er að ræða.
Í október voru fluttar út vörur að
andvirði um 28,4 milljarða, sem er
einnig töluverð aukning frá fyrri
mánuði þegar útflutningur nam 18,1
milljarði.
Vöruskiptahalli í október nam því
um 6,5 milljörðum króna og segir í
vefritinu að nokkuð sé því að draga
úr hallanum frá því að hann náði há-
marki sínu á síðasta ári. Gerir ráðu-
neytið ráð fyrir því að þessi þróun
haldi áfram samfara auknum út-
flutningi á áli.
Hvað varðar innflutning í október
var aukningin mest í innflutningi á
hrá- og rekstrarvörum, en innflutn-
ingur á þessum vörum var með
minnsta móti í september. Þá varð
einnig nokkur aukning á innflutningi
á fjárfestingarvörum og hlutum til
þeirra á milli mánaða.
Vöruskipta-
halli að drag-
ast saman
♦♦♦
www.ellingsen.is
TB
W
A
\R
EY
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is • Póstsendum um allt land
Tryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630
Opið mánud.–föstud. 10–18 og laugard. 10–16
Hækkaðu hitastigið
með Columbia
Kuldinn bítur þig ekki í þessari eðalflík.
Columbia er eitt af stærstu fyrirtækjum heims á
sínu sviði, með næstum 70 ára reynslu í þróun
og framleiðslu á útivistarfatnaði og skóm.
Endingargóðar og afburðavel hannaðar vörur
sem enginn verður svikinn af.